Innlent
Tæknival selt til fjárfesta Viðskipti innlent 1.3.2006 22:36 Hagar selja Skeljung og kaupa í Kringlunni Hagar hasla sér völl í sérvöruverslun á nýjan leik með kaupum á fimm verslunum í Kringlunni. Pálmi Haraldsson í Fons hafði frumkvæði að því að kaupa Shell. Viðskipti innlent 1.3.2006 22:57 Strax kaupir more Velta Strax-samstæðunnar, sem framleiðir aukabúnað fyrir farsíma, verður um 250 milljónir bandaríkjadala á þessu ári, sem samsvarar tæpum sextán milljörðum króna, eftir að félagið keypti þýska dreifingaraðilann more International. Velta samstæðunnar meira en tvöfaldaðist við yfirtökuna. Viðskipti erlent 1.3.2006 22:57 Kaupa hástökkvara Straumur-Burðarás hefur eignast 5,5 prósenta hlut í norska netleikjaframleiðandanum Funcom. Verðmæti hlutarins er í kringum 750 milljónir króna. Viðskipti erlent 1.3.2006 22:57 Álver eykur ekki þenslu Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, telur að álversframkvæmdir á Bakka við Húsavík rúmist vel innan efnahagskerfisins. Hann segir nauðsynlegt að horfa til framtíðar en það sé gert með þessum framkvæmdum. Innlent 1.3.2006 23:19 Hagnaður Exista Íslandsmet Fjárfestingarfélagið Exista skilaði rúmlega 50 milljarða króna hagnaði í fyrra, sem er nýtt Íslandsmet. Fyrra metið átti KB-banki, sem skilaði tæpum 50 milljörðum í hagnað í fyrra, en KB-banki er einmitt einn aðaleigandi Exista. Innlent 1.3.2006 22:20 Allt í bál og brand Allt virðist komið í bál og brand í kjaradeilu slökkviliðsmanna og sveitarfélaga. Ekkert kom út úr sáttafundi í dag, en á föstudaginn kemur í ljós hvort af verkfalli verður. Slökkviliðsmenn hafa mótmælt víða um land í dag, en fréttastofa hitti um tvö hundruð þeirra á baráttufundi í Reykjavík og þeim var heitt í hamsi. Innlent 1.3.2006 19:30 Landsvirkjun hefur tilraunaboranir í sumar Landsvirkjun mun þegar í sumar hefja tilraunaboranir vegna þeirra jarðvarmavirkjana sem ætlað er að sjá væntanlegu álveri fyrir raforku. Innlent 1.3.2006 19:23 Ljósmæður vitja ekki lengur sængurkvenna Ljósmæður eru hættar að vitja sængurkvenna á heimili þeirra, eftir að samningur ljósmæðra og Tryggingastofnunar rann út á miðnætti. Innlent 1.3.2006 19:09 Ríkisstjórnin ætti að fá niðurlægingarverðlaun Ríkisstjórnin ætti að fá niðurlægingarverðlaun 21. aldar fyrir að skríða á hnjánum fyrir álherrum í Ameríku. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon og hvetur til þess að iðnaðarráðherra veiti þeim viðtöku fyrir hönd félaga sinna. Innlent 1.3.2006 19:02 « ‹ ›
Íslenskir fjárfestar nærri því að kaupa Parken Íslenskir fjárfestar voru nærri því að kaupa sjálfan Parken, þjóðarleikvang Dana, eftir því sem fram kemur í danska viðskiptablaðinu Börsen. Innlent 2.3.2006 09:36
Kemur vel til greina að nota tálbeitur Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir það koma sterklega til greina að lögregla beiti tálbeitum til að koma upp um barnaníðinga. Dómsmálaráðherra sagði þetta í utandagskrárumræðu á Alþingi nú rétt fyrir fréttir. Innlent 2.3.2006 11:59
Standard & Poor’s setur Íbúðalánasjóð á athugunarlista Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur sett Íbúðalánasjóð á athugunarlista og segir horfurnar neikvæðar. Matsfyrirtækið gefur sjóðnum langtímaeinkunnina AA+ en segir ástæðuna fyrir matinu minnkandi hlutdeild sjóðsins á íbúðalánamarkaðnum. Viðskipti innlent 2.3.2006 11:19
Listi Vinstri-grænna í Hafnarfirði tilbúinn Vinstri hreyfingin - grænt framboð í Hafnarfirði samþykkti tillögu um efstu sæti framboðslista til bæjarstjórnarkosninga í vor á opnum félagsfundi sl. þriðjudag. Á næstu vikum mun VG í Hafnarfirði kynna helstu kosningamál sín fyrir bæjarbúum í Hafnarfirði.Efsta sætið skipar Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, kennari og forvarnarfulltrúi Flensborgarskóla. Innlent 2.3.2006 10:27
Hvetur ráðherra til að endurskoða lög Framkvæmdarstjórn Öryrkjabandalagsins styður þau sjónarmið sem fram koma í skýrslu Tryggingastofnunar um réttlátari notendagjöld á sjúkratryggingum á Íslandi. Í ályktun sem bandalagið hefur sent frá sér hvetur það heilbrigðisráherra til að skoða skýrsluna með jákvæðum og opnum huga og hefja þegar í stað endurskoðun laga og reglna í samstarfi við hagsmunasamtök. Innlent 2.3.2006 10:21
Álver á Húsavík rætt á þingi síðdegis Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur farið fram á utandagskrárumræðu um fyrirhugað álver á Húsavík. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur samþykkt að vera fyrir svörum og hefst utandagskrárumræðan klukkan 13.30. Innlent 2.3.2006 10:40
Varamaður fyrir varamann Jón Kr. Óskarsson tók sæti á Alþingi sem varamaður við upphaf þingfundar í dag. Það væri ef til vill ekki í frásögur færandi nema fyrir það að hann tekur sæti á þingi í stað varaþingmannsins Söndru Franks, sem hafði áður verið kölluð inn á þing sem varamaður Rannveigar Guðmundsdóttur. Innlent 2.3.2006 10:33
Guðrún Ágústa efst hjá VG Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, kennari og forvarnarfulltrúi í Flensborgarskóla, leiðir lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs við bæjarstjórnarkosningar í vor. Annað sæti listans skipar Jón Páll Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Regnbogabarna. Innlent 2.3.2006 07:19
Öryrkjar skora á heilbrigðisráðherra Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands vill að heilbrigðisráðherra hefji þegar í stað endurskoðun laga og reglna um notendagjöld í heilbrigðiskerfinu. Innlent 2.3.2006 09:28
Segir Icelandic Group selja ólöglega veiddan þorsk Breska blaðið The Guardian segir að íslenska fyrirtækið Icelandic Grop, sem áður hét SH, selji ólöglega veiddan þorsk úr Barentshafi, sem veiddur sé utan kvóta og fari á svartan markað. Innlent 2.3.2006 07:49
Misstu allt sitt í eldsvoða í Sælingsdal Fjögurra manna fjölskylda missti heimili sitt í eldsvoða, þegar íbúðarhúsið í Sælingsdal í Dalasýslu eyðilagðist í eldi í gær. Íbúarnir voru ekki heima þegar vegfarandi sá reyk leggja frá húsinu og gerði slökkviliði viðvart. Innlent 2.3.2006 07:31
Þyrlur ekki enn komnar í gagnið aftur Landhelgisgæslan hefur ekki enn á að skipa nothæfri þyrlu þar sem viðgerðin á minni þyrlunni, TF SIF, hefur dregist á langinn vegna skorts á varahlutum. Hún átti að komast í gangið í fyrradag en er enn í viðgerð. Innlent 2.3.2006 07:33
Rætt um heimild til að nota tálbeitur Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, spyr Björn Bjarnason dómsmálaráðherra út í heimildir lögreglu til að leita uppi barnaníðinga í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Innlent 2.3.2006 08:59
Jarðgöng undir Vaðlaheiði vegna álvers? Hugmyndir um jarðgöng undri Vaðlaheiði við Akureyri hafa nú fengið byr undri báða vængi eftir undirritun viljayfirlýsingar um byggingu álvers við Húsavík í gær. Innlent 2.3.2006 07:28
Tveir til viðbótar segja upp við MÍ Tveir stjórnendur til viðbótar hafa sagt upp störfum við Menntaskólann á Ísafirði en Ólína Þorvarðardóttir skólameistari sagði upp störfum fyrr í vikunni. Munu það vera aðstoðarskólameistari og áfangastjóri sem hafa sagt upp og miðast uppsögn þeirra við lok skólaárs, í endaðan júlí. Haft er eftir Guðmundi Þór Kristjánssyni, áfangastjóra, á ruv.is að ástæða uppsagnar hans sé að hann sé búinn að fá nóg eftir áralangar deilur innan menntaskólans. Innlent 2.3.2006 07:22
Rannsaka fjármögnun kaupa á stofnfé Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar hvort fimm félög hafi fjármagnað kaupin á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Innlent 2.3.2006 07:17
Jóna Fanney segir upp Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstjóri á Blönduósi hefur sagt upp störfum. Uppsagnarbréf hennar sem var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í gær er stílað 27. febrúar og samkvæmt því lætur Jóna Fanney af störfum 1. júní næstkomandi, fáeinum dögum eftir bæjarstjórnarkosningar. Innlent 2.3.2006 06:14
Íslenskt skip staðið að ólöglegum veiðum Lögregla stendur nú vakt við íslenskt fiskiskip sem kom til Sandgerðis undir morgun eftir að hafa verið staðið að ólöglegum línuveiðum suðvestur af landinu í gær. Innlent 2.3.2006 07:14
Kaupin á Orkla ekki lykilatriði Dagsbrún ætlar að gefa út fríblað í Danmörku, með Fréttablaðið sem fyrirmynd, hvort sem keypt verður í norsku fjölmiðlasamsteypunni Orkla Media eða ekki. Samkvæmt heimildum blaðsins er stefnt að útgáfu seinnipart sumars eða í haust. Viðskipti innlent 1.3.2006 22:57
Fjögurra milljarða króna hagnaður Hagnaður Símans jókst um 30 prósent milli áranna 2004 og 2005. Hagnaður ársins 2005 var 4.032 milljónir króna en 3.090 milljónir króna árið 2004. Rekstrartekjur jukust um tæp 8 prósent á árinu, voru 20.419 milljónir króna árið 2004 en 22.041 milljónir króna nú. Viðskipti innlent 1.3.2006 22:57
Hagar selja Skeljung og kaupa í Kringlunni Hagar hasla sér völl í sérvöruverslun á nýjan leik með kaupum á fimm verslunum í Kringlunni. Pálmi Haraldsson í Fons hafði frumkvæði að því að kaupa Shell. Viðskipti innlent 1.3.2006 22:57
Strax kaupir more Velta Strax-samstæðunnar, sem framleiðir aukabúnað fyrir farsíma, verður um 250 milljónir bandaríkjadala á þessu ári, sem samsvarar tæpum sextán milljörðum króna, eftir að félagið keypti þýska dreifingaraðilann more International. Velta samstæðunnar meira en tvöfaldaðist við yfirtökuna. Viðskipti erlent 1.3.2006 22:57
Kaupa hástökkvara Straumur-Burðarás hefur eignast 5,5 prósenta hlut í norska netleikjaframleiðandanum Funcom. Verðmæti hlutarins er í kringum 750 milljónir króna. Viðskipti erlent 1.3.2006 22:57
Álver eykur ekki þenslu Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, telur að álversframkvæmdir á Bakka við Húsavík rúmist vel innan efnahagskerfisins. Hann segir nauðsynlegt að horfa til framtíðar en það sé gert með þessum framkvæmdum. Innlent 1.3.2006 23:19
Hagnaður Exista Íslandsmet Fjárfestingarfélagið Exista skilaði rúmlega 50 milljarða króna hagnaði í fyrra, sem er nýtt Íslandsmet. Fyrra metið átti KB-banki, sem skilaði tæpum 50 milljörðum í hagnað í fyrra, en KB-banki er einmitt einn aðaleigandi Exista. Innlent 1.3.2006 22:20
Allt í bál og brand Allt virðist komið í bál og brand í kjaradeilu slökkviliðsmanna og sveitarfélaga. Ekkert kom út úr sáttafundi í dag, en á föstudaginn kemur í ljós hvort af verkfalli verður. Slökkviliðsmenn hafa mótmælt víða um land í dag, en fréttastofa hitti um tvö hundruð þeirra á baráttufundi í Reykjavík og þeim var heitt í hamsi. Innlent 1.3.2006 19:30
Landsvirkjun hefur tilraunaboranir í sumar Landsvirkjun mun þegar í sumar hefja tilraunaboranir vegna þeirra jarðvarmavirkjana sem ætlað er að sjá væntanlegu álveri fyrir raforku. Innlent 1.3.2006 19:23
Ljósmæður vitja ekki lengur sængurkvenna Ljósmæður eru hættar að vitja sængurkvenna á heimili þeirra, eftir að samningur ljósmæðra og Tryggingastofnunar rann út á miðnætti. Innlent 1.3.2006 19:09
Ríkisstjórnin ætti að fá niðurlægingarverðlaun Ríkisstjórnin ætti að fá niðurlægingarverðlaun 21. aldar fyrir að skríða á hnjánum fyrir álherrum í Ameríku. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon og hvetur til þess að iðnaðarráðherra veiti þeim viðtöku fyrir hönd félaga sinna. Innlent 1.3.2006 19:02