
Sauðfé

Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum
Það er í mörgu að snúast hjá sauðfjárbændum þessa dagana því nú stendur sauðburður yfir í fjárhúsum landsins. Tveir svartir hrútar komu í heiminn þegar fréttamaður heimsótti fjárbú á Rangárvöllum.

Ótrúlega oft ekið á búfé á Suðurlandi
Varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi hefur verulegar áhyggjur af því hvað ekið er mikið á búfé í umdæminu með tilheyrandi skemmdum á bílum og dauðum skepnum, aðallega sauðfé. Á árunum 2014 til 2024 var ekið 1550 sinnum á búfé með tilheyrandi tjónum.

Fækkað um sex hundruð í aðgerðum MAST
Matvælastofnun hefur lokið aðgerðum á sauðfjárbúi í Borgarfirði vegna ítrekaðra brota á velferð dýra og ábúendur höfðu endurtekið ekki orðið við kröfum um úrbætur með fullnægjandi hætti. Alls hefur kindum verið fækkað um sex hundruð í aðgerðum stofnunarinnar.

Skjalafals vegna inn- og útflutnings katta kært til lögreglu
Tvö mál komu upp í árslok þar sem einstaklingar urðu uppvísir að því að falsa pappíra til að annars vegar flytja inn kött og hins vegar flytja þrjá ketti úr landi.

Prjóna ullarsokka fyrir hermenn í Úkraínu
Hópur kvenna á Suðurlandi vinnur nú hörðum höndum þessa dagana við að prjóna ullarsokka fyrir hermenn í Úkraínu eftir að ósk barst frá hermönnunum um hlýja og góða sokka. Stefnt er að því að senda um hundrað pör af sokkum til Úkraínu um miðjan næsta mánuð.

Jólakindin Djásn á Stokkseyri
Kindinni Djásn á Stokkseyri þykir fátt skemmtilegra en að láta skreyta sig með allskonar jólaskrauti og kippir sér ekkert upp við það þegar skrautið er sett á hana.

Kindurnar eru miklu skemmtilegri en sætir strákar
Sautján ára stelpa á Stokkseyri elskar ekkert meira en íslensku sauðkindina enda er hún með um 100 fjár með pabba sínum í þorpinu. Ærin Djásn er í sérstöku uppáhaldi hjá henni.

Steindi, Elliði og Bárður eru í Hrútaskránni
Jólabókin í ár hjá sauðfjárbændum og áhugafólki um íslensku sauðkindina er nú komin út, en það er Hrútaskráin þar sem allir bestu og flottustu hrútar landsins eru kynntir í máli og myndum. Fengitíminn er nú að byrja og því mikið fjör fram undan í fjárhúsum landsins og á sæðingarstöðvum sauðfjárræktarinnar.

Áslaug Arna fékk „elegant“ kind í afmælisgjöf
Sjálfstæðiskonan og ráðherrann Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fagnaði 34 ára afmæli sínu á kosningadag með flokksfélögum sínum og stuðningsmönnum í Sjálfstæðissalnum sem áður var Nasa. Hún fékk einstaka afmælisgjöf frá góðum vinum sem vísaði í ummæli sem Össur Skarphéðinsson lét falla snemma í kosningabaráttunni.

Ekið á sex kindur viku eftir að ekið var á sjö
Ekið var á sex kindur í Öræfasveit í gær. Þetta staðfestir Þorsteinn Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við fréttastofu.

Nýr prófastur ætlar ekki að hætta með kindurnar sínar
Það stendur mikið til í Hrunakirkju í dag skammt frá Flúðum en þá fer fram innsetningarmessa þar, sem séra Óskar Hafsteinn Óskarsson verður settur inn í embætti prófast í Suðurprófastsdæmi af biskupi Íslands. Biskup segist hlakka mikið til fyrir innsetningunni enda ekki sett prófast í embætti áður.

Ók á sjö kindur og drap þær
Sjö kindur drápust um helgina á Suðurlandi þegar var ekið á þær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að frá því á föstudag hafi verið skráð um 150 mál hjá embættinu.

Brá sér frá í sauðburð og kvíðinn ferðamaður flúði
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa féllst ekki á kröfu erlendrar konu, sem kom hingað til lands til að ferðast, um að fyrirtæki sem seldi henni gistingu skyldi endurgreiða henni hluta þess sem hún hafði greitt fyrirtækinu.

Lausir hundar hafi drepið fleiri kindur
Í gær uppgötvaðist að hundar hafi gengið lausir í Borgarfirði og drepið kindur eða flæmt þær úti í skurði. Á bænum Höll í Þverárhlíð fann Grétar Þór Reynisson bóndi níu dauðar kindur í gær og eina helsærða.

Rollubingó og hrútasýning á Flúðum
Allir glæsilegustu hrútar í Hrunamannahreppi komu fram á hrútasýningu á Flúðum þar sem þeir voru þuklaðir í bak og fyrir til að finna út hver væri með bestu lærin, bakið og bringuna. Þá vakti rollubingó sýningarinnar mikla kátínu gesta.

Lopabuxur og geitavesti á tískusýningu í sveitinni
Íslenskar prjónavörur hafa sjaldan eða aldrei verið eins vinsælar og nú, enda rjúka vörurnar út eins og heitar lummur hjá prjónakonum og hönnuðum varanna. Geitaskinnsvesti eru líka að slá í gegn, svo ekki sé minnst á lopabuxur.

Það er töff að vera sauðfjárbóndi
Íslenska sauðkindin er í mikilli sókn um þessar mundir ef marka má áhuga fólks á viðburðum þar sem hún er til sýnis eins og fjárlitasýningu í Rangárþingi ytra.

Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni
Það verður mikið um að vera á Suðurlandi næstu sjö daga þegar íslenska ullin er annars vegar því sérstök ullarvika er að hefjast með fjölbreyttri dagskrá eins og fjárlitasýningu, spunasamkeppni og tískusýningu.

Blöskrar markaðssetning á réttum: „Þetta eru eins og jólin fyrir okkur“
Bóndi lýsir yfir megnri óánægju sinni með markaðsetningu Icelandair á réttum gagnvart ferðamönnum. Réttir séu mikilvægur dagur fyrir alla bændur og því bagalegt ef ekki verður þverfótað fyrir ferðamönnum í almenningnum. Þá sé ekki síst mikilvægt að féð sé meðhöndlað af vönu fólki.

Hefur verið með kindur í Reykjavík í 67 ár
Þrjár konur eru fjallkóngar í smölun og réttum í Grímsnes- og Grafningshreppi enda segir ein af konunum að það smalist miklu betur þegar konur stýra leitum og réttum. Fjárbóndi í Reykjavík, sem hefur verið með kindur í höfuðborginni frá 1957 sótti sitt fé í Grafningsrétt í morgun.

Engin væll í sunnlenskum sauðfjárbændum
Fjallkóngur Tungnamanna segir að lömbin hafa sjaldan eða aldrei komið eins falleg af afrétti eins og í ár. Réttað var í Tungnaréttum í gær þar sem fjögur þúsund fjár komu til réttanna og mörg hundruð manns mætt til að taka þátt í réttarstörfum.

Staða sauðfjárræktarinnar er björt segir fjallkóngur
„Lömbin koma væn af fjalli og eru harðholda “segir fjallkóngur Hrunamanna en réttað var í Hrunaréttum Í Hrunamannahreppi í dag og í Skaftholtsréttum í Skeiða og Gnúpverjahreppi.

Hrútaþukl á Íslandsmeistaramóti í hrútadómum
Það verður mikið um að vera á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum í dag því þar fer fram Íslandsmeistaramót í hrútadómum. Keppt verður í tveimur flokkum, vanra hrútaþuklara og óvanra þuklara.

Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi
Töluverð umferð hefur verið í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi það sem af er helgi. Lögreglan segir að borið hafi á því að ekið sé á sauðfé í umdæminu.