Innlent
Öryggisgæsla hert á Keflavíkurflugvelli Öryggisgæslan á Keflavíkurflugvelli verður hert til muna á næstu misserum. Jóhann R. Benediktsson sýslumaður á flugvellinum segir Íslendinga þurfa að venjast því að þeir eru hluti af alþjóðlegu samfélagi. Innlent 12.2.2006 16:51
Leggur til hækkun á gjöldum Samkvæmt nýju frumvarpi fjármálaráðherra hækkar gjald fyrir að sækja um íslenskan ríkisborgararétt úr þrettán hundruð og fimmtíu krónum í tíu þúsund krónur. Þá þurfa landsmenn samkvæmt frumvarpinu að greiða sérstaklega fyrir að fletta Lögbirtingablaðinu á netinu. Innlent 12.2.2006 17:07
Djöfladýrkendur vilja stofna trúfélag á Íslandi Tveir íslenskir satanistar eða djöfladýrkendur ætla að sækja um leyfi til að stofna satanískt trúfélag hér á landi. Í kirkju satans í New York, kunnasta musteri skrattans, eru íslendingar meðal safnaðarmeðlima. Fjallað verður um satanisma í Kompási í kvöld. Innlent 12.2.2006 16:57
Var að reykja um borð í flugvél Lögreglan á Keflavíkurflugvelli var kölluð út að vél Icelandair við komuna frá Kaupmannahöfn um þrjú leytið í dag þar sem farþegi um borð hafði verið að reykja inn á klósetti vélarinnar. Slíkt er algjörlega bannað og liggja viðurlög við því. Lögreglan tók skýrslu vegna málsins en lögreglan segir að ekki sé um einstakt tilvik að ræða þar sem slík atvik eigi sér stað af og til. Innlent 12.2.2006 18:14
Vilja viðræður um aðild að ESB Stjórn Félags ungra Framsóknarmanna í Reykjavík vill að hafnar verið aðildarviðræður við Evrópusambandið um aðild Íslands að sambandinu. Félagið telur að aðildarviðræður milli Íslands og Evrópusambandsins séu réttur vettvangur til að kanna hvort að það þjóni hagsmuni Íslendinga betur að vera aðilar að sambandinu heldur en að standa utan þess. Félagið vill að aðildarviðræður verði hafnar ekki síðar en á næsta kjörtímabili. Innlent 12.2.2006 15:46
FlyMe kaupir Lithuanaian Airlines Sænska lággjaldaflugfélagið FlyMe, sem meðal annars er í eigu Fons eignarhaldsfélags, hefur samið um kauprétt á öllum hlutabréfum í litháenska flugfélaginu Lithuanaian Airlines. Kaupin munu eiga sér stað í nokkrum skrefum, en fram til 30. mars fer fram áreiðanleikakönnun en að henni lokinni verður gengið í kaupin. Fons á einnig Iceland Express flugfélagið. Innlent 12.2.2006 15:28
Rafmagn komið á aftur Rafmagnslaust varð í hluta Kópavogs vegna háspennubilunar um tvöleytið í dag. Rafmagnslaust varð á Smiðjuvegi, Kársnesbraut og í næsta nágrenni. Rafmang er nú komið á aftur en rafmagnsleysið má rekja til háspennubilunar í Lundi í Kópavogi. Innlent 12.2.2006 15:16
Rafmagnslaust í hluta Kópavogs Rafmagnslaust er í hluta Kópavogs vegna háspennubilunar. Rafmagnslaust er á Smiðjuvegi, Kársnesbraut og í næsta nágrenni. Viðgerð stendur yfir en ekki er ljóst hvenær henni lýkur. Innlent 12.2.2006 14:46
Yfir fimm þúsund hafa kosið Alls hafa fimm þúsund og eitt hundrað kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Kjörstöðum verður lokað klukkan sex. Í kvöldfréttum NFS klukkan hálf sjö verður bein útsending frá Þróttarheimilinu, þar sem fyrstu niðurstöður úr talningu verða kynntar. Mjótt hefur verið á mununum í skoðanakönnunum milli þeirra þriggja sem berjast um efsta sætið, Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra og borgarfulltrúanna, Dags B. Eggertssonar og Stefáns Jóns Hafstein. Innlent 12.2.2006 14:09
Áframhaldandi skjálftavirkni út af Grímsey Áframhaldandi jarðskjálftavirkni hefur verið út af Grímsey í nótt og í morgun. Stærsti skjálftinn frá miðnætti mældist 3,2 á richter kvarða. En skjálftavirkni hefur verið mikil á svæðinu síðustu þrjá dagana og á hátt í hundrað skjálftar hafa mælst en sá stærsti var 4,2 á richter. Innlent 12.2.2006 13:54
Fjórir fluttir á slysadeild Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir bílveltu á Vesturlandsvegi rétt fyrir klukkan átta í morgun. Enginn er þó alvarlega slasaður. Slysið átti sér stað fyrir ofan Grundarhverfið á Kjalarnesi en bíllinn hafnaði á hliðinni eftir veltuna. Fólkið sem er á tvítugsaldri hefur allt verið útskrifað nema einn sem verður áfram undir eftirliti lækna í dag. Innlent 12.2.2006 11:56
Mikið um ölvunarakstur Óvenju margir voru teknir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni í nótt en sjö voru teknir grunaðir um ölvun við akstur. Sama ku hafa verið uppi á teningnum nóttina þar á undan en þá voru níu teknir fyrir ölvunarakstur. Annars hefur helgin verið með rólegasta móti um land allt. Innlent 12.2.2006 10:36
Mikil aukning á milli ára Barnarverndarnefndum landsins bárust tæpar fimmþúsund og níuhundruð tilkynningar vegna barna á síðasta ári. Það eru um fimmtíu prósent fleiri en árið 2004. Um helmingur tilkynninga var vegna áhættuhegðunar barns, þrjátíu prósent vegna vanrækslu og sextán prósent vegna ofbeldis. Innlent 12.2.2006 10:32
Sameining samþykkt í Flóanum Sameining hreppanna í austanverðum Flóanum var samþykkt í gær. Hrepparnir sem um ræðir eru Gaulverjabæjarhreppur, Hraungerðishreppur og Villingaholtshreppur og var kjörsókn var rúmlega sjötíu og eitt prósent. Tillagan var samþykkt með tæpum sjötíu prósent atkvæða. Í Hraungerðishreppi munaði þó ekki miklu en aðeins fjögur atkvæði skyldu á milli þeirra sem voru á móti sameiningu og þeirra sem voru henni hlynntir. Innlent 12.2.2006 10:45
Bæjarstjórar í fyrstu sætum Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri hlaut yfirburðakosningu í prófkjöri Sjálfstæðismanna á Akureyri í gær. Þá hlaut Guðmundur G. Gunnarsson, bæjarstjóri á Álftanesi, afgerandi meirihluta atkvæða í prófkjöri Sjálfstæðismanna á Álftanesi og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði fékk einnig góða kosningu. Innlent 12.2.2006 10:14
Brjálað veður á Flateyri í gærkvöld Mikið vonskuveður reið yfir Flateyri í gærkvöld og fór vindhraði í allt að fjörtíu og fjóra metra á sekúndu. Vöruskemma í bænum hreinlega sprakk með þeim afleiðingum að braki rigndi yfir nærliggjandi hús og bíla. Tjónið af völdum veðurofsans er talið nema tugum milljóna. Innlent 11.2.2006 12:19
Sprengju kastað á símamarkaðinn Stóru símafyrirtækin og fleiri ætla að bjóða nýja tegund símaþjónustu, netsíma. Póst- og fjarskiptastofnun hefur heimilað flutning símanúmera yfir í nýja kerfið. Útlit er fyrir stóraukna samkeppni og lækkandi símakostnað. Innlent 10.2.2006 22:08
Efasemdir um einkavæðingu Landsvirkjunar Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segist hafa miklar efasemdir um að einkavæða beri Landsvirkjun. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir við upphaf landsfundar flokksins að stefna bæri að því að einkavæða fyrirtækið. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra tók í sama streng í viðtali við fjölmiðla. Innlent 10.2.2006 22:38
Hvattir til að hunsa staðsetningargjald Félag íslenskra stórkaupmanna vill að Samkeppnisráð athugi hvort um ólögmætt samráð hafi verið að ræða hjá Eimskipi og Samskipum við upptöku staðsetningargjalds. Það hvetur félagsmenn til að hunsa gjaldið. Forstjóri Samskipa segir ekkert óeðlilegt við staðsetningargjaldið. Innlent 10.2.2006 22:33
Holtasóley að þjóðarblómi Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, mælti í dag fyrir þingsályktunartillögu um að holtasóley verði gerð að þjóðarblómi Íslendinga.Ráðherrann sagði blómið fallegt og og það væri ánægjulegt að fá að leggja slíkt mál fyrir Alþingi. Innlent 10.2.2006 22:17
Ríkið haldi í þrjátíu og tvær jarðir Skriðuklaustur, Fljótsdalshéraði og Víðimýri í Skagafirði eru jarðir sem eiga að vera áfram í ríkiseigu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu um þjóðjarðir sem landbúnaðarráðuneytið hefur látið gera. Innlent 10.2.2006 22:10
Hvað á barnið að heita? Nöfnin Naranja og Bill eru íslensk mannanöfn en ekki Júdith og Mikhael samkvæmt ákvörðun þriggja manna nefndar, sem hefur það í hendi sér hvað Íslendingar mega og mega ekki heita. Innlent 10.2.2006 21:56
Á áttunda hundrað hafa kosið Um 740 manns höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar atkvæðagreiðslu utan kjörfundar lauk klukkan átta. Þar af hafði um helmingur greitt atkvæði í dag. Innlent 10.2.2006 20:49
Orkuveitan byggir veitur í Innri Akraneshrepp Orkuveita Reykjavíkur, Innri Akraneshreppur og fyrirtækið Stafna á milli á Akranesi hafa gert samning um að Orkuveitan byggi upp og reki fráveitu, gagnaveitu, hitaveitu og vatnsveitu í landi Kross í Innri Akraneshreppi. Innlent 10.2.2006 20:19
Skyndihjálparmaður ársins Rauði kross Íslands valdi Guðrúnu Björk Sigurjónsdóttur sem Skyndihjálparmann ársins fyrir rétt viðbrögð á neyðarstundu en hún vann það einstaka þrekvirki að bjarga þriggja ára dreng og stúlku frá drukknun þegar þau lentu í sjónum á Snæfellsnesi í apríl í fyrra. Innlent 10.2.2006 20:03
Áhyggjulaus um hagsmunaárekstur Þau sem keppa um fyrsta sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík verja hvert um sig um fimm milljónum króna til baráttunnar. Þau hafa ekki áhyggjur af hagsmunaárekstri þó meðal stuðningsaðila þeirra sé fjöldi fyrirtækja. Innlent 10.2.2006 19:43
Engar bætur fyrir fótamissi Pólskur maður, sem missti af báðum fótum eftir að hafa fengið blóðeitrun síðasta sumar við vinnu hér á landi, hefur lent á milli þils og veggjar í kerfinu og fær engar tryggingabætur. Átján ára sonur mannsins kom til landsins fyrir viku til að aðstoða hann og létta honum lífið. Innlent 10.2.2006 19:24
Oft stungið af eftir ákeyrslu Lögreglan í Kópavogi hefur vart undan að leita uppi ökumenn sem valda tjóni og stinga af frá verknaðinum. Lögreglan hvetur þá sem verða vitni af slíku til að taka niður númer þess sem stingur af og láta lögreglu vita. Jafnframt sé mjög mikilvægt að ökumenn hafi samband við lögreglu valdi þeir tjóni á annarri bifreið. Það sem í fyrstu virðist vera lítið tjón reynist oft vera mun meira en tryggingar bæta ekki tjónið nema um kaskótryggingu sé að ræða. Innlent 10.2.2006 18:13
Líkamsárás dæmd lögmæt Þrítugur Pólverji var í dag sýknaður af ákæru um líkamsárás fyrir Héraðsdómi Reykjaness þar sem árás hans á 29 ára Íslending, sem átti sér stað aðfaranótt 9. nóvember 2005, var dæmd lögmæt og þar með refsilaus. Innlent 10.2.2006 17:11
Ekki seinna að vænna að jafna stöðuna Það gæti verið gaman að jafna aðeins stöðuna gagnvart Borís Spasskí segir Friðrik Ólafsson um skákir þeirra á morgun. Hann segir málþingið um feril sinn þó aðalatriðið og vonar að vinur sinn Spasskí verði ekki of harður í dómum um sig. Innlent 10.2.2006 17:04