Erlent

Fréttamynd

Talsmaður talibana handtekinn

Aðaltalsmaður talibana í Afganistan hefur verið handtekinn í Pakistan. Frá þessu greindu innanríkisráðherra Pakistans í dag. Talsmannsins, Abdul Latif Hakimi, hefur verið leitað í nokkur ár en hann hefur verið í forsvari fyrir talibana frá því að stjórn þeirra var komið frá völdum í Afganistan fyrir um fjórum árum. Hakimi greindi oft frá árásum uppreisnarmanna talibana á bandalagsheri í Afganistan og mannfalli þar, en bandalagsherirnir reyna nú að ganga á milli bols og höfuðs á uppreisnarmönnunum sem þeir segja að hamli uppbyggingarstarfi í Afganistan.

Erlent
Fréttamynd

31 týndi lífi í aurskriðum

Tony Saca, forseti El Salvador, lýsti yfir neyðarástandi í landinu í fyrradag eftir að 31 maður fórst þar í aurskriðum.

Erlent
Fréttamynd

Æfðu viðbrögð við hryðjuverkum

Miklar tafir urðu á umferð í Róm í morgun þegar yfirvöld æfðu viðbrögð við hugsanlegum hryðjuverkaárásum á borgina. Látið var líta svo út að sjálfsmorðsprengjuárás yrði gerð fyrir utan hringleikahúsið Kólosseum, í neðanjarðarlest og í strætó á háannatíma og viðbrögð yfirvalda og lögreglu æfð. Þá var miðborg Rómar var algjörlega lokuð um tíma vegna æfingarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Ólögráða í lífstíðarfangelsi

Talið er að tæplega tíu þúsund ólögráða einstaklingar afpláni nú lífstíðarfangelsi í Bandaríkjunum. Landið trónir því á toppi lista yfir þá sem hafa flesta unglinga og börn í lífstíðarafplánun. Þetta kemur fram í <em>New York Times</em> í dag.

Erlent
Fréttamynd

Simpansaynja hættir að reykja

Tímamót hafa orðið í lífi simpansaynjunnar Ai Ai. Hún er loks hætt að reykja. Ai Ai er tuttugu og sjö ára og býr í dýragarði í Norðvestur-Kína. Hún byrjaði að reykja fyrir sextán árum, líklega af leiða og sorg, en maki hennar var þá nýdáinn.

Lífið
Fréttamynd

Tyrkir æfir af reiði

Óvíst er hvort Evrópusambandið hefji formlegar aðildarviðræður við Tyrki í dag, eins og áætlað var. Austurríkismenn standa í vegi fyrir því en öll aðildarlöndin 25 þurfa að samþykkja viðræðurammann. Tyrkir eru æfir af reiði yfir þessu og vanda Austurríkismönnum ekki kveðjurnar.

Erlent
Fréttamynd

Fá Nóbelinn í læknisfræði

Ástralarnir Barry Marshall og Robin Warren hljóta Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í ár. Sænska nóbelsnefndin tilkynnti þetta í Stokkhólmi í morgun. Marshall og Warren komust að því árið 1982 að bakterían Helicobacter pylori væri völd að langflestum magasárum.

Erlent
Fréttamynd

Nýr Hæstaréttardómari tilnefndur

Kona mun að öllum líkindum áfram skipa Hæstarétt Bandaríkjanna. George Bush, Bandaríkjaforseti, hefur tilnefnt Harriet Miers, ráðgjafa í Hvíta húsinu, sem Hæstaréttardómara. Verði tilnefning hennar samþykkt mun hún taka við af Söndru Day O'Connor sem lét af embætti fyrr á árinu sökum aldurs.

Erlent
Fréttamynd

Samþykktu viðræður við Tyrki

Austurríkismenn gáfu eftir nú undir kvöld og samþykktu að aðildarviðræður Evrópusambandsins við Tyrki gætu hafist. Þeir lýstu því yfir í gær að þeir gætu ekki samþykkt að Tyrkland yrði fullgildur meðlimur - of margir Evrópubúar séu á móti því og nauðsynlegt sé að hlusta á borgarana. Tyrkir brugðust ókvæða við en undirbúningur fyrir viðræðurnar hefur staðið árum saman.

Erlent
Fréttamynd

Ekki streita sem veldur magasári

Tveir ástralskir læknar fá Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í ár fyrir uppgötvun sem hefur gjörbylt lífi milljóna manna. Það er ekki streita sem veldur magasári heldur sýkill. Þetta uppgötvuðu áströlsku læknarnir.

Erlent
Fréttamynd

Ruddust í gegnum girðingar

Hundruð Afríkubúa brutust í gegnum margra metra háar gaddavírsgirðingar á landamærum Marokkós og spænska landsvæðisins Melilla í morgun, í von um að komast ólöglega til Spánar. Um þrjú hundruð manns tókst ætlunarverkið, en margir voru sárir eftir.

Erlent
Fréttamynd

Handtóku háttsettan ETA-liða

Franska lögreglan handtók í dag þrjá félaga í aðskilnaðarhreyfingu Baska, ETA, í bænum Aurillac í Mið-Frakklandi. Þar á meðal var næstæðsti maður innan samtakanna, Harriet Agurrie, en hún er m.a. grunuð um að hafa skipulagt morð á varaborgarstjóra á Spáni. Þá lagði lögregla einnig hald á skotvopn við handtökurnar.

Erlent
Fréttamynd

Réttarhöld hefjast 19. október

Sérstakur dómstóll, sem fjalla á um glæpi Saddams Husseins, fyrrverandi forseta Íraks, staðfesti í dag að réttarhöld í máli hans myndu hefjast 19. október næstkomandi. Réttað verður yfir Husseins og sex meintum samstarfsmönnum hans vegna dauða 143 sjíta sem drepnir voru í þorpinu Dujail árið 1982 eftir að forsetanum var sýnt banatilræði þar.

Erlent
Fréttamynd

Tuttugu létust í sjóslysi

Tuttugu eldri borgarar létust þegar skemmtiferðabátur fór á hvolf í New York fylki í gær. Atvikið henti svo snöggt að enginn náði að fara í björgunarvesti í tæka tíð.

Erlent
Fréttamynd

Deyddu fóstur dóttur sinnar

Foreldrar ungrar sænskrar konu í Kongsbacka í Svíþjóð misþyrmdu henni illilega og ollu henni fósturláti eftir að hún hafði tilkynnt þeim að hún væri ófrísk eftir araba. Foreldrarnir réðust einnig á unnusta konunnar og kölluðu hann öllum illum nöfnum með vísan til þjóðernis hans.

Erlent
Fréttamynd

Drukknuðu í Lake George

Tuttugu eldri borgarar drukknuðu þegar skemmtibáti hvolfdi eftir að alda frá stærri báti skall á honum á Lake George í New York ríki í gær. Rannsókn er hafin á því hvernig þetta gat gerst en bátnum hvolfdi mjög hratt og því höfðu nær fimmtíu farþegar í bátnum, flestir þeirra eldri borgarar, ekki tíma til að fara í björgunarvesti. 28 komust lífs af úr harmleiknum en sjö þeirra liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi.

Erlent
Fréttamynd

Gasknúin rúta sprakk

Tuttugu og einn farþegi í rútu, sem knúin var áfram af gasi, lést þegar rútan lenti í árekstri við aðra rútu í vesturhluta Tadsjikistan, nærri höfuðborginni Dushanbe, í gær. Haft er eftir lögreglu á þessum slóðum að kraftur sprengingarinnar hafi verið slíkur að einungis hafi verið hægt að bera kennsl á fimmtán líkanna.

Erlent
Fréttamynd

28 uppreisnarmenn drepnir

Afganski herinn drap tuttugu og átta uppreisnarmenn nærri landamærum Pakistans um helgina. Herinn gerði áhlaup á vígi uppreisnarmanna í kjölfar þess að ráðist var á herstöð nærri landamærunum.

Erlent
Fréttamynd

Villandi upplýsingar ráðherrans

Lars Barfoed, neytendamálaráðherra Danmerkur, hefur orðið uppvís að því að hafa gefið danska þinginu villandi upplýsingar varðandi pólsk hindber sem í maí ollu því að yfir þúsund manns veiktust alvarlega og fimm dóu.

Erlent
Fréttamynd

Koma að deilu Tyrkja og ESB

Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa nú hlutast í málefni Tyrkja og Evrópusambandsins. Aðeins nokkrum klukkustundum áður en aðildarviðræður áttu að hefjast milli Tyrkja og Evrópusambandsins er málið allt í hinum mestu ógöngum. Austurríkismenn standa í vegi fyrir viðræðunum, en öll aðildarlöndin tuttugu og fimm þurfa að samþykkja viðræðurammann.

Erlent
Fréttamynd

Hætti kjarnorkusamvinnu við Írana

Bandaríkjastjórn hefur hvatt öll ríki sem koma að kjarnorkumálaáætlun Írana til þess að hætta allri samvinnu við Írana þar sem þeir hafi ekki sýnt fram á með óyggjandi hætti að ekki stæði til að framleiða kjarnorkuvopn.

Erlent
Fréttamynd

Dæmd fyrir brot gegn unglingum

Fjörutíu og eins árs dönsk kona var í dag dæmd fyrir kynferðisbrot sem hún framdi á þremur 14-16 ára drengjum. Konan vann á unglingaheimili sem frístundaráðgjafi þar sem drengirnir voru vistaðir. Konan var dæmd til bráðavistunar á geðveikrahæli í 3-5 ár þar sem hún á að undirgangast viðundandi meðferð og einnig var hún dæmd til að greiða drengjunum miskabætur að andvirði fimmtán þúsund danskar krónur.

Erlent
Fréttamynd

Fyrsti hringmyrkvinn í 200 ár

Þúsundir Spánverja og Portúgala söfnuðust saman á götum úti í dag til að fylgjast með sólmyrkva.  Skuggi tók að færast yfir Íberíuskagann skömmu fyrir klukkan tíu í morgun. Þessi tegund sólmyrkva, svokallaður hringmyrkvi, hefur ekki sést í löndunum tveimur í tvær aldir og því biðu áhorfendur fullir eftirvæntingar.

Erlent
Fréttamynd

Segjast hafa tekið hermenn af lífi

Hryðjuverkasamtökin al-Qaida í Írak greindu frá því í dag að þau hefðu tekið tvo hermenn, sem gripnir voru í Vestur-Írak, af lífi. Yfirlýsing þessa efnis birtist á íslamskri vefsíðu í dag en þar kemur einnig fram að þar sem Bandaríkjaher hefði ekki orðið við kröfum að sleppa súnnítakonum úr haldi þá hefðu mennirnir verið drepnir.

Erlent
Fréttamynd

Morðtilræði við írakskan ráðherra

Olíumálaráðherra Íraks slapp naumlega undan morðtilræði í morgun. Nokkrir menn hófu skothríð á bifreið ráðherrans þegar hann var á leið til vinnu. Þrír lífverðir hans særðust alvarlega.

Erlent
Fréttamynd

Viðræðurnar sigla enn í strand

Aðildarviðræður Tyrkja við Evrópusambandið sigldu enn eina ferðina í strand í gær og ekki tókst að ná sátt um drög að samningum, eins og til stóð. Utanríkisráðherrum sambandsins, sem eru samankomnir í Lúxemborg, tókst ekki að sannfæra Austurríkismenn um að gefa grænt ljós á aðild Tyrkjanna.

Innlent
Fréttamynd

Samkomulag um aðildarviðræður

Tyrkir hafa komist að samkomulagið við Evrópusambandið um að hefja viðræður um aðild þeirra að sambandinu, sagði Abdullah Gul, utanríkisráðherra Tyrklands, eftir stöðug fundahöld. Austurríkismenn, Grikkir og Kýpverjar lögðust gegn því að framkvæmdastjórn ESB hæfi aðildarviðræður við Tyrki vegna þess að Tyrkir viðurkenna ekki stjórnvöld á Kýpur.

Erlent
Fréttamynd

12 látnir eftir lestarslys

Tólf létust og minnst eitt hundrað eru slasaðir eftir að fjölmenn farþegalest fór út af sporinu í Indlandi í morgun. Lestin stoppaði ekki við eina lestarstöðina og sex vagnar fóru út af teinunum, þar sem alla jafna er gert við lestina og hún þrifin. Talið er að bremsubúnaður lestarinnar hafi bilað.

Erlent
Fréttamynd

35 látast í hamförum í Mið-Ameríku

Að minnsta kosti 35 hafa látist af völdum flóða og aurskriða í Miða-Ameríku í dag. Hamfarirnar má rekja til hitabeltisstormsins Stan sem gekk yfir Yucatan-skagann í Mexíkó um helgina með tilheyrandi hvassviðri og ofankomu sem leiddi til þess að ár flæddu yfir bakka sína. Þúsundir manna þurftu að yfirgefa heimili sín sem sum hver grófust undir aurskriðum.

Erlent
Fréttamynd

Íraksstríðið spillti fyrir

Ofuráhersla á Írak spillti stórlega fyrir björgunaraðgerðum vegna fellibylsins Katrínar, samkvæmt nýrri skýrslu frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu sem breska blaðið<em> Independent</em> hefur komist yfir.

Erlent