Fréttir

Fréttamynd

Vextir Íbúðalánasjóðs lækka

Vextir Íbúðalánasjóðs af útlánum lækka á morgun úr 4,70 prósentum í 4,65 prósent af almennum lánum. Einnig er hægt að fá lán með 4,40 prósenta vöxtum en þá verður lántaki að greiða uppgreiðslugjald ef hann vill greiða lánið upp hraðar en samið er um í upphafi.

Innlent
Fréttamynd

Breytt vaktakerfi vegna óánægju vagnstjóra

Ásgeir Eiríksson, forstjóri Strætós, hófst í morgun handa við að kynna vagnstjórum fyrirtækisins nýtt vaktakerfi sem taka á við af fyrra vaktakerfi sem valdið hefur mikilli óánægju meðal vagnstjóra.

Innlent
Fréttamynd

Ungir jafnaðarmenn vilja vöggustofur

Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík vilja sjá úrræði í dagvistun barna frá sex til 18 mánaða aldri. Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík vilja að athugaðir verðir möguleikar til að stofna vöggustofur að danskri fyrirmynd.

Innlent
Fréttamynd

Farþegar ekki í sérstakri hættu

Ekkert í frumrannsókn rannsóknarnefndar flugslysa á atvikinu þegar eldingu laust niður í þotu Icelandair skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli undir kvöld í gær, bendir til að farþegar og áhöfn hafi verið í sérstakri hættu.

Innlent
Fréttamynd

Tap á rekstri deCode 4 milljarðar 2005

Tap á rekstri deCode Genetics, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, í fyrra nam tæpum fjórum milljörðum króna sem er nokkuð hærra en árið á undan. Félagið hefur aldrei skilað hagnaði frá því það var stofnað árið 1997.

Innlent
Fréttamynd

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Kópavogi samþykktur

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar sem verða þann 27. maí næstkomandi var samþykktur samhljóða á félagsfundi á mánudag. Níu efstu sæti listans eru skipuð í samræmi við niðurstöðu prófkjörsins sem fór fram þann fjórða febrúar síðastliðinn.

Innlent
Fréttamynd

Hræðast samkeppni

Yfirmaður þróunarsviðs Bauhaus segist handviss um að verslunarkeðjan fái lóð í Reykjavík fyrr eða síðar. Byko og Húsasmiðjan séu hrædd við samkeppni, enda myndi Bauhaus bjóða meira vöruúrval og verð myndi lækka um tuttugu prósent.

Innlent
Fréttamynd

Svindl í nafni UNICEF

Greint var frá því í fréttum RÚV í gær að dæmi væru um að einstaklingar svindluðu pening frá aðilum í íslenskri ferðaþjónsutu í nafni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, eða annarra samtaka. UNICEF á Íslandi hefur sent frá sér frettatilkynningu til að koma eftirfarandi á framfæri:

Innlent
Fréttamynd

Ráðist á mann í Vestmannaeyjum

Líkamsárás var tilkynnt til Lögreglunnar í Vestmannaeyyjum aðfaranótt sunnudags en maður hafði verið sleginn með þeim afleiðingum að hann féll niður tröppur og skall með höfuðið í stétt. Maðurinn var fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús og færður undir læknishendur. Ekki liggur fyrir hver aðdragandi líkamsárásarinnar var en málið er í rannsókn.

Innlent
Fréttamynd

Íbúðalánasjóður lækkar vexti

Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að lækka útlánsvexti íbúðalána úr 4,7 prósentum í 4,65 prósent í kjölfar 1. áfanga útboðs íbúðabréfa á þessu ári. Vaxtabreytingin tekur gildi á morgun.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rannsóknarnefnd flugslysa rannsakar atvikið

Rannsóknanefnd flugslysa ætlar í dag að fara yfir atvikið, þegar eldingu laust niður í þotu Icelandair skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli undir kvöld í gær. Farþegar skynjuðu miklar glæringar og háan hvell.

Innlent
Fréttamynd

Úthlutun úr minningarsjóði

Fyrsta úthlutun úr Minningarsjóði hjónanna Helgu Jónsdóttur og Bjarna Snæbjörnssonar læknis í Hafnarfirði fer fram á morgun. Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til hagsmunamála barna í Hafnarfirði átján ára og yngri.

Innlent
Fréttamynd

Hlutabréf lækkuðu í Japan

Hlutabréf lækkuðu við lokun kauphallarinnar í Tókýó í Japan í dag. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan, sem endaði í hæsta lokagildi vísitölunnar sl. sex ár í gær, lækkaði um 1,10 prósent, 175,14 punkta, og endaði í 15.726,02 stigum í dag. Í gær hækkaði hlutabréfavísitalan hins vegar um 1,52 prósent.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Árni lætur af embætti í dag

Árni Magnússon lætur af embætti félagsmálaráðherra á ríkisráðsfundi sem hefst klukkan ellefu. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra færir sig þá um set yfir í félagsmálaráðuneytið og Siv Friðleifsdóttir tekur við heilbrigðisráðuneytinu.

Innlent
Fréttamynd

Samtökin '78 kæra Gunnar í Krossinum

Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins hefur verið kærður til lögreglu af Samtökunum 78 vegna greinar sem birt var í Morgunblaðinu 26. febrúar síðastliðin en þar fer Gunnar hörðum orðum um samkynhneigða og líf þeirra.

Innlent
Fréttamynd

NATO tekið við í Afganistan í árslok

Atlantshafsbnadalagið verður búið að taka við aðgerðum í Afghanistan í árslok. Þetta sagði yfirmaður Evrópuherdeildar bandalagsins í gær. Þetta þyrfti þó ekki endilega að þýða að bandarískum hermönnum í landinu yrði fækkað.

Erlent
Fréttamynd

Þakplötur fuku

Þakplötur fuku við nýja íþróttahúsið sem verið er að byggja við Jaðarsbakka á Akranesi í vindhviðum sem voru þar í gær. Engin slys hlutust þó af.

Innlent
Fréttamynd

Vilja að Moussaoui verði tekinn af lífi

Saksóknarar í máli Zacarias Moussaoui, eina mannsins sem hefur verið ákærður fyrir aðild að hryðjuverkaárásunum 11. september 2001, fara fram á að hann verði tekinn af lífi. Við réttarhöldin yfir honum í gær fóru verjendurnir hins vegar fram á að Moussaoui yrði ekki tekinn af lífi, því að slíkt myndi gera hann að píslarvætti.

Erlent
Fréttamynd

Sluppu ómeiddir

Tveir sluppu ómeiddir þegar bíll þeirra valt undir Hafnarfjalli í gær, en þar var um tíma hvassviðri með snörpum vindhviðum. Í einni slíkri tókst vélsleðakerra, sem bíllinn dró, á loft og rykkti svo harkalega í bílinn að hann valt á veginum.

Innlent
Fréttamynd

Logar allt í óeirðum

Meira en hundrað uppreisnarmenn úr röðum Talibana og al-Qaeda hafa fallið í átökum við hersveitir í Pakistan undanfarna þrjá daga. Þúsundir íbúa í Wasiristan hafa neyðst til að flýja heimili sín vegna átakanna og algjört útgöngubann hefur nú tekið þar gildi.

Erlent
Fréttamynd

4 sprengjuárásir í Hilla

Allt lék á reiðiskjálfi í borginni Hilla í Írak nú fyrir stundu. Svo virðist sem fjórar sprengjuárásir hafi verið gerðar í borginni með skömmu millibili.

Erlent
Fréttamynd

TF-SIF komst ekki í gagnið

Minni þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- SIF komst ekki í gagnið í gær, eins og stefnt hafði verið að eftir ítrekaðar tafir á viðgerð í síðustu viku. Stóra þyrlan , TF- LÍF er enn í stórri skoðun og verður frá enn um hríð.

Innlent
Fréttamynd

Fangar enn pyntaðir í Írak

Fangar í Írak hafa ítrekað verið pyntaðir með raflosti og bareflum eftir að Abu Ghraib hneykslið komst í hámæli og Bandaríkjastjórn lofaði bót og betrum í fangelsum í Írak. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Amnesty International, sem byggir á viðtölum við fanga.

Erlent
Fréttamynd

Venusi sleppt

Norska strandgæslan féllst í gærkvöldi á að sleppa togaranum Venusi úr höfn í Tromsö, en þangað hafði hún fært togarann á sunnudagsmorgun, vegna gruns um ólöglegar veiðar.

Innlent
Fréttamynd

Rann til í hálku og hafnaði á ljósastaur

Kona slasaðist og missti meðvitund, þegar bíll hennar rann á hálku þvert yfir Reykjanesbrautina á móts við Smáralind á sjötta tímanum í morgun, og hafnaði loks á ljósastaur. Hún var flutt í sjúkrabíl á Slysadeild Landsspítalans þar sem hún komst til meðvitundar og gert var að sárum hennar.

Innlent
Fréttamynd

DeCode tapar rúmum 4 milljörðum 2005

Tap DeCode Genetics, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, á síðasta ári nam rétt tæpum 63 milljónum bandaríkjadölum eða sem nemur rúmum 4.1 milljörðum íslenskra króna. Það er nokkuð meira tap en árið þar á undan en þá nam tapið tæpum 3.8 milljörðum króna.

Innlent
Fréttamynd

Gat kom á nef vélar

Rannsóknanefnd flugslysa ætlar í dag að fara yfir atvikið, þegar eldingu laust niður í þotu Icelandair skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli undir kvöld í gær. Farþegar skynjuðu miklar glæringar og háan hvell. Gat kom á nef vélarinnar þar sem ratsjáin er hýst og var þegar snúið við til lendingar. 150 farþegar voru um borð, auk áhafnar, og sakaði engan.

Innlent
Fréttamynd

Eykur vantraust Serba

Serbnesk stjórnvöld telja að dauði Milan Babic muni auka vantraust flestra Serba í garð Stríðsglæpadómsstólsins í Haag.

Erlent
Fréttamynd

Mikil umsvif á fasteignamarkaði

Umsvif voru óvenju mikil á fasteignamarkaði í síðustu viku. Gengið var frá 206 kaupsamningum, 160 kaupsamningum um eignir í fjölbýli, 30 samningum um eignir í sérbýli og 16 samninga í annars konar eignum. Meðalupphæð samnings nam 23,6 milljónum króna, að því er fram kemur í hálf fimm fréttum KB banka og vísað í upplýsingar frá Fasteignamati ríkisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tekur sæti á þingi í lok apríl

Guðjón Ólafur Jónsson sem tekur sæti Árna Magnússonar á þingi segist hafa orðið fyrir áfalli þegar honum varð ljóst að Árni Magnússon félagsmálaráðherra ætlaði að hætta á þingi og að hann sjálfur væri á leið á þing. Hann segir mikinn missi að Árna.

Innlent