
Spánn

Hefja flug til Edinborgar og Malaga
Icelandair hefur flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust. Edinborg og Malaga bætast við sem nýir áfangastaðir í september en áður hafði félagið tilkynnt um flug til Istanbul og Miami.

Fá engar bætur fyrir stolinn bíl
Guðbrandur Jónatansson og konan hans lentu í óheppilegu atviki þegar bílnum þeirra var stolið á meðan þau bjuggu á Spáni. Þau keyptu allar nauðsynlegar tryggingar en samt sem áður ætlar TM ekki að bæta þeim tapið.

Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna
Þrír Íslendingar voru teknir fastir af spænska þjóðvarðaliðinu í Villajoyosa fyrir vörslu mikils magns fíkniefna. Efnin fundust falin í bíl sem þeir ætluðu flytja til Ibiza.

„Hefðum viljað sjá stóru löndin taka stærri skref í átt að mannúð á Gasa“
„Því fleiri lönd sem tala skýrt fyrir því að Ísraelar verði að koma að mannúðaraðstoð á Gasa því betra,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. Hún og utanríkisráðherrar fimm annarra Evrópuríkja sendu í morgun frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem kallað er eftir því að ísraelsk stjórnvöld hverfi frá áformum sínum um að víkka út hernaðaraðgerðir og hafa varanlega viðveru á Gasa.

Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael
Utanríkisráðherra Íslands og fimm annarra Evrópuríkja hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem kallað er eftir því að ísraelsk stjórnvöld hverfi frá áformum sínum um að víkka út hernaðaraðgerðir og hafa varanlega viðveru á Gasa. Ráðherrarnir hafna jafnframt „öllum hugmyndum um brottflutning Palestínumanna frá Gaza enda væru það brot á alþjóðalögum,“ segir meðal annars í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu um málið.

Kalla saman ráðherranefnd svo rafmagnsleysi endurtaki sig ekki hér
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að verið se að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að upp komi umfangsmikið rafmagnsleysi hér á landi eins og varð á Íberíuskaga á mánudag.

Börnum haldið innilokuðum í „hryllingshúsi“ í fleiri ár
Hjón hafa verið handtekin í Oviedo á Spáni fyrir að hafa haldið þremur börnum sínum læstum á heimili þeirra frá árinu 2021. Lögregla segir aðstæður á heimilinu heilsuspillandi og að börnunum hafi verið haldið frá skóla og látin sofa í rimlarúmum. Fjölmiðlar á Spáni hafa gefið húsinu nafnbótina „hryllingshúsið.“

Slapp vel frá rafmagnsleysinu
Tryggvi Snær Hlinason æsti sig ekki mikið yfir rafmagnsleysi á Spáni í vikunni. Hann býr í baskneskum hluta landsins, í borginni Bilbao, sem slapp heldur vel og þá er hann vanur rafmagnsveseni úr sveitinni í Bárðardal.

Mikilvægt að vita hvar og hvernig réttar upplýsingar fást í krísuástandi
Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS, segir Ísland standa ágætlega gagnvart því að sæstrengur rofni eða hér verði allsherjar rafmagnsleysi. Mikilvægt sé fyrir almenning að vita, við slíkar aðstæður, hvar þau fái réttar upplýsingar og hvernig þau fái þær. Mælt er með að eiga útvarp með FM sendi.

Óttaðist hið versta þegar allar tengingar rofnuðu
Íslensk dagskrárgerðarkona, búsett á Spáni, segir að það hafi verið hræðileg upplifun að vera án allra samskipta við umheiminn í fullkominni óvissu. Fyrst hafi rafmagnið farið, svo internetið og loks útvarpið. Enginn í þorpinu hennar, Vélez de Benaudalla, vissi hvað var í gangi en sjálf óttaðist hún einhvers konar hryðjuverk.

Létt í lund þrátt fyrir margra klukkustunda bið eftir Lissabon
Sögulegt rafmagnsleysi á Spáni og Portúgal í gær olli alvarlegum samgöngutruflunum á landsvísu, en rafmagnsleysið varði í margar klukkustundir. Segja má að Icelandair og Play air hafi sloppið vel í gær og í dag varðandi flugáætlun til landanna tveggja. Flug Play til Lissabon í gær raskaðist þó verulega.

Orsakir rafmagnsleysisins sögulega enn óþekktar
Spænsk stjórnvöld hafa enn engar skýringar á því hvað olli fordæmalausu rafmagnsleysi á Íberíuskaga í gær. Rannsókn er sögð geta tekið fleiri mánuði. Daglegt líf er nú að komast aftur í fyrra horf.

Þurftu að hætta keppni til að tryggja öryggi keppenda
Vegna umfangsmiklu og óútskýrðu rafmagnstruflananna á Íberíuskaga þurfti að hætta keppni á Opna Madrídar-mótinu í tennis á mánudag. Var það gert til að tryggja almennt öryggi keppenda.

Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal
Rafmagn er nú komið á að nýju á nær öllum Íberíuskaganum eftir víðtækt rafmagnsleysi á svæðinu í gær. Níutíu og níu prósent allra heimila á Spáni eru komin með rafmagn og svipaða sögu er að segja frá Portúgal að sögn yfirvalda.

Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu
Um helmingur Spánar er aftur kominn með rafmagn samkvæmt forsætisráðherra landsins Pedro Sanchez. Stefnt er að því að koma hinum helmingnum í lag á morgun.

„Við erum mjög háð rafmagninu“
Fordæmlaust rafmagnsleysi var á Íberíuskaganum fyrr í dag. Verkefnastjóri hjá Landsneti segir mögulega hitabreytingar hafa ollið trufluninni. Öll flutningskerfi í Evrópu glíma við erfiðleika þar sem orkunotkun eykst sífellt.

Rafmagnsleysið „fordæmalaust“ en engar vísbendingar um tölvuárás
Samgöngur hafa lamast víða á Spáni og í Portúgal vegna rafmagnsleysis sem er sagt „fordæmalaust“. Spænsk yfirvöld segja að það gæti tekið fram á nótt að koma rafmagni á aftur alls staðar. Portúgalir segja ekkert benda til að um tölvuárás hafi verið að ræða.

Allt á áætlun en Spánarfarar beðnir um að fylgjast með
Allt flug Icelandair og Play til og frá Íberíuskaganum í dag er á áætlun. Flugfélögin fylgjast þó grannt með stöðu mála og hvetja farþega til að gera slíkt hið sama.

Umfangsmiklar og óútskýrðar rafmagnstruflanir á Íberíuskaga
Rafmagni hefur slegið út um allan Spán og Portúgal í dag en engar skýringar liggja fyrir á truflununum. Netöryggisstofnun Spánar rannsakar hvort að tölvuárás kunni að valda rafmagnsleysinu.

Koma strandaglópunum heim í kvöld
Leiguflugvél á vegum Play mun fara frá Barselóna klukkan 20:15 á staðartíma í kvöld. Hún á að fljúga með strandaglópa til Íslands.

„Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“
Hátt í níutíu íslenskir piltar, þar af sjötíu undir lögaldri, eru fastir ásamt fylgdarliði á flugvellinum í Barselóna þessa stundina. Í hópnum eru allt niður í fjórtán ára börn og einhver enn þá yngri systkini. Drengirnir sem eru annars vegar Skagamenn og hins vegar Grindvíkingar voru í keppnisferð í fótbolta, að taka þátt í Daurada Cup í Salou. Pappírar sem gera fararstjórum kleift að ferðast með strákana renna út í dag.

Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“
Um áttatíu þúsund hótelstarfsmenn á Tenerife og öðrum Kanaríeyjum eru í verkfalli. Íslendingur á eyjunni segir háværa mótmælendur standa fyrir utan flest hótelin.

Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli
Talið er að um áttatíu þúsund hótelstarfsmenn séu í verkfalli á fjórum eyjum Kanaríeyja, þeirra á meðal Tenerife. Hópar starfsmanna í verkfalli mætti fyrir utan hótelin í mótmælaskyni.

Arkitekt guðs skrefi nær dýrðlingatölu
Páfagarður hefur gefið út að arkitektinn katalónski Antonio Gaudí sé kominn skrefi nær því að verða tekinn í tölu dýrðlinga.

Spánverjar óska eftir umræðu um þátttöku Ísrael í Eurovision
Spænska ríkissjónvarpið RTVE hefur óskað eftir umræðu um þátttöku Ísrael í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, í bréfi til Evrópska útvarpssambandsins (EBU).

Svava Lydia komin í leitirnar
Svava Lydia Sigmundsdóttir, sem lögreglan á Vesturlandi lýsti eftir í gær, er komin í leitirnar.

Lýsa eftir Svövu Lydiu
Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir Svövu Lydiu Sigmundsdóttur. Síðast er vitað af ferðum hennar á Torrevieja svæðinu á Spáni föstudaginn 4. apríl.

Sólrún fundin á Spáni
Búið er að finna Sólrúnu Petru Halldórsdóttur sem hafði verið týnd í um þrjá sólarhringa á Spáni heila á húfi. Það staðfestir faðir hennar, Halldór Ágústsson, í samtali við Vísi.

Ekkert spurst til Sólrúnar á Spáni í nokkra daga
Ekkert hefur spurst til Sólrúnar Petru Halldórsdóttur, 24 ára gamallar íslenskrar konu, í tæplega þrjá sólarhringa. Síðast er vitað um ferðir hennar á Torrevieja-svæðinu á Spáni.

Segja úlfa stuðla að matarsóun og eiga því ekki að njóta verndar
Spænska þingið samþykkti í gær lagafrumvarp sem miðar að því að draga úr matarsóun í landinu, sem er talin nema um 1,2 milljörðum kílóa á ári.