Innlent
Rektor HA segist hafa haft nána samvinnu við menntamálaráðherra Vegna umræðna um hallarekstur Háskólans á Akureyri segir rektor skólans nauðsynlegt að það komi fram að hann og menntamálaráðherra hafi haft nána samvinnu um úrlausn vandans síðustu misserin. Fjárhagsleg vandamál háskólans séu að mestu tilkomin vegna þess að skólinn hafi stækkað mjög hratt frá árinu 2000. Innlent 23.2.2006 13:58
Samtök auglýsenda vilja að RÚV verði áfram á auglýsingamarkaði Stjórn samtaka auglýsenda segist ítreka fyrri ályktanir sínar um að Ríkisútvarpið verði áfram á auglýsingamarkaði. Hverfi RÚV af þeim markaði bendi flest til þess að auglýsingakostnaður muni hækka, með þeim afleiðingum að aðgengi auglýsenda að markaði þrengist með hækkandi markaðskostnaði og óvirkari samkeppni. Innlent 23.2.2006 13:12
Vatnagarður reistur á Flúðum? Hugmyndir um vatnagarð á Flúðum hafa verið ræddar í hreppsnefnd Hrunamannahrepps og hefur Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri þegar fengið háskólanema til að gera úttekt og áætlun fyrir verkefnið. Innlent 23.2.2006 12:20
Umtalsvert magn fíkniefna haldlagt Lögreglan í Reykjavík hefur lagt hald á umtalsvert magn fíkniefna sem fannst falið í nágrenni borgarinnar. Málið er til rannsóknar hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildarinnar, vill engar frekari upplýsingar gefa um málið á þessu stigi. Innlent 23.2.2006 12:13
Málflutningur í Baugsmálinu hafinn Töf varð á réttarhaldi í Baugsmálinu við upphaf þinghalds í Héraðsdómi í morgun þegar settur saksóknari lagði fram ný gögn varðandi bílainnflutning Baugsfjölskyldunnar. Reiknað er með að málið verði dómtekið síðar í dag. Innlent 23.2.2006 12:11
Ráðherra beitir sér ekki fyrir fríum máltíðum í framhaldsskólum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra ætlar ekki að beita sér fyrir því að boðið verði upp á fríar máltíðir í framhaldsskólum landsins. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Innlent 23.2.2006 12:07
Mál fyrrverandi yfirlæknis tekið fyrir í Héraðsdómi Mál Stefáns Einars Matthíassonar, fyrrverandi yfirlæknis á Landspítalanum, gegn spítalanum var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Stefáni var vikið úr starfi yfirlæknis á æðaskurðlækningadeild Landspítalans síðastliðið haust eftir að hann neitaði að hætta rekstri læknastofu sem hann starfrækti meðfram störfum sínum á spítalanum. Innlent 23.2.2006 12:03
Excel Airways leigir átta nýjar vélar Excel Airways, dótturfélag Avion Group, gekk í dag frá samningi um leigu á átta nýjum flugvélum. Vélarnar verða notaðar á flugleiðum félagins frá Gatwick-flugvelli í London og Manchester til áfangastaða á Kanaríeyjum, Suður-Evrópu og við Miðjarðarhafið. Innlent 23.2.2006 11:15
Fitch staðfestir lánshæfi bankanna Matsfyrirtækið Fitch hefur staðfest óbreytt lánshæfismat allra íslensku bankanna. Þetta kemur í kjölfar fréttar um að fyrirtækið hafi breytt horfum á lánshæfismati ríkissjóðs úr stöðugum í neikvæðar. Viðskipti innlent 23.2.2006 11:08
Impregilo skilar greinargerð vegna uppsagnarinnar Oddur Friðriksson, yfirtrúnaðarmaður starfsmanna hjá Impregilo, hefur tekið við greinargerð frá fyrirtækinu þar sem uppsögn trúnaðarmanns í síðustu viku er rökstudd af þeirra hálfu. Oddur hefur þegar sent greinargerðina áfram til lögmanna verkalýðsfélagsins Afls til skoðunar og verður tekin ákvörðun á næstu dögum hvort uppsögnin verði kærð. Innlent 23.2.2006 10:11
Enn ein töfin á Baugsmálinu Töf varð á áframhaldandi aðalmeðferð í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar settur saksóknari lagði fram ný gögn í málinu. Gögnin tengjast bílainnflutningi sem deilt er um í málinu. Innlent 23.2.2006 10:08
Vatn flæðir yfir vegi Miklir vatnavextir eru víða um land vegna óvenju mikilla hlýinda. Dæmi eru um að vatn hafi flætt yfir vegi, en þó hvergi þjóðvegi. Ekki er vitað um teljandi tjón vegna vatnselgs en það gæti komið í ljós þegar vatn fer að sjatna. Innlent 23.2.2006 09:27
Apóteksræninginn enn ófundinn Ungi maðurinn sem rændi apótekið við Smiðjuveg í Kópavogi um hádegisbil í gær er enn ófundinn. Lögreglan í Kópavogi hélt uppi víðtækri eftirgrennslan í gær en án árangurs. Innlent 23.2.2006 08:52
Engey notuð sem frystihús, löndunar- og útflutningshöfn Loðnuveiðarnar eru komnar aftur í gang eftir brælu í gær og leggja sjómenn nú ofurkapp á að ná sem mestum verðmætum út úr þeim litla kvóta sem eftir er. Þar sem frystigetan í landi er ekki næg hefur risatogaranum Engey verið lagt við bryggju í Sundahöfn. Innlent 23.2.2006 08:43
Tekist á um reykingafrumvarp Tekist var á um hvort banna ætti reykingar á veitingastöðum á opnum fundi sem Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hélt í gærkvöldi. Framsögumenn voru þingmennirnir Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Samfylkingu og Kristinn Tómasson yfirlæknir Vinnueftirlits ríkisins. Innlent 22.2.2006 23:39
MTV tónlistarhátíðin kostar um það bil 1,5 - 2 milljarða króna Það kostar á bilinu einn og hálfan til tvo milljarða að halda tónlistarhátíð evrópudeildar sjónvarpsstöðvarinnar MTV hér á landi. Helga Margrét Reykdal, framkvæmdarstjóri True North, segir það ekki vera spurningu um hvort hátíðin verði haldin hér á landi heldur hvenær. Innlent 22.2.2006 22:19
Samflokksmenn skora á Þorgerði að tryggja starfsemi HA Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, skorar á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra og þingmenn Sjálfstæðisflokksins, að leita leiða til að tryggja starfsemi Háskólans á Akureyri til framtíðar og að hann fái að vaxa með sama krafti og áður. Innlent 22.2.2006 22:37
SAM-félagið kaupir kvikmyndahús í Danmörku Úrás íslenskra kaupsýslumanna nær nú til kvikmyndahúsageirans því SAM-félagið, sem rekur meðal annars Sam-bíóin hér á landi, hefur keypt Cinemaxx-kvikmyndahúsakeðjuna í Danmörku. Með kaupunum má búast við að miðasala SAM-félagsins nærri fjórfaldist. Innlent 22.2.2006 22:28
Clinton, Blair og Annan á karlaráðstefnu? Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur boðið þremur af leiðtogum heimsins til alþjóðlegrar karlaráðstefnu um jafnréttismál sem haldin verður hér á landi í haust. Svör frá leiðtogunum hafa ekki borist en ráðherrann mun kynna ráðstefnuna á fundi Sameinuðu þjóðanna í næstu viku. Innlent 22.2.2006 22:22
Vilja stóriðju á Suðurland Samtök sunnlenskra sveitarfélaga vilja stóriðju á Suðurland. Í skýrslu samtakanna sem kynnt var í dag er svæðið sagt góður kostur fyrir fyrirtæki í stóriðju. Það eina sem vanti til að reisa megi orkufrekan iðnað á Suðurlandi er stórskipahöfn. Innlent 22.2.2006 21:49
Gengislækkun krónunnar hafði áhrif víða um heim Gengislækkun krónunnar í gær hafði víðtæk áhrif á alþjóðlegum gjaldeyrismarkaði samkvæmt frétt á heimasíðu Financial Times. Þar er sagt að lækkun krónunnar hafi valdið titringi á mörkuðum með jaðargjaldmiðla sem spákaupmenn hafa sótt í að kaupa í von um háa ávöxtun á sama hátt og erlendir aðilar hafa fjárfest í krónunni í stórum stíl. Innlent 22.2.2006 19:22
Ríkisendurskoðandi kominn með gögnin frá Vilhjálmi Ríkisendurskoðun og Fjármálaeftirlitið hafa fengið gögn frá Vilhjálmi Bjarnasyni aðjúnkt í viðskiptafræðum vegna aðkomu þýska bankans Hauck und Afhauser, að kaupum á Búnaðarbanka Íslands á sínum tíma. Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi sagði of snemmt að segja til um hvort stofnunin hæfi sjálfstæða athugun á málinu. Innlent 22.2.2006 19:10
Vitnaleiðslum í Baugsmálinu lokið Vitnaleiðslum í Baugsmálinu lauk fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðja tímanum í dag. Málflutningur hefst í fyrramálið og stendur fram eftir degi en að honum loknum verður málið tekið í dóm. Fram kom við vitnaleiðslur að hluti vegna leiðréttinga á innflutningsgjöldum á einni bifreið af fjórum sem deilt er um hefði runnið til góðgerðarmála. Innlent 22.2.2006 17:14
Sjálfstæðisflokkur gæti náð meirihluta með 43% Sjálfstæðisflokkurinn gæti náð meirihluta í Reykjavík með 43 prósent atkvæða, en flokkurinn hefur fimm sinnum náð meirihluta í Borgarstjórn með minnihluta atkvæða. Miklu skiptir hvernig atkvæði skiptast á önnur framboð. Fleiri vilja sjá Dag B. Eggertsson í stóli Borgarstjóra, samkvæmt nýrri könnun en mjótt er þó á munum á milli þeirra. Innlent 22.2.2006 19:03
Efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar harkalega gagnrýnd Stjórnarandstaðan gagnrýndi efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar harðlega þegar rætt var um viðvaranir matsfyrirtækisins Fitch, gengislækkun krónunnar og ólgu á mörkuðum á Alþingi í dag. Þá fagnaði hún yfirlýsingum forsætisráðherra í kvöldfréttum NFS í gær um að ekki væri svigrúm fyrir alla þá stóriðju sem hugmyndir væru uppi um. Innlent 22.2.2006 19:02
Hallór og Blair funduðu Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra Íslands, og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, funduð í dag á heimili Blair á Downingstræti í London. Forsætisráðherrarnir ræddu meðal annars mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu og hvernig hægt væri að koma málum svo fyrir að Ísland gæti búið við fiskveiðistefnu bandalagsins. Innlent 22.2.2006 18:42
Engin ólga á Íslandi vegna skopteikninga af Múhameð spámanni Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, segir engar upplýsingar hafa borist ráðuneytinu um að til árekstra hafi komið vegna skopmyndanna af Múhameð spámanni sem birst hafa í evrópskum blöðum síðustu vikurnar. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu um stöðu útlendinga á Íslandi á Alþingi í dag. Innlent 22.2.2006 17:31
Krónan veiktist um rúm 2% í dag Gengi íslensku krónunnar veiktist um rúm 2% í dag og hefur því veikst um 6,4% á síðustu tveimur dögum. Titringinn á gjaldeyrismarkaði má rekja til skýrslu matsfyrirtækisins Fitch sem birt var í gær. Innlent 22.2.2006 17:27
Barnahús verðlaunað Barnahús verður verðlaunað af alþjóðlegu barnaverndarsamtökunum ISPCAN, International Society for the Prevention of Child Abuse and Neglect. Forstjóra Barnaverndarstofu hefur verið tilkynnt þetta en verðlaunin verða afhent á heimsráðsstefnu samtakanna í byrjun september á þessu ári. ISPCAN eru einu þverfaglegu heimssamtökin á sviðið barnaverndar en markmið þeirra er að vinna gegn ofbeldi og vanrækslu barna um allan heim. Innlent 22.2.2006 17:00
Vitnaleiðslum lokið Vitnaleiðslum í Baugsmálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur lauk á þriðja tímanum í dag. Málflutningur í málinu hefst í fyrramálið og að honum loknum verður málið dómtekið. Innlent 22.2.2006 16:40