Atvinnurekendur

Fréttamynd

Ekki rétt sem Halla segir

Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA segir ekki rétt að SA og fyrirtækin sem þau eru í forsvari fyrir hafi ekki komið til móts við stéttarfélögin í þeirri von um að halda kjarasamningum. Forsvarsfólk VR, Rafiðnaðarsambands Íslands og Fagfélaganna funda nú með SA. Félögin hafa heimild til þess að rifta kjarasamningum en frestur til þess að gera það rennur út klukkan 16. 

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún reyni að hafa milli­göngu í deilunni

Forsætisráðherra hefur reynt að hafa milligöngu um lausn í kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins, að sögn Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR. Hún segir viðleitnina vel metna en stöðuna enn óbreytta. Verið sé að prenta út og undirrita skjöl vegna uppsagna kjarasamninga.

Innlent
Fréttamynd

Kjaravaktin: Sam­komu­lag í höfn á elleftu stundu

Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjögur í dag eða í þann mund sem frestur til að segja þeim upp vegna forsendubrests rann út. Vísir fylgist með þróun mála í fréttavakt.

Innlent
Fréttamynd

Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“

„Það hefur alltaf legið fyrir af okkar hálfu að við værum ekki tilbúin til þess að festa okkar fólk inni í áframhaldandi launalækkunum.“ Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sem hyggst slíta kjarasamningum í dag.

Innlent
Fréttamynd

Sam­þykktu að slíta kjara­samningum

Stjórn VR hefur ákveðið að slíta kjarasamningum á morgun. Formaðurinn segir að samningar myndu þá renna út í lok mánaðar en þetta geti haft í för með sér að opinberu stéttarfélögin megi einnig segja upp sínum samningum.

Innlent
Fréttamynd

Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun

Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu.

Innlent
Fréttamynd

Fundur VR og SA hafinn

Fulltrúar VR og Rafiðnaðarsambands Íslands eru mættir í húsakynni ríkissáttasemjara til að funda með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, sem voru örlítið seinir.

Innlent
Fréttamynd

Uggandi yfir af­stöðu VR

Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fram­lengja samninga út næsta ár

Starfsgreinasamband Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn hafa gert samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga. Samkomulagið felur í sér að kjarasamningar halda gildi sínu út næsta ár og var skrifað undir það í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Segja boltann hjá stjórn­völdum

Á meðan fulltrúar verkalýðsfélaga bíða eftir að Samtök atvinnulífsins mæti á sinn fund bíða fulltrúar SA eftir viðbrögðum frá stjórnvöldum. Framkvæmdastjóri SA segir deiluna stranda á nýju forsenduákvæði.

Innlent
Fréttamynd

Bíði og bíði eftir Bjarna

Það virðist vera langt á milli húsa í Borgartúninu, að sögn formanns VR, sem segist hafa beðið eftir því að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mæti til fundar í karphúsinu frá því klukkan 13.

Innlent
Fréttamynd

Hafna á­sökunum um svik og benda á stjórn­völd

Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífisins hafna öllum ásökunum um svik. Þau hafi staðið að fullu við gerða samninga og kalla forsvarsmennirnir eftir því að umræðan um kjaramálin byggi á staðreyndum og gagnkvæmri virðingu.

Innlent
Fréttamynd

SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp

Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og Fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif.

Innlent
Fréttamynd

Á­kveða í kvöld hvort kjara­samningum verði sagt upp

Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Munu ekki sam­þykkja frekari hækkun launa

Stjórn Samtaka atvinnulífsins vill að núverandi kjarasamningar haldi út samningstímann. Það sé farsælast fyrir þróun verðlags og vaxta. Hins vegar hafna þau viðbrögðum við forsendubresti kjarasamninganna sem feli í sér frekari kostnaðarauka.

Innlent
Fréttamynd

Muni grípa til nauð­syn­legra að­gerða vegna verk­fallsins

Fjármála- og efnahagsráðherra segir boðað verkfall flugvirkja myndu hafa mikil áhrif á ferðaþjónustuna, fjölda annarra atvinnugreina og ferðafrelsi þjóðarinnar. Ríkisstjórnin fylgist vel með stöðunni og muni grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma.

Innlent
Fréttamynd

Út­litið ekki allt of gott í kjara­deilu flug­virkja

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir útlitið ekki gott með tilliti til yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Icelandair hafi lagt til að gerðardómsleið verði farin í deilunni en ekkert hafi verið ákveðið. Verkfall myndi hafa áhrif á þúsundir ferðamanna. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Blása á gagn­rýni og opna daga­talið

Forsætisráðuneytið blæs á gagnrýni formanns Starfsgreinasambandsins, sem segist ekkert kannast við þríhliða samtal ríkis og aðila vinnumarkaðar um brostnar forsendur kjarasamninga. Fundir stýrihóps séu þegar orðnir þrettán talsins, forsætisráðherra hafi setið nokkra fundi með ASÍ og SA og málið hafi verið það eina á dagskrá á tveimur fundum þjóðhagsráðs.

Innlent
Fréttamynd

Blóm­leg ferða­þjónusta skilar sér heim til ís­lenskra sam­fé­laga

Ferðaþjónustan hefur á skömmum tíma orðið stærsta og umfangsmesta atvinnugrein landsins. Henni fylgdu ákveðnir vaxtaverkir sem birtust meðal annars í hröðum vexti ferðamanna og innviðaskuld. Ég tel hins vegar að vel hafi tekist til við að mæta þeim áskorunum sem komu upp á þessum uppvaxtarárum og það hefur í raun verið ótrúlegt að fylgjast með uppbyggingu ferðaþjónustunnar, þá sérstaklega á landsbyggðinni.

Skoðun
Fréttamynd

Segir styttast í niður­stöður sam­ráðs vegna kjara­samninga

Eftir verðbólgutíðindi gærdagsins er ljóst að forsendur kjarasamninga eru brostnar og heimild til að segja þeim upp virkjast 1. september. Fjármála- og efnahagsráðherra segir stjórnvöld hafa unnið að því síðan í vor, ásamt aðilum vinnumarkaðarins, að reyna að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið verði nýtt. Nú sé mjög stutt í að aðgerðir verði kynntar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Al­var­lega staða kalli á sam­eigin­legt á­tak

Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár og mælist nú 5,6 prósent. Þar með eru forsendur til að segja upp kjarasamningum um næstu mánaðamót. Forsvarsmenn Starfsgreinasambandsins og Samtaka iðnaðarins segja stöðuna alvarlega og kalla eftir sameiginlegu átaki stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins til að ná tökum á verðbólgu og vöxtum

Innlent