ÍSÍ

Rafíþróttir skilgreindar sem íþróttir á norðurlöndunum en ekkert svar frá ÍSÍ
Aron Ólafsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasamtaka Íslands, RÍSÍ, furðar sig á því að á meðan íþrótta- og ólympíusambönd Svía og Finna séu farin að skilgreina rafíþróttir sem íþróttir þar í landi fái hann engin svör við fyrirspurnum sínum til ÍSÍ.

„Það á að taka á því sem ólöglegt er á Íslandi“
Íþróttasamband Íslands hefur miklar áhyggjur af ólöglegum veðmálafyrirtækjum sem starfi hér á landi. Áætlað er að 20-30 milljarðar króna fari til slíkra fyrirtækja á hverju ári og mikilvægt að stjórnvöld spyrni við fótum.

Íþróttahreyfingin missir hundruð milljóna í viðgerðir á húsnæði ÍSÍ
Húsnæði ÍSÍ í Laugardalnum er eign íþróttahreyfingarinnar. Húsnæðisþörf sambandsins hefur aukist og nú liggur fyrir að fara verður í dýrar viðhaldsframkvæmdir ef ekki á illa að fara fyrir fasteignum sambandsins. Þær munu kosta hundruð milljóna.

Kynjahlutföllin í framkvæmdastjórn ÍSÍ taka miklum breytingum
Kosningar til sjö meðstjórnenda í framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands fóru fram á íþróttaþingi sambandsins um helgina. Fimm konur og tveir karlar fengu brautargengi í kosningunni og voru kynjahlutföll í framkvæmdastjórninni því jöfnuð.

Vonsvikinn Hannes ætlar í stjórn ÍSÍ
Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands, er á meðal þeirra níu frambjóðenda sem sækjast eftir sæti í framkvæmdastjórn Íþrótta- og ólympíusambands Íslands um helgina. Kosið verður á Íþróttaþingi ÍSÍ á Ásvöllum.

Teitur um ákvörðun ÍSÍ: Mesta kjaftshögg sem karfan hefur fengið síðustu áratugi
Teitur Örlygsson hélt eldræðu um framtíð íslenska körfuboltans í gær en þessi mesti sigurvegari sögunnar hefur miklar áhyggjur af rekstrarumhverfi íslensku landsliðanna í körfubolta.

ÍSÍ og ÍF mótmæla mögulegri þátttöku Rússa og Hvít-Rússa
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, og Íþróttasamband fatlaðra, hafa ásamt sams konar samböndum á Norðurlöndum sent frá sér yfirlýsingu í tengslum við umræðu um mögulega endurkomu rússnesks íþróttafólks til keppni í alþjóðlegum mótum.

„Reglugerð er aldrei sanngjörn gagnvart öllum aðilum“
Körfuknattleikssamband Íslands fær 15 milljónum króna í sitt afreksstarf í ár en í fyrra, og Knattspyrnusamband Íslands hefur ekki fengið krónu úr Afrekssjóði ÍSÍ síðan árið 2017. Framkvæmdastjóri ÍSÍ viðurkennir að þörf sé á að endurskoða reglur um úthlutun úr Afrekssjóði.

ÍSÍ neyði landsliðið úr undankeppni EM
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hefur aldrei verið eins nálægt sæti á heimsmeistaramóti og er það landslið Íslands sem er næst því að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í París 2024. Útlit er hins vegar fyrir að liðið verði ekki með í undankeppni næsta Evrópumóts nema ÍSÍ taki í taumana, samkvæmt formanni Körfuknattleikssambands Íslands.

Enn fær KSÍ ekki krónu úr Afrekssjóði: „Þetta var blaut tuska í andlitið“
„Við erum fátæk við hliðina á öðrum knattspyrnusamböndum,“ segir Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður knattspyrnusviðs Knattspyrnusambands Íslands. Hann furðar sig á þeirri ákvörðun að sjötta árið í röð fái KSÍ ekki krónu úr Afrekssjóði Íþrótta- og ólympíusambands Íslands.

HSÍ fær langmest úr Afrekssjóði ÍSÍ
Handknattleikssamband Íslands fær hæstu upphæðina úr Afrekssjóði ÍSÍ en tilkynnt var um úthlutun sjóðsins í dag. Alls úthlutar Afrekssjóðurinn meira en 500 milljónum til sérsambanda fyrir árið 2023.

Vésteinn lenti í kulnun: „Endurheimti manneskjuna á bakvið þjálfarann“
Vésteinn Hafsteinsson fór í kulnun fyrir hálfu ári. Það hafði áhrif á ákvörðun hans að flytja heim til Íslands og taka við starfi afreksstjóra ÍSÍ.

„Við getum verið best í heimi“
Tímamótasamningur var undirritaður í Gautaborg í dag en hann er ætlaður til að styðja við bakið á afreksíþróttafólki á Íslandi. Vésteinn Hafteinsson mun flytja heim til Íslands og leiða verkefnið.

Vésteinn flytur heim og verður afreksstjóri ÍSÍ
Mennta- og barnamálaráðuneytið og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands skrifuðu í dag undir samstarfssamning um stefnumörkun og uppbyggingu afreksíþróttastarfs á Íslandi.

ÍSÍ hafi sent annan texta en var lesinn upp á hófinu
Sigurbjörn Árni Arngrímsson, skólastjóri Framhaldsskólans á Laugum og frjálsíþróttasérfræðingur, kveðst gáttaður á því hvernig Guðrún Arnardóttir var kynnt til leiks sem nýjasti meðlimur heiðurshallar ÍSÍ í gærkvöld.

Guðrún Arnardóttir útnefnd í Heiðurshöll ÍSÍ
Guðrún Arnardóttir frjálsíþróttakona var í gær útnefnd í Heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Hún er 24. einstaklingurinn til að hljóta þennan heiður en útnefningin var samþykkt samhljóða á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ 24. nóvember síðastliðinn.

Guðrún Arnardóttir tekin inn í Heiðurshöll ÍSÍ
Frjálsíþróttakonan Guðrún Arnardóttir var í kvöld tekin inn í Heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Guðrún er 24. manneskjan sem tekin er inn í höllina.

Íþróttaeldhugi ársins verðlaunaður í fyrsta sinn
Samhliða kjöri á Íþróttamanni ársins þann 29. desember næstkomandi mun Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, ÍSÍ, standa fyrir þeirri nýbreytni að útnefna Íþróttaeldhuga ársins úr röðum sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni.

Fimmfaldur Íslandsmeistari ráðinn inn á skrifstofu ÍSÍ
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur ráðið í tvær stöður á skrifstofu sambandsins en það er ný staða rekstrarstjóra og staða sérfræðings í kynningarmálum á skrifstofu ÍSÍ.

Afreksstefnuleysi stjórnvalda
Vorið 2021 samþykkti Alþingi tillögu mína um að mótuð yrði stefna fyrir afreksfólk í íþróttum, í samvinnu við Íþrótta- og ólympíusamband Íslands og sveitarfélög landsins. Sömuleiðis átti að tryggja fjárhagslegan stuðning við afreksfólk. Þessa stefnu átti ráðherra að leggja fram á þingi eigi síðar en 1. júní í ár.

Ísland lendir ekki í sömu lyfjakrísu og Noregur
Íslenskt íþróttafólk á ekki á hættu að verða bannað frá alþjóðlegum stórmótum vegna þess að staðið sé að lyfjaeftirliti með ófullnægjandi hætti. Sú hætta blasir við norsku íþróttafólki.

Segir framkvæmdastjóra ÍSÍ ekki segja rétt frá
Emilía Rós Ómarsdóttir íþróttakona segir ÍSÍ reyna að afsala sér allri ábyrgð í hennar máli ef marka megi umfjöllun á vef Ríkisútvarpsins. Hún gagnrýnir orð stjórnenda ÍSÍ og segir að rétt skuli vera rétt.

ÍSÍ ályktar vegna umræðu um þjóðarleikvanga: „Algerlega óásættanlegt“
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, ÍSÍ, sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í dag vegna umræðu um framtíð þjóðarleikvanga fyrir landslið Íslands.

Hæsta úthlutun Afrekssjóðs frá upphafi og HSÍ fær hæsta styrkinn
Afrekssjóður ÍSÍ úthlutaði sérsamböndum afreksstyrki upp á samtals 543 milljónir króna. Um er að ræða hæstu úthlutun Afrekssjóðs frá upphafi en hún hækkar um 28 milljónir milli ára.

Einar Vilhjálmsson vígður inn í Heiðurshöll ÍSÍ
Fyrrum spjótkastarinn Einar Vilhjálmsson var rétt í þessu vígður inn í Heiðurshöll ÍSÍ. Einar er fæddur árið 1960 en hann gerði garðinn frægan á níunda og tíunda áratug síðustu aldar.

Andri ráðinn framkvæmdastjóri ÍSÍ
Andri Stefánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Andri tekur við starfinu af Líneyju Rut Halldórsdóttur sem lét af störfum fyrr á þessu ári eftir fjórtán ára starf. Greint er frá ráðningunni í tilkynningu frá ÍSÍ.

Sex nýir heiðursfélagar ÍSÍ
75. Íþróttaþing ÍSÍ fór fram í Reykjavík í gær.

Örn og Haukur Clausen útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ í dag
Tvíburabræðurnir og frjálsíþróttamennirnir Örn og Haukur Clausen voru útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ á framhaldsþingi 75. íþróttaþings ÍSÍ í dag. Þeir eru 21. og 22. einstaklingurinn sem hljóta útnefningu í hina óáþreifanlegu höll afreksíþróttafólks og afreksþjálfara Íslands.

Segir ekkert því til fyrirstöðu að frjálsar íþróttir fái eigin þjóðarleikvang í Laugardal
„Með því að frjálsar hafi ekki pláss lengur á Laugardalsvelli þá þurfum við nýjan leikvang,“ sagði Freyr Ólafsson, formaður Frjálsíþróttasamband Íslands í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld.

Hafrún, Kjartan og Rán skoða viðbrögð KSÍ
Kjartan Björgvinsson héraðsdómari mun gegna formennsku í þriggja manna nefnd á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands sem ætlað er að gera úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð Knattspyrnusambands Íslands vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands.