Innlent
Læknir braut lög um persónuvernd Yfirlæknir á Landspítalanum braut lög um persónuvernd þegar hann sótti upplýsingar í sjúkraskrá í heimildarleysi þegar hann var að vinna álit fyrir tryggingafélag. Innlent 7.3.2006 18:40
Úr pólitík í bankann Fyrrum erfðaprins Framsóknarflokksins gekk af leikvelli stjórnmálanna í dag þegar forseti Íslands samþykkti afsögn hans sem félagsmálaráðherra á Ríkissráðsfundi í morgun. Eftir fundinn bað Árni flokksfélaga sína afsökunar á brotthvarfinu en sagði ástæður sínar persónulegar. Innlent 7.3.2006 17:34
Besta ár í sögu Actavis Alþjóðlega samheitalyfjafyrirtækið Actavis Group skilaði 6,3 milljarða króna hagnaði á árinu 2005 og 2,8 milljarða hagnaði á fjórða ársfjórðungi. Tekjur samstæðunnar námu 45,2 milljörðum króna á árinu og hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta nam 11,5 milljörðum króna. Árið er það besta í sögu félagsins. Viðskipti innlent 7.3.2006 17:16
16 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur á Akureyri Það virðist ekkert lát á hraðakstri ökumanna. Lögreglan á Akureyri hefur stöðvað 16 ökumenn fyrir of hraðan akstur frá klukkan sjö í morgun. Allir ökumenn voru að keyra innanbæjar og fimm þeirra ökumanna sem lögreglan stöðvaði voru að keyra í nágrenni við skóla þar sem hámarkshraði er 30 km. Innlent 7.3.2006 16:52
Ákærður fyrir brot á hegningar- og siglingarlögum Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, var ákærður fyrir manndráp af gáleysi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Jónas er ákærður fyrir brot á hegningarlögum og siglingarlögum. Hann er sakaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis þegar hann stýrði skemmtibátnum Hörpu, sem steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi í september á síðasta ári. Innlent 7.3.2006 16:22
Viðskiptahallinn við útlönd 164,1 milljarður króna í fyrra Viðskiptahallinn við útlönd nam 53,1 milljarði króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands. Á sama tímabili 2004 var viðskiptahallinn 35,2 milljarðar króna. Viðskiptahallinn á öllu síðasta ári nam samtals 164,1 milljarði króna en var 85,3 milljarðar króna árið áður. Viðskipti innlent 7.3.2006 16:20
Spron styrkir Hjálparsíma RKÍ Hjálparsími Rauða kross Íslands 1717 hefur hlotið þriggja milljón króna styk frá Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis, SPRON. Styrkurinn var afhentur á aðalfundi SPRON í gærkvöldi. Hjálparsíninn 1717 hefur verið starfræktur síðan árið 2002 og gegnir því hlutverki að veita ráðgjöf og hlutstun til fólks á öllum aldri sem þarf á stuðningi að halda vegna ýmissa erfiðleika. Innlent 7.3.2006 16:08
Viðskiptavinir ánægðastir með Ölgerðina Viðskiptavinir voru ánægðastir með viðskipti við Ölgerð Egils Skallagrímssonar árið 2005 samkvæmt mælingu samkvæmt árlegri mælingu Samtaka iðnaðarins, Stjórnvísi og Gallup. Viðurkenningar hinnar svokölluðu íslensku ánægjuvogar voru afhent í dag. Innlent 7.3.2006 15:50
FL Group kaupir í Aktiv Kapital FL Group hefur keypt tæplega 8,99 prósenta hlut í norska fjármálafyrirtækinu Aktiv Kapital. Markaðsvirði hlutarins er um 4,7 milljarðar íslenskra króna. Viðskipti innlent 7.3.2006 15:41
Sinntu öryggishlutverki sínu Broddi Broddason, varafréttastjóri Ríkisútvarpsins, hafnar því alfarið að Ríkisútvarpið hafi ekki staðið sig í fréttaflutningi af jarðskjálftanum við Kleifarvatn í gær. Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, gagnrýndi á Alþingi í gær Ríkisútvarpið fyrir að sinna öryggishlutverki sínu ekki sem skildi í fréttaflutningi af skjálftanum í gær. Innlent 7.3.2006 15:18
Kaupþing selur hlut sinn í Baugi Kaupþing banki seldi 8,75 prósenta hlut sinn í Baugi Group í dag og innleysti þar með 3,3 milljarða króna hagnað. Kaupendur eru fjárfestingafélagið Gaumur og Eignarhaldsfélagið ISP, félög í eigu Baugsfjölskyldunnar og Ingibjargar Pálmadóttur, konu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Innlent 7.3.2006 13:31
Fráleitt að setja súlu Yoko í Viðey Ingólfur Margeirsson rithöfundur segir það fráleitt ef yfirvöld ráðast í að setja upp friðarsúlu Yoko Ono í Viðey. Hann segir margt betra við peningana að gera og fráleitt að eyða þeim í uppátæki Yoko sem sé einungis fjárplógsstarfsemi í nafni friðarátaks. Innlent 7.3.2006 13:24
Vextir Íbúðalánasjóðs lækka Vextir Íbúðalánasjóðs af útlánum lækka á morgun úr 4,70 prósentum í 4,65 prósent af almennum lánum. Einnig er hægt að fá lán með 4,40 prósenta vöxtum en þá verður lántaki að greiða uppgreiðslugjald ef hann vill greiða lánið upp hraðar en samið er um í upphafi. Innlent 7.3.2006 12:27
Breytt vaktakerfi vegna óánægju vagnstjóra Ásgeir Eiríksson, forstjóri Strætós, hófst í morgun handa við að kynna vagnstjórum fyrirtækisins nýtt vaktakerfi sem taka á við af fyrra vaktakerfi sem valdið hefur mikilli óánægju meðal vagnstjóra. Innlent 7.3.2006 12:14
Ungir jafnaðarmenn vilja vöggustofur Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík vilja sjá úrræði í dagvistun barna frá sex til 18 mánaða aldri. Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík vilja að athugaðir verðir möguleikar til að stofna vöggustofur að danskri fyrirmynd. Innlent 7.3.2006 11:53
Farþegar ekki í sérstakri hættu Ekkert í frumrannsókn rannsóknarnefndar flugslysa á atvikinu þegar eldingu laust niður í þotu Icelandair skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli undir kvöld í gær, bendir til að farþegar og áhöfn hafi verið í sérstakri hættu. Innlent 7.3.2006 11:55
Tap á rekstri deCode 4 milljarðar 2005 Tap á rekstri deCode Genetics, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, í fyrra nam tæpum fjórum milljörðum króna sem er nokkuð hærra en árið á undan. Félagið hefur aldrei skilað hagnaði frá því það var stofnað árið 1997. Innlent 7.3.2006 12:13
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Kópavogi samþykktur Framboðslisti Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar sem verða þann 27. maí næstkomandi var samþykktur samhljóða á félagsfundi á mánudag. Níu efstu sæti listans eru skipuð í samræmi við niðurstöðu prófkjörsins sem fór fram þann fjórða febrúar síðastliðinn. Innlent 7.3.2006 12:04
Hræðast samkeppni Yfirmaður þróunarsviðs Bauhaus segist handviss um að verslunarkeðjan fái lóð í Reykjavík fyrr eða síðar. Byko og Húsasmiðjan séu hrædd við samkeppni, enda myndi Bauhaus bjóða meira vöruúrval og verð myndi lækka um tuttugu prósent. Innlent 7.3.2006 11:53
Svindl í nafni UNICEF Greint var frá því í fréttum RÚV í gær að dæmi væru um að einstaklingar svindluðu pening frá aðilum í íslenskri ferðaþjónsutu í nafni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, eða annarra samtaka. UNICEF á Íslandi hefur sent frá sér frettatilkynningu til að koma eftirfarandi á framfæri: Innlent 7.3.2006 11:32
Ráðist á mann í Vestmannaeyjum Líkamsárás var tilkynnt til Lögreglunnar í Vestmannaeyyjum aðfaranótt sunnudags en maður hafði verið sleginn með þeim afleiðingum að hann féll niður tröppur og skall með höfuðið í stétt. Maðurinn var fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús og færður undir læknishendur. Ekki liggur fyrir hver aðdragandi líkamsárásarinnar var en málið er í rannsókn. Innlent 7.3.2006 11:20
Íbúðalánasjóður lækkar vexti Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að lækka útlánsvexti íbúðalána úr 4,7 prósentum í 4,65 prósent í kjölfar 1. áfanga útboðs íbúðabréfa á þessu ári. Vaxtabreytingin tekur gildi á morgun. Viðskipti innlent 7.3.2006 11:14
Rannsóknarnefnd flugslysa rannsakar atvikið Rannsóknanefnd flugslysa ætlar í dag að fara yfir atvikið, þegar eldingu laust niður í þotu Icelandair skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli undir kvöld í gær. Farþegar skynjuðu miklar glæringar og háan hvell. Innlent 7.3.2006 11:10
Úthlutun úr minningarsjóði Fyrsta úthlutun úr Minningarsjóði hjónanna Helgu Jónsdóttur og Bjarna Snæbjörnssonar læknis í Hafnarfirði fer fram á morgun. Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til hagsmunamála barna í Hafnarfirði átján ára og yngri. Innlent 7.3.2006 10:35
Árni lætur af embætti í dag Árni Magnússon lætur af embætti félagsmálaráðherra á ríkisráðsfundi sem hefst klukkan ellefu. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra færir sig þá um set yfir í félagsmálaráðuneytið og Siv Friðleifsdóttir tekur við heilbrigðisráðuneytinu. Innlent 7.3.2006 09:37
Samtökin '78 kæra Gunnar í Krossinum Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins hefur verið kærður til lögreglu af Samtökunum 78 vegna greinar sem birt var í Morgunblaðinu 26. febrúar síðastliðin en þar fer Gunnar hörðum orðum um samkynhneigða og líf þeirra. Innlent 7.3.2006 08:52
Þakplötur fuku Þakplötur fuku við nýja íþróttahúsið sem verið er að byggja við Jaðarsbakka á Akranesi í vindhviðum sem voru þar í gær. Engin slys hlutust þó af. Innlent 7.3.2006 07:44
Sluppu ómeiddir Tveir sluppu ómeiddir þegar bíll þeirra valt undir Hafnarfjalli í gær, en þar var um tíma hvassviðri með snörpum vindhviðum. Í einni slíkri tókst vélsleðakerra, sem bíllinn dró, á loft og rykkti svo harkalega í bílinn að hann valt á veginum. Innlent 7.3.2006 07:42
TF-SIF komst ekki í gagnið Minni þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- SIF komst ekki í gagnið í gær, eins og stefnt hafði verið að eftir ítrekaðar tafir á viðgerð í síðustu viku. Stóra þyrlan , TF- LÍF er enn í stórri skoðun og verður frá enn um hríð. Innlent 7.3.2006 07:46
Venusi sleppt Norska strandgæslan féllst í gærkvöldi á að sleppa togaranum Venusi úr höfn í Tromsö, en þangað hafði hún fært togarann á sunnudagsmorgun, vegna gruns um ólöglegar veiðar. Innlent 7.3.2006 07:39