Tónlist

Frítt niðurhal á Vísi

Hljómsveitin Sign sendi í dag frá sér nýstárlega smáskífu. Lag þeirra A Little Bit, sem hefur átt vinsældum að fagna á spilunarlistum verður fáanlegt sem U-myx smáskífa á 7 rásum. Þetta felur í sér að söngurinn er á einni rás, bakraddir á annarri, gítar á þriðju og svo koll af kolli og geta notendur endurhljóðblandað lagið. Hægt er að sækja lagið hér á Vísi og búnað sem til þarf og hefjast svo handa.

Þeir sem eiga u-myx smáskífuna af laginu á tölvunni sinni geta síðan hækkað og lækkað eða tekið rásir út án þess að eiga til þess sérstakt tónlistarprógramm. Í því er sérstaða U-myx fólgin. Það er einfalt að nálgast það og einfalt að nota það.

U-myx er breskt fyrirtæki sem hefur undanfarin 2 ár þróað þessa nýju tækni. Hingað til hafa hljómsveitir á borð við Muse, Feeder og The Killers gert prufuútgáfur af u-myx smáskífur á CD sem hafa spurst hratt út og vakið hrifningu á meðal tónlistarmanna. Um þessar mundir er u-myx að byrja að ná hljómgrunni stærri sveita og hafa bæði Paul McCartney og Robbie Williams boðað að þeir muni senda frá sér u-myx smáskífu á næsta ári.

Egill Rafnsson trommuleikari í Sign sá u-myx smáskífu fyrst í september sl. Þegar hann var staddur í hljóðveri í London að "mastera", Thank God For Silence, sem hljómsveitin gaf út nýverið.

"Þetta er svo skemmtilega einfalt að við urðum að prufa þetta segir hann. Umboðsmaður okkar í Bretlandi þekkti fyrirtækið og sá um að setja upp smáskífuna en það gilda aðeins önnur lögmál í hönnun og framsetningu. Þetta er svona smá leikfang sem allir sem hafa aðgang að tölvu geta fiktað í. Það góða við tölvuforritið sem er notað í þessu er að það krefst ekki neins stuðnings frá öðrum tónlistarforritum. Þetta er fyrirferðarlítið og einfalt og meira að segja amma getur leikið sér með þetta."

Í framhaldi af útgáfunni hér á landi verður u-myx smákífan af A Little Bit gefin út í Bretlandi í febrúar á næsta ári. Þessi nýjung þeirra Sign-liða verður hins vegar einungis fáanleg hér á Vísi fram að áramótum.

Sækja lag






Fleiri fréttir

Sjá meira


×