Innlent
Símasamband komið á að nýju í Kópavogi Bráðabirgðaviðgerð er lokið á rafstrengnum sem bilaði á Kársnesinu í Kópavogi um ellefuleytið í morgun. Vegna þessa náðist ekki símasamband við Atlantsolíu, Atlantsskip og lagerhúsnæði Pennans í á aðra klukkustund. Innlent 27.1.2006 13:18
Hásetarnir ungt fólk sem ekki hefur tekist að fóta sig á vinnumarkaði Fjölsmiðjan í Kópavogi stefnir að útgerð 150 tonna báts á þessu ári þar sem áhöfnin verður skipuð unglingum sem ekki hefur tekist að fóta sig á almennum vinnumarkaði. Innlent 27.1.2006 12:42
Óskað eftir gæsluvarðhaldi yfir karli og konu Lögreglan í Reykjavík kom í gær upp um umsvifamikla kannabisræktun í atvinnuhúsnæði skammt frá aðalstöðvum lögreglunnar. Óskað verður eftir gæsluvarðhaldsúrskurði yfir karli og konu sem handtekin voru í gærkvöldi. Innlent 27.1.2006 11:58
Öryggisverðir gæta gesta á álráðstefnu Samtök atvinnulífsins hafa ráðið öryggisverði frá Securitas til að gæta öryggis á ráðstefnu um ál og orkuframleiðslu sem fram fer á Hótel Nordica í dag. Hópur fólks réðst inn á ráðstefnu um álframleiðslu í fyrra og sletti skyri á gesti. Innlent 27.1.2006 11:45
Bilun í rafstreng í Kópavogi Bilun varð í rafstreng á Kársnesinu í Kópavogi um ellefuleytið í morgun. Vegna þessa næst ekki símasamband við Atlantsolíu, Atlantsskip og lagerhúsnæði Pennans. Unnið er að viðgerð og er áætlað að henni ljúki skömmu eftir hádegi. Innlent 27.1.2006 11:33
Dýrara á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndunum Það er dýrara að búa á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndunum og Íslendingar vinna lengur en frændur þeirra fyrir sambærileg heildarlaun. Þetta kemur fram í samanburðarskýrslu á lífskjörum Norðurlandanna sem hagdeild Alþýðusambandsins tók saman. Innlent 27.1.2006 11:04
Starfsmenn heilbrigðisstétta fái að auglýsa þjónustu sína Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram tillögu á Alþingi um að læknum, tannlæknum, öðrum heilbrigðisstéttum og heilbrigðisstofnunum verði framvegis heimilt að auglýsa þjónustu sína. Innlent 27.1.2006 10:22
Fíkniefni fundust við húsleit í Kópavogi Lögreglan í Kópavogi fann talsvert af fíkniefnum við húsleit í heimahúsi í Kópavogi og í fyrirtæki húsráðandans í Reykjavík seint í gærkvöldi. Jafnframt voru tveir handteknir, en sleppt undir morgun að yfirheyrlsum loknum. Grunur leikur á að efnin hafi verið ætluð til sölu og heldur rannsókn áfram. Við aðgerðina naut lögreglan aðstoðar manna frá öðrum lögregluembættum og Tollgæslunnar og fíkniefnahundur var með í för. Innlent 27.1.2006 07:27
Hálka víða um land Hálka er á Hellisheiði og hálkublettir í Þrengslum. Þá er hálka, snjóþekja og éljagangur á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Á Vestfjörðum er hált á Steingrímsfjarðarheiði, Kleifaheiði og á Klettshálsi. Á Norður- Norðaustur- og Austurlandi er víða hálka eða hálkublettir. Innlent 27.1.2006 07:42
Girti niður um ungan dreng Lögreglan í Reykjavík leitar nú að snyrtilegum sólbrúnum karlmanni , líklega um fimmtugt, sem tældi 11 ára dreng inn í port á Seltjarnarnesi og reyndi þar að girða niður um hann. Drengnum tókst að slíta sig lausan og komast undan á hlaupum. Hann telur að maðurinn hafi verið á blálaeitum station bíl. Í fyrstu uggði drengurinn ekki að sér þar sem maðurinn sagðist þekkja móður hans og afa. Innlent 27.1.2006 07:23
Kannabisræktun í nágrenni við aðalstöðvar lögreglunnar Lögreglan í Reykjavík kom í gær upp um einhverja umfangsmestu kannabisræktun sem vitað er um hér á landi til þessa, í atvinnuhúsnæði skammt frá aðalstöðvum lögreglunnar. Auk þess hefur töluvert af fíkniefnum fundist við húsleitir í tengslum við rannsóknina og er að minnstakosti tvennt í haldi lögreglu vegna rannsóknarinnar. Innlent 27.1.2006 07:07
Reyndi að tæla ellefu ára dreng Maður á sextugsaldri reyndi að tæla ellefu ára dreng inn í húsasund við bæjarskrifstofur Seltjarnarness rétt fyrir klukkan 18.00 í dag. Maðurinn var byrjaður að hafa sig í frammi við drenginn þegar honum tókst að komast undan. Foreldrar drengsins gerðu lögreglu viðvart og er málið í rannsókn hjá lögregluyfirvöldum. Innlent 26.1.2006 22:44
Íslandsmet í skattpíningu Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í utandagskrárumræðum á Alþingi í dag um breytingar á skattbyrði, að þrír síðustu fjármálaráðherrar Íslands ættu Íslandsmet í skattpíningu á almenningi. Þá vísaði hún í grein Stefáns Ólafssonar prófessors þess efnis að skattbyrði hefði aukist hjá heimilum með lágar og meðaltekjur eða hjá 90 prósentum heimila. Innlent 26.1.2006 22:22
Marsvín rak á land Tveggja metra langt marsvín rak á land við Vík í Mýrdal í morgun. Sandur og grynningar eru út af ströndinni á þessum slóðum en dýpi á einum stað og þar koma gjarnan hvalir til að leita ætis. Marsvínið lokaðist þar inni og drapst. Innlent 26.1.2006 22:17
Sex hundruð ábendingar á ári um barnaklám Á síðasta ári bárust Barnaheillum hátt í sex hundruð ábendingar um barnaklám á netinu. Fjöldi mála sem borist hafa lögreglu vegna vörslu á barnaklámi hefur aukist á síðustu árum. Innlent 26.1.2006 22:00
Ásdís Halla fær FKA-viðurkenningu Ásdís Halla Bragadóttir, forstjóri BYKO, fékk í dag afhenta FKA-viðurkenningu. Verðlaunin eru veitt fyrir athyglisvert framlag konu til atvinnulífsins á Íslandi. Innlent 26.1.2006 21:53
Horfa þarf til annarra meðferðarúrræða Margir geðfatlaðir telja að tími sé kominn til að horfa til annarra meðferðarúrræða en bara lyfjameðferðar. Þeir telja of lítið tillit tekið til skoðana þeirra á geðheilbrigðisþjónustu í landinu. Innlent 26.1.2006 21:07
Geta fullnýtt kortaheimildir á örskotsstundu Glæpamenn sem stela krítarkortaupplýsingum úr hraðbönkum geta fullnýtt kortaheimildir á örskömmum tíma. Örgjörvi verður kominn á íslensk krítarkort innan nokkurra vikna til að hindra að hægt sé að stela upplýsingum af kortunum við hraðbankanotkun. 500 þúsund kort eru í notkun hér á landi. Innlent 26.1.2006 20:59
Þrjú trúfélög fá vonir um lóðir Rússneska rétttrúnaðarkirkjan gæti fengið að reisa guðshús við Landakotskirkju, ásatrúarmenn gætu reist hof í Öskjuhlíðinni og múslímar mosku í Elliðaárdalnum ef hugmyndir skipulagssviðs Reykjavíkurborgar ná fram að ganga. Innlent 26.1.2006 20:47
Lífskjör á Íslandi heldur lakari en á Norðurlöndum Efnahagsleg lífskjör á Íslandi eru sambærileg við eða heldur lakari en á Norðurlöndum, vinnutími mun lengri og opinber þjónusta dýrari. Íslendinga þurfa því að hafa þeim mun meira fyrir því að viðhalda sambærilegum kjörum og gerist á Norðurlöndum. Innlent 26.1.2006 20:42
Sökuð um að ganga erinda Bandaríkjamanna Íslensk stjórnvöld voru sökuð um að ganga erinda bandaríska landvarnaráðuneytisins í stað þess að gæta hagsmuna þjóðarinnar í skeleggum umræðum um fangaflug á Alþingi í dag. Innlent 26.1.2006 20:36
Meiri lán og hærri viðskiptahalli Íslendingar taka lán sem aldrei fyrr, viðskiptahallinn er í sögulegu hámarki og launin hækka og hækka. Þetta má lesa út úr orðum Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra sem kynnti 0,25 prósentustiga vaxtahækkun í morgun. Stýrivextirnir 10,75 prósent eftir hækkunina. Innlent 26.1.2006 20:26
Högnuðust um 80 milljarða samanlagt Samanlagður hagnaður KB banka og Straums-Burðaráss nam tæpum áttatíu milljörðum króna í fyrra. Til samanburðar má geta þess að það kostar ríkið um sextíu milljarða króna að reka sjúkrahús, heilbrigðisstofnanir og öldrunarheimili landsins á þessu ári. Innlent 26.1.2006 20:07
Farmur féll af flutningabíl Nokkur hætta skapaðist þegar timburfarmur féll af flutningabíl þegar hann fór um hringtorgið við Norðlingaholt og Rauðavatn síðdegis í dag. Engin slys urðu þó á fólki. Innlent 26.1.2006 19:43
Laun leikskólakennara að hækka? Gert er ráð fyrir að laun leikskólakennara hækki um rúmlega tólf og hálft prósent og deildarstjóra á leikskólum um fjórtán komma þrjú prósent í tillögu sem lögð verður fyrir launanefnd sveitarfélaganna á laugardaginn. Miklar líkur eru taldar á að tillagan verði samþykkt. Innlent 26.1.2006 18:58
Bauhaus vill verslun í Reykjavík Stærsta byggingavöruverslun landsins verður opnuð sumarið 2007. Það er byggingavörurisinn Bauhaus sem hyggst keppa við erkifjendurna Húsasmiðjuna og Byko sem lengi vel hafa ráðið markaðinum hér á landi. Innlent 26.1.2006 18:56
Dómarar fresta ákvörðun um málsókn Félagar í Dómarafélagi Íslands ákváðu í dag að fresta ákvörðun um hvort þeir höfði mál á hendur stjórnvöldum vegna lagasetningar þar sem launahækkanir samkvæmt kjaradómi voru felldar úr gildi. Þess í stað verður óskað viðræðna við stjórnvöld. Innlent 26.1.2006 17:55
Dæmdar 30 milljónir í björgunarlaun Útgerðin Íslenskur skelfiskur verður að greiða Langanesi þrjátíu milljónir króna í björgunarlaun. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðað að ekki þyrfti að greiða þau björgunarlaun sem deilt var um. Innlent 26.1.2006 17:47
100 frá stofnun Verkamannafélagsins Dagsbrúnar 100 ár eru í dag liðin frá stofnun Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, sem leiddi réttindabaráttu verkafólks langt fram eftir síðustu öld. Innlent 26.1.2006 17:46
Þuklaði á tíu ára stúlku Hæstiréttur dæmdi karlmann í dag í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tíu ára gamalli stúlku. Maðurinn þuklaði á brjóstum hennar og kynfærum þar sem þau dvöldu á heimili bróður mannsins. Innlent 26.1.2006 17:33