Innlent
Vetur og sumar frusu saman í nótt Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur víða um land í dag, þar á meðal í flestöllum hverfum Reykjavíkur. Þess má geta að vetur og sumar frusu saman í nótt sem sagt er að boði hlýtt sumar. Innlent 20.4.2006 10:54
Fólskuleg árás í Laugardal Maður réðst fólskulega á fimmtán ára stúlku og sló hana í höfuðið með hafnarboltakyldu í Laugardal í gærkvöld. Mannsins er enn leitað. Innlent 20.4.2006 09:46
Kaupmáttur launa fer minnkandi Launavísitala í mars 2006 er 285,4 stig og hækkaði um 0,3 prósent frá fyrri mánuði, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Á sama tímabili jókst verðbólga um 1,1 prósent. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,6 prósent. Viðskipti innlent 19.4.2006 17:39
Botnlaus hlutabréfamarkaður Úrvalsvísitalan lækkar niður fyrir áramótagildið í mikilli lækkun annan daginn í röð. Neikvæð stemmning ríkir á hlutabréfamarkaði og fáir vilja taka þá áhættu að kaupa hlutabréf. Viðskipti innlent 19.4.2006 17:39
Mótmælir harðlega frumvarpi um breytingar á lögum um dómstóla Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands samþykkti einróma á fundi sínum í kvöld harðorða ályktun vegna frumvarps dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um dómstóla. Innlent 19.4.2006 22:58
Kemur ekki á óvart að menn hyggi á þjóðernisflokk Dósent í stjórnmálafræði segir að það komi ekki á óvart að menn hyggi á að stofna þjóðernisflokk hér á landi líkan þeim sem þekkjast í nágrannalöndunum, slíkt hafi aðeins verið tímaspursmál. Hann segir að frekar beri að nýta kraft nýrra Íslendinga en að efna til ófriðar við þá. Innlent 19.4.2006 22:30
Ættu að taka 3X Stál sér til fyrirmyndar Íslendingar ættu að horfa til fyrirtækja eins og Þriggja Ex Stáls í umræðunni um byggðastefnu landsins. Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson við afhendingu Útflutningsverðlauna forseta Íslands á Bessastöðum í dag. Innlent 19.4.2006 22:11
Engin ákvörðun um legu Sundabrautar fyrir kosningar Ekki verður tekin ákvörðum um hvar Sundabraut á að liggja fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Málið er nú í samráðsnefnd en niðurstöðu hennar er ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi í sumar. Innlent 19.4.2006 22:13
Enn hækkar verð á bensíni Verð á bensíni heldur áfram að hækka og hefur lítrinn af 95 oktana bensíni hækkað um rúmar 16 krónur frá áramótum. Ekki er útlit fyrir að verðið eigi eftir að lækka í bráð þar sem heimsmarkaðsverð heldur áfram að hækka og krónan að veikjast. Innlent 19.4.2006 22:09
Áslaug og Sigrún hlutu barnabókaverðlaun menntaráðs Áslaug Jónsdóttir og Sigrún Árnadóttir hlutu í dag barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur fyrir árið 2006. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, en þetta var í þrítugasta og fjórða sinn sem það er gert. Innlent 19.4.2006 20:30
Steingrímur aftur til starfa á þingi Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sneri aftur til starfa á þingi í dag þegar þingið kom saman eftir viku páskafrí. Eins og kunnugt er slasaðist Steingrímur töluvert í bílslysi í Húnavatnssýslu um miðjan janúar þegar bíll hans valt í Bólstaðarhlíðarbrekku. Innlent 19.4.2006 19:31
Svifryk 19 sinnum yfir heilsuverndarmörk það sem af er ári Svifryk hefur farið 19 sinnum yfir heilsuverndarmörk í Reykjavík það sem af er árinu en allt árið í fyrra fór það 21 sinni yfir mörkin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfssviði Reykjavíkurborgar. Innlent 19.4.2006 19:25
Stefna á meirihluta í bæjarstjórn Sjálfstæðismenn á Akranesi vonast til að ná meirihluta í bæjarstjórn í fyrsta skipti í meira en 60 ár. Til að auka möguleika sína á því hafa þeir fengið Gísla S. Einarsson, fyrrum þingmann Samfylkingarinnar, til að vera bæjarstjóraefni sitt. Innlent 19.4.2006 18:07
Fundarhlé á Alþingi vegna þingflokksfunda Nú er fundarhlé á Alþingi þar sem hefðbundnir þingflokksfundir standa yfir. Þeim lýkur klukkan sex en þá halda væntanlega áfram heitar umræður um frumvarp ríkisstjórnarinnar um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Innlent 19.4.2006 17:24
Samningur undirritaður um Talíu-Loftbrú Reykjavíkur Samningur um Talíu-Loftbrú Reykjavíkur var undirritaður í dag. Samningurinn er hugsaður sem alþjóðlegur tengslasjóður fyrir listamenn Félags íslenskra leikara. Innlent 19.4.2006 16:06
Hestamaður liggur þungt haldinn á gjörgæslu Maður féll af hestbaki í Fljótshlíðinni síðastliðin laugardag og liggur hann enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss, með mikla áverka á hálsi. Að sögn vakthafandi læknis er ástand hans stöðugt en honum er haldið í öndunarvél. Ekki er vitað enn hvort hann hefur beðið varanlegan skaða af fallinu. Innlent 19.4.2006 15:53
Skeljungur hækkar líka Skeljungur hækkaði fyrir stundu verð á bensíni, dísilolíu og gasolíu um þrjár krónur og þrjátíu aura lítrann. Olíufélagið Esso hækkaði verð hjá sér um það sama í morgun. Innlent 19.4.2006 15:04
Fimmta skrifstofan í Asíu Samskip hafa opnað skrifstofu í Seoul í Suður-Kóreu. Skrifstofan er sú fimmta í röðinni í Asíu, en fyrir eru skrifstofur í Pusan í Suður-Kóreu, Dalian og Qingdao í Kína og Ho Chi Minh í Víetnam. Skrifstofur Samskipa eru þá orðnar 56 í 22 löndum. Viðskipti innlent 19.4.2006 13:44
2 handteknir til viðbótar - 2 kæra gæsluvarðhaldsúrskurð Tveir Íslendingar voru handteknir í gær í tengslum við stóra fíkniefnasmyglið sem komst upp í byrjun apríl. Tveir þeirra sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald um helgina hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Innlent 19.4.2006 13:41
Enn lækkun í Kauphöllinni og á krónunni Hlutabréfaverð í Kauphöllinni hélt áfram að lækka í morgun og hið sama á við um gengi íslensku krónunnar, sem hefur lækkað um tæplega tvö prósent það sem af er degi. Gengi Bandaríkjadals er nú 77 krónur og 54 aurar, ef miðað er við miðgengi Seðlabankans. Evran er kostar nú tæpar 96 íslenskar krónur samkvæmt sama viðmiði. Innlent 19.4.2006 15:08
6.000 farþegar með Flugfélagi Íslands Um sex þúsund farþegar ferðuðust með Flugfélagi Íslands um Páskana. Flugbókanir fara rólega af stað eftir Páskana en nokkur áhugi er fyrir ferðum til Grænlands. Innlent 19.4.2006 11:49
Alþjóðlegir hestadagar í Skagafirði Alþjóðlegir hestadagar í Skagafirði hefjast á morgun sumardaginn fyrsta með reiðkennslusýningu Hólaskóla. Þessi hátíð er haldin ár hvert og dregur að sér mikið af áhorfendum innlendum sem erlendum. Boðið verður uppá fræðsluerindi, kynbótasýningar, töltkeppni og svo er markaðsdagur í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Hestadagarnir standa yfir dagana 20 – 23 apríl. Innlent 19.4.2006 11:46
Gísli verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokks Gísli S. Einarsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, í bæjarstjórnarkosningum á Akranesi í vor. Innlent 19.4.2006 10:43
Atvinnuleysið 2,4 prósent á 1. ársfjórðungi Atvinnuleysi mældist 2,4 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2006. Það táknar að 4.000 manns hafi verið án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuleysi mældist 2,2 prósent hjá körlum en 2,5 prósent hjá konum. Atvinnuleysi er mest á meðal fólks á aldrinum 16 til 24 ára eða 7,7 prósent. Viðskipti innlent 19.4.2006 09:52
Sláturhús Hellu hf. kaupir 50% hlut í Betra landi ehf. Sláturhús Hellu hf. hefur keypt 50% hlut í Betra landi ehf. en gengið var frá kaupsamningu um Páskana. Fyrirtækin höfðu áður þróað með sér samstarf sem leiddi til þess að Sláturhúsið Hellu hf. ákvað að gerast hluthafi að Betra landi ehf. Innlent 19.4.2006 07:12
Greiðfært á Suður- og Vesturlandi Greiðfært er á þjóðvegum á Suður- og Vesturlandi. Hálkublettir eru víða á Vestfjörðum og snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði. Þá eru einnig hálkublettir víða á Norðurlandi og snjóþekja á Öxnadalsheiði og Lágheiði. Hálka er víða á Austurlandi. Innlent 19.4.2006 08:14
Forseti Kína í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna Fjögurra daga opinber heimsókn Hu Jintaos, forseta Kína, til Bandaríkjanna hófst í gær. Forsetinn átti meðal annars fund með Bill Gates, stofnanda Microsoft, og snæddi síðan með honum kvöldverð. Erlent 19.4.2006 06:35
Lækka leikskólagjöld um 20% Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað í gær að lækka leikskólagjöld í leikskólum bæjarins um 20 prósent. Lækkunin tekur gildi 1. maí næstkomandi. Innlent 19.4.2006 06:33
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn tapa fylgi á Akureyri Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar á Akureyri er fallinn samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir NFS. Sjálfstæðismenn halda sínu fylgi, mælast með 36,5% fylgi, en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar rúmum þriðjungi af fylgi sínu. Innlent 19.4.2006 06:50
Lundinn kominn til Eyja Lundinn er kominn til Vestmannaeyja en fjórum dögum seinna en í fyrra. Fréttavefurinn Suðurland.is greinir frá því að sést hafi til lunda í Heimaey síðdegis í gær. Stífar norðanáttir og hár loftþrýstingur tafði lundann á för sinni en hann kemur yfirleitt til Eyja á milli tíunda og tuttugasta apríl hvert ár. Innlent 19.4.2006 06:10