Erlent
Óeirðir víðar en í Frakklandi Það er ekki bara í Frakklandi sem óeirðir geisa: Í Belgíu og Þýskalandi var kveikt í bílum í nótt og stjórnmálamenn í Evrópu óttast að óróinn í Frakklandi breiðist út. En hvernig stendur á því að svona mikil spenna hefur myndast undanfarin ár og jafnvel áratugi? Hver er ástæðan og hvað má læra af mistökum annarra? Erlent 7.11.2005 19:46
Gríðarleg eyðilegging af völdum hvirfilbylsins Nú er ljóst að 17 manns fórust og um rúmlega hundruð manns eru slasaðir eftir að öflugur hverfilbylur fór yfir suðvesturhluta Indiana fylkis og hluta Kentucky fylkis í Bandaríkjunum í nótt. Erlent 6.11.2005 18:33
Kúrdísk sjónvarpsstöð í rannsókn lögreglu í Danmörku Danska lögreglan rannsakar nú sjónvarpsstöðina ROJ TV sem er með útsendingar í Danmörku en tyrknesk stjórnvöld vilja meina að sjónvarpsstöðin sé hliðholl Kúrdum og ali á hatri gagnvart tyrkenskum stjórnvöldum Erlent 6.11.2005 18:03
Norski krónprinsinn í opinberi heimsókn í Danmörku Hákon krónprins er nú í opinberi heimsókn í Danmörku í tilefni þess að Noregur fagnar um þessar mundir 100 ára afmæli sínu sem sjálfstætt ríki. Erlent 6.11.2005 17:29
Flugeldur sprakk nærri áhorfendum á flugeldasýningu Sjö börn og fjórir fullorðnir voru fluttir á spítala til aðhlynningar vegna brunasára sem þau hlutu þegar flugeldur sprakk nærri þeim á flugeldasýningu í skemmtigarði á Englandi í gærkvöldi. Erlent 6.11.2005 17:08
Tala látinna hækkar Nú er ljóst að 18 manns fórust og um rúmlega hundruð manns eru slasaðir eftir að öflugur hvirfilbylur fór yfir suðvesturhluta Indiana fylkis og hluta Kentucky fylkis í Bandaríkjunum í nótt. Innlent 6.11.2005 17:04
Kosningar í Aserbædjan í dag Íbúar Aserbædjan ganga til þingkosninga í dag. Ekki er reiknað með neinum breytingum, enda er stjórnarandstöðunni ekki leyft að starfa nema að afar takmörkuðu leyti. Kosningastjóra stærstu stjórnarandstöðuhreyfingarinnar var þó sleppt úr fangelsi í dag. Erlent 6.11.2005 15:18
Kínverjar lóga fiðurfénaði Öllum fiðurfénaði í norðausturhluta Kína verður lógað fyrir mánudag til að hindra útbreiðslu fuglaflensu. Sautján hundruð embættismenn hafa verið sendir á staðinn með her- og lögregluvernd, til að lóga fuglunum, en þeir eru allt að ein milljón talsins. Erlent 6.11.2005 15:16
Sprengja sprakk í Mógadishu Þrír létust og minnst tuttugu særðust þegar öflug sprengja sprakk í Mógadishu, höfuðborg Sómalíu í dag. Allt útlit er fyrir að um árás hafi verið að ræða og að ætlunin hafi verið að ráða forsætisráðherrann Mohammad Al Gedi af dögum. Erlent 6.11.2005 15:09
Íranar falast eftir viðræðum um kjarnorkumál Yfirmaður samninganefndar Írana um kjarnorkumál hefur falast eftir viðræðum við Frakka Breta og Þjóðverja vegna kjarnorkuáætlunar Írana. Innlent 6.11.2005 15:06
Engin fríverslunarsamningur Tveggja daga leiðtogafundi Ameríkuríkja lauk í gær án nokkurs samkomulags um fríverslun milli álfanna. Andstaða fimm ríkja undir forystu Hugos Chavez, forseta Venesúela réði þar úrslitum. Erlent 6.11.2005 13:25
Gríðarleg eyðilegging vegna hvirfilbyls í Indiana og Kentucky 11 manns fórust og yfir hundrað manns slösuðust í miklum hverfilbyl sem fór yfir suðurhluta Indiana fylki og hluta Kentucky fylkis í Bandaríkjunum í nótt. Erlent 6.11.2005 14:52
Versta nóttin hingað til Ekkert lát er á óeirðunum í Frakklandi. Þrettán hundruð bílar voru brenndir og kveikt var í skólum, verslunum, lögreglustöðvum og pósthúsum í nótt. Þetta er versta nótt óeirðanna til þessa, hin tíunda í röð. Erlent 6.11.2005 13:09
Sjóræningjar á ferð við Sómalíu Sjóræningjar réðust á skemmtiferðaskip undan ströndum Sómalíu í gær, en því tókst að komast undan áður en þeir komust um borð. Erlent 6.11.2005 13:31
Óeirðirnar versna enn Þrettán hundruð bílar voru brenndir og kveikt var í skólum og pósthúsi í Frakklandi í gærkvöldi. Þetta er versta kvöld óeirðanna til þessa, hið tíunda í röð, en lögregla handtók á fjórða hundrað brennuvarga. Erlent 6.11.2005 10:02
Írakskur stjórnmálamaður í lífshættu Hátt settur stjórnmálamaður úr röðum Súnníta slasaðist alvarlega í dag, þegar vopnaðir menn réðust að bifreið hans og hófu skothríð. Maðurinn varð fyrir fimm skotum í handleggi og brjóstkassann og er enn í lífshættu. Erlent 5.11.2005 17:45
Telja sig hafa fundið jarðneskar leifar Copernicusar Pólskir fornleifafræðingar telja sig hafa fundið jarðneskar leifar Nikulásar Copernicus, sem gerði byltingarkenndar uppgötvanir á sviði stjörnufræða á 16. öld. Erlent 5.11.2005 17:40
Crusader í farbanni Fraktskipið Crusader hefur verið úrskurðað í farbann frá Noregi á meðan á rannsókn á kókaínsmygli stendur yfir. Talið er að rannsóknin muni taka nokkra daga. Erlent 5.11.2005 17:30
Annan hætti við að fara til Íran Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu Þjóðanna, hefur hætt við fyrirhugaða ferð sína til Írans vegna nýlegra ummæla forseta landsins um að réttast væri að þurrka Ísrael út af landakortinu. Innlent 5.11.2005 11:50
Kerfi sem varar við skjálftum Japanir hafa komið sér upp jarðskjálftaviðvörunarkerfi sem virðist ætla að gefa góða raun. Tilraunagerð kerfisins var sett upp í Miyagi héraði í febrúar og varaði það við stórum skjálfta í borginni Sendai, fimmtán sekúndum áður en skjálfti upp á sjö komma tvo skók borgina þann sextánda ágúst. Erlent 5.11.2005 11:53
Óeirðirnar breiðast út Franska lögreglan handtók tvö hundruð og fimmtíu manns í gærkvöldi, í miklum óeirðum í úthverfum Parísar, níunda kvöldið í röð. Kveikt var í að minnsta kosti sjö hundruð og fimmtíu bílum. Erlent 5.11.2005 11:56
200 handteknir í Frakklandi Franska lögreglan handtók tvö hundruð manns í gærkvöldi, í miklum óeirðum í einu úthverfa Parísar, níunda kvöldið í röð. Erlent 5.11.2005 10:56
Liðsflutningar til landamæra Talsmaður Afríkubandalagsins í Eþíópíu lýsti í gær yfir áhyggjum sínum af herflutningum Eþíópíumanna og Erítreumanna að landamærum sínum. Jafnvel er talin hætta á að stríð geti brotist út. Erlent 4.11.2005 18:31
Öryggisverðir farnir í verkfall Lausafjárskortur gæti orðið í stærstu borgum Svíþjóðar um helgina þar sem öryggisverðir sem annast peningaflutninga ætla að leggja niður störf þar til öryggi þeirra verður tryggt. Óttast er að hraðbankar tæmist jafnvel strax í dag. Erlent 4.11.2005 18:31
Aldrei verið óvinsælli George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur aldrei verið jafn óvinsæll og nú. Í skoðanakönnun sem gerð var fyrir CBS-fréttastofuna reyndust aðeins 35 prósent þeirra sem spurðir voru ánægð með störf forsetans. Þetta er versta útkoma Bush frá upphafi og jafnframt ein versta útkoma sem nokkur forseti Bandaríkjanna hefur hlotið. Erlent 4.11.2005 22:11
Ekkert lát á óeirðunum Enn kom til óspekta í úthverfum Parísarborgar í fyrrinótt, áttundu nóttina í röð. Annars staðar í Frakklandi kom til átaka í innflytjendahverfum. Erlent 4.11.2005 18:31
Lífvörður Rabins vill nýja rannsókn Öryggisvörður Yitzhak Rabin, forsætisráðherra Ísrael, vill að rannsókn verði hafin á morðinu á honum á nýjan leik. Í gær voru tíu ár liðin frá því að nóbelsverðlaunahafinn var skotinn til bana. 4. nóvember 1995 skaut Yigal Amir, öfgahægrimaður úr hópi gyðinga, Rabin þar sem hann hann flutti ávarp á friðarsamkomu í Tel Aviv. Erlent 4.11.2005 22:11
Kenningum vísað á bug eystra Flugmálayfirvöld bæði í Rúmeníu og Póllandi neituðu því í gær að meint leynifangelsi CIA væri að finna við flugvelli í þessum löndum eins og getum hefur verið leitt að. Stjórnendur Szczytno-Szymany-flugvallar í Póllandi staðfestu hins vegar að bandarísk Boeing 737-þota hefði lent á vellinum þann 22. september 2003, sú sem Mannréttindavaktin segir að hafi flutt leynifanga CIA, en aðeins haft um klukkustundar viðdvöl þar. Erlent 4.11.2005 22:11
Fullur í bílprófinu Danskur maður, sem misst hafði bílprófið, ákvað á dögunum að taka það á ný. Taugarnar voru hins vegar ekki sterkari en svo að hann ákvað að fá sér nokkra gráa fyrir prófið. Allt komst upp og situr nú maðurinn eftir með sárt ennið, próflaus, mörg þúsund krónum fátækari vegna sekta og má ekki reyna við bílprófið aftur fyrr en eftir nokkur ár. Erlent 4.11.2005 22:11
Hanar með vegabréf Aðdáendur hanaslags geta andað léttar, því ríkisstjórn Taílands hefur fundið leið til að tryggja að slagsmálahanar hverfi ekki fyrir fullt og allt þrátt fyrir fuglaflensu. Þeir fá nú til að mynda sérstök vegabréf svo hægt sé að fara með þá svæða og landa á milli í keppnisferðir. Erlent 4.11.2005 19:08
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent