Innlent

Fréttamynd

Við vorum svangir

Brasilíumennirnir sem unnu við að setja upp gifsveggi fyrir Nýgifs fengu aldrei greidd mánaðarlaun. Ekki var gerður við þá skriflegur ráðningarsamningur. Þeir lögðu eitt sinn niður vinnu vegna þess að þeir áttu ekki peninga fyrir mat.

Innlent
Fréttamynd

Segja launin vera langt undir lágmarkstaxta

Guðmundur Ómar Guðmundsson, formaður Félags byggingarmanna í Eyjafirði, segir tvö fyrirtæki á Akureyri, SS Byggi og Glugga, greiða tékkneskum starfsmönnum fyrirtækjanna lægri laun en lögbundnir lágmarkstaxtar kveði á um.

Innlent
Fréttamynd

Notaði dúkahníf við nauðgun

Hæstiréttur þyngdi í gær um hálft ár refsingu manns sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í apríl í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga konu sem hann hafði áður átt í sambandi við. Þá stóð ákvörðun um 700.000 króna miskabætur.

Innlent
Fréttamynd

Samfylkingin tapar enn fylgi

Samfylkingin tapar fylgi sjötta mánuðinn í röð samkvæmt nýrri mælingu Þjóðarpúls Gallup. Að öðru leyti eru litlar breytingar á fylgi flokka í könnuninni, sem unnin var dagana 26. til 28. nóvember. Samfylkingin mælist með rúmlega 25 prósenta fylgi, en var með um 28 prósenta fylgi í síðustu könnun Þjóðarpúlsins.

Innlent
Fréttamynd

Almenn andstaða við einkavæðingu

Aðeins einn af hverjum fjórum er hlynntur einkavæðingu heilbrigðiskerfisins, að því er fram kemur í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Tæplega einn af hverjum þremur er hlynntur einkavæðingu Landsvirkjunar. Tæp sextíu prósent eru andvíg einkavæðingu skóla, en almennt eru karlar hlynntari einkavæðingu en konur, nema hvað færri karlar vilja einkavæða Landvirkjun en konur.

Innlent
Fréttamynd

Thelma er ljósberi ársins

Thelma Ásdísardóttir, sem nýlega hreif þjóðina með sér fyrir það hugrekki að segja frá þeirri reynslu sinni er hún var misnotuð af föður sínum og öðrum mönnum, mun í dag hlotnast sú viðurkenning að vera Ljósberi ársins.

Innlent
Fréttamynd

Kjör öryrkja hér með þeim lökustu í Evrópu

Ísland er langt á eftir grannþjóðum sínum hvað varðar stöðu öryrkja, samkvæmt nýrri skýrslu Stefáns Ólafssonar prófessors. Eru Íslendingar þar í félagsskap með suður-evrópskum þjóðum á borð við Portúgal og Spán.

Innlent
Fréttamynd

Brýnt að flugvöllur verði við sjúkrahúsið

Forstjórar Landspítalans og Landhelgisgæslunnar segja að rísi nýtt hátæknisjúkrahús í Vatnsmýrinni sé brýnt að flugvöllurinn verði þar áfram. Óraunhæft sé að sinna öllu sjúkraflugi með þyrlum því þær séu hægfleygari og dýrari en flugvélar.

Innlent
Fréttamynd

Listamenn fá bætur vegna skemmda á verkum

Hæstiréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms í málum sem listamennirnir Rúrí og Bjarni Sigurbjörnsson höfðuðu á hendur ríkinu vegna skemmda sem urðu á listaverkum þeirra sem sett voru upp á Þingvöllum árið 2000 í tengslum við Kristnihátíð.

Innlent
Fréttamynd

Tíu árum síðar á ferðinni en annars staðar

Fjölgun öryrkja hérlendis á undanförnum árum er ekkert einsdæmi. Öryrkjum tók að fjölga á Vesturlöndum upp úr 1980 og þróunin hér er aðeins tíu árum síðar á ferðinni en annars staðar segir Stefán Ólafsson prófessor.

Innlent
Fréttamynd

Allt stefnir í harðar deilur

Allt stefnir í harðar deilur milli sjómanna og útgerðar Kaldbaks og Harðbaks á Akureyri, vegna einhliða ákvörðunar útgerðarinnar um að fækka í áhöfn skipanna og stytta landlegu þeirra. Ákvörðun útgerðarinnar er í samræmi við samninga sem gerðir voru fyrir rúmu ári við áhöfnina á Sólbaki, sem vakti hörð viðbrögð verkalýðsforystu sjómanna.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnvöld þögul um framtíð hátækniiðnaðarins

Stjórnvöld þegja þunnu hljóði um hugsanlegar aðgerðir til að gera starfsumhverfi hátæknifyrirtækja hér á landi bærilegra. Á meðan er tugum starfsmanna sagt upp og mörg fyrirtækjanna hyggjast flytja starfsemi sína úr landi.

Innlent
Fréttamynd

Styrkjum úthlutað úr Kristnihátíðarsjóði

96 milljónum var úthlutað úr Kristnihátíðarsjóði í dag en þetta er í síðasta skipti sem úthlutað er úr sjóðnum. Hólarannsókn hlaut hæsta styrkinn, tólf milljónir króna, en það er jafnframt hæsti styrkurinn sem veittur hefur verið úr sjóðnum.

Innlent
Fréttamynd

Mesti verðmunur 107 prósent

Það skiptir máli hvar fólk kaupir inn til jólanna. Samkvæmt verðkönnun ASÍ munar allt að 107 prósentum á klassískum jólavörum, mestu á Jólasíld sem kostar 289 krónur í Bónus en 599 krónur í 10-11. Verð 34 vara var skoðað.

Innlent
Fréttamynd

Brasilíumenn af landi brott í fyrramálið

Fimm brasilískir verkamenn, sem leituðu til Samiðnar vegna vangoldinna launa í gær, fara úr landi í fyrramálið. Samiðn telur þá eiga samtals um þrjár milljónir króna hjá fyrirtækinu Nýgifsi sem þeir unnu fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Líklega gengið frá kaupum fyrir áramótin

Magnús Kristinsson, útgerðarmaður, hefur gert tilboð í Toyota-umboðið, P. Samúelsson hf. Búist er við að gengið verði frá kaupum hans á þessu stærsta bílaumboði landsins fyrir áramót.

Innlent
Fréttamynd

Mikill áhugi fyrir tónleikum gegn virkjanastefnu

Miðar í stúku seldust upp á aðeins fjórum mínútum á stórtónleika gegn virkjanastefnu, en þar munu margir af helstu tónlistarmönnum Íslands koma fram auk erlendra tónlistarmanna. Mikill áhugi er fyrir tónleikunum en erlendir tónlistamenn hafa beðið um að fá að koma fram á tónleikunum.

Innlent
Fréttamynd

Sakfelldur fyrir skilorðsrof og dæmdur í ársfangelsi

Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í eins árs fangelsi fyrir að hafa með fíkniefnabroti rofið skilorð. Rétturinn þyngdi dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra um átta mánuði og staðfesti jafnframt upptöku á amfetamíni og e-pillum sem fundust á manninum á dansleik á Akureyri í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Sjúkraliðar samþykkja samning

Sjúkraliðar sem starfa á Hjúkrunarheimilunum Eir og Skjóli í Reykjavík hafa samþykkt kjarasamning. Samningurinn var undirritaður á fimmtudag í síðustu viku en samþykktur í atkvæðagreiðslu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Yngsta fólkið óttast ekki verðbólgu

Verðbólga veldur sextán til 24 ára fólki minnstum áhyggjum en 25 til 34 ára fólki mestum áhyggjum. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun Gallup fyrir Samtök iðnaðarins. Þar kemur fram að 54 prósent aðspurðra sögðu mikla verðbólgu valda sér mjög eða frekar miklum áhyggjum en 37 prósent sögðu hana valda sér mjög eða frekar litlum áhyggjum.

Innlent
Fréttamynd

Búist við jákvæðri rekstrarniðurstöðu hjá borgarsjóði

Hreinar skuldir borgarsjóðs Reykjavíkur hafa lækkað um 1,4 milljarða króna samkvæmt árshlutauppgjöri sem lagt var fyrir borgarráð í dag. Í tilkynningu frá borgarstjóra segir að rekstrarniðurstaða borgarsjóðs 30. september 2005 hafi verið jákvæð um 743 milljónir króna, en samkvæmt útkomuspá verður niðurstaðan í árslok hagstæð sem nemur 549 milljónum.

Innlent
Fréttamynd

Drengur hætt kominn í sundlaug Bolungarvíkur

Ellefu ára drengur var hætt kominn í sundkennslu í sundlauginni í Bolungarvík í morgun þegar hann var að leik. Drengurinn lét sig fljóta með andlitið í kafi en þegar hann hafði verið þannig nokkuð lengi fór félaga hans að gruna að ekki væri allt með felldu.

Innlent