Fréttir
Byggðastofnun ekki forystuafl Byggðastofnun er ekki það forystuafl í uppbyggingu atvinnustarfssemi á landsbyggðinni sem ætla mætti og sinnir ýmsum grundvallarhlutverkum ekki nægilega vel. Innlent 22.11.2005 14:43
Keflavík mætir Fjölni Í dag var dregið í 32-liða úrslit bikarkeppninnar í körfubolta. Tveir af leikjunum verða viðureignir úrvalsdeildarliða, en það eru leikir Keflavíkur og Fjölnis annarsvegar og Skallagríms og ÍR hinsvegar. Sport 22.11.2005 14:37
Ekki hrifinn af Glazer-fjölskyldunni Franski snillngurinn Eric Cantona, sem gerði garðinn frægan með Manchester United á tíunda áratugnum og hefur oft lýst yfir áhuga sínum á að taka við knattspyrnustjórastöðu hjá félaginu, segir að hann myndi ekki koma nálægt félaginu á meðan það er í eigu Glazer-feðga. Sport 22.11.2005 14:26
Æðstu stjórnendur enn í lykilstöðum Ríkislögreglustjóri segir um rannsókn sína á ólöglegu verðsamráði stóru olíufélaganna að ætluð brotatilvik skipti hundruðum, en sjö æðstu stjórnendur félaganna þriggja, sem hvað oftast komu við sögu við rannsókn samkeppnisyfirvalda á sama máli, gegna enn lykilstjórnunarstöðum í olíufélögunum. Innlent 22.11.2005 14:21
Framlengdi samning sinn til 2009 Steve McClaren hefur framlengt samning sinn við úrvalsdeildarlið Middlesbrough til ársins 2009, en hann hafði verið orðaður nokkuð við Manchester United og enska landsliðið í framtíðinni. Sport 22.11.2005 14:20
San Antonio lagði Sacramento Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. San Antonio lagði Sacramento á útivelli, Philadelphia lagði New Orleans, Utah sigraði Milwaukee og Golden State vann New Jersey, þar sem Vince Carter meiddist í baki og gat aðeins spilað hálfan leikinn. Sport 22.11.2005 13:38
Velti bíl sínum á Miklubraut Ökumaður fólksbíls slapp furðu vel þegar hann missti stjórn á bifreið sinni á Miklubraut í Reykjavík um tólfleitið með þeim afleiðingum að bifreiðin valt á hliðina. Ökumanninum var mjög brugðið en virtist ekki alvarlega slasaður, í það minnsta gekk hann frá bifreið sinni. Þaðan var hann fluttur á slysadeild til athugunar. Innlent 22.11.2005 12:41
Krefjast svara um fangaflug og leynifangelsi Evrópusambandið vill að bandarísk stjórnvöld geri hreint fyrir sínum dyrum vegna upplýsinga sem komið hafa fram um fangaflug CIA með meinta hryðjuverkamenn og leynileg fangelsi í Evrópu. Erlent 22.11.2005 11:59
Íhugaði árás á Al-Jazeera George W. Bush Bandaríkjaforseti íhugaði að fyrirskipa sprengjuárás á höfuðstöðvar Al-Jazeera sjónvarpsstöðvarinnar í Katar í fyrra en Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, talaði hann ofan af því á fundi þeirra í Washington í fyrra. Þessu er haldið fram í breska blaðinu Daily Mirror í dag. Erlent 22.11.2005 11:07
Tollar lækka verulega Útflytjendur íslenskra vara til Rússlands hafa ástæðu til að fagna því tollar á þær lækka verulega í kjölfar þess að Rússland fær ástæða að Alþjóða viðskiptastofnuninni. Samningur milli Íslands og Rússlands þessa efnis var undirritaður í Moskvu á dögunum. Innlent 22.11.2005 10:55
Yfir 300 milljónir fyrir umbúðirnar Fyrirtæki landsins hefja um næstu áramót greiðslu úrvinnslugjald fyrir allar, plast-, pappa- og pappírsumbúðir utan um vörur þeirra. Búist er við að gjaldið nemi um 320 til 340 milljónum króna á ári. Innlent 22.11.2005 08:56
Fjallar ekki um ákæruliðina átta Sérstakur saksóknari sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skipaði í Baugsmálinu hefur aðeins vald í þeim 32 ákæruliðum Baugsmálsins sem vísað var frá dómi en ekki þeim átta sem eftir standa af 40 upphaflegum ákæruliðum.. Bogi Nilsen ríkissaksóknari fer með ákæruvald í þeim liðum. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp rétt rúmlega níu. Innlent 22.11.2005 09:09
Breytingartillögur á stjórnarskrá Kenýa felldar í gær Breytingartillögur á stjórnarskránni í Kenýa voru felldar í gær. Úrslitin eru áfall fyrir forseta Kenýa, Mwai Kibaki, sem barðist fyrir breytingartillögunum. Tölur sem bárust í morgun gefa til kynna að 3,2 manna hafi kosið gegn breytingartillögunum og 2,2 milljónir með henni. Þá á eftir að telja um 850.000 atkvæði. Erlent 22.11.2005 07:57
83 hafa farist í flóðum í Kólumbíu 83 hafa látist og 5 er saknað í Kólumbíu eftir tvo mánuði af stöðugum regnstraumi sem hefur valdið miklum flóðum um norð-vestur héruð landsins. Auk hinna látnu hafa um 250 þúsund manns lent illa í flóðum, aurskriðum og ám sem flæða yfir bakka sína. Erlent 22.11.2005 07:42
Lögregla rannsakar fyrirtæki á Akranesi Verkalýðsfélag Akraness hefur óskað eftir lögreglurannsókn á starfsemi fyrirtækis sem er með litháíska starfsmenn í vinnu hjá sér. Innlent 22.11.2005 06:41
Örninn besta erlenda þáttaröðin Danska sjónvarpsþáttaröðin Örninn var valin besta dramatíska erlenda dramatíska þáttaröðin á þrítugustu og þriðju Emmyhátíðinni fyrir erlenda sjónvarpsframleiðslu sem haldin var í Bandaríkjunum síðustu nótt. Erlent 22.11.2005 06:39
Orkuveitan tapaði dómsmáli Hæstiréttur vísaði í gær frá dómi kröfu Orkuveitu Reykjavíkur um að álit Kærunefndar útboðsmála þess efnis að Orkuveitan væri skaðabótaskyld gagnvart Toshiba vegna útboðs fyrir búnað til Hellisheiðarvirkjunar. Innlent 22.11.2005 06:33
Fimmti hver fangi í Noregi er af erlendum uppruna Fimmti hver fangi í Noregi er af erlendum uppruna og með erlendan ríkisborgararétt. Um fjórðungur fanganna er inni fyrir fíkniefnaafbrot. Erlent 21.11.2005 22:12
Nýrnasjúklingar óttast framtíð blóðskilunardeildar Nýrnasjúklingar sem þurfa að leita til blóðskilunardeildar eru uggandi yfir þeirri stöðu sem komin er upp á blóðskilunardeild. Þeir óttast að allt stefni í óefni en allar líkur eru á að átta af sextán starfsmönnum deildarinnar láti af störfum um áramótin. Innlent 21.11.2005 22:36
Skera úr um hæfi dómsmálaráðherra á morgun Pétur Guðgeirsson héraðsdómari og tveir meðdómendur hans munu kveða upp úr um hæfi Björn Bjarnasonar dómsmálaráðherra við skipun sérstaks saksóknara í Baugsmálinu svokallaða fyrir hádegi á morgun. Verjendur sakborninga fóru fram á það við þinghald í málinu nýverið að dómarar skæru úr um hæfi Björns. Innlent 21.11.2005 21:38
Tekið verður harðar á þeim starfsmannaleigum sem brjóta af sér Fyrirtæki sem nýta sér starfsmannaleigur þurfa ekki að svara til ábyrgðar reynist brotið á starfsmönnum. Þetta er niðurstaða starfshóps um lagasetningu á starfsemi starfsmannaleiga. ASÍ hefur skorað á ráðherra að sú ábyrgð verði engu að síður í væntanlegum lögum. Innlent 21.11.2005 21:32
Hættulegasta borg Bandaríkjanna Borgin Camden í New Jersey fylki í Bandaríkjunum er talin vera hættulegasta borg Bandaríkjanna. Þetta er annað árið sem borgin er efst á lista yfir hættulegustu borgir í Bandaríkjunum. Erlent 21.11.2005 21:11
Rækjustofnar á grunnslóð í algjöru lágmarki Lítið er af rækju á hefðbundnum miðum samkvæmt niðurstöðum haustkönnunar Hafrannsóknarstofnunar. Rækjustofnar á grunnslóð mældust í algjöru lágmarki og 2005 árgangur þorks mældist sá minnsti á grunnslóð síðan árið 1991. Innlent 21.11.2005 20:07
Leik Birmingham og Bolton frestað Leik Birmingham og Bolton í ensku úrvalsdeildinni, sem fara átti fram í kvöld var frestað vegna þoku á St. Andrews-vellinum í Birmingham. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær leikurinn verður spilaður, en þokan var það þykk að ekki þótti vert að reyna að leika knattspyrnu við þessar aðstæður. Sport 21.11.2005 23:20
Talið að kviknað hafi í út frá eldavélahellu Talið er að kviknað hafi í út frá eldavélahellu í heimahúsi á Ísafirði í dag. Slökkvilið á Ísafirði var kallað út rétt fyrir klukkan sex síðdegis. Íbúi í húsinu hringdi á slökkvilið sem kom á staðin og slökkti eldinn. Um minniháttar bruna var að ræða en kviknað hafi lítillega í klæðningu og í eldhúsi. Innlent 21.11.2005 20:45
Flugvélar á vegum CIA hafa flogið í danskri lofthelgi yfir Grænlandi Samgönguráðherra Dana, Flemming Hansen, hefur staðfest að flugvélar á vegum CIA hafi flogið í danskri lofthelgi yfir Grænlandi. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn frá þingmanninum Frank Aaen á danska þinginu. Innlent 21.11.2005 20:29
Litháar dæmdir fyrir að smygla tæpum fjórum kílóum af amfetamíni með Norrænu Tveir Litháar voru dæmdir í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Austurlands á föstudag fyrir að hafa smyglað tæpum fjórum kílóum af amfetamíni til landsins með Norrænu. Innlent 21.11.2005 19:51
Heilbrigð skynsemi fyrir farsímanotendur Og Vodafone ætlar á næstu dögum að hefja sölu á Simply farsímum frá Vodafone Global Plc. Simply símtæki eru sérstaklega hönnuð með þarfir viðskiptavina í huga, þeirra sem vilja einföld símtæki sem einskorðast að mestu leyti við tal og SMS. Jafnframt er í boði sérstök gjaldskrá fyrir Simply notendur. Innlent 21.11.2005 19:41
Wenger heimtar sigur Arsene Wenger vill ná í öll þrjú stigin á útivelli gegn FC Thun í Meistaradeildinni annað kvöld, þrátt fyrir að Arsenal hafi þegar tryggt sér áframhaldandi þáttöku í keppninni með góðri frammistöðu í undangengnum leikjum. Sport 21.11.2005 18:36
Heilbrigðisráðherra segir Alfreð hafa verið valinn vegna reynslu í að stýra byggingaframkvæmdum Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir hrókeringar í borgarstjórnarflokki Framsóknarflokksins ekki tengda skipun hans á Alfreð Þorsteinssyni í stöðu framkvæmdastjóra um byggingu hátæknisjúkrahúss. Hann vísar því sömuleiðis á bug að Orkuveituhúsið hafi verið óeðlilega dýrt. Innlent 21.11.2005 18:21