Innlent
Mikil áhersla á álver getur skaðað aðrar útflutningsgreinar Mikil áhersla stjórnvalda á álver getur skaðað aðrar útflutningsgreinar sem gefa meira í þjóðarbúið. Þetta sagði Ágúst Guðmundsson, stjórnarformaður Bakkavarar, á Viðskiptaþingi í dag. Innlent 8.2.2006 23:50
Tókust á í kappræðum í kvöld Skipulagsmálin voru áberandi þegar frambjóðendurnir þrír, sem sækjast eftir að leiða lista Samfylkingarinnar í næstu borgarstjórnarkosningum, tókust á í kappræðum í kvöld. Innlent 8.2.2006 23:44
TF-Líf sótti slasaðan sjómann TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti slasaðan sjómann í frystitogarann Frera þar sem hann var að veiðum 60 sjómílur norðvestur af Bjargtöngum. Maðurinn beinbrotnaði illa þegar gilskrókur lenti á honum. Innlent 8.2.2006 22:24
Vill endurskoða hömlur á fjárfestingum Forsætisráðherra segir að endurskoða verði takmarkanir við fjárfestingum útlendinga hér á landi, meðal annars í sjávarútvegi. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir þetta ekki nýja hugmynd hjá forsætisráðherra en að margt sé brýnna til að bæta stöðu sjávarútvegsins. Innlent 8.2.2006 21:08
Sirrý í Ísland í bítið Sigríður Arnardóttir - Sirrý - hefur verið ráðin til starfa hjá 365 miðlum og tekur við umsjón morgunþáttarins Ísland í bítið á NFS og Stöð 2 ásamt Heimi Karlssyni. Sigríður, sem á að baki langan og farsælan feril í íslenskum fjölmiðlum, birtist fyrst á skjánum við hlið Heims í næstu viku, nánar tiltekið á föstudaginn 17. febrúar. Lífið 8.2.2006 21:05
Leikritið um Ronju ræningjadóttur frumsýnt á sunnudag Það var líf og fjör á æfingu á leikritinu um Ronju rængingjadóttur í Borgarleikhúsinu í dag. Óhætt er að segja að þetta góðkunna ævintýri eldist vel enda er boðskapurinn góður. Innlent 8.2.2006 17:36
Löngu tímabær yfirlýsing Það var tími til kominn segir formaður Samfylkingar um yfirlýsingu forsætisráðherra um að Ísland verði komið í Evrópusambandið árið 2015. Utanríkisráðherra vill ekkert tjá sig um yfirlýsingu forsætisráðherra. Innlent 8.2.2006 16:58
Úrskurði um aðskilnað í Baugsmáli snúið í Hæstarétti Hæstiréttur sneri í dag við úrskurði héraðsdóms frá 31.janúar síðastliðnum um að aðskilja mál endurskoðenda Baugs frá máli stjórnenda fyrirtækisins. Hæstiréttur hafnaði þessum úrskurði og segir að málið verði að taka fyrir í heild sinni. Innlent 8.2.2006 16:52
Þagnarskylda er læknum dýrmæt Landlæknir segir þagnaskyldu lækna mjög dýrmæta og ríkar ástæður þurfi til að frá henni sér vikið. Hann telur að skilin þurfi þó að vera skýr í sakamálum, því innflutning fíkniefna séu almannahagsmuni og þá eigi frekar að fórna minni hagsmunum en meiri. Innlent 8.2.2006 16:16
Geir neitar að tjá sig Geir H. Haarde utanríkisráðherra neitar að tjá sig um þá yfirlýsingu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra að hann telji að Ísland verði orðið aðili að Evrópusambandinu árið 2015. Innlent 8.2.2006 15:32
Auglýsing Stefáns Jóns aftur í spilun Auglýsingadeild 365 hugðist stöðva birtingu á útvarpsauglýsingu frambjóðanda í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, á þeirri forsendu að þar var verið að auglýsa dagskrárlið á annarri útvarpsstöð. Sættir náðust hins vegar í málinu í gærkvöld. Innlent 8.2.2006 15:09
Heimildir LN til launahækkana nýttar í Hafnarfirði Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í gær, þriðjudaginn 7. febrúar, að nýta að fullu þær heimildir til hækkunar launa leikskólakennara og félagsmanna í Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar sem tillögur launanefndar frá 28. janúar sl. gera ráð fyrir. Innlent 8.2.2006 14:36
Ísland í ESB fyrir 2015 Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, spáir því að Ísland verði gengið í Evrópusambandið fyrir árið 2015. Þetta kom fram í ræðu hans á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands sem haldið er í dag. Þingið ber yfirskriftina "Ísland árið 2015". Innlent 8.2.2006 14:11
Vilja ekki einhliða styttingu framhaldssskóla Kennarafélag Menntaskólans á Akureyri mótmælir þeim hugmyndum sem uppi eru um einhliða styttingu framhaldsskóla úr fjórum árum í þrjú til að ná fram styttingu á heildar skólagöngu fyrir stúdentspróf. Þrátt fyrir að ekki sé talað um slíka styttingu í samkomulagi KÍ og menntamálaráðuneytis frá 2. febrúar síðastliðnum virðist báðir aðilar sammála um að hrinda henni í framkvæmd og skuli undirbúningur þessarar styttingar hefjast árið 2007 til að hún geti gengið í gildi árið 2010. Innlent 8.2.2006 13:54
Loðnuvertíðin með ólíkindum Loðnuvertíðin nú í vetur er öll með miklum ólíkindum og segja Austfirðingar að hún sé að fljóta framhjá þeim án þess að svo mikið sem skilja eftir peningalykt, í víðasta skilningi þess orðs. Innlent 8.2.2006 12:43
Sala á flugmiðum gengu vel Sala á flugmiðum til Lundúna með British Airways, sem hefur áætlunarflug til og frá Íslandi í lok mars, gengur afar vel að sögn Betty Livingstone, talsmanns á skrifstofu félagsins í Bretlandi. Eftir að salan hófst í síðustu viku bar nokkuð á vandamálum við að greiða með krítarkortum á netinu. Betty segir að vandinn hafi verið hjá Visa en búið sé að leysa málið. Innlent 8.2.2006 12:34
2 litlir jarðskjálftar í jaðri Heimaeyjar Tveir litlir jarðskjálftar urðu á mánudag í jarðir Heimaeyjar og rétt norðan við eynna. Upptök þeirra voru nánast undir syðri gangaopum hugsanlegra jarðganga á milli lands og Eyja. Innlent 8.2.2006 12:07
Göng milli lands og Eyja ekki framtíðarkostur Göng milli lands og Eyja eru ekki framtíðarkostur að mati samgöngunefndar Alþingis að því er fram kemur á fréttavefnum Suðurland.is Innlent 8.2.2006 12:03
Máli sr. Hans Markúsar vísað frá dómi Héraðsdómur Reykjaness vísað í morgun frá dómi máli sem séra Hans Markús Hafsteinsson, fyrrverandi sóknarprestur í Garðasókn, höfðaði á hendur Matthíasi Guðmundi Péturssyni, Arthur Knut Farestveit, Friðriki Hjartar, Nönnu Guðrúnu Zoëga og íslensku þjóðkirkjunni vegna tilflutnings hans í starfi. Innlent 8.2.2006 11:26
SUF hvetur stjórnvöld til að aðstoða við ættleiðingar Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna skorar á Íslensk stjórnvöld að leita leiða til að aðstoða kjörforeldra við ættleiðingar. Í nágrannalöndunum séu veittir styrkir til að vega upp á móti miklum kostnaði við ættleiðingar, en enga slíka aðstoð sé að fá hér á landi. Innlent 8.2.2006 10:54
Mikið um búferlaflutninga til og frá Íslandi 2005 Töluvert var um búferlaflutninga til og frá Íslandi á síðasta ári. Aðfluttir umfram brottfluttir voru hátt í 4.000 en árið áður voru þeir 530. Er þetta rúmlega sjöföldun milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar kemur fram að í fyrra voru rúmlega 68.000 breytingar á lögheimili skráðar í þjóðskrá. Þar af var í rúmlega 56.000 tilvika um að ræða búferlaflutninga innanlands. Innlent 8.2.2006 10:20
VG í Reykjavík vill slíta samstarfi um Strætó Vinstri grænir í Reykjavík vilja slíta samstarfi við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu um rekstur Strætó, og að rekstur almenningsvagna eigi að verða hjá hverju sveitarfélagi fyrir sig. Innlent 8.2.2006 09:29
Launamisrétti í sögulegu hámarki Starfsgreinasambandið segir að forsendur kjarasamninga þess við ríkið og samtök atvinnulífsins séu brostnar ef lægstu laun á hinum almenna launamarkaði verða ekki hækkuð til samræmis við þær hækkanir sem launanefnd sveitarfélaganna leggur til. Innlent 8.2.2006 09:03
Gera ekki kröfu um annað sætið Konurnar sem komu næstar á eftir Önnu Kristinsdóttur í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík gera ekki kröfu um annað sætið. Það lítur því út fyrir að tveir karlmenn leiði lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Innlent 8.2.2006 00:10
Stúdentakosningar í HÍ í dag og á morgun Stúdentar við Háskóla Íslands velja í dag og á morgun nýja fulltrúa til þess að gæta hagsmuna sinna næsta árið. NFS leit við á kosningaskrifstofum tveggja fylkinga í gærkvöld þar sem frambjóðendur og sjálfboðaliðar unnu enn hörðum höndum. Innlent 8.2.2006 00:09
365-miðlar stöðva birtingu auglýsingar frá Stefáni Jóni 365-miðlar hafa stöðvað birtingu á útvarpsauglýsingu frá Stefáni Jóni Hafstein, frambjóðanda í prófkjöri Samfylkingar, á útvarpsstöðvum í eigu fyrirtækisins. Í auglýsingunni kemur fram að fólk geti spurt Stefán Jón í beinni útsendingu á Útvarpi Sögu um málefni í tengslum við framboð hans. Innlent 8.2.2006 07:23
Minnsti loðnukvóti í meira en áratug Loðnuvertíðin nú í vetur er öll með miklum ólíkindum eftir að loks fékst 150 þúsund tonna kvóti, sem er reyndar sá minnsti í meira en áratug. Engar loðnubræðslur eru í gangi nema hvað ein og ein er gangsett daga og dag til að bræða úrgang frá loðnufrystingunni. Innlent 8.2.2006 06:51
Forsendur kjarasamninga brostnar Starfsgreinasambandið segir að forsendur kjarasamninga þess við ríkið og Samtök atvinnulífsins séu brostnar ef lægstu laun á hinum almenna launamarkaði verða ekki hækkuð til samræmis við þær hækkanir sem launanefnd sveitarfélaganna leggur til. Innlent 8.2.2006 06:49
Vinstri grænir í Reykjavík vilja slíta samstarfi um rekstur strætó Vinstri grænir í Reykjavík vilja slíta samstarfi við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu um rekstur Strætó, og að rekstur almenningsvagna eigi að verða hjá hverju sveitarfélagi fyrir sig. Innlent 8.2.2006 06:55
Þorskurinn verðmætastur söluafurða hjá Þorbirni Fiskanesi Þorbjörn Fiskanes hf. seldi fiskafurðir fyrir tæpa 3,8 milljarða króna á síðasta ári. Á fréttavef Víkurfrétta segir að frystiskip félagsins hafi framleitt fiskafurðir fyrir um 1,8 milljarð króna og í fiskvinnslum félagsins í landi voru framleiddar fiskafurðir fyrir tæpa 2 milljarða, en það er um 10% aukning frá árinu 2004. Mest var verðmæti þorskafurða af heildarsölunni eða rúmir tveir milljarðar króna. Innlent 8.2.2006 06:46