Innlent
Skafrenningur og hálka er víða á þjóðvegum landsins Skafrenningur og hálka er víða á þjóðvegum landsins. Á Vesturlandi er hálka og skafrenningur á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku, hálkublettir eru á Fróðárheiði. Innlent 13.4.2006 09:53
Skíðafæri gott víða um land Skíðasvæði eru opin víða um land í dag, nægur er snjórinn og færi er víðast hvar gott. Skíðavikan á Ísafirði fer vel af stað. Þar er troðinn þurr snjór, heiðskýrt og logn. Innlent 13.4.2006 09:42
Þrír handteknir vegna fíkniefna í Hafnarfirði Um hundrað grömm af amfetamíni og tíu grömm af hassi fundust við húsleit í Hafnarfirði í gærkvöldi. Þrír menn voru handteknir en þeim var sleppt að yfirheyrslum loknum. Málið telst upplýst. Nóttin var annars róleg hjá lögreglu víða um land. Fjórir sátu inni í fangageymslum lögreglunnar í Reykjavík vegna ölvunar og einn ökumaður var stöðvaður af lögreglunni í Kópavogi vegna gruns um ölvun við akstur. Innlent 13.4.2006 09:21
Tugmilljarða tekjuauki útgerðarinnar Tekjur útgerða landsins af útflutningi sjávarafurða á ársvísu hafa aukist um fjörutíu milljarða króna vegna veikingar krónunnar frá áramótum. Innlent 12.4.2006 21:14
Fluttur á slysadeild eftir bílveltu Ökumaður fólksbíls var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir árekstur á Ólafsfjarðarvegi í kvöld. Bíll sem kom úr norðri lenti utan í bíl á leið í gagnstæða átt, fór út af veginum og valt áður en hann stöðvaðist á toppnum. Innlent 12.4.2006 21:55
Fór með kornabarn í innbrotsleiðangur Karlmaður var handtekinn eftir að hafa brotist inn í tvo bíla í Laugardalnum síðdegis í dag. Það vakti athygli sjónarvotts að maðurinn ýtti barnavagni á undan sér þegar hann hljóp frá öðrum bílnum. Innlent 12.4.2006 21:43
Bensínreikningurinn hækkar um 30 þúsund Bensínreikningur meðal bíleigandans hefur hækkað um þrjátíu þúsund krónur frá áramótum vegna verðhækkana á bensíni. Innlent 12.4.2006 21:16
Sveitarfélögum hefur fækkað um 20% Sveitarfélögum landsins hefur fækkað um rúmlega fimmtung síðustu fjögur árin. Sveitarfélög landsins voru 105 talsins árið 2002 en eru nú aðeins 79 eftir sameiningu Þórshafnarhrepps og Skeggjastaðahrepps. Innlent 12.4.2006 21:01
Mikil umferð um Holtavörðuheiði Mikil umferð er norður yfir Holtavörðuheiði og ljóst að margir eru á leið í páskafrí. Nokkur hálka er á þessum slóðum og því ágætt að fara varlega að sögn lögreglu en þó hefur ekkert óhapp verið tilkynnt til lögreglunnar. Innlent 12.4.2006 20:08
Fjölbreyttar ferðið fyrir borgarbúa á Sumardaginn fyrsta Ferðalangur á heimaslóð er samheiti fjölbreyttra skemmtiferða sem fólki á öllum aldri gefst færi á að fara í á Sumardaginn fyrsta. Hestaferðir, hvalaskoðun, rútuferðir út fyrir borgarmörkin og útsýnisflug er meðal þess sem í boði er. Innlent 12.4.2006 17:55
Þrjú sjóræningjaskip á Reykjaneshrygg Þrjú svokölluð sjóræningjaskip sem skráð eru í Georgíu sáust á svæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar á Reykjaneshrygg í gær. Það var áhöfn TF-SYN, Fokkerflugvélar Landhelgisgæslunnar, sem kom auga á skipin í eftirlitsflugi. Innlent 12.4.2006 19:27
Standa við skýrsluna Þrátt fyrir að lánshæfismat íslensku bankanna sé nánast óbreytt segist fulltrúi Danske Bank standa við skýrslu sína um íslenskt efnahagslíf. Hann vísar því á bug að bankinn hafi hagnast á að mála ástandið hér dökkum litum. Erlent 12.4.2006 19:07
Linsuvökvi veldur blindu Mest seldi linsuvökvi á Íslandi getur, við ákveðnar aðstæður, valdið augnsjúkdómum sem leiða til blindu. Þessar aðstæður eru meðal annars hiti og raki. Landlæknir kannar málið. Innlent 12.4.2006 18:57
Sex ára fangelsi fyrir sveðjuárás Átján ára gamall piltur, Tindur Jónsson, var dæmdur í sex ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir tilraun til manndráps þegar hann réðist að öðrum pilti með stórum hnífi eða sveðju og hjó ítrekað í höfuð hans og líkama. Innlent 12.4.2006 18:24
Fimm bílar í árekstri Fimm bílar lentu í árekstri á Hringbraut í Reykjavík, skammt frá Stakkahlíð, um klukkan hálf sex. Ekki urðu þó nein meiðsl að ráði á fólki. Að sögn lögreglu hefur umferðin þrátt fyrir þetta almennt gengið vel fyrir sig en hún er mjög mikil á þessum síðasta virka degi fyrir páskahelgi. Innlent 12.4.2006 18:00
Horfir fram á sumarþing eða frestun mála fram á haust Magrét Frímannsdóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir að halda verði sumarþing eða fresta málum fram á haustþing því ekki náist að klára öll þau mál sem lögð hafi verið fyrir þingið að undanförnu. Hún sakar ríkisstjórnina um hroðvirkni við vinnslu frumvarpa. Innlent 12.4.2006 17:12
Aðhefst ekkert vegna kaupa Fons á Skeljungi Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast vegna kaupa eignarhaldsfélagsins Fons á olíufélaginu Skeljungi af Högum. Gengið var frá kaupunum í lok febrúar og verður Skeljungur dótturfélag Fons. Innlent 12.4.2006 16:58
Setuverkfallinu frestað Búið er að fresta viku setuverkfalli ófaglærðs starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum, sem hefjast átti hinn 21. apríl næstkomandi. Að sögn Álfheiðar Bjarnadóttur, talsmanns starfsfólksins, eru viðræður hafnar við forstöðumenn hjúkrunarheimilanna. Innlent 12.4.2006 17:03
Akureyrarbær flytur viðskipti sín til Glitnis Akureyrarbær hefur ákveðið að flytja öll bankaviðskipti sín til Glitnis og tekur samningurinn til allra bankaviðskipta Akureyrarbæjar að undanskildum langtímalánum bæjarins. Þetta er í fyrsta skipti sem Akureyrarbær flytur bankaviðskipti sín milli viðskiptabanka frá árinu 1904. Innlent 12.4.2006 16:12
Vilja breyta eftirlaunalögum en deila um aðferðarfræði Samstaða er um það meðal allra flokka á Alþingi að breyta lögunum um eftirlaun stjórnmálamanna, en ágreiningur er um hversu langt á að ganga í málinu og hvort það þurfi að ná um það pólitískri samstöðu á þingi. Innlent 12.4.2006 16:24
TF-LÍF í tilraunaflugi yfir höfuðborgarsvæðinu Önnur þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, er nú á flugi yfir höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess til að athuga hvernig hún hefur komið út úr svo kallaðri þrjú þúsund tíma skoðun. Þyrlan hefur verið í slíkri skoðun frá því í febrúar en hún er framkvæmd á þrjú þúsund flugtíma fresti. Vonast er til að skoðuninni ljúki í dag. Innlent 12.4.2006 15:56
Tilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunanna tilkynntar Tilkynnt hefur verið hvaða þýðendur og verk hljóta tilnefningu til Íslensku þýðingaverðlaunanna. Verðlaunin verða afhent í annað sinn á Degi bókarinnar 23. apríl nk. Innlent 12.4.2006 14:52
FL Group og fleiri kaupa Refresco FL Group hf. hefur í samstarfi við aðra fjárfesta keypt hollenska drykkjarvöruframleiðandann Refresco Holding B.V. (Refresco) af fjárfestingasjóðnum 3i Plc. Heildarkaupverð, ásamt skuldum, er um 461 milljón evra, 42 milljarðar íslenskra króna. FL Group verður stærsti hluthafi félagsins ásamt m.a. Vífilfelli og helstu stjórnendum Refresco. Viðskipti innlent 12.4.2006 14:26
Hámarkslán Íbúðalánasjóðs hækka Félagsmálaráðherra hefur ákveðið hækkun á hámarkslánum Íbúðalánasjóðs úr 15,9 milljónum í 18 milljónir króna og hefur undirritað reglugerð þar af lútandi. Þá hefur hann jafnframt undirritað reglugerð um breytingu á reglugerð um ILS-veðbréf en samkvæmt þeim verður ekki lengur krafist þess af byggingaraðilum að þeir leggi fram bankaábyrgð vegna láns til nýbygginga. Þá verður ekki einungis miðað við brunabótamat við ákvörðun hámarkslán. Viðskipti innlent 12.4.2006 13:56
Hundruð kílómetra í þjónustu fyrir atvinnulausa Atvinnulausir á Hornafirði og víðar gætu þurft að sækja þjónustu til svæðisvinnumiðlana í mörg hundruð kílómetra fjarlægð ef frumvarp félagsmálaráðherra um atvinnleysistryggingar nær fram að ganga. Þá er ekki auðvelt að átta sig á því hvert skráningarferlið á að vera að sögn Hjördísar Þóru Sigurþórsdóttur, formanns stéttafélagsins Vökuls á Austurlandi. Innlent 12.4.2006 13:54
Fékk aðsvif og lést undir stýri Ökumaður á stórum sendibíl lést undir stýri þegar hann var á leið eftir Reykjanesbraut á móts við Kaplakrika í Hafnarfirði um sjöleytið í morgun. Maðurinn mun hafa fengið aðsvif með þeim afleiðingum að bíllinn hafnaði utan vegar. Innlent 12.4.2006 12:36
Opið í Bláfjöllum í dag Skíðasvæðið í Bláfjöllum er opið í dag frá kl. 14 til 21. Opið er í Kóngsgili, Kóngurinn sjálfur og kaðallyftan Patti broddgöltur og byrjendalyftan Amma mús við Bláfjallaskála eru opnar, segir í tilkynningu frá rekstarstjóra svæðanna. Innlent 12.4.2006 12:31
Nærri fimmtíu tilboð í þrjár lóðir í Norðlingaholti Alls bárust 47 tilboð frá 20 aðilum í byggingarrétt í Norðlingaholti, en tilboðin voru opnuð hjá Framkvæmdasviði í gær. Boðinn var út byggingarréttur á tveimur lóðum fyrir atvinnuhúsnæði og á einni lóð fyrir 27 - 30 íbúða fjölbýlishús. Innlent 12.4.2006 12:27
AFA krefst þess að vandi öldrunarheimila verði leystur strax Aðstandendafélag aldraðra krefst þess að vandi öldrunarheimila verði tafarlaust leystur með hækkun daggjalda og hækkun launa ófaglærðra starfsmanna heimilanna. Ef lausn finnst ekki á launadeilu starfsmanna hefst vikulangt setuverkfall eftir níu daga. Innlent 12.4.2006 12:13
4500 undirskriftum hefur verið safnað í Reykjanesbæ Tæplega 4.500 manns styðja Séra Sigfús B. Ingvason í embætti sóknarprests í Keflavík og verður undirskriftarlistinn afhentur dóms- og kirkjumálaráðherra í dag. Innlent 12.4.2006 11:02