„Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Alþingi verður sett í næstu viku og fulltrúar flokkanna hituðu upp fyrir þingveturinn í Pallborðinu í dag. Þar voru þeir beðnir um að spá fyrir um stærsta mál vetrarins og það umdeildasta. Nokkur mál voru nefnd. Þingflokksformaður Miðflokks varar við breytingum á sakamálalögum en viðurkennir að mótmæli í slíkum efnum séu ekki líkleg til vinsælda. Innlent 3.9.2026 17:32
Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Pólitíkin lifnar við í næstu viku þegar Alþingi verður sett. Gera má ráð fyrir líflegum þingvetri og við ætlum að hita upp með fulltrúum allra þingflokka í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi klukkan 14. Innlent 3.9.2026 12:58
Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Það gæti orðið minni munur á milli Já og Nei þegar talið verður upp úr kjörkössunum á laugardaginn heldur en skoðanakannanir benda til núna, að mati stjórnmálafræðings. Skoðanakannanir benda til þess að úrslitin verði hnífjöfn, svo jöfn að örfá atkvæði gætu skilið að. Dæmi frá Bretlandi og Bandaríkjunum sýni að fylgi annarrar hliðar geti verið vanmetin. Innlent 28.8.2026 07:01
Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Möguleg Evrópusambandsaðild var rædd frá sjónarhorni ungs fólks í Pallborðinu á Vísi í dag. Þátttakendur minntust meðal annars á hvað myndi gerast yrði íslenskur efnahagur fyrir áfalli og stöðu landbúnaðar. Innlent 20. ágúst 2026 22:01
„Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Nei-arar kölluðu „Já til að sjá“ markaðsbrellu í það minnsta þrisvar sinnum á nokkrum mínútum þegar fulltrúar já- og nei-hliðarinnar mættust í Pallborði þar sem ungt fólk var í brennidepli. Já-ari sagði sérfræðinga tala í kross og það væri eflaust mörgu ungu fólki sem fyndist það vera bestu útkomuna úr atkvæðagreiðslunni í lok ágúst að fá að sjá með eigin augum hvað fælist í samningi. Innlent 20. ágúst 2026 15:34
Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Ungt fólk verður í brennideplinum í Pallborðinu á Vísi í dag. Húsnæðismál, atvinnuleysi, efnahagsmál og fleiri mál verða rædd með það að markmiði að ungt fólk sé einhverju nær um hvað það á að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi. Innlent 20. ágúst 2026 12:21
Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Hart var tekist á um kostnað Íslands við mögulega ESB-aðild í Pallborðinu á Vísi í dag. Áfram Ísland segir árlegan kostnað geta numið fimmtíu milljörðum króna en fulltrúar já-hreyfinganna hafna þeirri tölu alfarið og segja villandi að setja hana fram án þess að mögulegur ávinningur sé tekinn með. Innlent 18. ágúst 2026 23:30
Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar. Innlent 18. ágúst 2026 21:03
Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Þrýst var á fulltrúa fjögurra hreyfinga að opna bókhaldið, með misjöfnum árangri, í Pallborðinu. Já til að sjá gerir ráð fyrir að eyða allt að 75 milljónum en fátt var um svör frá Áfram Íslandi. Andstæðingar samtakanna áætla að þau hafi úr allt að 300 milljónum að spila. Innlent 18. ágúst 2026 17:11
Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Fréttastofa Vísis verður reglulega með Pallborð fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fyrsta Pallborðið fór fram klukkan 14 í dag þar sem fulltrúar tveggja já-hreyfinga og tveggja nei-hreyfinga tókust á um helstu álitaefni Evrópuumræðunnar. Innlent 18. ágúst 2026 10:59
Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Það sem ég er kannski að segja er þetta: Þeir sem eru þeirrar skoðunar að Ísland eigi ekki að ganga í Evrópusambandið, þeir segja auðvitað nei og ég er þeirrar skoðunar, en ég vil meina að já þýði já. Það liggur alveg fyrir hvað felst í aðild að Evrópusambandinu.“ Innlent 26. júlí 2026 16:00
Hart tekist á um ESB Eins og lýðum má ljóst vera ganga Íslendingar að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi til að taka afstöðu til þess hvort stjórnvöld eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Málið er afar umdeilt en menn virðast ekki einu sinni geta komið sér saman um það hvort um eiginlegar samningaviðræður sé að ræða. Innlent 23. júlí 2026 16:26
Pallborðið: Nei eða já? Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi, til að taka afstöðu til þess hvort stjórnvöld eiga að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ljóst er að málið er afar umdeilt en menn virðast ekki einu sinni getað komið sér saman um það hvort um eiginlegar samningaviðræður er að ræða. Mál málanna verður krufið í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi. Innlent 23. júlí 2026 10:55
„Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Fulltrúar framboðanna í Kópavogi, næststærsta sveitarfélaginu, sjö talsins, mættust í Pallborði Sýnar í gær og þar skópust fjörugar umræður. Meðal annars var tekist á um hina svokölluðu Reykjavíkur-Grýlu en Kópavogsbúar vilja ekki láta kenna sig við höfuðborgina. „Kópavogsbúar eru stoltir,“ sagði bæjarstjórinn. Oddvitar tveggja stærstu flokkanna voru um fæst sammála. Innlent 6. maí 2026 11:46
Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Oddvitar þeirra sjö flokka sem keppast um ellefu sæti í bæjarstjórn Kópavogs mættust í Pallborðinu á Vísi í dag. Snemma í þættinum var splunkuný Maskínukönnun sýnd og við fengum viðbrögð oddvitanna við henni. Innlent 5. maí 2026 11:12
Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Regnbogafánar og lausaganga flokksgæðinga komu við sögu þegar oddvitar flokkanna sex sem bjóða fram fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði mættust í fjörugum umræðum við kosningapallborð fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í gær. Skotið var á oddvita fyrir brotthvarf úr ráðherrastól fyrir rúmlega þrjátíu árum. Innlent 30. apríl 2026 07:00
Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina. Oddvitar sex framboðslista sem bjóða fram í Hafnarfirði koma saman í kosningapallborði fréttastofu klukkan tvö í dag á Vísi til að ræða helstu málefni sem eru undir í kosningunum. Þá verður ný skoðanankönnun birt um fylgi flokkanna. Innlent 29. apríl 2026 10:05
Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Garðabæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar tókust á í kosningapallborði fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í dag. Innlent 21. apríl 2026 20:25
Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og eins og stendur eru þrjár vikur þangað til landsmenn ganga til kosninga. Við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina og því munu oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Garðabæ koma saman í kosningapallborði fréttastofu til að ræða þau helstu málefni sem eru undir í kosningunum. Innlent 21. apríl 2026 11:57
Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Oddvitar flokkanna í Reykjanesbæ höfðu ekki um margt að rífast. Þau voru sammála um að starfsfólk sveitarfélagsins væri harðduglegt, það hafi tekið á vanda sem ríkið velti yfir á sveitarfélagið – að því forspurðu – á kassann, greitt þar úr og leyst. Innlent 14. apríl 2026 16:51
Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Nú þegar fjórar vikur og fjórir dagar eru til sveitarstjórnarkosninga blásum við á fréttastofunni til kosningapallborðs þar sem oddvitar Reykjanesbæjar munu eiga sviðið. Innlent 14. apríl 2026 12:46
Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar tókust á í fyrsta kosningapallborði fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar áðan. Þeir eru allir karlar sem má heita nýtt í sveitarstjórnarmálum á Íslandi. Innlent 8. apríl 2026 17:27
Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar mæta í fyrsta kosningapallborð fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar á slaginu 14.00 í dag. Innlent 8. apríl 2026 13:43
Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar. Innlent 12. febrúar 2026 16:50