Erlent

Fréttamynd

Krefjast svara um fangaflug og leynifangelsi

Evrópusambandið vill að bandarísk stjórnvöld geri hreint fyrir sínum dyrum vegna upplýsinga sem komið hafa fram um fangaflug CIA með meinta hryðjuverkamenn og leynileg fangelsi í Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Íhugaði árás á Al-Jazeera

George W. Bush Bandaríkjaforseti íhugaði að fyrirskipa sprengjuárás á höfuðstöðvar Al-Jazeera sjónvarpsstöðvarinnar í Katar í fyrra en Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, talaði hann ofan af því á fundi þeirra í Washington í fyrra. Þessu er haldið fram í breska blaðinu Daily Mirror í dag.

Erlent
Fréttamynd

Breytingartillögur á stjórnarskrá Kenýa felldar í gær

Breytingartillögur á stjórnarskránni í Kenýa voru felldar í gær. Úrslitin eru áfall fyrir forseta Kenýa, Mwai Kibaki, sem barðist fyrir breytingartillögunum. Tölur sem bárust í morgun gefa til kynna að 3,2 manna hafi kosið gegn breytingartillögunum og 2,2 milljónir með henni. Þá á eftir að telja um 850.000 atkvæði.

Erlent
Fréttamynd

83 hafa farist í flóðum í Kólumbíu

83 hafa látist og 5 er saknað í Kólumbíu eftir tvo mánuði af stöðugum regnstraumi sem hefur valdið miklum flóðum um norð-vestur héruð landsins. Auk hinna látnu hafa um 250 þúsund manns lent illa í flóðum, aurskriðum og ám sem flæða yfir bakka sína.

Erlent
Fréttamynd

Örninn besta erlenda þáttaröðin

Danska sjónvarpsþáttaröðin Örninn var valin besta dramatíska erlenda dramatíska þáttaröðin á þrítugustu og þriðju Emmyhátíðinni fyrir erlenda sjónvarpsframleiðslu sem haldin var í Bandaríkjunum síðustu nótt.

Erlent
Fréttamynd

Hættulegasta borg Bandaríkjanna

Borgin Camden í New Jersey fylki í Bandaríkjunum er talin vera hættulegasta borg Bandaríkjanna. Þetta er annað árið sem borgin er efst á lista yfir hættulegustu borgir í Bandaríkjunum.

Erlent
Fréttamynd

73 ára Norðmaður fékk lottóvinning í annað sinn á ævinni

73 ára gamall Norðmaður datt heldur betur í lukkupottinn fyrir stuttu og það í annað sinn á ævinni. Um helgina vann Friðþjófur Bodin um tíu milljónir íslenskra króna en fyrir 14 árum vann hann um 17 milljónir íslenskra króna í Lottóinu í Noregi.

Erlent
Fréttamynd

Pútín í opinberi heimsókn í Japan

Vladimír Pútín, forseti Rússlands segir Rússa staðráðna í að byggja olíuleiðslu sem flytja muni hráolíu frá Síberíu til Japans og annarra þjóða við Kyrrahaf.

Erlent
Fréttamynd

Yfir 40 milljónir manna hafa greinst með HIV veiruna

4,9 milljónir manna hafa greinst með HIV veiruna það sem af er þessu ári. Þar með er fjöldi HIV-smitaðra kominn upp í 40,3 milljónir um heim allan. Yfir 3,1 milljón manns hafa látist af völdum eyðni á árinu, þar af 570.000 börn.

Erlent
Fréttamynd

Einkaleyfi Lego útrunnið

Hæstiréttur Kanada dæmdi Lego framleiðendum í óhag í málssókn fyrirtækisins gegn kanadískum kubbaframleiðenda. Lego hafði krafist lögbanns á kubba framleiðandans þar sem kubbarnir þóttu of líkir Legokubbunum. Kanadíski dómstóllinn sagði einkaleyfi Lego útrunnið og að tími frjálsrar samkeppni á kubbamarkaði væri runninn upp.

Innlent
Fréttamynd

Ofbeldi í skoskum skólum

36 kennarar og 40 nemendur þurftu að leita á sjúkrahús í fyrra vegna árása af hálfu nemenda í Skotlandi. Þá þurftu 53 skólastarfsmenn á einhverri aðstoð að halda eftir árásir, þótt þeir hefðu ekki farið á spítala. Skólastjórar í Skotlandi hafa gagnrýnt yfirvöld fyrir að sýna ofbeldisfullum nemendum of mikla vægð og kennarasambandið segir að ofbeldi innan bekkja sé alls ekki tekið nógu alvarlega.

Innlent
Fréttamynd

Sharon segir af sér

Ariel Sharon forsætisráðherra Ísraels hefur sagt af sér og krafist þess að þing verði rofið. Þetta gerði hann á fundi með Moshe Katsav, forseta landsins nú í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Peningafalsarar handteknir í Kólumbíu

Kólumbíska lögreglan réðst inn á starfsemi peningafalsara, handtók fimm manns og gerði þrjár milljónir dollara í fölsuðum peningaseðlum upptæka. Handtakan var afleiðing ítarlegrar rannsóknar af hálfu kólumbískra yfirvalda og leyniþjónustu Bandaríkjamanna. Talið er að fjörutíu prósent falsaðra seðla sem eru í gangi í heiminum séu framleiddir í Kólumbíu

Erlent
Fréttamynd

Umdeildar kosningar í Kenýa

Umdeildar kosningar fara fram í Kenýa í dag, þegar kosið er um nýja stjórnarskrá í landinu sem mun styrkja stöðu forsetans. Forsetinn, Mwai Kibaki, hefur kallað kosningarnar sögulegt tækifæri en stjórnarandstæðingar vilja að forseti deili valdinu með lýðræðislega kjörnum forsætisráðherra. Miklar óeirðir hafa átt sér stað að undanförnu vegna kosninganna þar sem níu manns hafa látist.

Erlent
Fréttamynd

Ofdrykkja unglinga vaxandi vandi í Danmörku

Alltof margir danskir unglingar þjást oft og illa af timburmönnum að mati danskra heilbrigðisyfirvalda. Sjötti hver karl og sjöunda hver kona á aldrinum fimmtán til nítján ára innbyrða of mikið áfengi og hafa þurft læknishjálp vegna áfengiseitrunar. Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa reynt að sporna við ofdrykkju með látlausum auglýsingum undanfarin ár en segja það lítið gagn gera því á umliðnum tíu árum hafa áttatíu þúsund danir verið hætt komnir vegna áfengiseitrunar.

Innlent
Fréttamynd

Níu manns látnir og tugir slasaðir

Minnst níu létust og tugir slösuðust þegar fellibylurinn Gamma gekk yfir Hondúras í fyrrinótt. Honum fylgdi mikið úrhelli og bárust víða að tilkynningar um flóð og skriður og talið líklegt að mun fleiri hafi látist.

Erlent
Fréttamynd

Ætlar til Mongólíu í dag

Forsetar Bandaríkjanna og Kína hittust í Alþýðuhöllinni í Peking í gær, rétt hjá Torgi hins himneska friðar. George W. Bush skrapp í heimsókn til Kína og lagði hann mikla áherslu á að kínversk stjórnvöld veittu íbúum landsins meira ­frelsi.

Erlent
Fréttamynd

Ísraelsstjórn fellur

Ísraelski Verkamannaflokkurinn yfirgaf í gær stjórn Ariels Sharons. Kosningum verður flýtt. Sharon er talinn ætla að stofna nýjan flokk.

Erlent
Fréttamynd

Lögreglan stóð í kókaínsmygli

Eitthvert hlé verður gert á baráttu yfirvalda í Gvatemala gegn sölu og smygli á fíkniefnum. Æðsti yfirmaður stofnunar þar í landi, sem sett var á fót til að sporna við sölu og smygli á fíkniefnum, var handtekinn í Bandaríkjunum nýlega vegna gruns um að hafa ætlað að smygla tvö þúsund kílóum af kókaíni til landsins.

Erlent
Fréttamynd

Fílarnir að sálast úr þorsta

Fílar hafa drepist unnvörpum úr þorsta í þjóðgörðum Simbabve vegna þess að vatnsveitum er ekki haldið við. Engir fjármunir eru til viðgerða því landið rambar á barmi gjaldþrots.

Erlent
Fréttamynd

Storkur fær gervigogg

Japanski storkurinn Taisa, sem missti framan af goggnum í fyrra eftir að hann flæktist í vír, fékk í gær sérsmíðaðan gervigogg sem gæslumenn hans festu á hann. Storkurinn hafði horast frá því goggurinn brotnaði þar sem hann átti erfiðara með að éta og leiðir skildu með honum og lífsförunaut hans, að því er Kyodo-fréttastofan hafði eftir starfsmönnum Omoriyama-dýragarðsins í Akita.

Erlent
Fréttamynd

Hafa enga stjórn á ástandinu

Yfirvöldum á Spáni hefur mistekist að stöðva þann stríða straum ólöglegra innflytjenda frá Afríku og Suður-Ameríku sem kemur til landsins. Tölfræðin sýnir að komist innflytjendur inn á annað borð er nánast ómögulegt að hafa uppi á þeim aftur.

Erlent
Fréttamynd

Samþykkt að slíta samstarfi við Likud-bandalagið

Miðstjórn Verkamannaflokksins í Ísrael samþykkti í dag að slíta stjórnarsamstarfi við Likud-bandalagið sem Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, fer fyrir. Er þetta í samræmi við yfirlýsingar formanns Verkamannaflokksins, Amirs Peretz, sem bar óvænt sigur af Shimoni Peres í formannskosningunum á dögunum.

Erlent
Fréttamynd

Bush hvatti kínversk stjórnvöld til að auka frelsi

George Bush, forseti Bandaríkjanna, hvatti í dag kínversk yfirvöld til að auka frelsi á sviði stjórnmála, félagsmála og trúmála, en hann er nú í heimsókn í Kína. Bush ræddi við Hu Jintao, kínverskan starfsbróður sinn, en auk fyrrgreindra mála ræddu þeir viðskipti Kína og Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Schröder kvaddur í Hannover

Kveðjuathöfn var haldin fyrir Gerhard Schröder, fráfarandi kanslara Þýskalands, í heimabæ hans Hannover í gærkvöld. Mikið var um dýrðir þar sem bæði hermenn báru kyndla honum til heiðurs og herlúðrasveit lék lög sem eiginkona kanslarans hafði valið.

Erlent
Fréttamynd

Albert formlega tekinn við völdum í Mónakó

Albert fursti af Mónako hefur nú formlega tekið við völdum í furstadæminu eftir íburðarmikla krýningarhátíð í gær. Um 800 boðsgestir mættu til hátíðahaldanna, en eini þjóðhöfðinginn sem sá sér fært að fara til Mónakó að samfagna Alberti fursta var Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands.

Erlent