Innlent
Samgönguráðherra í opinberi heimsókn í Kína Sturla Böðvarsson samgönguráðherra er á leið til Kína ásamt hópi Íslendinga og fylgdarliði til að taka þátt í alþjóðlegri ferðasýningunni. Sturla er í opinberi heimsókn í boði kínverskra ferðamálayfirvalda. Innlent 21.11.2005 15:22
Fjölmargir öyrkjar fá engar bætur á næstunni Vegna nýrra reglna um tekjutengingu við örorkubætur fá sextíu til áttatíu öryrkjar engar bótagreiðselur í nóvember og desember hafi þeir haft tekjur á árinu. Innlent 21.11.2005 13:57
Frítt niðurhal á Vísi Rokkbandið Sign kynnir hér á Vísi nýjustu smáskífu sína " A little bit" en laginu fylgir einnig forrit (U-myx) sem gerir kleift að endurhljóðblanda lagið. Þetta geta notendur gert eins oft og þá lystir og vistað útkomuna. Forritið er mjög einfalt í notkun og notendur verða fljótt snillingar í að re-mixa. Tónlist 21.11.2005 13:42
Telur brot olíufélaganna skipta hundruðum Ríkislögreglustjóri telur að brotatilvik starfsmanna stóru olíufélaganna þriggja vegna ólöglegs verðsamráðs þeirra skipti hundruðum. Þetta kemur fram í tilkynningu Ríkislögreglustjóra í tilefni þess að hann hefur lokið rannsókn sinni vegna samaráðsmálsins, og sent niðurstöður til Ríkissaksóknara til ákvörðunar um ákærur. Innlent 21.11.2005 12:20
Með alvarleg brunasár eftir að efni sprakk í höndum þeirra Drengirnir tveir sem brenndust í Grafarvogi í gær liggja þungt haldnir á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Þeir brenndust báðir illa á höndum og fótum og eru brunasárin bæði annars og þriðja stigs. Annar drengurinn brenndist á um það bil þrjátíu prósentum líkamans og er honum haldið sofandi í öndunarvél. Hinn drengurinn brenndist á tuttugu prósentum líkamans. Drengirnir eru á unglingsaldri og ekki er enn vitað hvaða eldfima efni sprakk í höndum þeirra með þessum afleiðingum. Innlent 21.11.2005 12:01
Tvö óhöpp í fljúgandi hálku Það er gríðarleg hálka í Borgarfirðinum sögðu lögreglumenn á vakt. Þeir hafa verið kallaðir út vegna tveggja umferðaróhappa í nágrenni bæjarins síðustu tæpu tvo klukkutímana en engin slys hafa orðið á fólki. Innlent 21.11.2005 11:59
Fleiri og betri störf á landsbyggðina Tvöfalt hærra hlutfall fólks á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni er með háskólamenntun. Stjórnvöld verða að grípa til að aðgerða til að snúa þessari þróun við, segir þingmaður Samfylkingarinnar. Innlent 21.11.2005 11:42
Rannsókn lögreglunnar lokið Rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á meintu ólöglegu samráði olíufélaganna er lokið. Meira um málið í fréttum NFS klukkan tólf. Innlent 21.11.2005 11:39
Byggðastofnun fjársvelt Byggðastofnun, sem á að tryggja jafnan aðgang landsbyggðafyrirtækja að fjármagni á við fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, er lömuð vegna fjárskorts. Hún er hætt að lána og fyrr á árinu var styrkveitingum og hlutafjárkaupum hætt. Innlent 21.11.2005 11:34
Umdeildar kosningar í Kenýa Umdeildar kosningar fara fram í Kenýa í dag, þegar kosið er um nýja stjórnarskrá í landinu sem mun styrkja stöðu forsetans. Forsetinn, Mwai Kibaki, hefur kallað kosningarnar sögulegt tækifæri en stjórnarandstæðingar vilja að forseti deili valdinu með lýðræðislega kjörnum forsætisráðherra. Miklar óeirðir hafa átt sér stað að undanförnu vegna kosninganna þar sem níu manns hafa látist. Innlent 21.11.2005 10:14
Helmingi fleiri háskólamenntaðir 23 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins eru háskólamenntuð en aðeins tólf prósent íbúa landsbyggðarinnar. Rúmlega helmingur landsbyggðarfólks hefur aðeins lokið grunnnámi en þriðjungur íbúa höfuðborgarsvæðisins. Innlent 21.11.2005 07:30
Á fjórða þúsund tilkynningar Barnaverndarnefndir fengu 3.648 tilkynningar vegna 3.576 barna fyrstu níu mánuði ársins. Sautján prósent tilkynninga sneru að ofbeldi gagnvart börnum, tæpur helmingur að áhættuhegðun barna og 36 prósent að vanrækslu barna. Innlent 21.11.2005 06:48
Allir komnir með atvinnuleyfi Allir pólsku verkamennirnir sem komu til starfa á Akranesi og í nágrenni á vegum starfsmannaleigunnar 2B eru komnir með atvinnuleyfi og ráðningarsamning við þau fyrirtæki sem þeir starfa hjá. Innlent 21.11.2005 06:21
Mikill stuðningur við rétt til tæknifjóvgunar Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins styðja rúm 82 prósent Íslendinga rétt lesbía í sambúð til að gangast undir tæknifjóvgun með gjafasæði. Konur eru því hlynntari en karlar. Innlent 20.11.2005 22:28
Sýnir umburðarlyndi fólks "Þetta eru stórkostlegar tölur en við höfum ekki haft neina beina vitneskju um hver afstaða Íslendinga væri í þessu máli," sagði Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður Samtakanna '78, þegar hún var innt eftir viðbrögðum við niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins, sem sýna að rúm 82 prósent eru því fylgjandi að lesbíur í sambúð fái að eignast börn með gjafasæði. Innlent 20.11.2005 22:27
Bíll lenti úti í Norðurá Maður á sextugsaldri lést eftir að bíll hans fór útaf veginum í Norðurárdal í Borgarfirði í gærdag skammt ofan við bæinn Sveinatungu og endaði úti í Norðurá. Innlent 20.11.2005 22:28
Tveir drengir í Grafarvogi hætt komnir vegna elds Tveir þrettán ára drengir voru hætt komnir þegar eldfimt efni fuðraði upp í höndum þeirra í Bryggjuhverfinu við Grafarvog í gærkvöldi. Eldur læstist í föt þeirra, einkum annars, og hljóp hann logandi í sjóinn. Fjölmennt björgunarlið var kallað á staðinn og voru piltarnir fyrst fluttir á Slysadeild og þaðan á brunadeild Landsspítalans, þar sem þeir dvelja. Innlent 21.11.2005 06:24
Byggðastofnun hætt að lána Byggðastofnun hefur stöðvað allar lánveitingar vegna slæmrar fjárhagsstöðu. Framkvæmdastjóri segir að þrátt fyrir bætta þjónustu séu mörg brýn verkefni sem bankarnir vilja ekki fjármagna á landsbyggðinni. Innlent 20.11.2005 22:27
Tuttugu ára afmæli fagnað Spaugstofan hélt upp á tuttugu ára starfsafmæli sitt í gær en hún hefur skemmt landsmönnum síðan 1985. Bauð hún af því tilefni velunnurum sínum til veislu í Þjóðleikhúskjallaranum. Mátti þar sjá marga af helstu ráðamönnum þjóðarinnar sem oftar en ekki hafa fengið á sig spaugilega mynd í greiningu þeirra Spaugstofumanna á málefnum líðandi stundar. Lífið 20.11.2005 22:27
Ötull tals-maður barna Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítalans, hlýtur viðurkenningu Barnaheilla fyrir sérstakt framlag í þágu barna og réttinda þeirra. Ólafur er fjórði aðilinn sem fær þessa viðurkenningu en áður hafa Barnahús, Hringurinn og Velferðarsjóður barna á Íslandi hlotið hana. Lífið 20.11.2005 22:27
Avion Group í öðru sæti Avion Group fékk afhenda viðurkenningu fyrir að vera annað framsæknasta fyrirtæki Evrópu árið 2005 í Barcelona á laugardaginn. Meðal þeirra sem voru viðstaddir voru þeir Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, og Joseph Borrell, forseti Evrópuþingsins. Viðskipti innlent 20.11.2005 22:27
Börnin fara í Hjallaskóla Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, segir að þróun Sjálandsskóla hafi gengið samkvæmt áætlun og ánægja ríki með skólann og skólastarfið. Húsnæðið sé nýtt mjög vel og í samræmi við áætlun. Það sé rangt að alltof fá börn séu í skólanum. Það sé frekar þvert á móti. Innlent 20.11.2005 22:27
Fær úttektina ekki afhenta Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, boðaði í apríl síðastliðnum úttekt á starfsemi Byggðastofnunar. Í september lagði Anna Kristín Gunnarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, fram fyrirspurn þar sem hún spurði hvað úttektinni liði, hvort niðurstöður lægju fyrir, hvernig ætti að nýta þær og hvort sú vinna hefði hafist. Innlent 20.11.2005 22:27
Algjört sinnuleysi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir það hafa verið stefnu þessrar ríkisstjórnar frá upphafi að leyfa öldruðum ekki að taka þátt í því góðæri sem hér hefur verið. Það sanni útreikningar Landssambands eldri borgara. Innlent 20.11.2005 22:28
Segja fiskimiðin vera dauð Vestfirskir sjómenn segja að varla nokkurt æti sé á miðunum fyrir fisk og fugl. Hvalur og þorskur eru vannærðir. Sumir telja þetta stafa af hækkun hitastigs sjávar. Aðrir kenna um loðnuveiðum í flottroll. Innlent 20.11.2005 22:27
Grundvallarbreyting á bótakerfinu Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gerir ráð fyrir að á yfirstandandi þingi verði lagt fram og lögfest frumvarp um atvinnuleysisbætur í samræmi við nýtt samkomulag ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins. Atvinnuleysisbætur verði þar í fyrsta skipti tekjutengdar og 180 þúsund króna þak sett á þær í samræmi við nánari útfærðar reglur. Innlent 20.11.2005 22:28
Munurinn kemur á óvart "Kostnaður allur við lántöku íbúðarlána hér á landi er meiri en gerist og gengur erlendis, en hve mikill hann er kemur mér á óvart," segir Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins. Neytendasamtökin kynntu í vikunni úttekt sína á lántökukostnaði vegna íbúðarkaupa hérlendis og í níu öðrum löndum Evrópu. Innlent 20.11.2005 22:27
Valgerður mun draga sig í hlé Valgerður Sigurðardóttir hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Valgerður sóttist eftir að leiða flokkinn en mátti lúta í lægra haldi fyrir Haraldi Ólasyni í prófkjöri á laugardaginn. Innlent 20.11.2005 22:27
Flugvöllurinn verði um kyrrt Brýnt er að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í höfuðborginni að mati framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi, en kjördæmisþing þeirra var haldið á Akureyri og lauk í gær. Innlent 20.11.2005 22:27
Innflytjendum fjölgar Fjöldi innflytjenda í dönskum sveitarstjórnum jókst töluvert eftir sveitarstjórnakosningarnar á þriðjudag. Verða þeir nú 67 talsins en voru á síðasta kjörtímabili 50. Innlent 20.11.2005 22:28