Matur

Matur

Girnilegar uppskriftir úr öllum áttum og fréttir tengdar mat.

Fréttamynd

Að­skota­hlutur fannst í kanilsykurspoka

Lífland ehf. hefur ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla Kanilsnúðaköku frá Kornax. Ástæða innköllunar er að aðskotahlutur, nánar tiltekið plaststykki, fannst í kanilsykurspoka sem fylgir með Kanilsnúðakökunni.

Neytendur

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hvað veistu um… pitsur?

Pitsa, eða pizza, er einn vinsælasti réttur heims og á uppruna sinn á Ítalíu þar sem nútímapizzan tók á sig mynd á 18. og 19. öld.

Lífið
Fréttamynd

Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið?

Í síðustu viku hélt hópur fornleifafræðinga til afskekktrar eyjar í Kyrrahafi. Vonuðust þeir til að leysa eina stærstu ráðgátu flugsögunnar: Hvað varð um Ameliu Earhart, sem hvarf sporlaust árið 1937 er hún reyndi að fljúga umhverfis jörðina? Unnendur hulinna leyndardóma þurfa þó ekki að örvænta. Dularfullur hlutur, sem hafði sést á gervihnattarmynd af lóni á eyjunni, reyndist ekki vera flugvél heldur trjábolir.

Lífið
Fréttamynd

Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi

Eiginmaður minn fór á pöbbinn nýverið til að horfa á fótboltaleik. Svo að hann sæi á sjónvarpsskjáinn þurfti hann að horfa til hliðar allt kvöldið. Liðið hans vann. Hann hefur hins vegar ekki getað snúið höfðinu fram síðan.

Lífið
Fréttamynd

Hægst á verð­hækkun á mat­vöru

Hægst hefur á verðhækkun á matvöru síðustu mánuði eftir miklar hækkanir í byrjun árs. Helstu drifkraftar hækkunar á matvöru eru hækkanir á kjötvöru, mjólk og ferskvöru.

Neytendur
Fréttamynd

Taki stöðuna al­var­lega og hækki ekki verð um­fram verðbólgumarkmið

Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, Danól, Gæðabaksturs, Kjarnavara og fleiri vörumerkja, hefur heitið því að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Er skrefið stigið í von um að aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld grípi til eigin aðgerða gegn verðbólgunni.

Neytendur
Fréttamynd

Fleiri val­kostir í Bónus með Salling

Um 600 vörur frá danska smásölufyrirtækinu Salling Group hafa bæst í hillur Bónus á síðustu mánuðum. Vörurnar tilheyra fimm ólíkum vörulínum sem spanna allt frá einföldum grunnvörum yfir í lífrænar vörur og sælkeravörur. Innkaupasamstarf Haga við Salling gefur Bónus aukin tækifæri til að auka vöruúrval og bjóða fleiri valkosti á góðu verði.

Samstarf
Fréttamynd

Fiski­kóngurinn og Há­skólinn rann­saka skötu

Rannsóknarverkefnið Skötuveisla fékk fyrr á árinu tæplega þrjátíu milljóna króna styrk úr Matvælasjóði. Verkefnið er á vegum Háskóla Íslands, Matís og Fiskikóngsins þar sem kæst skata verður rannsökuð.

Innlent
Fréttamynd

Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vín­veislu Inn­nes

Stórsýningin Matur & vín 2026 fór fram í annað sinn á dögunum þegar Innnes bauð viðskiptavinum og samstarfsaðilum til stórveislu í Korngarða 3 í Reykjavík. Þar komu saman um 60 matvæla- og vínbirgjar og miðað við mætinguna er ljóst að áhuginn á góðum mat og drykk er alls ekki á undanhaldi.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna

Hvernig fangar maður veitingastað í bók? Þegar Þröstur Valgarðsson sá um að prenta matseðla fyrir veitingastaðinn Hosiló fékk hann einmitt þá hugmynd. Yfir nokkurra mánaða skeið fór hann reglulega á vettvang, fékk sér mat, tók ljósmyndir og kom fyrir diktafónum til að taka upp samtöl starfsmanna. Afraksturinn er 212 síðna sjónræn frásögn um Hosiló.

Lífið
Fréttamynd

Skor­dýr í súpu skóla­barna

Skordýr fundust í kjötsúpu sem Skólamatur sendi frá sér til sex leik- og grunnskóla í hádeginu í dag. Fyrirtækið segir um frávik í aðkeyptu hráefni frá fyrirtækinu Garra að ræða. 

Innlent
Fréttamynd

Langreyðarkvótinn mun tæp­lega nást

Hvalbátarnir tveir, Hvalur 8 og Hvalur 9, lönduðu fjórum langreyðum í fyrradag, tveimur hvölum hvor, til vinnslu í Hvalfirði. Þar með hafa samtals 72 langreyðar veiðst á vertíðinni en þeim fyrstu var landað í hvalstöðinni þann 26. júní síðastliðinn.

Innlent
Fréttamynd

Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax

„Markmiðið er að hvetja fólk til að taka þátt í hlaupinu með því að hvetja hlauparana í dáða og láta vita að hvatning skiptir ekki síður máli en að hlaupa,“ segir Sjöfn Þórðardóttir sem með dyggri aðstoð bakaði þúsund bollakökur til að gleðja hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu.

Lífið