Innlent

Fréttamynd

Styður hugmyndir um kaup Símans

Þingflokkur Frjálslynda flokksins lýsir yfir stuðningi við hugmynd Agnesar Bragadóttur blaðamanns um að almenningur á Íslandi stofni félag kjölfestufjárfestis og geri í sameiningu tilboð í 45% eignahlut Símans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

Innlent
Fréttamynd

Fann hassmola á víðavangi

Komið er í ljós að torkennilegur moli, sem átta ára drengur í Keflavík fann á víðavangi í fyrradag, er hass. Molinn var vafinn í umbúðafilmu og fannst móður drengsins hann eitthvað torkennilegur og fór með hann til lögreglu. Hann reyndist tæp fimm grömm að þyngd.

Innlent
Fréttamynd

Landssímamálið aftur í dóm

Hæstiréttur tekur Landssímamálið fyrir í dag. Ríkissaksóknari sagði fyrir héraðsdómi að vörn þeirra Árna Þórs Vigfússonar og Kristjáns Ragnars Kristjánssonar í Landssímamálinu væri ótrúverðug. Þeir byggðu upp viðskiptaveldi á viðskiptaþekkingu sinni úr Verzlunarskólanum og undruðust ekki er fé streymdi úr sjóðum Símans án allra ábyrgða og undirskrifta.</font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Ósætti meðal stjórnarliða

Tveir stjórnarliðar segjast ekki styðja samgönguáætlun Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra. Annar vegna þess að loforð séu svikin, hinn vegna þess að fjármunum til framkvæmda sé misskipt.

Innlent
Fréttamynd

Ættum að biðjast afsökunar

Mér fyndist það mikil blessum fyrir íslenska þjóð ef við bæðumst afsökunar á framkomu íslenskra stjórnvalda gegn Gyðingum á árunum fyrir stríð", segir Ólafur Jóhannesson formaður félagsins Zion vinir Ísraels.

Innlent
Fréttamynd

Evrópufræði kennd í Háskólanum

Háskóli Íslands hefur í fyrsta sinn hlotið styrk úr Jean Monnet áætlun Evrópusambandsins til að kenna námskeið um nýjungar í Evrópusamrunanum. Styrknum fylgir mikil viðurkenning fyrir Háskóla Íslands en hann er aðeins ætlaður þeim menntastofnunum sem þykja í fararbroddi í rannsóknum og kennslu Evrópufræða.

Innlent
Fréttamynd

Styðja ekki samgönguáætlun

Tveir stjórnarþingmenn lýstu því yfir í umræðum á Alþingi í dag að þeir myndu ekki styðja samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar, annar vegna svika á kosningaloforðum, hinn vegna misskiptingar vegafjár milli þéttbýlis og dreifbýlis.

Innlent
Fréttamynd

Á batavegi eftir sjóslys

Sjómaðurinn, sem slasaðist um borð í Snorra Sturlusyni aðfaranótt sunnudags og var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu varnarliðsins, er á batavegi. Hann útskrifaðist af gjörgæsludeild í morgun og er nú á almennri skurðdeild. Búast má við að hann verði útskrifaður af sjúkrahúsinu á næstu dögum.

Innlent
Fréttamynd

Tekur undir gagnrýni á stjórn SL

Stjórn Meistarafélags húsasmiða tekur undir þá gagnrýni sem stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins hefur sætt vegna starfslokasamnings við fyrrverandi framkvæmdastjóra sjóðsins. Félagið telur milljónirnar 43 sem samið var um við starfslok framkvæmdastjórans vissulega vera sláandi háa tölu en þó nánast skiptimynt í samanburð við þá milljarða sem tapast hafa vegna lélegrar stjórnunar sjóðsins.

Innlent
Fréttamynd

Enn munur á hillu- og kassaverði

Enn kom fram nokkur mismunur á milli hilluverðs og kassaverðs í verðkönnun <em>Morgunblaðsins</em> í fjórum lágvöruverðsverslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Bestar voru merkingarnar í Kaskó. Innkaupakarfan var ódýrust í Bónus, rétt liðlega fjögur þúsund krónur, næst í Kaskó, þá Nettó og Krónan var með hæsta verðið, tæpar fimm þúsund krónur fyrir körfuna.

Innlent
Fréttamynd

Sviðsetja slys í Hvalfjarðargöngum

Almannavarnaæfing verður í Hvalfjarðargöngum á laugardaginn kemur og verða göngin því lokuð á milli 8 og 15 af þeim sökum. Í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Speli kemur fram að ætlunin sé að sviðsetja árekstur þar sem koma við sögu rúta og tveir fólksbílar neðst í göngunum.

Innlent
Fréttamynd

Heimilistónar í bandarísku vefriti

Bandaríska veftímaritið <em>Pittsburgh Tribune Review</em> fjallar ítarlega í dag um leikkonuna Ólafíu Hrönn Jónsdóttur sem gert hefur leikna heimildamynd um kvennahljómsveitina Heimilistóna í Bandaríkjunum. Auk leikinna atriða hélt hljómsveitin tónleika í Pittsburgh þar sem lög á borð við <em>Sugar Sugar</em> og <em>Fly me to the Moon</em> voru sungin á íslensku.

Lífið
Fréttamynd

Með rafrænan sjónvarpsvísi

Fjarskiptafyrirtækið Hive ætlar að vera með vikulegan rafrænan dagskrárvísi í tengslum við sjónvarpsútsendingar sínar sem hefjast á netinu í vor.

Innlent
Fréttamynd

Þróunin önnur en í nágrannalöndum

Aðeins fimm greindust með HIV-smit á síðasta ári en síðustu fimmtán árin hafa ekki greinst jafn fáir. Sóttvarnarlæknir segir þróunina hér aðra en í nágrannalöndunum.

Innlent
Fréttamynd

Fartölvum stolið í tölvufyrirtæki

Brotist var inn í tölvufyrirtæki við Hringbraut í Keflavík um klukkkan þrjú í nótt og þaðan stolið nokkrum fartölvum. Þjófurinn eða þjófarnir hafa verið eldsnöggir því að þjófavarnakerfi fór í gang um leið og þeir brutu rúðu til að komast inn og voru öryggisvörður og lögreglumenn komnir á vettvang eftir andartak en þá voru þjófarnir á bak og burt.

Innlent
Fréttamynd

Og Vodafone skal gæta jafnræðis

Fyrirtækið Og Vodafone skal gæta jafnræðis að því er varðar svokallaða lúkningu símtala inn á farsímanet sitt samkvæmt ákvörðun Póst og fjarskiptastofnunar. Hefur fyrirtækið 30 daga til að sýna fram á með gögnum að fyrirmælunum hafi verið fylgt eftir að öðrum kosti verður gripið til annarra ráðstafana.

Innlent
Fréttamynd

Vilja styrkja stöðu hjóna

Hið opinbera hvetur fólk til að skilja, segja fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem flytja þingsályktunartilögu um að styrkja stöðu hjóna og sambúðarfólks.

Innlent
Fréttamynd

Opið í Bláfjöllum í dag

Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opnað klukkan tvö og verður opið til klukkan níu í kvöld. Lyfturnar við Bláfjallaskála og eldri stólalyftan í Kóngsgili verða opnar allan tímann en Gosinn á suðursvæðinu verður opnaður klukkan fimm. Fjörmjólkurmótið mun fara fram í dag og á morgun við lyftuna Jón Bjarna og verður hún því ekki opin almenningi á meðan mótið stendur.

Innlent
Fréttamynd

Einelti tíðara í yngri bekkjum

Helmingi fleiri nemendur í grunnskólum landsins verða fyrir einelti í 4. - 7. bekk, heldur en 8. - 10. bekk, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem kynntar voru í gær. Þær eru byggðar á svörum 6053 nemenda.

Innlent
Fréttamynd

Mátti ráðstafa opnunardegi laxár

Forsvarsmenn Stangveiðifélags Reykjavíkur segja að opnunardagurinn í Laxá í Kjós hafi óvart farið í sölu í vefsölukerfi félagsins og kaupandinn hafi vinsamlega verið beðinn um að falla frá kaupum sínum á öllum stöngunum enda stendur til að nýta daginn til formlegrar opnunar með Veiðifélagi Kjósarhrepps. Því hafi hins vegar verið ranglega haldið fram í hádegisfréttum Bylgjunnar að stangveiðifélagið hefði ekki ráðstöfunarrétt yfir opnunardeginum.

Innlent
Fréttamynd

Fékk um 75 þúsund fyrir álit

Forsætisráðuneytið greiddi Eiríki Tómassyni, lagaprófessor við Háskóla Íslands, 74.700 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, fyrir lögfræðiálit sem hann vann fyrir ráðuneytið um lögmæti þess að styðja innrásina í Írak án samþykkis utanríkismálanefndar.

Innlent
Fréttamynd

Jóhann Hauksson til Fréttablaðsins

Jóhann Hauksson fyrrverandi dagskrárstjóri Rásar 2 og yfirmaður svæðisstöðva Ríkisútvarpsins hefur verið ráðinn á ritstjórn Fréttablaðsins. Jóhann mun jöfnum höndum skrifa fréttir og starfa í hádegisútvarpi Talstöðvarinnar.

Lífið
Fréttamynd

Ríkið frekast á bensín og áfengi

Ef meta ætti hvar íslenska ríkið grefur hvað dýpst í vasa þegna sinna er bensín- og áfengisverð það fyrsta sem kemur upp í huga þeirra Ólafs Darra Andrasonar, hagfræðings hjá Alþýðusambandinu og Jóhannesar Gunnarssonar, formanns Neytendasamtakanna.

Innlent
Fréttamynd

Samruni mjólkurframleiðenda

Mjólkursamsalan í Reykjavík (MS) og Mjólkurbú Flóamanna hafa sameinast undir einn hatt. Ný stjórn sameinaðs félags verður kosin 29. apríl næstkomandi, að sögn Magnúsar Sigurðssonar, stjórnarformanns MS.

Innlent
Fréttamynd

Valgerður áfrýjar dómnum

Valgerður Bjarnadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, hyggst áfrýja úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur en í fyrradag féll dómur henni í óhag í skaðabótamáli hennar gegn ríkinu.

Innlent
Fréttamynd

Hefur engin áhrif á okkar störf

Ákvörðun um framtíðarstaðsetningu Háskólans í Reykjavík gæti verið tekin upp úr næstu helgi, en háskólaráð skólans hefur ásett sér að ákvörðun ráðsins, um hvort skólinn flytji í Vatnsmýrina í Reykjavík eða Urriðaholt í Garðabær, verði ljós í lok næstu viku. 

Innlent
Fréttamynd

Óvenju gróf líkamsárás

Þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrrdag mál á hendur manni sem sakaður er um að hafa valdið öðrum manni miklu líkamstjóni á veitingastaðnum Kaffi Austurstræti með þeim afleiðingum að fórnarlambið hlaut fjölmarga djúpa skurði á andlit og háls.

Innlent
Fréttamynd

Aukin neytendavernd

Fjarskiptafyrirtæki sem býður internetþjónustu er skylt að skýra áskrifendum sínum frá því hvenær þeir greiða fyrir niðurhal erlendis frá.

Innlent
Fréttamynd

Fær hljóðlátustu farþegavél heims

Hin nýja Boeing 787 Dreamliner-þota, sem Icelandair hefur valið sem sína framtíðarvél, verður hljóðlátasta farþegaþota heims og mun auk þess geta notað Reykjavíkurflugvöll til flugtaks og lendinga.

Innlent
Fréttamynd

Almenningur vill kaupa Símann

Á sjötta hundrað manns höfðu fyrr í kvöld skráð sig fyrir um 575 milljónum króna til kaupa á hlutabréfum í Símanum. Skráði fólk nafn sitt og upphæð á vefsíðu þar sem stefnan er sett á að vera meðal þriggja fjárfesta í Símanum.

Innlent