Fréttir
Gæslan gerir betur en herinn Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar segir að þegar hún taki yfir verkefni þyrlubjörgunarsveitar hersins fái herinn betri þjónustu en hann veitir sjálfum sér í dag. Viðbragðstími herþyrlna er einn og hálfur tími um helgar en hálftími hjá gæsluþyrlum - þegar þær eru í lagi. Innlent 5.3.2006 19:39
Jónínubréf á Netið Tölvupóstur, sem virðist innihalda afar viðkvæm og persónuleg einkabréf á milli Jónínu Benediktsdóttur og Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, hefur verið settur á bloggsíðu sem hýst er í Bandaríkjunum. Lögmaður Jónínu segir málið verða kært til lögreglu, en slóð þessara bréfa verði væntanlega hægt að rekja til þeirra sem létu Fréttablaðinu í té tölvupóst sömu aðila. Innlent 5.3.2006 19:32
Öruggur sigur Sebastien Loeb Franski ökuþórinn Sebastien Loeb sem ekur á Citroen vann öruggan sigur í mexíkóska rallinu sem lauk í kvöld. Loeb varð 48,9 sekúndum á undan næsta nanni, Norðmanninum Petter Solberg, fyrrverandi heimsmeistara á Subaru en Frakkinn stakk af á 12. sérleið og gaf ekkert eftir þaðan af. Sport 5.3.2006 19:08
Guðmundur varð þrefaldur Íslandsmeistari Guðmundur E. Stephensen, Víkingi, varð í dag þrefaldur Íslandsmeistari í borðtennis en Íslandsmótinu lauk í dag. Guðmundur sem er 23 ára hefur nú samtals unnið 100 Íslandsmeistaratitla í fullorðins og unglingaflokkum. Í dag tryggði hann sér titlana í einliðaleik, tvenndarkeppni og tvíliðaleik. Sport 5.3.2006 18:48
Strætóferðir líklegar til Árborgar og Reykjanesbæjar Framkvæmdastjóri Strætós telur mjög líklegt að komið verði á reglubundnum strætóferðum milli höfuðborgarsvæðisins og Árborgar og Reykjanesbæjar. Sams konar ferðir til og frá Akranesi hafa gengið mun betur en búist hafði verið við. Innlent 5.3.2006 18:31
Ísinn á Suðurskautslandinu bráðnar hratt Íshellan á Suðurskautslandinu hefur minnkað umtalsvert vegna bráðnunar á síðastliðnum árum, þvert á fyrri spár vísindamanna. Merkjanleg hækkun hefur orðið á yfirborði heimshafanna beinlínis af þessum völdum. Erlent 5.3.2006 18:16
Stærsta hundasýning sem haldin hefur verið hér Það var allt annað en hundleiðinlegt í Reiðhöll Fáks um helgina, en þar fór fram stærsta hundasýning sem haldin hefur verið hérlendis. Innlent 5.3.2006 18:27
Matarbirgðir SÞ í Kenía senn á þrotum Matarbirgðir Matvælahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Kenía eru senn á þrotum. Þrjár komma fimm milljónir Keníumanna reiða sig alfarið á stofnunina en miklir þurrkar hafa gert það að verkum að uppskera í landinu hefur brugðist aftur og aftur. Erlent 5.3.2006 17:27
Tottenham í 5 stiga forskot á Arsenal Tottenham gefur ekkert eftir í baráttunni um Meistaradeildarsæti en Robbie Keane var hetja liðsins sem lagði Blackburn, 3-2 í spennando leik á White Hart Lane nú síðdegis. Keane skoraði tvívegis í fyrri hálfleik en það var hins vegar egypski útlaginn Ahmed Mido sem tryggði Tottenham stigin þrjú þegar hann skoraði sigurmarkið á 70. mínútu. Sport 5.3.2006 17:56
Gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar Annar mannanna sem handteknir voru vegna hnífsstunguárásar á mann á skemmtistaðnum Gauki á Stöng í fyrrinótt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til næsta föstudags. Innlent 5.3.2006 17:25
Gengur vel hjá Arnari og félögum í Twente Arnar Þór Viðarsson lék allan leikinn með Twente sem lagði Heracles Almelo, 2-0 í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Twente er á fljúgandi ferð í deildinni og hefur nú ekki tapað í 6 leikjum í röð. Twente færist upp tölfuna þessa dagana, er nú búið að fjarlægjast fallsvæðið og er í 9. sæti deildarinnar með 38 stig, fjórtán stigum frá fallsæti í þessari 18 liða deild. Sport 5.3.2006 17:41
Vélsleðamanni haldið sofandi á gjörgæsludeild Manninum sem slasaðist er hann ók vélsleða sínum fram af snjóhengju á Langjökli í gær er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landsspítalans í Fossvogi, að sögn vakthafandi sérfræðings. Innlent 5.3.2006 17:19
Fiorentina upp fyrir Roma Fiorentina endurheimti 4. sætið í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið vann 2-1 sigur á Siena. Hinn ungi sóknarmaður Giampaolo Pazzini skoraði sigurmarkið í viðbótartíma og lyfti liði sínu upp fyrir Roma sem á leik til góða gegn Inter síðar í kvöld. Sport 5.3.2006 17:17
Árni Magnússon í Íslandsbanka Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur ákveðið að láta af störfum og ráða sig til starfa hjá Íslandsbanka þar sem hann verður forstöðumaður á fjárfestinga- og alþjóðasviði. Innlent 5.3.2006 17:16
Sissoko á góðum batavegi Mohamed Sissoko, miðvallarleikmaður Liverpool segist ætla að leika aftur með liðinu áður en þetta tímabil er á enda. Sissoko meiddist alvarlega á auga í Meistaradeildarleiknum gegn Benfica í lok febrúar eftir að Beto, leikmaður portúgalska liðsins, slysaðist til að sparka í auga leikmannsins. Nú hefur komið í ljós að meiðsli Sissoko eru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu. Sport 5.3.2006 16:29
Klinsmann kallaður á teppið í þinginu Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Þjóðverja í knattspyrnu gæti þurft að mæta inn á teppið í þýska þinginu á næstu dögum og ekki af góðu. Þingmenn þar í landi eru órólegir í kjölfar þess að þýska landsliðið var tekið í bakaríið af Ítölum í vináttulansleik í vikunni þar sem úrslitin urðu 4-1 fyrir smjörgreiddu súkkulaðistrákana. Sport 5.3.2006 16:08
Mannabreytingar í ríkisstjórn Íslands Mannabreytingar eru í uppsiglingu í ráðherraliði Framsóknarflokksins en þær verða kynntar eftir þingflokksfund í dag. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum NFS verður nýr ráðherrar skipaður í embætti en einnig verða einhverjir ráðherrar færðir til. Innlent 5.3.2006 16:04
Enn tapar Sunderland Sunderland er á hraðri niðurleið úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en liðið var rétt í þessu að tapa fyrir Man City, 2-1. Georgios Samaras skoraði tvö mörk á 86 sekúndum snemma leiks fyrir heimamenn í Man City áður en Kevin Kyle minnkaði muninn fyrir Sunderland skömmu síðar. Sunderland lék manni færri síðustu mínúturnar þegar Gary Breen fékk að líta sitt annað gula spjald. Sport 5.3.2006 15:34
Íslendingar fjárfestu jafnmikið og Bretar í Danmörku Íslendingar fjárfestu jafnmikið og Bretar í Danmörku árið 2004 en þessar tvær þjóðir vermdu toppsætin í kaupgleði á dönskum fyrirtækjum. Í Kaupmannahafnarpóstinum er greint frá því að árið 2004 hafi íslensk fyrirtæki fjárfest fyrir 6,2 milljarða danskra króna í Danmörku, eða um 60 milljarða íslenskra króna, sem er nánast sama upphæð og Bretar fjárfestu fyrir. Innlent 5.3.2006 15:15
Lemgo í undanúrslitin Ásgeir Örn Hallgrímsson og Logi Geirsson skoruðu 4 mörk hvor þegar lið þeirra Lemgo komst í undanúrslit Evrópukeppni félagsliða í handbolta í dag. Lemgo lagði rússneska liðið Dynamo Astrakhan á útivelli 33-31 en þetta var síðari leikur liðanna. Sport 5.3.2006 15:03
Logi með 43 stig fyrir Bayreuth Logi Gunnarsson átti stórleik með Bayreuth í þýska körfuboltanum í gær og skoraði 43 stig þegar liðið vann stórsigur á Tröster Breitengüßbach 111-105 í framlengdum leik. Sport 5.3.2006 14:53
Skjern úr leik Skjern, lið Arons Kristjánssonar þjálfara féll í morgun úr Evrópukeppni bikarhafa í handbolta þegar liðið tapaði síðari leik sínum á útivelli fyrir rúmenska liðinu Constanta, 35-28. Vignir Svavarsson skoraði tvö mörk fyrir Skjern sem tapaði líka fyrri leiknum, 35-31. Sport 5.3.2006 14:43
Tiger með 2 högga forystu fyrir lokahringinn Tiger Woods hefur tveggja högga forystu fyrir lokahringinn á Ford mótinu í golfi á Doral-vellinum á Miami í Flórída. Sýnt verður beint frá keppninni á Sýn í kvöld. Fjórir kylfingar voru jafnir fyrir keppni gærdagsins, Tiger Woods, Phil Mickelson, Scott Verplank og Camilo Villegas. Tiger Woods lék best þeirra í gær, lék á 4 undir pari og er samtals á 17 undir pari. Sport 5.3.2006 14:34
Einnig ákvörðun um tilvist álversins í Straumsvík Bæjarstjórinn í Hafnarfirði, Lúðvík Geirsson, segir að ákvörðun um hugsanlega stækkun Alcan sé jafnframt ákvörðun um það hvort álver verði til frambúðar í Straumsvík eða ekki. Forsætisráðherra sagði í fréttum NFS í fyrradag að forsvarsmenn Alcan hefðu skýrt ríkisstjórninni frá því að ef álverið fengist ekki endurbætt eða stækkað, þá yrði því lokað á næsta áratug. Innlent 5.3.2006 15:06
Miklir yfirburðir Gerplu Gerpla varð í gær bikarmeistari karla og kvenna í fimleikum. Gerpla 1 varð bikarmeistari í kvennaflokki í frjálsri gráðu. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir var stigahæst en hún varð hlutskörpust í keppni í stökki og golfæfingum. Gerpla varð einnig bikarmeistari í piltaflokki, hafði betur í baráttu við Ármenninga. Rúnar Alexandersson var bestur á tvíslánni en hann keppti ekki í öllum greinum í gær. Sport 5.3.2006 14:17
Styrktarmót fyrir tækwondomann Í gær fór fram í Ingunnarskóla í Grafarvogi, styrktarmót Björns Þorleifssonar tækwondomanns. Björn er okkar besti tækwondomaður og framundan eru dýr og kostnaðarsöm ferðlög. Honum hefur t.d. verið boðið að æfa með kínverska landsliðinu. Hugmyndin um styrktarmót kom frá tækwondo-deild Fram sem leggur til húsnæði... Sport 5.3.2006 14:13
Herirnir sagðir á heimleið Innan árs verða allar breskar og bandarískar hersveitir kallaðar heim frá Írak að því er breska blaðið Sunday Telegraph hermir. Sveitirnar eru sagðar vera helsta ljónið á vegi til friðar í landinu. Erlent 5.3.2006 13:36
Íslenskur togari grunaður um brot á norskum fiskveiðilögum Frystitogarinn Venus var tekinn til hafnar í Noregi í gær vegna gruns um brot á norskum fiskveiðilögum. Verið er að rannsaka málið en áhöfnin telur sig ekki hafa haft rangt við. Innlent 5.3.2006 13:59
Ótrúlegur sigur Miami á Atlanta Kobe Bryant skoraði 40 stig fyrir Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, þegar liðið lagði Detroit, 105-94. Miami Heat vann sinn áttunda leik í röð með naumum sigri á Atlanta Hawks, 95-93. Miami átti frábæran endasprett og náði að tryggja sér sigurinn á ótrúlegan hátt með 1.8 sekúndu eftir á klukkunni, eftir að hafa verið 17 stigum undir. Sport 5.3.2006 13:41
Ræddi um kjarnorku og lék krikket Asíuheimsókn George Bush Bandaríkjaforseta er lokið en hann hélt heim frá Pakistan í gær. Bush ræddi kjarnorkumál við pakistanskan starfsbróður sinn og lék krikket við heimamenn. Erlent 5.3.2006 13:28