Innlent

Fréttamynd

Lausir úr prísund og komnir heim

Skipverjarnir tveir af togaranum Hauki ÍS sem handteknir voru í janúar síðastliðnum í Bremerhaven með mikið magn fíkniefna hafa verið látnir lausir og eru komnir heim.

Innlent
Fréttamynd

Esso og Olís hækka

Olíufélagið Esso hækkaði bensínlítrann um tvær krónur og fimmtíu aura í gær og er algengt sjálfsafgreiðsluverð hjá Esso nú 105,50 krónnur. Olís fylgdi í kjölfarið í morgun með nákvæmlega sömu hækkun.

Innlent
Fréttamynd

70 milljóna halli á borgarsjóði

Rúmlega 70 milljóna króna halli varð á rekstri borgarsjóðs, svokölluðum A-hluta, sem er sú starfsemi borgarinnar sem fjármögnuð er með skatttekjum. 5,1 milljarðs króna hagnaður varð aftur á móti af heildarrekstri Reykjavíkurborgar, eða af fyrirtækjum sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Ingimundur endurkjörinn formaður

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, var endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins á aðalfundi samtakanna sem haldinn er á Nordica-hóteli í dag.

Innlent
Fréttamynd

Mannlaus bíll ók á rúðu

Mannlaus bíll ók á stóra rúðu í glugga skóbúðar vestur á Ísafirði í gær og braut hana. Svo vel vildi til að enginn var nálægur þegar glerbrotum rigndi á vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Ávísanir á geðlyf vafasamar?

Heilbrigðisráðherra vill að Landlæknisembættið og Lyfjastofnun kanni hvort eitthvað sé bogið við markaðssetningu geðlyfja við ofvirkni og ávísanir lækna á þau en íslensk börn eiga heimsmet í notkun slíkra lyfja.. Þá vill ráðherrann að brugðist verði við mikilli fjölgun barna með ofvirkni og athyglisbrest.

Innlent
Fréttamynd

Einungis Skeljungur borgaði

Bæði Essó og Olís ætla að bíða með að greiða sektir sínar vegna ólöglegs samráðs þar til niðurstöður dómstóla liggur fyrir. Bæði félögin vilja leggja fram bankatryggingar þangað til. Skeljungur var því eina olíufélagið sem borgaði sekt sína að fullu áður en frestur til þess rann út á mánudag.

Innlent
Fréttamynd

Samstaða um umsókn í Öryggisráðinu

Forsætisráðherra segir fulla samstöðu hafa verið milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að sækjast eftir sæti í Öryggisráðinu. Það hafi ekki verið mistök. Verið er að skoða kostnað við framboðið en endanleg ákvörðun liggur ekki fyrir. Hann segir utanríkisþjónustuna skrifa meira á reikning framboðsins en efni séu til.

Innlent
Fréttamynd

Vegaáætlun gagnrýnd

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar gerði í gær alvarlegar athugasemdir við vegaáætlun fyrir tímabilið 2005-2008. Í ályktun bæjarstjórnar er bent á að ekki renni til nýframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu nema rétt um fimmtungur af framlögum ríkisins til vegaframkvæmda.

Innlent
Fréttamynd

Milljarðartap hjá deCode

Tap af rekstri deCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, á fyrsta ársfjórðungi var talsvert meira en tekjur eða um einn milljarður króna. Tekjurnar námu um sex hundruð milljónum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nýtt evrópskt sjúkratryggingakort

Tryggingastofnun hóf í gær útgáfu á nýju evrópsku sjúkratryggingakorti. Gert er ráð fyrir að stofnunin gefi út 30 þúsund kort á þessu ári. 

Innlent
Fréttamynd

Starfsendurhæfing í ólestri

Ráðherraskipaður starfshópur segir starfsendurhæfingarmál hér á landi skorta fjármagn, framboð, fjölbreytini og eftirfylgni. Þá hafi vantað á samræmingu úrræða og heildaryfirsýn í málaflokkinn. Hópurinn hefur skilað ráðherra skýrslunni.

Innlent
Fréttamynd

Óvænt sigling til Íslands

Það sem átti að vera hugguleg heimferð tólf Norðmanna til Björgvinjar í Noregi frá Danmörku snerist upp í óvænta margra daga siglingu, m.a. til Íslands. Hópurinn skrapp í helgarferð frá Björgvin til Hanstholm í Danmörku með ferjunni Norrænu en breyting varð á ferðaáætluninni.

Innlent
Fréttamynd

Fíkniefnadómar fyrir norðan

Sex voru dæmdir í fésektir og fangelsi fyrir fíkniefnabrot í fjórum dómum Héraðsdóms Norðurlands eystra í gær. Lægsta sektin var 30 þúsund krónur og sú hæsta 150 þúsund. Þyngsti dómurinn hljóðaði upp á tveggja mánaða fangelsi og eins árs ökuleyfissviptingu.

Innlent
Fréttamynd

Hagnaður Íslandsbanka minnkar

Hagnaður Íslandsbanka á fyrsta ársfjórðungi ársins nam rúmlega þremur milljörðum króna eftir skatta en bankinn birti afkomutölur sínar í dag. Þetta er minni hagnaður en á sama tíma í fyrra en þá hljóðaði hann upp á 4,8 milljarða, þar af var um 3,5 milljarðar af sölu hlutabréfa í Straumi Fjárfestingarbanka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bílvelta í lausamöl

Ökumaður fólksbíls var fluttur á slysadeild í Reykjavík eftir að bílaleigubíll með fjórum ferðamönnum valt í lausamöl í Heydal um fimmleytið í gær. Aðrir farþegar sluppu með skrámur.

Innlent
Fréttamynd

Allir hafa hækkað eldsneytisverð

Verð á eldsneyti hækkaði í gær hjá Olís og Skeljungi og hafa því allir söluaðilar eldsneytis hér á landi hækkað verð sín að undanförnu.

Innlent
Fréttamynd

Samningur um orkukaup

"Þetta er stærsta verkefni sem Orkuveitan og Hitaveita Suðurnesja hafa ráðist í hingað til," segir Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Bankarnir gengið of langt

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, telur að umsvif íslenskra banka á fjármálamarkaðnum og útrás þeirra á erlendum grundum hafi gengið of langt. Finnst honum sá ljóður vera á viðskiptalífinu að þar sé of mikið um átök og þar gangi bankarnir of hart fram.

Innlent
Fréttamynd

Lán í óláni

Það var lán í óláni hjá ökumanni sem var á ferð um Óshlíðarveg í gær að bíll hans rann utan í munna á vegskála og stöðvaðist þar því að öðrum kosti hefði bíllinn farið fram af veginum og hafnað niðri í fjöru. Ökumaðurinn slapp lítið meiddur en bíllinn er mikið skemmdur.

Innlent
Fréttamynd

Snarlækkun álagningar bensínverðs?

Sterkar vísbendingar eru um að stóru olíufélögin þrjú hafi snarlækkað álagningu sína eftir að Atlantsolía kom inn á markaðinn og bauð lægra bensínverð en áður hafði þekkst. Þetta er niðurstaða athugana hóps sex nemenda við Viðskiptaháskólann á Bifröst.

Innlent
Fréttamynd

Útgáfa hafin á tryggingakortum

Útgáfa Tryggingastofnunar á evrópsku sjúkratryggingakorti er hafin. Ef Íslendingur lendir óvænt í slysi eða veikindum á ferð um Evrópu veitir kortið korthafanum rétt til nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu á sama verði og heimamenn greiða.

Innlent
Fréttamynd

Flogið með þorskinn til Bretlands

Þorskur er alveg hættur að velkjast dögum saman í togurum til að komast á markað í Hull eða Grimsby heldur fer hann nú þangað með sérstöku þorskáætlunarflugi á nokkrum klukkustundum, fjórum sinnum í viku. 

Innlent
Fréttamynd

Hjólar frá Seltjarnarnesi

Keppnin „Hjólað í vinnuna“ hófst í dag og er henni ætlað að vera hvatning til að fá fólk til að nota eigin orku til að ferðast til og frá vinnu. Ekki þurfa þó allir hvatningu en einn starfsmaður Stöðvar 2 hefur hjólað í vinnuna frá Seltjarnarnesi í nokkur ár.

Innlent
Fréttamynd

Sorp til rafmagnsframleiðslu

Í lok maí hefjast byggingarframkvæmdir við sorpbrennslustöð skammt sunnan við Húsavík sem getur tekið á móti 8000 tonnum af úrgangi á ári. Sú varmaorka sem myndast við brennsluna verður notuð til raforkuframleiðslu hjá Orkuveitu Húsavíkur og jafngildir 10 til 15 prósentum af allri raforkuþörf Húsvíkinga.

Innlent
Fréttamynd

Enn þarf að bæta skattaumhverfið

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í ræðu sinni á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í dag að halda bæri áfram að laga skattaumhverfið til að styrkja samkeppnisstöðu atvinnulífsins og bæta lífskjörin.

Innlent
Fréttamynd

Samningur um þyrluvakt lækna

Dóms- og kirkjumálaráðherra og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, ásamt forsvarsmönnum Landhelgisgæslunnar og Landspítala-háskólasjúkrahúss, skrifuðu undir nýjan samning um þyrluvakt lækna á spítalanum í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli í dag.

Innlent