Innlent
Birtir milliuppgjör í baráttu Starfsstöð Össurar Skarphéðinssonar hefur birt milliuppgjör í kosningabaráttunni um formannssætið í Samfylkingunni. Samkvæmt því hefur formannsbaráttan kostað 1.217.851 krónur fram til 1. maí en tekjur á sama tímabili verið 1.294.000 krónur. Innlent 13.10.2005 19:09
Stal fartölvu og myndavélum Kópavogsbúi á þrítugsaldri var í gær dæmdur í sex mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir innbrot sem hann framdi í félagi við annan mann á Menningarnótt í fyrra. Þá brutust þeir inn í íbúð í miðbænum og létu greipar sópa og höfðu upp úr krafsinu meðal annars fartölvu, tvær myndavélar og línuskauta. Innlent 13.10.2005 19:09
Fagnar átaki ASÍ Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fagnar átaki ASÍ, Einn réttur - ekkert svindl, sem meðal annars beinist gegn þeim atvinnurekendum sem misnota erlent verkafólk. Hann segir jafnframt að skilgreina þurfi hvaða reglur eigi að gilda á íslenskum vinnumarkaði og að tryggja þurfi aðgengi erlends starfsfólks. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Mikil lækkun krónunnar í gær Gengi krónunnar lækkaði um rúmlega hálft annað prósent í gær og er dollarinn nú kominn upp undir 64 krónur. Langt er síðan krónan hefur lækkað svo mikið á einum degi. Greiningadeild KB banka rekur þetta annars vegar til þeirrar ákvörðunar fjármálaráðherra að greiða upp erlendar skammtímaskuldir upp á hundrað milljónir dollara umfram áætlanir og hins vegar til breytinga Hagstofunnar á vaxtaþættinum í vísitölu neysluverðs. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Vilja sjá um Spegilinn Hafsteinn Þór Hauksson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, hefur sent útvarpsráði erindi og boðið fram starfskrafta ungra sjálfstæðismanna við dagskrárgerð hjá stofnuninni. Fréttaskýringaþátturinn <em>Spegillinn</em> er þáttur sem ungir sjálfstæðismenn vildu gjarnan taka að sér og segir í erindinu að það yrði gert án endurgjalds og gæti því stuðlað að sparnaði í rekstri. Innlent 13.10.2005 19:09
Fráveitan inn í Orkuveituna Lagt hefur verið til innan borgarkerfisins að gera Fráveituna að hluta af Orkuveitu Reykjavíkur og eru miklar líkur á að það verði að veruleika. Fráveitan kemur þá við hlið Vatnsveitunnar og Hitaveitunnar innan Orkuveitunnar og hefur sömu stöðu og þær í skipuritinu. Innlent 13.10.2005 19:09
Flýðu eftir að hafa velt bíl Bíll valt á aðrein af Miklubraut niður á Reykjanesbraut í nótt. Ökumaður og farþegi komust út úr bílnum og tóku til fótanna. Lögreglan hafði nokkru síðar uppi á ökumanninum sem reyndist vera ölvaður og nokkru síðar uppi á farþeganum. Þeir verða látnir sofa úr sér í fangageymslum og yfirheyrðir í dag. Innlent 13.10.2005 19:09
Sjóvá greiði sekt vegna samráðs Úrskurðarnefnd samkeppnismála hefur úrskurðað að Sjóvá-Almennum beri að greiða stjórnvaldssekt að upphæð 27 milljónir króna fyrir brot á samkeppnislögum. Upphaflega beindist rannsókn Samkeppnisstofnunar að þremur tryggingafélögum, VÍS, Tryggingamiðstöðinni og Sjóvá-Almennum. Félögin höfðu haft samráð um uppsetningu nýs tjónamatskerfis og hversu mikla verðhækkun það ætti að hafa í för með sér. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Kári aldrei bjartsýnni Tap Íslenskrar erfðagreiningar á fyrsta ársfjórðungi nam tæpum milljarði króna. Kári Stefánsson, forstjóri fyrirtækisins, segir fyrirtækið þó aldrei hafa gengið betur og sjálfur hafi hann aldrei verið bjartsýnni. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Öll olíufélögin búin að borga Bæði Ker, eignarhaldsfélag Essó og Olís hafa nú fylgt í fótspor Skeljungs og lokið við að borga stjórnvaldssekt vegna ólöglegs samráðs olíufélaganna. Þetta ákváðu félögin að gera eftir að fjármálaráðuneytið synjaði beiðni þeirra um að fá að leggja fram bankaábyrgð þar til niðurstaða dómstóla liggur fyrir í málinu. Innlent 13.10.2005 19:09
Nýr safnstjóri Hafþór Yngvason hlaut í gær einróma tilnefningu menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar í stöðu safnstjóra Listasafns Reykjavíkur. Þar með samþykkti ráðið tillögu ráðgjafahóps sem mælti með Hafþóri í stöðuna með fulltingi ráðningarskrifstofu IMG Mannafla Liðsauka. Alls voru tuttugu umsækjendur um stöðuna. Innlent 13.10.2005 19:09
Sterling tapaði 450 milljónum Norræna lágfargjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristvinssonar, tapaði 450 milljónum króna á fyrsta fjórðungi ársins. Í frétt frá félaginu segir að ekki komi á óvart að tap sé á rekstrinum, yfirleitt sé tap á fyrsta ársfjórðungi vegna árstíðarsveiflna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Kvöld í Hveró - KK og Ellen Systkynin KK og Ellen efna til tónleika í Hveragerðiskirkju föstudagskvöldið 6. maí en tónleikar þeirra eru liður í konsertröðinni Kvöld í Hveró. Jón Gunnar Þórarinsson hitar upp fyrir KK og Ellen. Lífið 13.10.2005 19:09
Enn stefnt að afgreiðslu Gunnar I. Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður menntamálanefndar Alþingis, segir enn stefnt að því að afgreiða frumvarp um Ríkisútvarpið á yfirstandandi þingi. "Við höldum áfram vinnu við frumvarpið í nefndinni fyrir og eftir helgi og gerum breytingar á því reynist það nauðsynlegt." Innlent 13.10.2005 19:10
Mikill jarðgangaáhugi á þingi Verktökum verður frjálst að nota risaborvélar, eins og nú eru í Kárahnjúkum, við borun vegganga. Þetta sagði samgönguráðherra í svari við einni af fjórum fyrirspurnum um jarðgöng sem hann svaraði á Alþingi í dag. Innlent 13.10.2005 19:09
Hefur lýst kröfu í þrotabú bræðra Síminn hefur þegar lýst yfir kröfum í þrotabú bræðranna Sveinbjörns Kristjánssonar og Kristjáns Ragnars Kristjánssonar vegna Landssímamálsins svokallaða. Innlent 13.10.2005 19:09
Öll tilboð reyndust yfir áætlun Öll þrjú tilboðin sem bárust í breikkun gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar reyndust töluvert yfir kostnaðaráætlun. Það verður þó ekki til að seinka verkinu. Innlent 13.10.2005 19:09
Kjörseðlar enn ósendir Nokkur hundruð félagar í Samfylkingunni eiga enn eftir að fá kjörseðilinn sinn til að kjósa í formannsslagnum, og verður hann sendur út á morgun, að sögn Flosa Eiríkssonar, formanns kjörstjórnar. Innlent 13.10.2005 19:10
Ekki sóttir til saka vegna klúðurs Klúður þýskra yfirvalda og ónógur rökstuðningur íslensku lögreglunnar veldur því að tveir Íslendingar sem handteknir voru vegna smygls á miklu magni af marijúana og kókaíni verða ekki sóttir til saka. Innlent 13.10.2005 19:09
Fornminjar og margmiðlun Elsta mannvirki Íslandssögunnar verður til sýnis næsta vor þegar búið verður að forverja mannvistarleifarnar við Aðalstræti. Rústin og fornleifarnar verða aðalatriðið en auk þess verður margmiðlunarsýning sem gerir grein fyrir því sem lesið hafi verið úr rústinni og aflað með rannsóknum. Innlent 13.10.2005 19:09
Lögregluumdæmi samræma forvarnir Til stendur að koma upp gagnabanka á vegum Ríkislögreglustjóra sem forvarnaraðilar geta sótt í og nýtt til að ná betri árangri í sínu starfi. Þetta kom fram á aðalfundi "Vertu til!" sem er samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Lýðheilsustöðvar um forvarnir var haldinn öðru sinni í Salnum í Kópavogi í gær. Innlent 13.10.2005 19:09
Vitnisburðir lagðir til hliðar Hæstiréttur ómerkti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur gegn Jóni Árna Rúnarssyni, fyrrum skólastjóra Rafiðnaðarskólans. Héraðsdómur hafði úrskurðað manninn sekan um skjalafals og fjársvik og dæmt hann til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Innlent 13.10.2005 19:09
Sjóvá greiði 27 milljónir Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti í gær úrskurð samkeppnisráðs um að Sjóvá-Almennar tryggingar hf. skuli greiða 27 milljóna króna stjórnvaldssekt vegna brots á 10. grein samkeppnislaga. Innlent 13.10.2005 19:09
Starfsendurhæfing í forgang "Já, ég tel þetta mjög áríðandi mál og til mikils að vinna," sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra , spurður um hvort uppbygging starfsendurhæfingar væri eitt af forgangsmálum hjá stjórnvöldum nú. Innlent 13.10.2005 19:09
Norðurljós selja 10 prósent Norðurljós seldu í gær um tíu prósenta hlut í Og fjarskiptum, síma- og fjölmiðlasamsteypunni, fyrir 1,9 milljarða króna. Viðskiptin fóru fram á genginu 4,23 og voru liður í greiðslu til hluthafa í Norðurljósum vegna lækkunar á hlutafé félagsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Eldsneytisverð og tíminn skýri tap Tap lággjaldaflugfélagsins Sterling á fyrsta ársfjórðungi nam um 460 milljónum íslenskra króna. Almar Örn Hilmarsson, framkvæmdastjóri Sterling og Iceland Express, segir skýringu á taprekstri aðallega hækkun á eldsneytisverði og að hefðbundið sé í rekstri flugfélaga að skila tapi á þessu tímabili. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Vilja bætta stjórn úthafsveiða Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra tók þátt í fundi sjávarútvegsráðherra 17 ríkja sem fór fram í Kanada í byrjun maí. Á fundinum samþykktu ráðherrarnir yfirlýsingu um mikilvægi þess að bæta stjórn úthafsveiða. Innlent 13.10.2005 19:09
Hertar reglur um umferð utan vega Í umhverfisráðuneytinu er verið að leggja lokahönd á endurskoðaða reglugerð um umferð utan vega. Reglurnar verða skýrari og ákveðnari heldur en áður. Þær ná til umferðar bíla, vélknúinna hjóla og hrossa. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:09
Vilja flytja inn bíla strax Ótti manna við að krónan haldi áfram að lækka og dollarinn að hækka hefur skapað gríðarlega ásókn í að flytja inn bæði nýja og notaða bíla frá Bandaríkjunum - og það strax. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Fyrir dóm vegna skattsvika Fjórmenningarnir úr Landssímamálinu, sem dæmdir voru í Hæstarétti á dögunum, þurfa enn að mæta í dómsal. Þeir eru ásamt fimmta manni ákærðir fyrir skattsvik upp á tugi milljóna króna og verður málið tekið fyrir í dag. Innlent 13.10.2005 19:09