Erlent

Fréttamynd

Mikill viðbúnaður vegna Rítu

Mikill viðbúnaður er í Texas vegna Rítu. Fólk sem býr við ströndina hefur verið hvatt til að flýja heimili sín. Þúsundir eru þegar farnar að huga að brottflutningi frá Galveston og borgarstjórinn í Houston hefur beint því til borgarbúa að búa sig undir það versta.

Erlent
Fréttamynd

Hermenn drepnir í Taílandi

Íbúar í þorpi í suðurhluta Taílands tóku tvo hermenn höndum og myrtu þá í dag vegna gruns um aðild þeirra að skotárás. Eftir því sem <em>BBC</em> greinir frá voru mennirnir gripnir eftir skotárás úr bíl í þorpinu og sökuðu sumir þorpsbúanna þá um að tilheyra dauðasveitum yfirvalda.

Erlent
Fréttamynd

Segir uppreisnarmenn innan hers

Uppreisnarmenn hafa náð að lauma sér inn í írakskar öryggissveitir. Þetta sagði ráðgjafi Íraksstjórnar í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi. Hann sagðist þó ekki vita hve mikið af uppreisnarmönnum væru innan raða öryggissveitanna. Mikil spenna virðist komin upp milli breskra og írakskra stjórnvalda eftir að breskar hersveitir brutust inn í fangelsi í Basra í fyrradag til að frelsa þaðan tvo breska fanga.

Erlent
Fréttamynd

Mörk Ísraels og Gasa landamæri

Ísraelar lýstu mörkin milli Ísraels og Gasa í morgun alþjóðleg landamæri. Það er í fyrsta sinn sem þeir tilgreina opinberlega landamæri að landsvæðum sem á endanum mynda sjálfstætt Palestínuríki. Ísraelar og útlendingar þurfa hér eftir að framvísa skilríkjum til að komast milli Ísraels og Gasa að sögn ísraelskra ráðamanna.

Erlent
Fréttamynd

Fellibyljir sumpart af mannavöldum

Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfréttamaður segir sjóinn í Mexíkóflóa óeðlilega hlýjan þegar hann er inntur eftir því hvers vegna svo margir sterkir fellibyljir ríði yfir á tiltölulega skömmum tíma. Sigurður segir sjóinn óeðilega hlýjan vegna hlýnandi loftslags en það megi aftur m.a. rekja til gróðurhúsaáhrifanna, en Bandaríkjamenn losi allra þjóða mest af gróðurhúsalofttegundum út í loftið.

Erlent
Fréttamynd

Íbúar í Houston þurfa að fara

Borgarstjórinn í Houston í Texas, Bill White, tilkynnti í dag að allir íbúar sem byggju á svæðum sem lægju lágt og hætta væri á að flæddi yfir skyldu yfirgefa borgina á morgun vegna komu fellibylsins Rítu. Almannavarnir á svæðinu segja að allt að ein milljón manna í borginni verði að fara en búist er við Ríta taki land við Galveston, suðaustur af Houston, á föstudag eða laugardag.

Erlent
Fréttamynd

Ræða atvik í Basra í dag

Forsætisráðherra Íraks hittir varnarmálaráðherra Bretlands í Lundúnum í dag til þess að ræða frelsun breskra hermanna á tveim félögum sínum sem höfðu verið handteknir í borginni Basra. Írakar hafa tekið hófsamlega á þessu máli og ekki tekið sterkara til orða en að segja að það sé óheppilegt. Bretar segja hins vegar að hermenn þeirra hafi brugðist rétt við.

Erlent
Fréttamynd

Sigraði í friðarfegurðarsamkeppni

Fjórtán ára gömul ísraelsk stúlka, Shira Fadida, sigraði í sérstakri friðarfegurðarsamkeppni sem haldin var í bænum Gilo skammt frá Jerúsalem í gær. Tuttugu stúlkur, bæði frá Ísrael og Palestínu, tóku þátt í samkeppninni, en þetta er annað árið í röð sem slík fegurðarsamkeppni er haldin.

Erlent
Fréttamynd

Brottflutningi Ísraela lokið

Síðustu ísraelsku hermennirnir yfirgáfu tvær landnemabyggðir á Vesturbakkanum í gær. Þar með lýkur brottfluttningi Ísraelshers sem hófst á Gasa í ágúst. Eins og á Gasa söfnuðust þúsundir Palestínumanna saman á Vesturbakkanum í gær og fögnuðu ógurlega. Landnemabyggðirnar tvær verða þó áfram undir stjórn Ísraels og þarlendir hermenn halda áfram að vakta svæðið í kring.

Erlent
Fréttamynd

Segja faraldur í Indónesíu

Yfirvöld á Indónesíu segja að upp sé kominn fuglaflensufaraldur í landinu. Í nótt lést fimm ára stúlka í Djakarta sem jafnvel er talin hafa smitast af fuglaflensu. Sex manns á sama spítala eru taldir vera með flensuna. Þegar hefur verið staðfest að fjórir hafi látist af völdum flensunnar í landinu undanfarna mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Fellibylurinn Ríta stefnir á Texas

Öllum íbúum Galveston í Texas hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín vegna fellibylsins Rítu sem stefnir óðfluga þangað eftir að hafa farið fram hjá Florida Keys eyjaklasanum í gær. Ríta er nú orðin annars stigs fellibylur og styrkist óðum. Jafnvel er óttast að hún nái fjórða stigi á næstu sólarhringum þegar hún gæti farið yfir Texas eða Louisiana.

Erlent
Fréttamynd

Rita kraftmeiri en Katrín

<p>Borgarstjóri Houston, stærstu borgar Texas, gaf í gær út áskorun til íbúa borgarinnar sem búa næst sjó að koma sér í öruggt skjól innar í landi, þegar fellibylurinn Rita nálgast.

Erlent
Fréttamynd

Miklar breytingar á sjávarhita

Loftslagssérfræðingar frá Vestur-Norðurlöndum hafa sýnt fram á umfangsmiklar breytingar á hitastigi sjávar. Í nýju tölublaði hins virta bandaríska vísindatímarits <em>Science</em> eru birtar niðurstöður úr rannsóknum þeirra. Í greininni sýna vísindamenn frá Færeyjum, Noregi og Íslandi fram á miklar og ófyrirséðar breytingar á hitastigi sjávar í Norður-Atlantshafi og norðurhöfum á undanförnum árum.

Erlent
Fréttamynd

Búist við erfiðum viðræðum

Búist er við erfiðum stjórnarmyndunarviðræðum í Þýskalandi þegar Angela Merkel, leiðtogi Kristlegra demókrata, og Gerhard Schröder, leiðtogi Jafnaðarmanna, setjast að samningaborðinu síðar í vikunni til að ræða mögulegt samstarf flokkanna. Bæði fögnuðu sigri í kosningum til sambandsþingsins á sunnudag og gera bæði tilkall til kanslaraembættisins.

Erlent
Fréttamynd

Schröder til viðræðna án skilyrða

Gerhard Schröder, fráfarandi kanslari, sagði í gær að jafnaðarmenn gengju til þreifingarviðræðna við hina flokkana "án skilyrða". Þingflokkur kristilegra demókrata á þýska þinginu lýsti afgerandi stuðningi við flokksformanninn Angelu Merkel í atkvæðagreiðslu í gær.

Erlent
Fréttamynd

Flúðu heimili sín

Meira en áttatíu þúsund manns yfirgáfu heimili sín á Flórída og í nágrenni í gær, vegna hitabeltisstormsins Rítu, sem óttast er að verði að fellibyl innan skamms. Þá hafa hundrað og þrjátíu þúsund manns til viðbótar verið hvattir til að vera á varðbergi.

Erlent
Fréttamynd

Tyrkir hefja viðræður við ESB

Tyrkir hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið þriðja október næstkomandi. Þetta varð ljóst eftir að Tassos Papadopoulos, forseti Kýpur, lýsti því að ekkert hinna tuttugu og fimm aðildarríkja sambandsins legðist á móti aðildarviðræðum við Tyrki.

Erlent
Fréttamynd

Fyrsta andlitsígræðsla sögunnar

Læknar í Bandaríkjunum undirbúa nú fyrstu andlitsígræðslu sögunnar. Hópur lækna í Cleveland mun á næstunni taka viðtöl við tólf einstaklinga, sem eru afmyndaðir í andliti, með það fyrir augum að velja einn til að græða á nýtt andlit.

Erlent
Fréttamynd

30 drepnir í Darfúr

Uppreisnarmenn á bandi ríkisstjórnar Súdans hafa undanfarna daga drepið þrjátíu manns í Darfúr-héraði. Átök hafa staðið síðan á laugardaginn og nú eru friðarviðræður í uppnámi. Til stóð að halda fundi í Nígeríu til að reyna að ráða bót á ástandinu en nú er alls óvíst að af þeim verði.

Erlent
Fréttamynd

Bretar verja aðgerðir í Basra

Það var "algjörlega rétt" af breska herliðinu í Írak að brjótast með brynvagni inn í fangelsi í Basra til að frelsa tvo breska hermenn, að því er talsmenn breskra stjórnvalda lýstu yfir í gær. Atvikið átti sér stað í fyrradag og olli mikilli reiði meðal Basrabúa. Írösk yfirvöld sögðu það "afar óheppilegt".

Erlent
Fréttamynd

Óbreyttir borgarar létust

Tveir óbreyttir borgarar létust þegar skotbardagar brutust út á milli breskra hermanna og mótmælenda í borginni Basra í Írak í gærkvöldi. Fyrr um daginn voru tveir breskir leyniþjónustumenn í dulargervi handteknir fyrir að skjóta að írökskum lögreglumönnum sem gerðu sig líklega til að handsama þá.

Erlent
Fréttamynd

Frændur vorir mótmæla líka

Það er ekki bara á Íslandi sem vörubílstjórar eru æfareiðir út af háu olíuverði. Í gær tók hópur vörubílstjóra í Dublin á Írlandi sig til og tafði umferð á löngum kafla með því að aka bílum sínum löturhægt í röð eftir miðborginni.

Erlent
Fréttamynd

Clinton-smokkar á markað í Kína

Gúmmívöruframleiðandi í Kína hefur hafið markaðssetningu smokka undir vörumerkinu Clinton og Lewinsky. Kynlífshneykslið sem nærri því kostaði 42. forseta Bandaríkjanna embættið er því greinilega fjarri því að vera gleymt í huga Kínverja.

Erlent
Fréttamynd

Londonárás: Æfðu aðgerðirnar

Mennirnir sem frömdu hryðjuverkin í London sjöunda júlí æfðu aðgerðirnar í neðanjarðarlestum rétt rúmri viku fyrir árásirnar. Breska lögreglan telur mögulegt að þær upplýsingar varpi ljósi á hver var höfuðpaurinn á bak við árásirnar sem kostuðu fimmtíu og tvo lífið.

Erlent
Fréttamynd

Sex látnir eftir flóð í Eþíópíu

Sex létust þegar á flæddi yfir bakka sína í austurhuta Eþíópíu fyrir helgi, að því er Reuters-fréttastofan greindi frá síðdegis. Um 4000 manns neyddust til að yfirgefa heimili sín í kjölfar flóðsins.

Erlent
Fréttamynd

Fallast ekki á kröfur Norður-Kóreu

Norður Kóreumenn ætla ekki að láta af kjarnorkuáætlun sinni, nema þeim verði heitið kjarnaofnum til framleiðslu raforku. Þetta stingur í stúf við samkomulag frá því í gær, þar sem Norður Kóreumenn hétu því að hætta þróun kjarnavopna, gegn efnahagslegri aðstoð og stjórnmálasambandi.

Erlent
Fréttamynd

Simon Wiesenthal syrgður

Stjórnmálaleiðtogar, mannréttindafrömuðir og talsmenn samtaka gyðinga um allan heim lýstu í gær sorg sinni yfir fráfalli Simons Wiesenthal og báru lof á hugrekki hans og staðfestu við að hafa uppi á stríðsglæpamönnum nasista og draga þá fyrir dóm. Nasistaveiðarinn heimskunni andaðist á heimili sínu í Vínarborg í fyrrinótt, 96 ára að aldri.

Erlent
Fréttamynd

Olíuverð rauk upp

Heimsmarkaðsverð á hráolíutunnu rauk upp í gær vegna ótta spákaupmanna við að tíðindi frá fundi OPEC-ríkjanna síðar í dag verði óhliðholl olíumarkaðnum. Verðið hækkaði um heil sjö prósent í gær, úr 63 Bandaríkjadölum upp í rúma 67 Bandaríkjadali, og er þetta mesta hækkun á einum degi síðan í desember 2001.

Erlent
Fréttamynd

Sprenging á hóteli í Ísrael

Sprenging varð á hóteli í borginni Bat Yam í Ísrael fyrir stundu. Ekki er vitað á þessari stundu hvort manntjón hafi orðið í sprengingunni. Samkvæmt fyrstu upplýsingum frá sjúkraliðsmönnum á vettvangi logar eldur á níundu hæð hótelsins.

Erlent
Fréttamynd

Krefjast kjarnaofna að gjöf

Ráðamenn í Norður-Kóreu sögðu í gær að þeir myndu ekki hætta við kjarnorkuáætlun sína nema fá léttvatns-kjarnaofna til friðsamlegrar raforkuframleiðslu. Þessar nýju kröfur virtust stefna í uppnám samkomulagi sem náðist í Peking á mánudag um að Norður-Kóreumenn hyrfu frá kjarnavopnaáformum sínum í skiptum fyrir efnahagsaðstoð og öryggistryggingar.

Erlent