Fréttir
Fá ekki mjólkurpeninga í nautgriparækt Það kemur ekki til greina að nautgriparæktendur fái hluta þeirra styrkja sem voru eyrnamerktir mjólkurframleiðendum í síðasta búvörusamningi, segir formaður Landssambands kúabænda. Að öðru leyti er hann reiðubúinn að ræða styrki þeim til handa. Innlent 26.12.2005 12:06
Seldu fleiri íbúðir en í meðalviku Fleiri fasteignir seldust á höfuðborgarsvæðinu í síðustu söluviku fyrir jól en nemur meðalsölu síðustu tólf vikurnar sem á undan komu. 185 fasteignir seldust í síðustu viku og var meðalverð þeirra 23 milljónir króna, tæpum fjórum milljónum lægra en í meðalviku. Innlent 26.12.2005 09:57
Enn brýn þörf á hjálpargögnum Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segja brýna þörf á teppum í milljónavís, plastábreiðum og fleiru til að aðstoða fórnarlömb jarðskjálftanna í Pakistan 8. október. Erlent 26.12.2005 10:56
Hamfaranna við Indlandshaf minnst Þjóðir heimsins minnast þess í dag að eitt ár er liðið frá því jarðskjálfti upp á 9,1 á Richter skók Indlandshaf með þeim afleiðingum að um 280 þúsund manns fórust. Erlent 26.12.2005 10:53
Opið í Hlíðarfjalli í dag Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnar í hádeginu og verður opið til klukkan fimm. Klukkan tíu var hitastigið rétt undir frostmarki og starfsfólk Hlíðarfjalls segir að þrátt fyrir hlýindi undanfarinna daga sé mjög góður snór í skíðabrekkunum. Innlent 26.12.2005 10:45
Fáir bátar á sjó Einn togari og ellefu bátar voru á sjó núna á tíunda tímanum að morgni annars í jólum. Mjög dregur úr sjósókn yfir jólin eins og annarri atvinnustarfsemi en til samanburðar má geta að venjulega eru um 200 skip og bátar á sjó undir hádegi í desember. Innlent 26.12.2005 09:29
Friðsamlegt síðustu nótt Skemmtanahald næturinnar gekk friðsamlega fyrir sig samkvæmt upplýsingum frá lögregluembættum hringinn í kringum landið. Nokkur erill var hjá lögreglunni í Reykjavík en þar kom ekkert alvarlegt upp á og fangageymslur voru tómar í morgun. Innlent 26.12.2005 09:28
Krapasnjór á Hellisheiði og í Þrengslum Nokkur krapasnjór er á Hellisheiði og í Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Verið er að hreinsa snjó af vegum í Borgarfirði, Dölum og Norðurlandi vestra til Sauðárkróks og Siglufjarðar einnig um Öxnadalsheiði til Akureyrar. Innlent 26.12.2005 09:12
Innbrot í Apple-verslunina við Brautarholt Innbrot var framið í Apple-versluninni við Brautarholt í dag. Lögreglu barst tilkynning um innbrotið klukkan tvö og þegar hún kom á vettvang kom í ljós að rúða var skrúfuð úr glugga búðarinnar í heilu lagi. Innlent 25.12.2005 16:08
Biskup trúir ekki á jólasveininn Biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson, segist ekki trúa á jólasveininn. Hann lýsti þessu yfir í miðnæturmessu í Dómkirkjunni í gær en töluverð umræða skapaðist í þjóðfélaginu á dögunum þegar greint var frá því að Flóki Kristinsson, sóknarprestur á Hvanneyri, hafi sagt hópi sex ára barna að jólasveinninn væri ekki til. Innlent 25.12.2005 14:32
Rafmagn fór af í Kjós Rafmagn fór af hluta húsa í Kjós um hálf sjö leytið í morgun. Talið var að það hafi farið af vegna þess að línur hafi slegist saman vegna veðurs. Viðgerðarflokkur frá Borgarnesi sá um viðgerðir sem lauk á tíunda tímanum. Aftaka veður var á staðnum og allar aðstæður mjög erfiðar. Innlent 25.12.2005 13:49
Fullt út úr dyrum í kirkjum landsins Fullt var út úr dyrum við guðsþjónustur í flestum kirkjum landsins í gær. Í Grafarvogskirkju var gripið til þess ráðs að láta kórinn standa alla guðsþjónustuna til að sem flestir fengju sæti. Innlent 25.12.2005 13:18
Nokkur erill hjá lögreglunni í Reykjavík Nokkur erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt. Ekki voru alls staðar haldin gleðileg jól og þurfti lögreglan að hafa afskipti vegna ófriðar í nokkrum heimahúsum sökum ölvunar. Innlent 25.12.2005 13:14
Páfi bað fyrir fæddum og ófæddum börnum Sinn er siður í hverju landi og jólunum er fagnað með mismunandi hætti víðsvegar á hnettinum. Á Péturstorginu í Róm flutti Benedikt páfi sextándi sína fyrstu jólamessu á miðnætti. Hann bað fyrir friði í Ísrael og minntist sérstaklega á börn, fædd og ófædd, en hann er mikill og einlægur andstæðingur fóstureyðinga. Erlent 25.12.2005 12:21
Björgunarsveitir kallaðar út vegna veðurofsa Vestanlands Aftaka veður er víða vestanlands og hafa björgunarsveitir verið kallaðar út til þess að huga að lauslegum munum sem fokið hafa til. Innlent 25.12.2005 12:10
Ógnaði leigubílstjóra með loftbyssu Maður um tvítugt var handtekinn eftir að hafa miðað gasbyssu á leigubílstjóra við Stórhöfða rétt eftir klukkan hálf þrjú í nótt. Þegar leigubílstjórinn tilkynnti lögreglu um atvikið hafði maðurinn haupið á brott. Þegar laganna verður mættu á staðinn til að ræða við leigubílstjórann birtist byssumaðurinn á nýjan leik. Innlent 25.12.2005 11:33
Minni umferð um Betlehem en áður vegna spennu á svæðinu Fæðingarborg frelsarans, Betlehem, var vinsæll viðkomustaður kristinna pílagríma um árabil, en undanfarið hefur mjög dregið úr því. Spennan á svæðinu hefur hrætt ferðamenn frá. Erlent 24.12.2005 12:17
Nokkur erill í verslunum í morgun Nú fer hver að verða síðastur að gera síðustu jólainnkaupin enda verður flestum verslunum lokað innan klukkustundar, en nokkur erill var í Kringlunni og miðbænum í morgun. En jólin reynast sumum erfið og þeim sem ekki hafa í nein hús að venda verður boðið upp á mat á fimm stöðum í bænum. Innlent 24.12.2005 12:14
Handteknir aftur vegna vopnastuldar Tveir menn, sem lögreglan í Keflavík handtók á miðvikudag í tengslum við vopnastuldinn á Húsavík, voru handteknir aftur í gær eftir að lögreglumenn fundu þýfi og fíkniefni í fórum þeirra. Innlent 24.12.2005 12:12
Býst við að endurskoðun verði rædd á fundi Forseti ASÍ segist fastlega gera ráð fyrir því að forsætisráðherra verði beðinn um að endurskoða úrskurð Kjaradóms á fundi sínum með fulltrúum vinnumarkaðarins á þriðjudag. Formaður Kjaradóms segir að dómnum sé falið vanþakklátt og vandasamt hlutverk. Nauðsynlegt sé að finna leið til að ákvarða laun kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna sem sæmileg sátt geti verið um. Innlent 24.12.2005 12:11
Enn hægt að kaupa jólatré Þeir borgarbúar sem eiga eftir að kaupa jólatré og óttast að allt sé uppselt geta tekið jólagleði sína á ný því enn er hægt að fá jólatré á nokkrum stöðum. Þær fregnir bárust í gær að öll tré væru að verða uppseld og brugðust því margir skjótt við og urðu sér úti um tré. Óformleg athugun fréttastofunnar í morgun leiðir hins vegar í ljós að enn er hægt að verða sér úti um tré. Innlent 24.12.2005 12:09
Hundarnir fara ekki í jólaköttinn Það má enginn fara í jólaköttinn, ekki einu sinni hundar og það allra síst í Beverly Hills. Þar er hægt að kaupa klæðin rauð fyrir allar stærðir ferfætlinga, meðal annars jólasveinabúninga eða hreindýrabúninga fyrir þá sem finnst það meira viðeigandi. Erlent 24.12.2005 10:23
Lögregla stjórnar umferð við kirkjugarða Það er fastur liður í jólhaldi flestra borgarbúa að vitja látinna ættingja og vina í kirkjugörðum. Mikil umferð er þó á aðfangadag og jóladag og því mun lögregla aðstoða við að halda umferð greiðri fyrir gesti garðanna. Innlent 24.12.2005 10:04
Sjúkraflugvél áfram á Ísafirði Sjúkraflugvél verður áfram staðsett á Ísafirði en til stóð að hún myndi hafa aðstöðu á Akureyri frá og með áramótum. Eftir því sem fram kemur á fréttavef Bæjarins besta hafði fulltrúi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis samband við Halldór Halldórsson bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar í gær og staðfesti þetta. Innlent 24.12.2005 10:02
Tólf létust í rútuslysi í Mexíkó Tólf fórust þegar rúta brunaði út af vegi í suðurhluta Mexíkó í gær og lenti ofan í skurði. Meðal þeirra sem týndu lífi voru tvö börn. Vitni að slysinu segja að ökumaðurinn hafi ekið allt of hratt og misst stjórn á ökutækinu með þessum afleiðingum. Erlent 24.12.2005 10:00
Mikill mannfjöldi í mibænum í gærkvöld Mikill mannfjöldi var í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi og góð stemming. Veður var gott og að sögn löreglunnar fót allt vel fram. Verslunareigendur við Laugaveginn munu hafa verið hæstánægðir með þetta lokaskot á jólaverslunina. Innlent 24.12.2005 09:56
Stórhríð á utanverðu Snæfellsnesi Stórhríð er á utanverðu Snæfellsnesi. Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að óveður sé á milli Grundarfjarðar og Hellissands. Þungfært sé og stórhríð á Fróðárheiði. Á vegum á Vesturlandi er annars hálka. Innlent 24.12.2005 09:54
Á þriðja tug fórst í flugslysi í Kasakstan Allir farþegar flugvélar frá Azerbaídjan og áhöfn fórust þegar vélin hrapaði skammt frá Kaspíahafsströnd Kasakstans í gærkvöldi. Meðal farþeganna voru Breti, Ástrali og Tyrki. Alls voru tuttugu og þrír um borð í vélinni, skrúfuþotu af gerðinni Antonov 140. Erlent 24.12.2005 09:51
Bætti tvö heimsmet í sjósundi við Suðurpólinn Suðurafrískur sundkappi stakk sér til sunds á dögunum. Það væri líklega ekki sérlega fréttnæmt ef ekki væri fyrir þá staðreynd að hann gerði það á Suðurpólnum, og bætti um leið tvö heimsmet. Erlent 23.12.2005 22:12
Bíður eftir að komast í endurhæfingu Björn Hafsteinsson strætisvagnabílstjóri, sem missti báða fæturna í umferðarslysi í ágúst, er kominn í jólaskap og bíður eftir að komast í endurhæfingu eftir áramótin. Innlent 23.12.2005 20:05