Innlent

Fréttamynd

Keyptu 40 prósent fleiri bíla en árið áður

Íslendingar slógu öllum Vestur-Evrópumönnum við í bílakaupum í fyrra, sem jukust um rúm 40 prósent frá árinu á undan. Næst mest var aukningin í Danmörku, eða um 20 prósent og þar næst á Írlandi, ellefu prósent.

Innlent
Fréttamynd

Norðmenn hættir loðnuveiðum

Síðasta norska loðnuskipið hélt út úr íslenskri lögsögu í gær, en veiðar norsku skipanna hér við land gengu illa að þessu sinni. Þau voru flest ellefu við veiðar hér og máttu aðeins veiða í nætur, en ekki flottroll.

Innlent
Fréttamynd

Íslensk börn eru að þyngjast

Íslensk börn eru sífellt að þyngjast og dæmi eru um að börn á leikskólaaldri mælist of þung. Þetta var meðal þess sem kom fram á málþingi um mataræði grunnskólanema sem Náttúrulækningafélag Íslands stóð fyrir í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

Leita að ömurlegu ljóði

Leitin að ömurlegasta ljóðinu er hafin. Það þarf að vera þrjú erindi sem hvert inniheldur fjórar fimmtán atkvæða ljóðlínur. Tekið verður tillit til asnalegra myndlíkinga, klaufalegs orðalags og ósmekklegs umfjöllunarefnis auk annarra stílbragða ömurðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Þrír piltar réðust á konu

Þrír unglingspiltar réðust í gærkvöldi á konu, sem var ný búin að taka reiðufé út úr hraðbanka í Kópavogi og reyndu að hrifsa af henni veskið. Hún brást hart við, hristi þá af sér og hringdi á lögreglu. Nokkru síðar ruddust piltarnir, sem eru 14 og 15 ára inn á fund dagmæðra í Kópavogi og ætluðu að ræna þær.

Innlent
Fréttamynd

Tímaspursmál hvenær fuglaflensan kemur til Íslands

Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir, segir aðeins tímaspursmál hvenær fuglaflensan greinist hér á landi en nær 60 milljónum króna verður varið í varnir gegn fuglaflensu, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Ríkið hefur keypt fuglaflensulyf fyrir um níutíu þúsund manns og er enn verið að auka við birgðirnar.

Innlent
Fréttamynd

Atvinnuleysi í janúar 1,6%

Atvinnuleysi í janúar var 1,6%. Prófessor í hagfræði segir svo lítið atvinnuleysi geta valdið launaskriði og verðbólgu.

Innlent
Fréttamynd

Trúnaðarmaður starfsmanna á Kárahnjúkasvæðinu rekinn

Einn trúnaðarmanna starfsmanna á Kárahnjúkasvæðinu var í dag rekinn úr starfi. Yfirtrúnaðarmaður á svæðinu segir engar skýringar hafa verið gefnar á uppsögninni. Upplýsingafulltrúi Impregilo segir að maðurinn hafi ítrekað gerst brotlegur í starfi.

Innlent
Fréttamynd

Mómæli við íslenska sendiráðið í London

Virkjunarframkvæmdum við Kárahnjúka var mótmælt við íslenska sendiráðið í London í dag. Eftir að hafa mótmælt fyrir utan sendiráðið hélt hópurinn að vísindasafninu í London. Þar stendur nú yfir sýningin Pure Iceland en Landsvirkjun er meðal þeirra sem styrkja sýninguna.

Innlent
Fréttamynd

Óvíst hvort skipulögð amfetamínframleiðsla fari fram á Íslandi

Yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar segir ekki hægt að fullyrða að skipulögð amfetamínframleiðsla fari fram hér á landi, þó vissulega sé óyggjandi að menn fikti við slíkt. Tilkynnt var í dag að tveir Litháar væru í haldi lögreglunnar, grunaðir um að tengjast framleiðslu á amfetamíni.

Innlent
Fréttamynd

Milljónum þegar varið í fuglaflensuvarnir

Hið opinbera hefur þegar varið yfir hundrað milljónum króna í fuglaflensuvarnir. Kostnaðurinn verður margfalt meiri ef flensan verður að faraldri og er til dæmis áætlað að einnota sóttvarnarbúningar myndu kosta allt að þrjú hundruð milljónum króna. Sérstakur viðbúnaður verður til að rannsaka farfugla þegar þeir koma til landsins í vor.

Innlent
Fréttamynd

Óttast stofnun leynilögreglu

Þingmenn stjórnarandstöðunnar efuðust um fyrirhugaða greiningardeild lögreglunnar sem rannsaka á landráð og brot gegn stjórnskipan ríkisins, á Alþingi í dag, en þingmennirnir telja að verið sé að setja á fót leyniþjónustu. Fyrsta umræða um frumvarp um breytingu á lögreglulögunum fór fram í dag.

Innlent
Fréttamynd

Söluandvirði Hjálpum þeim um átta milljónir króna

Hjálparstarf kirkjunnar tók á móti átta milljóna króna styrk til hjálparstarfs í Pakistan í Grensáskirkju í dag. Söluandviðri smáskífunnar Hjálpum þeim var hátt á tíundu milljón en ríkið tekur um tvær milljónir í söluskatt.

Innlent
Fréttamynd

Grunaðir um að framleiða amfetamín

Tveir menn eru í haldi lögreglu hér á landi, grunaðir um að tengjast framleiðslu á amfetamíni. Þeir hafa báðir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Annar mannanna var handtekinn á Keflavíkurflugvelli við komu til landsins þann fjórða febrúar síðastliðinn með torkennilegan vökva í fórum sínum. Báðir mennirnir eru frá Litháen.

Innlent
Fréttamynd

Konur hugsi betur um hjartað

Konur verða að hugsa betur um hjartað í sér þar sem þær eiga ekki síður en karlar á hættu að fá hjarta- og æðasjúkdóma. Þetta eru skilaboð Alþjóðahjartasamtakanna og Hjartaverndar í dag, á Valentínusardaginn.

Innlent
Fréttamynd

60 milljónir í varnaraðgerðir gegn fuglaflensu

Ríkisstjórnin ákvað í morgun að verja hátt í 60 milljónum króna í varnaraðgerðir gagnvart fuglaflensu ef hún verður að heimsfaraldri. Með þessu er búið að verja á annað hundrað milljónum króna í flensuvarnir.

Innlent
Fréttamynd

Fagnar yfirlýsingum ráðherra um lækkun vörugjalda

Framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna fagnar yfirlýsingum Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra um að lækka vörugjöld til þess að lækka matvælaverð. Hann segir þó að meira þurfi til eins og eitt virðisaukaskattþrep og virkt eftirlit með fákeppni á smásölumarkaði.

Innlent
Fréttamynd

Þyngri dómar fyrir kynferðisafbrot

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lagði fram lagabreytingarfrumvarp á ríkisstjórnarfundi í dag um að refsingar fyrir kynferðisafbrot verði hertar. Nái frumvarpið fram að ganga lengist fangelsisvist fyrir nauðgun og kynferðisafbrot gegn börnum og munu þessi brot geta varðað allt að sextán ára fangelsi, í stað sex ára eins og nú er hámarksrefsitími.

Innlent
Fréttamynd

Geitastofninn sagður í útrýmingarhættu

Geitastofninn á Íslandi er í útrýmingarhættu og eru nú aðeins 350 geitur í landinu, að sögn Bændablaðsins. Geitabændur fá greidda verndarstyrki á hverja geit, en það dugir ekki til enda eru afurðir geitanna lítið sem ekkert nýttar.

Innlent
Fréttamynd

Gamall sumarbústaður brennur í Norðlingaholti

Gamall sumarbústaður við Elliðabraut í Norðlingaholti brann til kaldra kola í gærkvöldi. Bústaðurinn er ekki lengur í notkun og mun borgin vera búin að kaupa hann til niðurrifs. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var hann alelda og þakið við það að falla.

Innlent
Fréttamynd

Krónan hækkaði mest gagnvart dalnum

Íslenska krónan hækkaði næstmest allra gjaldmiðla í heiminum gagnvart bandaríska dollaranum fyrstu vikuna í febrúar. Krónan hækkaði um rúmlega þrjú prósent gagnvart dollarnum og aðeins kanadíski dollarinn hækkaði meira í síðustu viku, eða um rösklega sex prósent.

Innlent
Fréttamynd

Verkamaður sektaður fyrir tollalagabrot

Erlendur verkamaður, sem hefur verið við vinnu á Selfossi um hríð, hefur verið sektaður fyrir tollagalagabort. Hann villti á sér heimildir þegar hann kom til landsins með Norrænu og fékk akstursheimild fyrir bíl sinn hér á landi án þess að þurfa að greiða fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Aðhefst ekkert vegna þriggja samruna

Samkeppnisstofnun hefur ákveðið að aðhafast ekkert vegna þriggja samruna fyrirtækja. Um er að ræða kaup Kvosar, sem meðal annars á Odda og Tímaritaútgáfuna Fróða á Skólavörðubúðinni, kaup Pennans á Bókabúð Keflavíkur og Samruna Saga Film og Storms ehf.

Innlent
Fréttamynd

Komið til móts við fækkun rýma á Sólvangi

Tíu dvalarrýmum á Hrafnistu í Hafnarfirði verður breytt í hjúkrunarrými til að koma til móts við fækkun rýma á hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Þetta er meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi í dag þar sem kynntar voru tillögur nefndar um uppbyggingu öldrunarþjónustu í Hafnarfirði.

Innlent
Fréttamynd

Sekt fyrir verðsamráð

Félag íslenskra hljómlistarmanna verður að greiða hundrað þúsund krónur í sekt í ríkissjóð fyrir ólöglegt verðsamráð.

Innlent
Fréttamynd

Atvinnuleysi eykst lítillega

Atvinnuleysi í janúar var lítillega meira en í desember en samt nær tvöfalt minna en í janúar á síðasta ári. Atvinnuleysi mældist 1,6 prósent í síðasta mánuði en eitt og hálft prósent í mánuðinum á undan. Í janúar á síðasta ári mældist atvinnuleysi þrjú prósent.

Innlent
Fréttamynd

Þakið rifið af stúku Laugardalsvallar

Sjö tonn af stáli og timbri svifu um loftið í Laugardalnum um kvöldmatarleytið þegar starfsmenn Ístaks voru á fullu við að rífa þakið á gömlu stúkunni á Laugardalsvelli.

Innlent