Innlent
Nokkuð um hraðakstur í nágrenni Blönduós Átta ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi í kvöld. Grunur leikur á að einn ökumannanna hafi verið undir áhrifum áfengis. Sá sem ók hraðast mældist á rúmlega 120 km hraða en eins og kunngut er, þá er 90 km hámarkshraði á þjóðvegum landsins. Innlent 10.4.2006 22:32
Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú látin Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú, eiginkona Sigurbjarnar Einarssonar biskups, er látin, 95 ára að aldri. Fréttavefur Morgunblaðsins greindi frá þessu í kvöld. Innlent 10.4.2006 22:31
Hundur fann vélsleðamanninn Vélsleðamaðurinn sem lenti í snjóflóði í Hoffellsdal við Reyðarfjörð fannst upp úr klukkan átta í kvöld, um það bil tveimur klukkustundum eftir að hann lenti í flóðinu. Farið var með hann á sjúkrahús í flýti en ekki er hægt að greina frá afdrifum hans að svo stöddu. Innlent 10.4.2006 22:11
Mótmæla stóriðjuframkvæmdum Enn fjölgar þeim hópum í samfélaginu sem eru á móti stóriðjuframkvæmdum. Samtök ferðaþjónustunnar og unglingar í Austurbæjarskóla hafa nú stigið fram gegn stóriðjuframkvæmdum stjórnvalda. Innlent 10.4.2006 22:06
Maðurinn fundinn Maðurinn sem leitað hefur verið að eftir snjóflóð í Hoffellsdal fyrir ofan Fáskrúðsfjörð er fundinn. Ekki er vitað um ástand hans að svo stöddu. Innlent 10.4.2006 21:18
Fyrstu björgunarsveitarmenn komnir Fyrstu björgunarsveitarmenn eru komnir í Hoffelsdal við Fáskrúðsfjörð en eins manns er saknað eftir að snjóflóð féll þar undir kvöldið. Leit er hafin og björgunarsveitarmenn notast við leitarhunda. Tveir vélsleðamenn voru á ferð þegar snjóflóðið féll og lenti annar mannanna í flóðinu. Innlent 10.4.2006 20:04
Enn á neyslufylleríi þrátt fyrir viðvörunarbjöllur Vöruinnflutningur jókst um ríflega þriðjung, í krónum talið, í síðasta mánuði. Hluti skýringarinnar liggur í lækkun krónunnar, en að sama skapi má ætla að þrátt fyrir viðvörunarbjöllur sé þjóðin enn á neyslufylleríi. Innlent 10.4.2006 18:42
Náið samstarf við NATO Náið samstarf verður haft við Atlantshafsbandalagið um framtíð öryggis- og varnarmála Íslands, þegar Bandaríkjamenn hafi lagt fram útfærslu á því hvernig þeir hyggist halda í heiðri ákvæði varnarsamningsins. Þetta segir Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, og jafnframt að framkoma Bandaríkjamanna í garð Íslendinga geri það að verkum að samstarf þjóðanna verði aldrei hið sama. Forsætisráðherra er ekki bjartsýnn á framahald samningaviðræðna við Bandaríkjamenn um varnir landsins og útilokar ekki að það komi til uppsagnar varnarsamningsins. Þetta kom fram í erindi sem hann flutti í Háskóla Íslands í dag um framtíðarstefnu Íslendinga í öryggis- og varnarmálum. Jafnframt að hvergi verði hvikað frá því að varnir Íslands séu sýnilegar og öflugar þótt erfitt væri að sjá hvernig það mætti vera án þess að herþotur væru hér. Því hafi Bandaríkjmenn haldið fram og nú væri beðið eftir því að þeir bæru fram frekari útskýringar. Forsætsráðherra segir Bandaríkjamenn þurfa að uppfylla stefnu Atlantshafsbandalagsins um loftvarnir og náið samstarf verði haft við bandalagið og þá sérstaklega framkvæmdastjóra þess, Jaap de Hoop Scheffer, þegar áætlun Bandaríkjamanna liggur fyrir. Enga launung væri á því að framkoma bandarískra stjórnvalda varðandi brottflutning héðan hafi skapað vantraust milli þjóðanna. Í ljósi breyttra aðstæðna sagði forsætisráðherra að þátttaka íslendinga innan Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, Atlantshafsbandalagsins og Sameinuðu þjóðanna yrði efld. Sömu sögu væri að segja um samstarf á vettvangi Schengen, jafnframt því sem þátttaka okkar í friðargæslu, þróunarhjálp og þróunarsamvinnu yrði efld. Utanríkisþjónustan þroskuð og möguleikar til þátttöku í alþjóðasamstarfi. Tækjabúnaðaður Landhelgisgæslunnar yrði stórefldur og einnig Víkingasveit lögreglunnar. Starfið yrði aukið í takt við auknar þjóðartekjur. Innlent 10.4.2006 18:29
Eins er saknað eftir að snjóflóð féll í Hoffellsdal Eins manns er saknað eftir að snjóflóð féll í Hoffellsdal í nágrenni Fáskrúðsfjarðar fyrir síðdegis í dag. Björgunarsveitir eru á leið á staðinn frá Reyðarfirði, Eskifirði og Neskaupsstað. Innlent 10.4.2006 18:16
Nagladekkin að lenda á bannlista Þeir sem eru enn á nagladekkjum ættu að huga að því að skipta um dekk hið fyrsta. Frá og með páskadegi er óheimilt að vera á negldum dekkjum á götum Reykjavíkur. Innlent 10.4.2006 17:11
Öflun kaupir í Office Line Öflun ehf., sem á Apple-verslanir á Íslandi, í Danmörku og Svíþjóð, hefur eignast tæp 90 prósent í norska fyrirtækinu Office Line og gert yfirtökutilboð í félagið allt. Viðskipti innlent 10.4.2006 17:27
Hugmyndasamkeppni hleypt af stað Heildar verðlaunafé í hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Vatnsmýrinnar er jafnvirði rúmra 65 milljóna íslenskra króna. Átta teymi verða valin og fá þau tækifæri til að vinna að ítarlegri útfærslu hugmynda sinna. Innlent 10.4.2006 17:17
Stýrivextir gætu farið í 16 prósent Stýrivextir Seðlabankans geta farið í allt að sextán prósent að því er fram kemur í viðtali viðskiptavefsins Bloomberg við Davíð Oddsson Seðlabankastjóra. Davíð segist reiðubúinn að hækka stýrivexti verulega ef þess gerist þörf til að halda aftur af verðbólgu. Innlent 10.4.2006 16:49
Miðjan er í bakgarði í Goðalandi Miðja höfuðborgarsvæðisins er í bakgarði Goðalands 11, það er að segja ef það er reiknað er út frá búsetu í Reykjavík og nágrenni. Í fyrsta skipti í fjögur ár fjarlægist hún Kópavog í stað þess að nálgast hann. Innlent 10.4.2006 16:30
Aðgerðaleysi ráðherra gagnrýnt Stjórnarandstæðingar deildu hart á heilbrigðis- og fjármálaráðherra við upphaf þingfundar í dag. Þeir gagnrýndu ráðherrana fyrir aðgerða- og úrræðaleysi þegar kæmi að því að leysa stöðuna á hjúkrunarheimilum og óskuðu eftir því að forsætisráðherra hlutaðist til um málið. Innlent 10.4.2006 16:26
Gífurleg flóð í Serbíu Serbar búa sig undir það að vatnshæð í Dóná verði í dag sú mesta sem mælst hefur í aldarfjórðung. Gríðarlega hefur flætt í landinu síðasta hálfa mánuðinn sökum mikillar úrkomu og asahláku. Erlent 10.4.2006 15:25
Excel Airways kaupir gríska ferðaskrifstofu Excel Airways Group, dótturfélag Avion Group, hefur keypt bresku ferðaskrifstofuna Kosmar Villa Holidays, sem er fremsta ferðaskrifstofan í Bretlandi í ferðalögum til Grikklands og byggir á 24 ára reynslu í skipulagningu ferða til landsins. Viðskipti innlent 10.4.2006 12:35
Mikill hafís við Grænland Þrátt fyrir að hvert hitametið af öðru hafi verið slegilð á Grænlandi í vetur, er svo mikill hafís við suðvestanvert landið að hafís veldur vandræðum við strandsiglingar. Sum héruð eru nánast einangruð vegna þessa þar sem lítið er um samgöngur á landi. Vefurinn Skip.is greinir frá því að þetta sé mesti hafís sem sést hefur á svæðinu síðan árið 1999 og að svæðið verði líklega ekki orðið íslaust fyrr en í júlí. Innlent 10.4.2006 07:40
Mikil aukning á fíkniefnamálum Lögreglan á Ísafirði hefur lagt hald á mun meira magn af fíkniefnum fyrstu þrjá mánuði ársins en undanfarin ár að því er fram kemur á vef Bæjarins besta. Það sem af er árinu hefur lögreglan á Ísafirði átta sinnum haft afskipti af mönnum grunuðum um fíkniefnamisferli og lagt hald á rúm 265 grömm af hassi og tæp 30 grömm af amfetamíni. Þetta er töluvert meira magn en áður þekkist fyrir vestan því undanfarin ár hefur lögreglan gerð upptæk um 140 grömm af ólöglegum efnum að meðaltali á ári hverju. Innlent 10.4.2006 06:34
Slagsmál víða um land um helgina Töluvert bar á ofbeldi og slagsmálum víða um land um helgina. Tveir voru fluttir undir læknishendur eftir blóðug slagsmál í Skíðaskálanum í Hveradölum og þrír vistaðir í fangageymslum eftir slagsmál þar. Tveir menn ruddust inn til þess þriðja í Reykjanesbæ og höfðu í hótunum við hann með eggvopnum. Maðurinn slapp með skrekkinn en árásarmennirnir voru handteknir. Þá brutust tvisvar út hópslagsmál á Ísafirði og voru tveir menn handteknir vegna þeirra. Innlent 10.4.2006 06:13
Mikill stuðningur við séra Sigfús Rúmlega þrjú þúsund manns hafa ritað nafn sitt á stuðningsyfirlýsingu við að séra Sigfús B. Ingvason verði næsti sóknarprestur í Keflavíkurprestakalli. Það lætur nærri að það sé um helmingur sóknarbarna. Það er á valdi kirkjumálaráðherra hver verður næsti sóknarprestur. Innlent 9.4.2006 18:24
Framsóknarmenn vilja flugvöllinn á Löngusker Framsóknarmenn í Reykjavík boða þjóðarsátt í flugvallarmálum með því flytja Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýrinni og út á Löngusker. Flokkurinn stefnir að því að ná tveimur borgarfulltrúm þrátt fyrir að gengi flokksins hafi verið afar slakt í skoðanakönnum. Innlent 9.4.2006 18:37
Þrír sviptu sig lífi vegna spilafíknar Þrír menn hið minnsta hafa svipt sig lífi það sem af er þessu ári eftir að hafa misst tök á spilafíkn sinni. Formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn segir ráðherra hafa lítið vilja gera þegar hann óskaði eftir aðgerðum. Innlent 9.4.2006 18:33
Samfylkingin vill öldrunarmálin úr höndum ríkisstjórnarinnar Oddvitar beggja stjórnarflokkanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor vilja að ríkisstjórnin taki strax á þeim vanda sem uppi er á dvalarheimilum aldraðra. Samfylkingin í Reykjavík vill hins vegar taka öldrunarmálin algerlega úr höndum ríkisstjórnarinna. Innlent 9.4.2006 18:26
TF-SIF sækir slasaðan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, var kölluð út klukkan hálffimm í dag vegna slasaðs sjómanns um borð í íslenskum togara. Skipið var statt út af Vestfjörðum þegar slysið varð en ekki er vitað hvers kyns meiðsl mannsins eru, né hversu alvarleg. Áætlað er að þyrlan verði yfir skipinu um hálfsjö leytið en SIF þarf að koma við á Rifi til að taka eldsneyti. Innlent 9.4.2006 17:31
Kynþokkafyllsti Vestfirðingurinn valinn Kosning stendur nú yfir á milli fimm karlmanna annars vegar, og fimm kvenna hins vegar, sem hlutu flestar tilnefningar sem kynþokkafyllsti Vestfirðingurinn í netkosningu nýverið. Hægt er að kjósa á milli hinna tilnefndu á fréttavef Bæjarins besta, BB.is. Innlent 9.4.2006 15:25
Forseti skoska þingsins væntanlegur til Íslands Forseti skoska þingsins kemur í opinbera heimsókn til Íslands á morgun. Í för með þingforsetanum verður sjö manna sendinefnd. Innlent 9.4.2006 14:39
Oddvitar vilja lausn í dvalarheimilismáli sem allra fyrst Oddvitar beggja stjórnarflokkanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor telja ótækt að ekki hafi verið tekið þeim vanda sem upp er á dvalarheimilum aldraðra. Þeir vænta þess að málin verði leyst á næstu dögum. Innlent 9.4.2006 13:49
Bæjarstjórinn segist hreinlega hafa verið hafnað Bæjarstjóri Hornafjarðar náði einungis þriðja sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í bænum í gær. Bæjarstjórinn segist líta svo á að honum hafi einfaldlega verið hafnað. Innlent 9.4.2006 12:34
Tveir hafa svipt sig lífi vegna spilafíknar Tveir menn hafa svipt sig lífi það sem af er þessu ári eftir að hafa orðið fastir í viðjum spilafíknar. Þetta er mun útbreiddari fíkn en margir halda, ekki síst þar sem þeim sem þjást af henni tekst betur að halda henni leyndri en þeim sem þjást til dæmis af áfengis- eða vímuefnafíkn. Innlent 9.4.2006 12:00