John Snorri á K2

Myndir ársins 2021: Faraldur, fegurð og -hamfarir
Ljósmyndarar og myndatökumenn fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fönguðu margt dýrmætt augnablikið í ár, eins og þeim einum er lagið. Sigrar og sorgir voru fest á filmu og í mörgum tilvikum sannaðist það fornkveðna; að mynd segir meira en þúsund orð.

John Snorri reyndi hið fáránlega til að takast hið ómögulega
„Til að takast hið ómögulega verður maður að reyna hið fáránlega“. Þessi speki spænsks rithöfundar voru einkunnarorð John Snorra Sigurjónssonar fjallgöngukappa. Orð sem áttu vel við hjá manni sem vann endurtekið afrek sem okkur hinum fannst ótrúleg.

Telur að lykkja á línu John Snorra hafi reynst örlagarík
Úkraínski fjallgöngugarpurinn Valentyn Sypavin telur að John Snorri Sigurjónsson hafi lent í eins konar sjálfheldu eftir að línan sem hann hékk í á niðurleið niður K2 hafi verið föst í lykkju. Hann telur ólíklegt að John Snorri hafi haft þrek til þess að koma sér úr þessum aðstæðum.

Síðasta myndin úr vél Johns Snorra
Síðasta myndin úr GoPro-myndavél Johns Snorra Sigurjónssonar, sem hann var með á sér á K2 þegar hann fórst þar í byrjun febrúar, hefur verið birt á netinu. Sajid Sadpara, sonur Ali Sadpara, sem fórst með John í leiðangrinum, náði GoPro-myndavélinni úr jakka Johns þegar hann fann lík göngumannanna á mánudaginn var.

Fundu síma og tækjabúnað Johns Snorra
Sími, myndavél og staðsetningarbúnaður göngugarpsins John Snorra hefur nú fundist. Þessu greinir félagi Johns Snorra frá á Twitter-síðu sinni.

Telja John Snorra hafa náð toppi K2
Leitarmenn sem fundu lík John Snorra Sigurjónssonar og Ali Sadpara fyrir ofan fjórðu búðir á K2 á mánudag telja að þeir félagar hafi náð toppi fjallsins áður en þeir létust. Frá þessu er greint á minningarreikningi Sadpara á Twitter.

Fjölskylda Johns Snorra þakkar hlýhug
Fjölskylda Johns Snorra segir að ákveðinni óvissu hafi nú verið eytt um afdrif þeirra Johns Snorra Sigurjónssonar, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr á fjallinu K2 þann fimmta febrúar síðastliðinn. Leitin að þeim hefur nú borið árangur þar sem líkamsleifar þeirra fundust í gær.

Líkin of hátt uppi til að vera sótt með þyrlum
Stefnt er að því að sækja það sem talið er vera lík fjallgöngumannsins John Snorra Sigurjónssonar af K2 við fyrsta tækifæri. Hópurinn sem fann líkið var kominn hærra en nokkur annar hópur hafði komist frá því í febrúar, þegar John Snorri og félagar hans misstu samband og voru í kjölfarið taldir af.

Hafa fundið þriðja líkið á K2
Hópur göngumanna, sem staddur er á K2, hefur fundið þriðja líkið fyrir ofan fjórðu búðir K2 í dag. Samkvæmt frétt Explorers Web eru líkin af John Snorra Sigurjónssyni, Juan Pablo Mohr og Ali Sadpar sem fórust á K2 í febrúar.

Telja sig hafa fundið lík Johns Snorra og Sadpara á K2
Tvö lík hafa fundist fyrir ofan fjórðu búðirnar á K2, á þeim slóðum sem John Snorri Sigurjónsson og samferðamenn hans týndust í febrúar síðastliðnum. Staðfest hefur verið að annað líkanna er af Ali Sadpara, samferðamanni Johns Snorra.

Leitin að John Snorra og samferðamönnum mikil áskorun
Elia Saikaly, kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem vann að gerð heimildarmyndar um leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans á K2, segir það mikla áskorun að standa í leitarleiðangri upp á fjallið og framleiða heimildarmynd á sama tíma. Hann er nú á leið upp fjallið til að leita að John Snorra og samferðamönnum hans.

Hefja leit að John Snorra og Sadpara
Sonur Sajid Sadpara sem fórst á K2 með John Snorra Sigurjónssyni í vetur og kanadísku vinur þeirra eru komnir til Pakistan til þess að hefja leit að líkum þeirra á fjallinu.

Útför Johns Snorra frá Vídalínskirkju
Útför Johns Snorra Sigurjónssonar fjallgöngumanns verður frá Vídalínskirkju í Garðabæ klukkan 13 í dag.

Útför Johns Snorra í næstu viku
Útför Johns Snorra Sigurjónssonar fjallgöngumanns verður þriðjudaginn 22. júní. Lína Móey eiginkona hans greinir frá þessu í færslu á Facebook.

Johns Snorra minnst á toppi Everest
Fjallagöngugarpurinn Colin O'Brady hélt í gær tilfinningaþrungna minningarathöfn til heiðurs fallinna félaga sinna.

Vill snúa aftur á K2 í sumar til að aðstoða við leit
Fjallgöngumaðurinn Noel Hanna hefur boðið fram aðstoð sína ef farið verður í leitarleiðangur á K2 í sumar. Hanna ætlaði sér að komast á topp fjallsins í síðasta mánuði en sneri við þegar veður fór versnandi, skömmu áður en síðast spurðist til John Snorra og félaga hans.

Lýstu John Snorra leiðina heim við Vífilsstaðavatn
Ljósa- og bænastund til minningar um fjallgöngumanninn John Snorra Sigurjónsson sem fórst á fjallinu K2 í Pakistan var haldin við Vífilsstaðavatn í kvöld.

Minnast Johns Snorra við Vífilsstaðavatn í kvöld
Vinir og vandamenn Johns Snorra Sigurjónssonar ætla að hittast við Vífilsstaðavatn í kvöld klukkan 19:30 í þeim tilgangi að biðja og eiga samverustund. Eftir bænastund sem leidd verður af Jónu Hrönn Bolladóttur presti stendur til að mynda hring um vatnið með höfuð og vasaljósum.

Hafnar öllum ásökunum um misgjörðir á K2
Nepalski fjallgöngumaðurinn Mingma Gyalje, sem ásamt hópi samlanda sinna náði fyrstur á tind K2 að vetrarlagi í janúar, fann sig í gær knúinn til að svara ásökunum gegn hópnum um ýmislegt misjafnt á leið á toppinn. Hann þvertekur meðal annars fyrir að hópurinn hafi skorið á klifurlínur í grennd við tindinn, sem fjallagarpar nota sér til aðstoðar á klifri sínu.

Bænastund fyrir John Snorra og félaga frestað vegna veðurs
Bænastund fyrir John Snorra Sigurjónsson, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr við Vífilsstaðavatn hefur verið frestað fram á þriðjudagskvöld vegna slæmrar veðurspár. Bænastundin átti að fara fram annað kvöld til þess að biðja fyrir félögunum.