Hafnarfjörður

Hafnarfjörður

Mannfjöldi: 31.525 (2025). Flatarmál: 174 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Hvað hafa börnin gert fyrir okkur?

Greint var frá því á dögunum að fjárhagsstaða Hafnarfjarðar væri grafalvarleg. Ljóst var að fara þyrfti í róttækar sparnaðaraðgerðir og brást bæjarstjórn við með því að segja upp 23 starfsmönnum. Við vitum öll að þegar hart er í ári þarf að gæta að hverri krónu.

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ

Alls hafa 23 störf verið lögð niður hjá Hafnarfjarðarbæ sem samsvarar 21,6 stöðugildum. Þremur starfsmönnum verður boðin önnur störf hjá bænum, og er því um að ræða nettófækkun upp á 18,6 stöðugildi.

Innlent
Fréttamynd

Skaddaður á höndunum og alla­vega þrír dagar eftir

Áhrifavaldurinn Axel Máni lagði af stað skríðandi til Bessastaða frá Njarðvík á mánudaginn og var ætlunin að skríða þessa sirka 45 kílómetra á þremur dögum. Hins vegar skaddaðist Axel svo illa á höndum að verknaðurinn mun taka allavega sex daga.

Lífið
Fréttamynd

Geta nú lokað Reykja­nes­brautinni með fjar­stýringu

Vegagerðin hefur tekið í notkun nýjan, fjarstýrðan lokunarbúnað á Reykjanesbraut til vesturs, við mislæg gatnamót skammt frá álverinu í Straumsvík. Með þessu verður hægt að loka veginum með stuttum fyrirvara, til dæmis þegar slys verða eða þegar færð spillist.

Innlent
Fréttamynd

Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi

Fyrirhuguð íbúðablokk við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði kemur í veg fyrir áframhaldandi flugeldasölu í húsnæði Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, að sögn sveitarinnar. Hún óskar eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu svo halda megi sölunni áfram.

Innlent
Fréttamynd

Brikk lokað í ó­á­kveðinn tíma

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í 109 verkefnum síðastliðinn sólarhring. Í tveimur þeirra voru kallaðir til dælubílar en rest voru boðanir á sjúkrabíla. 26 boðanir voru á forgangi. Eldur kviknaði í húsnæði Brikk við Norðurbakka í Hafnarfirði.

Innlent
Fréttamynd

Skakkur á raf­skútu

Keyrt var á mann sem ók um á rafskútu í hverfi 105 í Reykjavík í gær eða í nótt. Minnháttar meiðsli urðu á manninum sem ók rafskútunni en hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 

Innlent
Fréttamynd

Í­búarnir höfðu betur

Meirihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur ákveðið að falla frá áformum um uppbyggingu íbúða fyrir tímabundna búsetu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Uppbyggingin þótti afar umdeild og var henni mótmælt á íbúafundi fyrr í mánuðinum. 

Innlent
Fréttamynd

Eldur í lyftara í ál­verinu í Straumvík

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var í nótt kallað út vegna bruna í lyftara í Straumsvík. Í tilkynningu á Facebook kemur fram að slökkvilið hafi farið í sams konar útkall fyrir viku síðan.

Innlent
Fréttamynd

Tveir reyndu að flýja lög­reglu á fótum eftir eftir­för

Einn ungur ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Suðurlandsvegi eftir að hafa verið mældur á 151 kílómetra hraða. Lögregla sinnti eftirför í Kópavogi og Fossvogi. Ökumennirnir reyndu báðir að flýja á fótum eftir að hafa stöðvað bíla sína. 

Innlent
Fréttamynd

Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smá­at­riði

Í nýju og ört vaxandi hverfi í Hafnarfirði hafa risið sex glæsileg fjölbýlishús við Áshamar 12–26. Þar býður byggingafélagið Eykt upp á 154 nútímalegar og Svansvottaðar íbúðir sem sameina vandaða hönnun, góð rými og nálægð við náttúru og fjölbreytta þjónustu. Íbúðirnar eru allar fullbúnar og tilbúnar til afhendingar og því geta kaupendur flutt beint inn í nýtt heimili án þess að bíða eftir framkvæmdalokum.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Siggi Chaplin allur

Sigurður Brynjólfsson, betur þekktur sem Siggi Chaplin, lést á Landspítalanum 30. september, 78 ára að aldri. Sigurður var Gaflari, ötull og dyggur stuðningsmaður FH og ákveðinn fasti í hafnfirsku bæjarlífi.

Lífið
Fréttamynd

Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól

Tveir ungir drengir réðust að einum dreng á svipuðum aldri í Hafnarfirði í gær. Þeir neyddu hann af hlaupahjóli sem hann var á og tóku það af honum ófrjálsri hendi, samkvæmt lögreglu. Drengirnir og hjólið fundust þó skömmu síðar.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í ál­verinu í Straums­vík

Eldur kom upp í flutningstæki í kerskála í álverinu í Straumsvík. Hann kom upp á tólfta tímanum. Erfitt var að komast að tækinu svo að flytja þurfti það út til að slökkva eldinn.

Innlent
Fréttamynd

Sam­ráð sem breytir

Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025 - 2040 hefur nú verið formlega samþykkt. Aðalskipulag er eitt mikilvægasta verkfæri sveitarfélaga.

Skoðun
Fréttamynd

Skakkur á stolnum strætó

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að stela strætisvagni og aka honum undir áhrifum kannabiss í mars síðastliðnum.

Innlent
Fréttamynd

Guð­mundur Péturs­son hlaut Gullnöglina

Gítarleikarinn og tónskáldið Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina í ár. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem hefur haft markverð og varanleg áhrif á íslenskan gítarleik í gegnum árin.

Tónlist