Fréttir
Slysum í landflutningum fjölgar ört Slysum í landflutningum hefur fjölgað ört á undanförnum árum. Málþing um landflutninga og umferðaröryggi fór fram á Grand Hótel í dag. Innlent 9.2.2006 20:04
Ósanngjarnar forsendur Baráttumenn fyrir jarðgöngum til Vestmannaeyja taka fréttum um að kostnaðurinn geti numið allt að 100 milljörðum króna með fyrirvara. Þeim þykir óeðlilegt að miða við ströngustu kröfur um jarðgöng í Evrópusambandinu, þar sem reiknað er með miklu meiri umferð en hér á landi. Innlent 9.2.2006 19:00
Fiskbúðir ganga kaupum og sölum Fiskbúðir í Reykjavík hafa gengið kaupum og sölum að undanförnu. Sami eigandi er að sex búðum en hefur enn ekki tekið við þeim öllum Innlent 9.2.2006 18:55
Skaðbrenndir drengir vara við hættulegum leik Bjarki Jóhannsson og Andrés Valur Jóhannsson sem brenndust alvarlega þegar þeir fiktuðu með eldfimt efni í Grafarvogi í nóvember, vilja vara aðra krakka við að leika sér með eld og eldfim efni. Andrés Valur þurfti að dvelja á sjúkrahúsi í mánuð, en Bjarki hefur legið á sjúkrahúsi frá slysinu. Innlent 9.2.2006 18:53
SÍF verður Alfesca SÍF hf. hefur breytt nafni sínu í Alfesca og samhliða því tekið upp nýtt fyrirtækismerki. Í tilkynningu frá félaginu segir að nýtt nafn og merki sé tilkomið vegna umfangsmikilla breytinga á starfsemi félagsins. Innlent 9.2.2006 17:53
Sex mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni sem hlaut sex mánaða fangelsisdóm fyrir ölvunarakstur. Maðurinn var jafnframt sviptur ökuréttindum ævilangt. Maðurinn hefur ítrekað gerst sekur um ölvunarakstur frá árinu 1997 og önnur umferðarlagabrot. Innlent 9.2.2006 17:34
Lóðaúthlutun hjá Sörla frestað Lóðaúthlutun á svæði hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði hefur verið frestað vegna nýrrar tillögu stjórnar félagsins að þéttingu hesthúsabyggðar við Sörlaskeið og Kaplaskeið. Þetta kemur fram á heimasíðu Sörla. Innlent 9.2.2006 17:33
Spassky og Friðrik tefla um helgina Boris Spassky, fyrrverandi heimsmeistari í skák, og Friðrik Ólafsson, stórmeistari, munu tefla tveggja skáka einvígi á laugardaginn kemur. Spassky kemur hingað til lands á morgun og mun hann meðal annars flytja erindi um alþjóðlegan feril Friðriks Ólafssonar sem er fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák. Erindið verður flutt á málþingi sem Skáksamband Íslands stendur fyrir á laugardaginn og er haldið í aðalbanka Landsbanka Íslands. Innlent 9.2.2006 17:06
Eitt barn smitaðist af alnæmi Yngsti Íslendingurinn sem hefur greinst með alnæmi var innan við fimm ára gamall og smitaðist frá móður. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Ögmundsdóttar þingmanns um alnæmissmit. Innlent 9.2.2006 16:51
Matfiskur lítt mengaður Sá fiskur sem veiddur er hér við land og ætlaður er til manneldis inniheldur mjög lítið magn af díoxíni, díoxínlíkum PCB efnum, skordýraeitri og plöntueitri. Þetta kemur fram í niðurstöðum vöktunar Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins sem kynntar voru í dag. Innlent 9.2.2006 16:48
Engin lausn að leggja niður stofnanir Það er engin lausn að leggja leggja niður stofnanir því verkefni þeirra standa þá eftir. Þetta segir formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana. Viðskiptaráð sagðist í gær frekar vilja leggja niður stofnanir en sameina þær. Dæmi eru um að útgjöld stofnana hafi hækkað um hundruð milljóna eftir sameiningu. Innlent 9.2.2006 16:35
Lögum um þagnarskyldu verði breytt ef þurfa þykir Lagaákvæðum um þagnarskyldu heilbrigðisstétta verður breytt ef þau eru ekki nógu skýr varðandi það hvort stéttunum beri að tilkynna lögreglu um lögbrot sjúklinga sinna, sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag. Hann telur sjálfur ákvæðin nógu skýr og að læknum beri að tilkynna um lögbrot sjúklinga sinna. Innlent 9.2.2006 15:51
Ímynd flestra af Írönum ekki rétt Norska blaðakonan Line Fransson, segir þá ímynd sem flestir hafi af Írönum, síður en svo rétta. Hún segir þó það hafa án efa bjargað sér að þykjast vera Íslendingur við sendiráð Dana í Teheran á dögunum. Erlent 9.2.2006 14:39
Aðalmeðferð í Baugsmálinu nær til allra málsaðila Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í morgun að aðalmeðferð í Baugsmálinu skuli verða 20. og 21. febrúar og skuli ná til allra aðila málsins. Innlent 9.2.2006 14:06
300 nýir Sjálfstæðismenn á Akureyri frá áramótum Yfir 300 nýir félagar hafa skráð sig í Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri frá áramótum. Prófkjör fer fram um næstu helgi þar sem 20 bjóða sig fram í bæjarstjórn, sex konur og fjórtán karlar. Innlent 9.2.2006 14:00
Solla stirða tilnefnd til Emmy verðlauna Julianna Rose Mauriello, bandaríska stúlkan sem leikur Sollu Stirðu í þáttunum um Latabæ, hefur verið tilnefnd til Emmy verðlaunanna í ár fyrir frammistöðu sína í þáttunum. Innlent 9.2.2006 13:53
Skólamáltíðir ókeypis í Garðinum Bæjarráð í Garðinum á Reykjanesi hefur ákveðið að lækka gjöld fyrir skólamáltíðir í áföngum þannig að þær verði alveg ókeypis frá og með fyrsta september árið 2008. Innlent 9.2.2006 13:49
Saka Vestmannaeyjabæ um að hafa brotið jafnræðisreglu Bændasamtökin í Vestmannaeyjum, sem halda sauðfé á Heimaey, hafa leitað ásjár félagsmálaráðherra vegna meintra brota bæjaryfirvalda á jafnræðisreglu, og valdníðslu gegn þeim. Innlent 9.2.2006 13:46
Rice segir Sýrlendinga og Írana hvetja til ofbeldis Sýrlendingar og Íranar reyna viljandi að efna til ófriðar. Þetta sagði Condoleezza Rice á blaðamannafundi með utanríkisráðherra Ísraels í gær. Erlent 9.2.2006 13:42
Bankarnir lánuðu stjórnendum 5.5 milljarða 2004 Stjórnarmenn og æðstu stjórnendur þriggja íslensku viðskiptabankanna fengu samtals 5.5 milljarða að láni frá bönkunum árið 2004 og 2.7 milljarða árið þar á undan. Þetta kemur fram í svari viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Þar er vísað til ársreikningar bankanna. Innlent 9.2.2006 13:22
Síminn kaupir í Kögun Síminn hefur keypt tæplega 27% hlut í Kögun og nemur hlutur Símans samtals 52 milljónum hluta að nafnverði. Samningur um kaupin var undirritaður í morgun. Innlent 9.2.2006 12:46
Stórfellt rekstrartap blasir við fjölda ferðaþjónustufyrirtækja Sex ferðaskrifstofur og hagsmunahópar um ferðamennsku á hálendinu gera þá kröfu til stjórnvalda að ferðaþjónusta og útivist í ósnortinni náttúru verði viðurkennd sem arðbær og mikilvæg atvinnugrein til jafns við aðrar atvinnugreinar. Nú blasi við stórfellt rekstrartap fjölda ferðaþjónustufyrirtækja vegna virkjanaframkvæmda, sem halda uppi allt of háu gengi krónunnar, en það kemur illa niðri á ferðaþjónustunni. Innlent 9.2.2006 12:20
Samfylkingin rauf ekki friðinn í fjölmiðlamálum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, er ósammála því að fimm þingmenn flokksins hafi rofið friðinn í fjölmiðlamálum á þingi í gær með frumvarpi þar sem ýmsar skyldur eru lagðar á dreifiveitur ljósvakaefnis. Hún segir tvo þingmenn Sjálfstæðisflokks frekar hafa rofið friðinn með frumvarpi um að einkavæða Ríkisútvarpið að hluta. Innlent 9.2.2006 12:16
Avion Group kaupir Star Airlines Avion Group hefur keypt Star Airlines, annað stærsta leiguflugfélag Frakklands. Flugfloti félagsins samanstendur af 6 þotum og starfsmenn eru tæplega 500 talsins. Innlent 9.2.2006 12:11
Slökkviliðs-og sjúkraflutningarmenn mótmæla Hópur slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn komu saman í morgun fyrir utan Karphúsið til að mótmæla þeim töfum sem hafa orðið á samningaviðræðum. Viðræðurnar hófust loksins í morgun. Innlent 9.2.2006 11:03
Segja Samfylkinguna hafa stolið vinnu fjölmiðlahóps Framsóknarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri grænir og Frjálslyndi flokkurinn tóku höndum saman, á Alþingi, í gær, og sökuðu Samfylkinguna um að hafa stolið vinnu fjölmiðlahóps Alþingis. Þingmönnum var heitt í hamsi. Innlent 9.2.2006 10:30
Avion Group kaupir annað stærsta leiguflugfélag Frakklands Avion Group hefur keypt franska leiguflugfélagið Star Airlines, sem er annað stærsta leiguflugfélag Frakklands. Flugfélagið á 6 þotur og starfsmenn þess eru 460. Félagið flytur 900 þúsund farþega á ári til tuttugu áfangastaða. Við segjum nánar frá þessu síðar í dag. Innlent 9.2.2006 10:11
Evrópa græðir á frjálsri för launafólks Evrópa og einstök ríki græða á frjálsri för launafólks. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Innlent 9.2.2006 08:54
Hagnaður af rekstri SAS Hagnaður var af rekstri norræna flugfélagsins SAS fyrir skatta á síðasta fjórðungi ársins 2005 nam 4.7 milljörðum íslenskra króna sem er tvöfalt meira en fjármálasérfræðingar höfðu spáð. Erlent 9.2.2006 09:31
Smíða stærsta og dýrasta farþegaskip heims Hafinn er undirbúningur á smíði stærsta og dýrasta farþegaskips heims. Það er Royal Caribbean sem ræðst í þessa miklu fjárfestingu en áætlaður kostnaður við smíði skipsins er um sjötíu milljarðar íslenskra kóna. Erlent 9.2.2006 07:59