Fréttir

Fréttamynd

Umtalsvert magn fíkniefna haldlagt

Lögreglan í Reykjavík hefur lagt hald á umtalsvert magn fíkniefna sem fannst falið í nágrenni borgarinnar. Málið er til rannsóknar hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildarinnar, vill engar frekari upplýsingar gefa um málið á þessu stigi.

Innlent
Fréttamynd

Mál­flutningur í Baugs­málinu hafinn

Töf varð á réttarhaldi í Baugsmálinu við upphaf þinghalds í Héraðsdómi í morgun þegar settur saksóknari lagði fram ný gögn varðandi bílainnflutning Baugsfjölskyldunnar. Reiknað er með að málið verði dómtekið síðar í dag.

Innlent
Fréttamynd

Mál fyrrverandi yfirlæknis tekið fyrir í Héraðsdómi

Mál Stefáns Einars Matthíassonar, fyrrverandi yfirlæknis á Landspítalanum, gegn spítalanum var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Stefáni var vikið úr starfi yfirlæknis á æðaskurðlækningadeild Landspítalans síðastliðið haust eftir að hann neitaði að hætta rekstri læknastofu sem hann starfrækti meðfram störfum sínum á spítalanum.

Innlent
Fréttamynd

Excel Airways leigir átta nýjar vélar

Excel Airways, dótturfélag Avion Group, gekk í dag frá samningi um leigu á átta nýjum flugvélum. Vélarnar verða notaðar á flugleiðum félagins frá Gatwick-flugvelli í London og Manchester til áfangastaða á Kanaríeyjum, Suður-Evrópu og við Miðjarðarhafið.

Innlent
Fréttamynd

Fitch staðfestir lánshæfi bankanna

Matsfyrirtækið Fitch hefur staðfest óbreytt lánshæfismat allra íslensku bankanna. Þetta kemur í kjölfar fréttar um að fyrirtækið hafi breytt horfum á lánshæfismati ríkissjóðs úr stöðugum í neikvæðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bush þrýstir á leiðtoga Indlands og Pakistans

George Bush Bandaríkjaforseti ætlar að þrýsta á að leiðtogar Indlands og Pakistan finni lausn á langavarandi deilu sinni um Kasmír-hérað þegar hann heimsækir löndin í fyrsta sinn í næstu viku.

Erlent
Fréttamynd

Impregilo skilar greinargerð vegna uppsagnarinnar

Oddur Friðriksson, yfirtrúnaðarmaður starfsmanna hjá Impregilo, hefur tekið við greinargerð frá fyrirtækinu þar sem uppsögn trúnaðarmanns í síðustu viku er rökstudd af þeirra hálfu. Oddur hefur þegar sent greinargerðina áfram til lögmanna verkalýðsfélagsins Afls til skoðunar og verður tekin ákvörðun á næstu dögum hvort uppsögnin verði kærð.

Innlent
Fréttamynd

Enn ein töfin á Baugsmálinu

Töf varð á áframhaldandi aðalmeðferð í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar settur saksóknari lagði fram ný gögn í málinu. Gögnin tengjast bílainnflutningi sem deilt er um í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Sharon í einn eina aðgerðina

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fór í gærkvöld í enn eina aðgerðina en læknar þurftu að fjarlægja vökva úr kviðarholi hans. Sharon hefur legið meðvitundarlaus á sjúkrahúsi í Jerúsalem síðan í byrjun árs þegar hann fékk heilablóðfall.

Erlent
Fréttamynd

Vatn flæðir yfir vegi

Miklir vatnavextir eru víða um land vegna óvenju mikilla hlýinda. Dæmi eru um að vatn hafi flætt yfir vegi, en þó hvergi þjóðvegi. Ekki er vitað um teljandi tjón vegna vatnselgs en það gæti komið í ljós þegar vatn fer að sjatna.

Innlent
Fréttamynd

Apóteksræninginn enn ófundinn

Ungi maðurinn sem rændi apótekið við Smiðjuveg í Kópavogi um hádegisbil í gær er enn ófundinn. Lögreglan í Kópavogi hélt uppi víðtækri eftirgrennslan í gær en án árangurs.

Innlent
Fréttamynd

Engey notuð sem frystihús, löndunar- og útflutningshöfn

Loðnuveiðarnar eru komnar aftur í gang eftir brælu í gær og leggja sjómenn nú ofurkapp á að ná sem mestum verðmætum út úr þeim litla kvóta sem eftir er. Þar sem frystigetan í landi er ekki næg hefur risatogaranum Engey verið lagt við bryggju í Sundahöfn.

Innlent
Fréttamynd

Óeirðir fyrir tónleika Rolling Stones

Óeirðir brutust út fyrir tónleika Rolling Stones í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu, í gær. Æstir aðdáendur hljómsveitarinnar gátu ekki beðið eftir að komast inn og ruddust inn á íþróttaleikvanginn þar sem tónleikarnir fóru fram.

Erlent
Fréttamynd

Ahmadinejad verði saksóttur fyrir ummælin um Helförina

Ísraelskur lögfræðingur hefur beðið þýsk stjórnvöld um að sækja Mahmoud Ahmadinejad, forseta Írans, til saka fyrir að segja að Helförin sé sögusögn. Forsetinn lét þessi ummæli falla í desember síðastliðnum en hann hefur einnig sagt að réttast væri að eyða Ísrael af yfirborði jarðar.

Erlent
Fréttamynd

Jarðskjálfti upp á 7,5 á Richter í Mósambík

Jarðskjálfti upp á 7,5 stig varð í sunnanverðri Afríku seint í gærkvöld. Upptökin voru í Mósambík en jarðskjálftinn fannst einnig í Harare, höfuðborg Simbabwe, þar sem mikil skelfing greip um sig. Engar fregnir hafa enn borist af manntjóni.

Erlent
Fréttamynd

Minnst 13 létust þegar þak hrundi í Rússlandi

Að minnsta kosti þrettán létu lífið og tæplega tuttugu slösuðust þegar þak yfir markaði hrundi í austurhluta Moskvu í Rússlandi í morgun. Rússneska fréttastofan Interfax hefur eftir yfirvöldum á vettvangi að svo virðist sem þakið hafa gefið sig undan miklum blautum snjó og hrunið í heilu lagi ofan á fjölmarga sölubása.

Erlent
Fréttamynd

Sádi-Arabía gengur ekki til liðs við Bandaríkjamenn

Leiðtogar Sádi-Arabíu ætla ekki að ganga til liðs við Bandaríkjamenn um að neita Palestínumönnum um utanaðkomandi fjárhagsaðstoð nú þegar Hamas-samtökin hafa tekið við völdum í heimastjórn Palestínu. Sádi-Arabía er því annað landið sem neitar þessari umleitan Bandaríkjamanna. Condoleezu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur því ekkert orðið ágengt í þessum efnum í ferð sinni um miðausturlönd.

Erlent
Fréttamynd

Stærsta rán í sögu Bretlands?

Allt að fimm milljörðum íslenskra króna var rænt úr geymslu Securitas í Kent í Englandi í gær. Féð er í eigu Seðlabanka Englands. Talið er að ránið sé hið stærsta í Bretlandi til þessa.

Erlent
Fréttamynd

Tekist á um reykingafrumvarp

Tekist var á um hvort banna ætti reykingar á veitingastöðum á opnum fundi sem Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hélt í gærkvöldi. Framsögumenn voru þingmennirnir Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Samfylkingu og Kristinn Tómasson yfirlæknir Vinnueftirlits ríkisins.

Innlent
Fréttamynd

MTV tónlistarhátíðin kostar um það bil 1,5 - 2 milljarða króna

Það kostar á bilinu einn og hálfan til tvo milljarða að halda tónlistarhátíð evrópudeildar sjónvarpsstöðvarinnar MTV hér á landi. Helga Margrét Reykdal, framkvæmdarstjóri True North, segir það ekki vera spurningu um hvort hátíðin verði haldin hér á landi heldur hvenær.

Innlent
Fréttamynd

Rændu um 3 milljörðum króna

Þjófar komust á brott með að minnsta kosti 25 milljón pund eða sem nemur 3 milljörðum íslenskra króna í vopnuðu ráni í peningageymslu í Englandi dag.

Erlent
Fréttamynd

Samflokksmenn skora á Þorgerði að tryggja starfsemi HA

Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, skorar á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra og þingmenn Sjálfstæðisflokksins, að leita leiða til að tryggja starfsemi Háskólans á Akureyri til framtíðar og að hann fái að vaxa með sama krafti og áður.

Innlent
Fréttamynd

SAM-félagið kaupir kvikmyndahús í Danmörku

Úrás íslenskra kaupsýslumanna nær nú til kvikmyndahúsageirans því SAM-félagið, sem rekur meðal annars Sam-bíóin hér á landi, hefur keypt Cinemaxx-kvikmyndahúsakeðjuna í Danmörku. Með kaupunum má búast við að miðasala SAM-félagsins nærri fjórfaldist.

Innlent
Fréttamynd

Clinton, Blair og Annan á karlaráðstefnu?

Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur boðið þremur af leiðtogum heimsins til alþjóðlegrar karlaráðstefnu um jafnréttismál sem haldin verður hér á landi í haust. Svör frá leiðtogunum hafa ekki borist en ráðherrann mun kynna ráðstefnuna á fundi Sameinuðu þjóðanna í næstu viku.

Innlent
Fréttamynd

Vilja stóriðju á Suðurland

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga vilja stóriðju á Suðurland. Í skýrslu samtakanna sem kynnt var í dag er svæðið sagt góður kostur fyrir fyrirtæki í stóriðju. Það eina sem vanti til að reisa megi orkufrekan iðnað á Suðurlandi er stórskipahöfn.

Innlent
Fréttamynd

Gengislækkun krónunnar hafði áhrif víða um heim

Gengislækkun krónunnar í gær hafði víðtæk áhrif á alþjóðlegum gjaldeyrismarkaði samkvæmt frétt á heimasíðu Financial Times. Þar er sagt að lækkun krónunnar hafi valdið titringi á mörkuðum með jaðargjaldmiðla sem spákaupmenn hafa sótt í að kaupa í von um háa ávöxtun á sama hátt og erlendir aðilar hafa fjárfest í krónunni í stórum stíl.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisendurskoðandi kominn með gögnin frá Vilhjálmi

Ríkisendurskoðun og Fjármálaeftirlitið hafa fengið gögn frá Vilhjálmi Bjarnasyni aðjúnkt í viðskiptafræðum vegna aðkomu þýska bankans Hauck und Afhauser, að kaupum á Búnaðarbanka Íslands á sínum tíma. Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi sagði of snemmt að segja til um hvort stofnunin hæfi sjálfstæða athugun á málinu.

Innlent