Fréttir
Bandaríkin illa búin undir aðra árás Bandarísk stjórnvöld hafa staðið sig afleitlega í öryggismálum eftir hryðjuverkin í New York 11. september 2001 að mati nefndar sem skipuð var eftir árásirnar. Nefndin gefur stjórnvöldum lægstu einkunn í mörgum þáttum öryggismála og segir Bandaríkin afar illa undirbúin undir aðra hryðjuverkaárás. Erlent 6.12.2005 07:12
Lögreglumenn úr Reykjavík til að aðstoða við rannsókn á bruna Tveir sérfræðingar úr tæknideild lögreglunnar í Reykjavík eru væntanlegir til Ísafjarðar fyrir hádegi til að aðstoða lögregluna þar við að rannsaka eldsupptök í tvíbýlishúsi við Aðalstræti í gær þar sem karlmaður á sextugsaldri fórst. Innlent 6.12.2005 07:08
Kominn til meðvitundar eftir árás á Laugavegi Maðurinn, sem ráðist var á á Laugaveginum aðfararnótt laugardags, komst til meðvitundar á gjörgæsludeild Landsspítalans í gær og er á hægum batavegi .Árásarmaðurinn játaði verknað sinn við yfirheyrslur í gær og var sleppt að því loknu, en hann hafði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Innlent 6.12.2005 07:07
Leynifangelsum lokað fyrir mánuði Aðeins mánuður er síðan bandaríska leyniþjónustan CIA lokaði leynifangelsum sínum í Rúmeníu og Póllandi. Þetta hefur fréttastöðin ABC eftir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum leyniþjónustunnar. Þeir segja að bandarísk stjórnvöld hafi lagst á eitt um að koma öllum föngum burt frá Evrópu strax eftir að Washington Post greindi frá leynifangelsunum. Erlent 6.12.2005 07:02
Útvarpsstjóri ánægður með nýtt frumvarp Páll Magnússon, útvarpsstjóri, er ánægður með nýtt frumvarp þess efnis að Ríkisútvarpinu verði breytt í hlutafélag. Hann telur að það muni styrkja sérstöðu Ríkisútvarpsins. Innlent 6.12.2005 01:22
Ribbaldakapitalismi á matvörumarkaði? Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að hér á landi ríki einhvers konar ribbaldakapitalismi eins og í Rússlandi á frumskeiði markaðsvæðingar. Þetta sagði hún í ljósi þess að hér ríkti einokun á matvörumarkaði þar sem Baugur hefði hér rúmlega 60 prósenta markaðshlutdeild. Spurði hún viðskiptaráðherra um það hvernig bregðast skyldi við. Innlent 5.12.2005 23:40
Steypa stífluvegg í skammdeginu Einhverjir harðsnúnustu byggingaverkamenn landsins steypa þessa dagana tvöhundruð metra háan og snarbrattan stífluvegg Kárahnjúkastíflu í fimbulkulda og skammdegi. Þetta eru einkum Kínverjar sem vinna störf sem hraustir íslenskir karlmenn hafa hrökklast frá. Innlent 5.12.2005 23:39
Telur iðnaðar- og viðskiptaráðherra mæla fyrir tæknilegum viðskiptahindrunum Varaformaður Samfylkingarinnar telur iðnaðar- og viðskiptaráðherra mæla fyrir tæknilegum viðskiptahindrunum. Í ljós hefur komið að heildarkostnaður við endurbætur á varðskipinu Ægir í Póllandi var 2 milljónum króna yfir tilboða Slippstöðvarinnar á Akureyri. Innlent 5.12.2005 23:31
Auglýsir eftir stefnu í loftlagsmálum Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, auglýsti eftir stefnu stjórnvalda í loftlagsmálum, það er, hvernig ríkisstjórnin ætlar að bregðast við hinni miklu vá sem af loftlagsbreytingum kann að hljótast. Umhverfisráðherra segir að stjórnvöld muni þrýsta á Bandaríkin og Ástralíu að taka þátt í Kyoto-bókuninni. Innlent 5.12.2005 23:26
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna útilokar alfarið Bandaríkin leyfi eða líði pyntingar Utanríkisráðherra Bandaríkjanna útilokar alfarið að Bandaríkin leyfi eða líði pyntingar á föngum undir neinum kringumstæðum. Ráðherrann er í fimm daga för um Evrópu og er tilgangurinn að styrkja tengsl álfunnar og Bandaríkjanna. Erlent 5.12.2005 23:24
Seðlabankastjóri segir að núverandi gengi krónunnar muni ekki standast Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir að núverandi gengi krónunnar muni ekki standast en menn séu að búa í haginn fyrir það að óhjákvæmileg breyting verði þolanleg. Gengi krónunnar lækkaði um 1,3% í dag og hefur nú krónan lækkað um 5% á skömmum tíma. Innlent 5.12.2005 23:15
Hefur óskað eftir minnisblaði sem ríkisábyrgðarsjóður sendi Fjármálaráðuneytinu Lúðvík Bergvinsson hefur óskað eftir minnisblaði sem ríkisábyrgðarsjóður sendi Fjármálaráðuneytinu um afstöðu hans til frekari ríkisábyrgðar vegna Íbúðalánasjóðs. Hann segir að þingið geti ekki tekið upplýsta afstöðu fyrr en minnisblaðið liggi fyrir. Innlent 5.12.2005 22:59
Maður lést í eldsvoða á Ísafirði Rúmlega fimmtugur maður lést í eldsvoða á heimili sínu á Ísafirði í dag. Slökkviliðið var enn að störfum við að ráða niðurlögum eldsins um kvöldmatarleiti. Tilkynnt var um eld í íbúð við Aðalstræti 25 í gegnum neyðarlínu rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Innlent 5.12.2005 22:32
Pressan eykst á Steve Bruce Birmingham tapaði enn einum leiknum í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið lá á heimavelli sínum fyrir West Ham 2-1 og komu öll mörkin í fyrri hálfleiknum. Stjórastóll Steve Bruce hjá Birmingham er fyrir vikið líklega sá heitasti í deildinni, því fallbarátta var ekki eitthvað sem forráðamenn félagsins sáu fyrir sér í sumar. Sport 5.12.2005 22:06
Utanríkisráðherra segir yfirlýsingu Condoleezzu Rice svara spurningum íslenskra stjórnvalda um ólögmæta fangaflutninga Í yfirlýsingu sem Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sendi frá sér í dag segir hún leyfilegt samkvæmt alþjóðalögum að flytja fanga milli landa sem ekki hefur verið réttað yfir. Condoleezza sagði jafnframt að bandarísk stjórnvöld gangi úr skugga um að hvers lags yfirheyrsluaðferðir sé við lýði í þeim löndum sem taka á móti föngunum. Bandarísk yfirvöld líði ekki að fangar séu pyntaðir. Innlent 5.12.2005 21:48
Solskjær sneri aftur í kvöld Norski framherjinn Ole Gunnar Solskjær spilaði 45 mínútur með varaliði Manchester United í kvöld og mættu yfir 300 manns til að verða vitni að endurkomu hans, en Solskjær hefur verið mjög lengi frá vegna þrálátra hnémeiðsla. Honum va ákaft fagnað þegar hann hljóp með hliðarlínunni og hitaði upp og gaf spilamennska hans í kvöld ágæt fyrirheit á framhaldið. Sport 5.12.2005 21:24
West Ham yfir í hálfleik West Ham er 2-1 yfir gegn Birmingham í hálfleik í mánudagsleiknum í ensku úrvalsdeildinni, en leikurinn fer fram á St. Andrews vellinum í Birmingham. Emile Heskey kom heimamönnum yfir eftir aðeins 12. mínútur, en Bobby Zamora jafnaði leikinn á þeirri 36. og Marlon Harewood kom þeim svo yfir rétt áður en flautað var til leikhlés. Sport 5.12.2005 21:18
Og Vodafone margfaldar flutningsgetu GSM notenda: Og Vodafone hefur tekið í notkun svokallaða EDGE tækni (Enhanced Data Rates for Global Evolution) sem margfaldar flutningsgetu í farsímum viðskiptavina fyrirtækisins. EDGE nær fyrst um sinn til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu og í Eyjafirði. Innlent 5.12.2005 21:37
Bráðamóttaka við Sjúkrahúsið Vog opnuð á ný á morgun Bráðamóttaka fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga verður opnuð á ný við Sjúkrahúsið á Vogi á morgun. Á síðastliðnum tveimur mánuðum hefur tekist að tryggja næga fjármuni til að opna bráðmóttökuna á ný. Innlent 5.12.2005 20:21
Gísli Halldórsson, arkitekt og Heiðursforseti Íþróttasambands Íslands, gefur út endurminningbók Gísli Halldórsson, arkitekt og heiðursforseti Íþróttasambands Íslands, fagnaði útgáfu endurminningbókar sinnar í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag. Gísli segir ánægjulegt hversu mikil uppbygging hefur verið á íþróttamannvirkjum á síðastliðnum áratugum. Innlent 5.12.2005 18:59
Saddam óttast ekki dauðadóm Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, sagði fyrir rétti í Írak í dag að hann óttaðist ekki að vera tekinn af lífi. Aftökur væru enda minna virði en skór íraksks borgara, eins og Saddam orðaði það. Réttað er yfir einræðisherrranum fyrrverandi og sjö samverkamönnum hans fyrir fjöldamorð í stjórnartíð þeirra. Erlent 5.12.2005 19:44
Allt í lás Forráðamenn Southampton hafa til þessa neitað öllum tilboðum Portsmouth um að fá knattspyrnustjórann Harry Redknapp til liðs við sig og nú gæti svo farið að allir stæðu uppi með báðar hendur tómar. Sport 5.12.2005 18:40
Tæknibúnaður verður ekki notaður á HM Alþjóða knattspyrnusambandið tilkynnti í dag að tæknibúnaður til að skera úr um hvort boltinn fer yfir marklínu, sem nota á til að útrýma vafaatriðum eins og marki Liverpool gegn Chelsea í Meistaradeildinni í vor, verði ekki tekinn í notkun fyrir HM í Þýskalandi eins og til stóð. Sport 5.12.2005 18:09
Birmingham og West Ham mætast í kvöld Einn leikur verður á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Birmingham tekur á móti West Ham á heimavelli sínum, en Birmingham hefur verið í miklum vandræðum í vetur og er í bullandi fallbaráttu. Gengi nýliða West Ham hefur verið öllu betra og liðið er í 9. sæti deildarinnar. Sport 5.12.2005 17:56
Skúli Helgason ráðinn framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar Skúli Helgason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar frá og með næstu áramótum. Hann hefur m.a. starfað sem útgáfustjóri tónlistar hjá Eddu-miðlun og útgáfu og framkvæmdastjóri innlendra verkefna hjá Reykjavík Menningarborg Evópu árið 2000. Innlent 5.12.2005 18:02
RÚV breytt í hlutafélag Ríkisútvarpinu verður breytt í hlutafélag, samkvæmt frumvarpi sem þingflokkar ríkisstjórnarinnar samþykktu að leggja fram í dag. Ríkisstjórnin samþykkti frumvarpið fyrir sitt leyti í síðustu viku. Innlent 5.12.2005 17:50
Albertini leggur skóna á hilluna Miðjumaðurinn ítalski Demetrio Albertini hefur tilkynnt að hann sé hættur að leika sem atvinnumaður eftir langan og glæsilegan feril og ætlar að einbeita sér að því að þjálfa á næstunni. Albertini á að baki glæstan feril með ítalska landsliðinu og AC Milan, þar sem hann gerði garðinn frægan á síðasta áratug. Sport 5.12.2005 17:02
Kviknaði í út frá kerti á Höfn Slökkviliðið á Höfn í Hornafirði var kallað út rúmlega þrjú í dag að íbúðarhúsi vegna bruna. Kviknað hafði í út frá kerti og voru skemmdir óverulegar en reykræsta þurfti. Einn íbúi var í húsinu þegar eldsins varð vart en það var vegfarandi sem tilkynnti um brunann. Innlent 5.12.2005 17:28
Karlmaður lést í eldsvoða á Ísafirði Karlmaður á fimmtugsaldri lést í eldsvoða á Ísafirði í dag. Tilkynning um eld í íbúð mannsins barst slökkviliðinu skömmu fyrir fjögur í dag og þegar slökkvilið og lögregla komu á staðinn var nokkur eldur í íbúðinni. Reykkafarar fóru inn í íbúðina þar sem þeir fundu manninn og var hann úrskurðaður látinn. Enginn annar var í íbúðinni. Innlent 5.12.2005 17:11
Tími Íbúðalánasjóðs ekki liðinn Tími Íbúðalánasjóðs er ekki liðinn að sögn Árna Magnússonar félagsmálaráðherra. Hann er ósammála Davíð Oddssyni, Seðlabankastjóra, um að óeðliegt sé að Íbúðalánsjóður keppi við viðskiptabankana á íbúðalánamarkaði án þess að lúta sömu reglum og þeir. Árni segir að Íbúðalánasjóður lúti ákveðinni sérstöðu á íbúðalánamarkaði og pólitísk samstaða hefur verið um hlutverk hans. Innlent 5.12.2005 17:01