Fréttir

Fréttamynd

Einn særðist í stórskotaliðsárás

Palestínskur vígamaður særðist þegar ísraelskir hermenn skutu úr fallbyssum á nyrsta hluta Gaza, skömmu eftir að ísraelsk stjórnvöld lýstu svæðið bannsvæði til að sporna gegn flugskeytaárásum palestínskra vígamanna.

Erlent
Fréttamynd

Ólga innan VG í Kópavogi eftir forval

Ólga er innan Vinstri grænna í Kópavogi eftir forval flokksmanna í nóvember síðastliðnum. Þorleifur Friðriksson, sem laut í lægra haldi í baráttunni um efsta sætið, sakar keppinaut sinn um að smala langt út fyrir bæjarmörkin. Slíkt er hins vegar heimilt samkvæmt lögum flokksins, en stuðningsmenn hans hóta engu að síður úrsögn og hafa rætt við Samfylkingarmenn í bænum um að ganga til liðs við þá.

Innlent
Fréttamynd

Mannréttindadómstóll vísar máli Kjartans frá

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað frá máli Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, vegna dóms Hæstaréttar Íslands. Kjartan skaut málinu til mannréttindadómstólsins eftir að Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og þáverandi framkvæmdastjóri Norðurljósa, var sýknaður í meiðyrðamáli.

Innlent
Fréttamynd

Alvarleg mistök gerð í Beslan í fyrra

Lögreglu- og sérsveitarmenn gerðu mörg alvarleg mistök þegar meira en þrjú hundruð gíslar týndu lífi í Beslan í september í fyrra. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar rússneska þingsins vegna málsins.

Erlent
Fréttamynd

Kjaradómur hefur komist að niðurstöðu

Kjaradómur hefur komist að niðurstöðu varðandi beiðni forsætisráðherra um að dómurinn endurskoði úrskurð sinn varðandi laun kjörinna fulltrúa landsins. Þetta tilkynnti Garðar Garðarsson, formaður dómsins, í fréttum NFS fyrir stundu. Niðurstaðan verður nú kynnt forsætisráðherra áður en fjölmiðlar fá að vita hana.

Innlent
Fréttamynd

Hyggst lækka laun forseta um helming

Evo Morales, nýkjörinn forseti Bólivíu, hyggst skerða eigin laun um helming þegar hann tekur við völdum í næsta mánuði og segir að ríkisstjórn hans muni gera slíkt hið sama. Þá væntir hann þess að laun þingmanna lækki einnig en þetta er liður í því að takast á við bágt efnahagslíf landsins en þar fátækt mikil.

Erlent
Fréttamynd

Hóta að myrða gísl

Félagar í lítt þekktri íraskri andspyrnuhreyfingu hóta að myrða franskan verkfræðing sem þeir halda í gíslingu. Sjónvarpsstöð sýndi fyrir skemmstu myndband af manninum þar sem hann situr fyrir framan vígamenn sem beina rifflum að höfði hans.

Erlent
Fréttamynd

Reykingafólk í meiri áhættu

Reykingar geta aukið áhættuna á að fólk fái psoriasis og gert einkenni sjúkdómsins alvarlegri en ef fólk reykir ekki. Þetta eru niðurstöður tveggja rannsókna sem birtust í dag.

Erlent
Fréttamynd

Borgarstjóri fundar með FL á föstudag

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, fundar með forystumönnum Félags leikskólakennara á föstudaginn kemur. Þar verur fjallað um stöðuna sem upp er komin í launamálum leikskólakennara í kjölfar nýgerðra kjarasamninga borgarinnar við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.

Innlent
Fréttamynd

Halda ráðstefnu um menningu í fangelsum

Fangelsismálayfirvöld á Norðurlöndum hafa fengið um 900.000 krónur í styrk frá Norræna menningarsjóðnum til að halda fangelsismenntaráðstefnu þar sem fjallað verður um menningu í fangelsum. Ráðstefnan verður haldin í maí á næsta ári á Selfossi.

Innlent
Fréttamynd

Vatnsleki í Hafnarfirði

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um hádegið í dag vegna vatnsleka í kjallaraíbúð í Hafnarfirði. Stíflað niðurfall í nágrenni íbúðarinnar olli því að vatn safnaðist fyrir og lak inn í íbúðina. Vel gekk að hreinsa upp vatnið og er tjón af völdum þess ekki talið mikið.

Innlent
Fréttamynd

Fundur Kjaradóms að hefjast

Kjaradómur hyggst koma aftur saman nú um klukkan hálfsex að ræða beiðni forsætisráðherra um endurskoðun úrskurðar um launahækkanir þjóðkjörinna fulltrúa.

Innlent
Fréttamynd

3,2 milljónir til baráttunnar gegn mansali

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja 3,2 milljónum króna til baráttunnar gegn mansali á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2005 voru fjórar milljónir króna til ráðstöfunar til stuðnings verkefnum á sviði mannréttindamála og hafði 800 þúsund krónum áður verið ráðstafað til Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Aflamark úthafsrækju verði 10 þúsund tonn

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur í samræmi við tillögu Hafrannsóknastofnunar, ákveðið að heildaraflamark úthafsrækju á fiskveiðiárinu 2005-2006 verði 10 þúsund tonn, en það er sama og lagt var til til bráðabirgða í upphafi sumars.

Innlent
Fréttamynd

Éljagangur á Suðvesturlandi

Éljagangur er á Suðvesturlandi, um Snæfellsnes og Vestfirði. Víða er hálka á vegum á þessu svæði eftir því sem Vegagerðin greinir frá. Á Holtavörðuheiði er hálka, skafrenningur og nokkuð hvasst. Á Vestfjörðum er ófært um Dynjandisheiði og Hrafseyrarheiði. Skafrenningur er víða á vegum á Vestfjörðum, einkum á heiðum.

Innlent
Fréttamynd

Sprengingar heyrðust á Gaza

Ísraelsk yfirvöld hafa varað Palestínumenn við því að hver sá sem sést á ferli nærri fyrrum landnemabyggðum Ísraela nyrst á Gazasvæðinu eigi á hættu að vera skotinn.

Erlent
Fréttamynd

Um 184 þúsund í Húsdýragarðinn á árinu

Aðsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn var ofan við meðaltalið í ár eftir því sem Einar Karlsson, markaðsstjóri garðsins, segir. Alls sóttu um 184 þúsund manns garðinn en rysjótt veðurfar í júní og ágúst setti strik í reikninginn.

Innlent
Fréttamynd

Fangi skaut átta til bana

Átta féllu þegar fangi hrifsaði hríðskotariffil af fangaverði í Al-Adala fangelsinu í Bagdad fyrr í dag og hóf skothríð á fangaverði og fanga.

Erlent
Fréttamynd

Jón Atli tilnefndur til Norrænu leikskáldaverðlaunanna

Leiklistarsamband Íslands hefur tilnefnt Jón Atla Jónasson leikskáld til Norrænu leikskáldaverðlaunanna 2006, fyrir leikverkið BRIM sem Vesturport sýndi. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi á Litla sviði Þjóðleikhússins á fimmta tímanum.

Innlent
Fréttamynd

Fjögur tilboð í úttekt á Reykjavíkurflugvelli

Fjögur tilboð bárust í rekstrar- og skipulagslega úttekt á Reykjavíkurflugvelli að sögn Helga Hallgrímssonar, formanns samráðsnefndar um úttekt á Reykjavíkurflugvelli. Nefndin vinnur að því að samningar náist á milli Reykjavíkurborgar og samgönguráðuneytisins um skipulag Vatnsmýrarinnar.

Innlent
Fréttamynd

UVG í Reykjavík lýsir yfir stuðningi við samninga

Stjórn Ungra vinstri grænna í Reykjavík lýsir yfir afdráttarlausum stuðningi og ánægju með þá kjarasamninga sem Reykjavíkurborg gerði nýverið við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Eflingu, þar sem lægstu laun voru hækkuð.

Innlent
Fréttamynd

Hafa engan rétt á aðgerðum á Gaza

Ísraelar hafa engan rétt á að grípa til aðgerða á Gaza eftir brotthvarf þeirra þaðan segir Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar. Hann segir flugskeytaárásir palestínskra vígamanna á Ísrael af Gaza engu breyta um það.

Erlent
Fréttamynd

Dró aflvana bát til Siglufjarðar

Björgunarbáturinn Sigurvin frá Siglufirði var kallaður út laust fyrir klukkan níu í morgun vegna aflvana báts á firðinum. Þar var á ferðinni dragnóta- og netabáturinn Guðrún Jakobsdóttir EA 144 sem gerður er út frá Dalvík en var á leið til dragnótaveiða á Skagafirði.

Innlent
Fréttamynd

Þremur rænt á Gazaströndinni

Þremur mönnum var rænt á suðurhluta Gaza fyrir stundu. Ekki liggur fyrir hverrar þjóðar mennirnir eru né hverjir stóðu fyrir mannráninu. Fyrr í dag var fimm Þjóðverjum rænt í arabaríkinu Yemen. Talsmaður þýskra stjórnvalda greindi frá þessu en lét ekkert nánar uppi um atvikið.

Erlent
Fréttamynd

Breytingar á reglugerð skila sveitarfélögum 600 milljónum

Breytingar sem gerðar hafa verið á reglugerð um fasteignaskatt skila sveitarfélögunum 600 milljónum króna á ári í auknum tekjum frá ríkinu þegar þær koma að fullu til framkvæmda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu. Með breytingunu hefur undanþágum frá greiðslu fasteignaskatts fækkað verulega og þær nýju fasteignir sem nú verða skattskyldar eru flestar í eigu ríkissjóðs. Umræddar eignir verða í sérstökum gjaldflokki er nefnist b-flokkur.

Innlent
Fréttamynd

Fimm Þjóðverjum rænt í Jemen

Fimm Þjóðverjum var rænt í arabaríkinu Jemen í dag. Talsmaður þýskra stjórnvalda greindi frá þessu en lét ekkert nánar uppi um atvikið. Mannránið er það þriðja í Jemen þar sem vestrænum ferðamönnum er rænt á þessu ári.

Erlent
Fréttamynd

Meðalaldur íbúa í Broddaneshreppi á Stöndum tæp 52 ár

Meðalaldur íbúa Broddaneshrepps á Stöndum er hugsanlega sá langhæsti á landinu í einum hreppi samkvæmt útreikningum fréttavefjarins Strandir.is. Meðalaldur íbúanna er tæp 52 ár í lok árs, ef miðað er við þá einstaklinga sem eiga lögheimili í hreppnum samvkæmt tölum Hagstofu Íslands frá 1. desember síðastliðnum.

Innlent
Fréttamynd

Íslendingar taka þátt í Galíleó-verkefninu

Íslendingar taka þátt í Galíleó-verkefni Evrópusambandsins sem kostar hátt í þrjú hundruð milljarða íslenskra króna. Fyrsta gervihnettinum í verkefninu, sem sagt er vera mótsvar Evrópu við GPS-staðsetningartækni Bandaríkjamanna, var skotið á loft í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Lítið um skil á jólabókum

Bókasala var jöfn og góð fyrir jólin að sögn bóksala. Lítið hefur verið um skil á bókum enn sem komið er en flestar bókaverslanir taka við bókum fram yfir áramót.

Innlent