Erlent
Bylting á breskri drykkjumenningu Bylting hefur orðið á breskri drykkjumenningu. Deilt er um það hvort hún sé til góðs eða ills. Framvegis er stöðum sem selja áfengi heimilt að selja það hvenær sem er dagsins og þess vegna að hafa opið allan sólarhringinn. Erlent 24.11.2005 22:10
Óttast að vatnsból borgarinnar sé mengað Í Khabarovsk óttast íbúar nú að vatnsból borgarinnar sé mengað en drykkjarvatnið er tekið úr ánni Songhua. Hún rennur fyrst í gegnum Kína og þann þrettánda nóvember síðastliðinn fór út í hana mikið magn eiturefna eftir sprengingu í efnaverksmiðju þar. Erlent 24.11.2005 21:25
Þúsundasti fanginn tekinn af lífi frá 1977 Á næstu dögum verður þúsundasti fanginn tekinn af lífi frá því að aftökur voru leyfðar á ný. Þrjú þúsund og fjögur hundruð fangar bíða þess að verða teknir af lífi í bandarískum fangelsum, þar af hundrað og átján útlendingar. Erlent 24.11.2005 21:20
Sjálfsmorðsárás á markaði í Hilla Að minnsta kosti tveir létust þegar sprengja sprakk á fjölmennum markaði í borginni Hilla í Írak síðdegis. Á annan tug manna liggja sárir eftir ódæðið. Um sjálfsmorðsárás var að ræða. Erlent 24.11.2005 17:35
Annar drengjanna sem brenndist illa enn haldið sofandi Annar drengjanna sem brenndist illa þegar eldfimur vökvi skvettist yfir þá í Grafarvogi á sunnudagskvöldið liggur enn á gjörgæslu á Landspítala-háskólasjúkrahúsi. Honum er haldið sofandi en ástand hans er stöðugt. Hinn drengurinn brenndist minna og hefur hann verið fluttur á Barnadeild Hringsins. Innlent 24.11.2005 14:49
Níu milljónir bak við lás og slá Fangar heimsins eru orðnir rúmlega níu milljónir talsins og meira en helmingi þeirra er haldið í fangelsum í þremur ríkjum, Bandaríkjunum, Kína og Rússlandi. Ísland er meðal þeirra ríkja sem hafa fæsta á bak við lás og slá. Erlent 24.11.2005 10:29
Spánverjar kalla eftir aðstoð ESB vegna innflytjenda Spánverjar hafa óskað eftir aðstoð Evrópusambandsins þar sem þeim gengur illa að hafa hemil á afrískum innflytjendum sem reyna að komast yfir landamæri Spánar í von um betra líf í Evrópu. Erlent 24.11.2005 07:36
Rekin fyrir að verða barnshafandi utan hjónabands Kennslukona í Queens í New York hefur kært skólann sem hún kenndi við eftir að hún var rekin þaðan þar sem hún varð ófrísk án þess að vera í hjónabandi. Hin 26 ára Michelle McCusker kenndi við kaþólskan barnaskóla í Queens en var rekin í síðasta mánuði þegar skólayfirvöld komust að því að hún var barnshafandi. Erlent 24.11.2005 07:31
Þrettán slasast í miklu umferðarslysi í Chicago Að minnsta kosti þrettán manns slösuðust, þar af þrír alvarlega, þegar lest skall á fimm bíla í Chicago í Bandaríkjunum í gærkvöld. Áreksturinn varð þó stærri og meiri því þeir bílar hentust síðan til og á að minnsta kosti tólf bíla til viðbótar. Erlent 24.11.2005 07:18
Mengun frá efnaverksmiðju berst til Harbin Um áttatíu kílómetra kafli í ánni Songhua í Norðaustur-Kína er nú talinn vera mengaður eftir sprengingu í efnaverksmiðju við ána í síðustu viku. Mengunin hefur nú borist til Harbin, einnar af stærstu borgum Kína, og hafa yfirvöld hvatt fólk til að halda sig frá ánni. Erlent 24.11.2005 08:35
Hlaut fangelsisdóm fyrir að selja of mikið áfengi Norskur barþjónn hlaut sex mánaða fangelsisdóm fyrir að selja drukknum gesti of mikið áfengi. Gesturinn, sem var á fertugsaldri keypti nítján tekíla drykki á níutíu mínútum á síðasta þjóðhátíðardegi Norðmanna. Hann lést fimm dögum síðar af völdum heilaskaða sem rakinn var til ofdrykkjunnar. Innlent 24.11.2005 06:50
Eftirlit með mannréttindahópum hert í Rússlandi Óttast er að mannréttindahópar í Rússlandi hrekist nú úr landi eftir að rússneska þingið, Dúman, samþykkti ný lög sem virðast eiga að gera mannréttindahópum erfiðara fyrir með að starfa í landinu. Samkvæmt lögunum verða allir slíkir hópar að skrá sig hjá því opinbera og samþykkja eftirlit af hálfu lögreglunnar. Erlent 24.11.2005 07:13
Víg í Nuevo Laredo í Mexíkó Maður og fjögurra ára frænka hans féllu þegar uppreisnarmenn hófu skothríð á bíl mannsins í borginni Nuevo Laredo í Mexíkó í gærkvöld. Systir mannsins og annað barn hennar, sem einnig voru í bílnum, særðust í árásinni en þó ekki lífshættulega. Erlent 24.11.2005 07:03
Hitabeltisstormurinn Delta á Atlantshafi Hitabeltisstormurinn Delta, sem myndaðist í gær á Atlantshafinu, er 25. stormurinn sem nær þeim styrk að hann hljóti nafn á fellibyljatíðinni á þessu ári. Delta kann að ná fellibylsstyrk, en samkvæmt veðurspám er ekki hætta á að hann komi nærri landi. Erlent 24.11.2005 07:11
Bolton hótar að Bandaríkjamenn afgreiði ekki fjárlög fyrir SÞ John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur hótað því að Bandaríkin afgreiði ekki fjárlög fyrir Sameinuðu þjóðirnar nema starf samtakanna verði endurskipulagt og það fyrir næstu áramót. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur sagt að tillögur um endurskipulagningu muni ekki liggja fyrir fyrr en í febrúar á næsta ári. Erlent 24.11.2005 07:05
Pinochet í stofufangelsi vegna skattsvika Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra Chile, hefur verið hnepptur í stofufangelsi vegna gruns um skattsvik. Pinochet, sem er 89 ára að aldri, er einnig sakaður um að nota fölsuð opinber skjöl og að veita rangar upplýsingar um eignir sínar, upp á 1,7 milljarða íslenskra króna. Erlent 24.11.2005 06:59
Merkel segir Evrópu þurfa stjórnarskrá Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir Evrópusambandið ekki mega afskrifa stjórnarskrárdrögin sem Frakkar og Hollendingar höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslum í sumar. Sagði Merkel, er hún heimsótti höfuðstöðvar sambandsins í Brussel í dag, Evrópu þarfnast stjórnarskrár. Erlent 24.11.2005 06:55
Barnamjólk tekin úr verslunum vegna bleks Milljónir lítra af barnamjólk frá matvælarisanum Nestle hafa verið fjarlægðar úr verslunum eftir að blek fannst í mjólkinni. Stormur í vatnsglasi, segir forstjóri fyrirtækisins. Erlent 23.11.2005 21:11
Hersveitir fljótlega frá Írak? Það verður ekki þörf á öllum þeim hersveitum sem eru í Írak miklu lengur að mati Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Erlent 23.11.2005 20:54
Sirleaf lýst sigurvegari í forsetakosningum í Líberíu Ellen Johnson-Sirleaf varð í dag fyrsta konan sem kjörin er þjóðarleiðtogi í Afríkuríki þegar kjörstjórn í Líberíu lýsti hana sigurvegara í forsetakosningum sem fram fóru 8. nóvember síðastliðinn. Sirleaf, sem var áður fjármálráðherra landsins og er menntaður hagfræðingur, bar sigurorð að fyrrverandi knattspyrnuhetjunni George Weah sem hefur haldið því fram að svindlað hafi verið í kosningunum. Erlent 23.11.2005 12:53
Vopnaðir menn drápu feðga í Bagdad Vopnaðir menn í einkennisbúningi íraskra hermanna skutu og drápu í nótt sjötugan súnníta og þrjá syni hans á heimili þeirra í Bagdad. Konurnar á heimilinu voru látnar í friði. Erlent 23.11.2005 12:38
Átta milljónir án vatns í Harbin í Kína Yfir átta milljónir manna eru nú án vatns í borginni Harbin í Kína. Mikil skelfing greip um sig meðal íbúa borgarinnar þegar ákveðið var að loka fyrir vatnsveitu borgarinnar en ástæðan var sprenging í efnaverksmiðju sem varð á dögunum. Erlent 23.11.2005 12:24
Pallbíll og lest skullu saman í Tyrklandi Að minnsta kosti níu manns fórust og um tuttugu slösuðust þegar farþegalest skall á pallbifreið í suðurhluta Tyrklands í dag. Pallbifreiðin var að flytja vinnumenn á bóndabæ, en allir þeir sem létust voru í bifreiðinni. Bifreiðin var að aka þvert yfir lestarteina þegar slysið varð. Lestarslys eru tíð í landinu en þetta var það fjórða í landinu á síðustu tveimur árum. Erlent 23.11.2005 12:17
Ísraelskir hermenn særðu palestínska unglinga Sex palestínskir unglingar særðust alvarlega þegar ísraelskir hermenn skutu þá eftir áhlaup á borgina Jenín á Vesturbakkanum í morgun. Þá særðust einnig þrír hermenn í átökunum við uppreisnarmennina. Jenín hefur verið vettvangur blóðugustu átakanna sem hafa átt sér stað frá því að Palestínumenn hófu uppreisn fyrir fimm árum. Erlent 23.11.2005 11:44
Ísraelsþing samþykkir nýjan flokk Sharons Ísraelska þingið lagði í dag blessun sína yfir hinn nýja miðjuflokk Ariels Sharons forsætisráðherra sem hann stofnaði á mánudaginn eftir að hann sagði sig úr Likud-bandalaginu. Flokkurinn hefur enn ekki fengið nafn en hefur stuðning sextán þingmanna á ísraelska þinginu, 15 sem áður voru í Likud-bandalaginu og eins úr Verkamannaflokknum. Erlent 23.11.2005 09:14
Tyrkir vilja loka dansk-kúrdískri sjónvarpsstöð Tyrknesk yfirvöld krefjast þess að dönsk yfirvöld hlutist til um að loka dansk-kúrdísku útvarpsstöðinni Roj TV sem sendir út frá Danmörku. Sjónvarpssöðin er til rannsóknar grunuð um tengsl við hryðjuverkasamtök og er sögð taka við fé frá PKK, aðkilnaðarsinnarsinnum Kúrdíska verkamannaflokksins. Sjónvarpsstöðin hefur undanfarið sent út áróður PKK, gegn tyrknesku ríkisstjórninni þar sem hvatt er til uppreisna. Utanríkisráðherra Dana, Per Stig Möller, segir að hann ætli ekki að blanda sér í málið, heldur leyfa lögreglunni að ljúka rannsókninni. Innlent 23.11.2005 09:10
Barir lengur opnir á Bretlandi frá miðnætti Ný lög um afgreiðslutíma vínveitingastaða í Bretlandi taka gildi á miðnætti í kvöld en þá verður eigendum staðanna leyft að hafa opið allan sólarhringinn kjósi þeir það. Hingað til hafa barir aðeins mátt vera opnir til klukkan 11 en frá og með morgundeginum geta bjórþyrstir Bretar setið lengur að sumbli á fjölmörgum stöðum. Erlent 23.11.2005 07:59
Sífellt fleiri rottur ónæmar fyrir eitri í Danmörku Æ fleiri rottur í Danmörku eru verða ónæmar fyrir þeim eiturefnum sem notuð hafa verið til að drepa þær. Greint er frá því í Politiken í dag að stórum hluta landsins hafi meindýraeyðar fundið rottur sem þola vel þrjú af sex eiturefnum sem finnast á markaðnum. Erlent 23.11.2005 07:34
Tölvuþrjótar breyta aðferðum sínum Tölvuþrjótar hafa í auknum mæli snúið sér frá því að ráðast á stýrikerfi tölva og kjósa frekar að ráðast á ýmis önnur forrit til þess að fá aðgang að netjónum sem og tölvum. Samkvæmt nýlegri rannsókn Bandaríska heimavarnarráðuneytisins og innra öryggiseftirlits bresku ríkisstjórnarinnar eru alls kyns afspilunarforit og vírusvarnarforrit meðal þeirra forrita sem þeir einbeita sér að í auknum mæli. Innlent 23.11.2005 09:04
Venesúelamenn aðstoða fátæka Massachusetts-búa Ríkisstjórn Venesúela hefur nú hlaupið undir bagga með fátækum íbúum Massachusetts í Bandaríkjunum með því að selja þeim olíu til húshitunar á mun lægra verði en gengur og gerist. Erlent 23.11.2005 07:26