Fréttir
Ísland og ESB semja um tollalækkanir Tollar á ýmsar landbúnaðarvörur verða felldir niður í viðskiptum á milli Íslands og landa Evrópusambandsins (ESB) 1. janúar á næsta ári. Er búist við að samkomulag á milli Íslands og ESB leiði til lægra verðs á innfluttum á landbúnaðarafurðum um leið og það skapar ný sóknarfæri til útflutnings íslenskra landbúnaðarafurða. Viðskipti innlent 30.3.2006 12:38
Mikil viðskipti á skuldabréfamarkaði Viðskipti á skuldabréfamarkaði fóru hratt af stað við opnun markaðarins í morgun en alls hafa átt sér stað viðskipti fyrir rúma 6 milljarða króna um ellefuleytið í morgun. Viðskiptin voru komin í rúma 11 milljarða um klukkustund síðar. Viðskipti innlent 30.3.2006 12:04
Smáralind tapaði 101 milljón króna Smáralind ehf. tapaði 101 milljón króna á síðasta ári samanborið við 43 milljóna króna tap árið áður. Rekstarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 684 milljónum króna en var 601 milljón árið 2004. Heildartekjur félagsins námu 1.259 milljónum króna og hækkuðu um tæp tíu prósent á milli ára. Viðskipti innlent 30.3.2006 11:51
Krónan styrktist Gengi krónunnar hækkaði nokkuð eftir 0,75 prósenta stýrivaxtahækkun Seðlabankans í morgun. Gengið hækkaði um rúmt prósent skömmu eftir hækkun bankans en hefur sveiflast nokkuð og styrktist um rúm 1,8 prósent þegar mest lét. Viðskipti innlent 30.3.2006 11:40
Aðeins minni síldarkvóti í ár Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að hlutdeild íslenskra skipa í veiðum á norsk-íslensku síldinni verði 154 þús. tonn í ár. Það er lítil breyting frá árinu 2005, eða lækkun um 2,5 prósent. Til samanburðar var kvótinn árið 2004 128 þús. tonn. Viðskipti innlent 30.3.2006 11:18
Hætti við yfirtökutilboð í LSE Bandaríski verðbréfamarkaðurinn Nasdaq hætti í dag við 2,4 milljarða punda yfirtökutilboð sitt í kauphöll Lundúna, London Stock Exchange (LSE), án nokkurra útskýringa. Ákvörðun Nasdaq að hætta við tilboðið, sem hljóðaði upp á 950 pens á hlut, varð til þess að gengi bréfa í LSE lækkaði um 8,7 prósent í dag. Viðskipti erlent 30.3.2006 10:53
Nýtt met í norsku kauphöllinni Met var slegið í kauphöllinni í Ósló í Noregi í dag þegar vísitalan fór í fyrsta sinn yfir 400 stig. Vísitalan hækkaði um 1,1 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins, sem er hækkun um 4,37 punkta, og endaði hún í 400,03 stigum. Ástæða hækkunarinnar liggur í hærra gengi Statoil og Norsk Hydro, fjarskiptafyrirtækisins Telenor og DnB NOR, sem er stærsti banki Noregs. Viðskipti erlent 30.3.2006 10:21
Hátt lokagengi í Japan Gengi hlutabréfa hækkaði í kauphöllinni í Japan í dag. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan hækkaði um 106,93 punkta, 0,63 prósent, og endaði í 17.045,34 stigum, sem er hæsta lokagildi vísitölunnar í fimm og hálft ár. Viðskipti erlent 30.3.2006 09:58
Ný tónlistarhátíð - Rite of Spring Ný tónlistarhátíð, Rite of Spring, verður haldin á NASA síðustu helgina í apríl. Vefsíða hátíðarinnar hefur nú opnað á www.riteofspring.is. Mr. Destiny hefur allan veg og vanda af skipulagningu hátíðarinnar en fyrirtækið skipuleggur einnig Icelandic Airwaves, stærstu tónlistarhátíð Íslands. Lífið 30.3.2006 09:45
Stýrivextir hækkaðir um 75 punkta Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 75 punkta frá og með 4. apríl. Eftir hækkun verða stýrivextir bankans 11,5 prósent. Aðrir vextir bankans verða einnig hækkaðir um 0,75 prósentustig frá 1. apríl. Innlent 30.3.2006 09:03
Varnarmál rædd í sumarskóla Háskóla Íslands Áhrif breytinga í varnarmálum á Ísland og önnur smáríki í Evrópu er meðal þess sem rætt verður í sumarskóla Smáríkjaseturs Háskóla Íslands, sem hefur nú hlotið styrk frá Evrópusambandinu. Nokkrir helstu fræðimenn á sviði Evrópufræða og smáríkjarannsókna miðla þar þekkingu sinni til íslenskra og erlendra nema. Innlent 30.3.2006 00:04
Mikið um sinuelda af mannavöldum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fjórum sinnum í kvöld vegna sinuelda sem kviknað höfðu af manna völdum. Sinueldarnir, sem kveiktir voru í Hafnarfirði og Breiðholti, voru allir smáeldar sem greiðlega gekk að slökkva. Innlent 29.3.2006 22:56
Eldur á veitingastaðnum Strikinu Slökkvilið Akureyrar var kallað út á níunda tímanum í kvöld vegna reyks sem lagði úr vegg í eldhúsi veitingastaðarins Strikið á Akureyri. Veitingastaðurinn var rýmdur sökum þessa en ekki reynist vera um mikinn eld að ræða og var engum hætta búin. Járnplötur voru rifnar frá veggnum og reyndust vera smávægilegar skemmdir í veggnum þar sem eldurinn hafði kviknað. Innlent 29.3.2006 22:49
Munur á ævilengd karla og kvenna minnkar enn Munur á ævilengd karla og kvenna hér á landi minnkar enn. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni. Þá er Ísland með lægstu tíðni yfir ungbarnadauða í heiminum. Innlent 29.3.2006 22:33
Óánægja með frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur ekki samþykkt frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra um Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Óánægja er innan flokksins með hvernig staðið var að kynningu frumvarpsins en málið var rætt á þingflokksfundi nú undir kvöldið. Innlent 29.3.2006 22:20
Mómælendur ekki á því að gefast upp í París Brotnar rúður og málningarslettur úti um allt, voru það sem blasti við íbúum Parísar þegar þeir héldu til vinnu í morgun. Nærri fimm hundruð manns voru handteknir í miklum mótmælum í höfuðborginni í gær. Erlent 29.3.2006 22:17
Mikill áhugi fyrir listdansi hér á landi Það vantar ekki listdansáhugann hjá nemendum Stúdentadansflokksins sem samhliða dansnáminu stunda allir krefjandi háskólanám. Stúdentadansflokkurinn var stofnaður formlega 1. febrúar síðastliðinn en það er Margrét Anna Einarsdóttir sem á veg og vanda að stofnun hans. Innlent 29.3.2006 22:09
Aflaheimildir af norsk-íslenskri síld hækka um 35,22% Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að hækka aflaheimildir af norsk-íslenskri síld um 35,22 prósent á þessu ári. Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir að í ljósi þess að ekkert bendi til þess að Norðmenn muni endurskoða ákvörðun sína um aflaheimildir í norsk-íslenskri síld árið 2006 hafi þessi ákvörðun verið tekin. Innlent 29.3.2006 20:21
Gögn styðja ekki Vilhjálm segir Ríkisendurskoðun Ríkisendurskoðun telur sig hafa fengið óyggjandi upplýsingar og gögn sem hreki fullyrðingar Vilhjálms Bjarnasonar um að þýski bankinn Hauck og Afhauser hafi ekki getað átt hlut í Búnaðarbankanum í gegnum Eglu. Innlent 29.3.2006 18:50
Landsbjörg í gæslueftirlit Landhelgisgæslan á í viðræðum við björgunarsveitir landsins um þátttöku þeirra í eftirliti á íslensku hafsvæði. Aðmíráll bandarísku strandgæslunnar hafði óvænt viðdvöl hér á landi í gær og ræddi við forstjóra gæslunnar um samstarf. Innlent 29.3.2006 18:45
Annað setuverkfall í næstu viku Einungis grunnþörfum heimilisfólks var sinnt á átta dvalarheimilum aldraðra í dag vegna setuverkfalls ófaglærðra starfsmanna. Annað setuverkfall hefur verið boðað í næstu viku sem standa á í tvo sólarhringa. Innlent 29.3.2006 18:36
Níu ökumenn teknir fyrir hraðakstur Umferðarmál voru stærsti málaflokkur liðinnar viku hjá lögreglunni á Hvolsvelli líkt og endranær. Níu ökumenn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs og tilkynnt var um tvær bílveltur. Ökumenn og farþegar sluppu með minniháttar meiðsl en bílarnir eru mikið skemmdir. Innlent 29.3.2006 18:34
Upplýsingablaða gefið út um Fjarðarbyggð Sveitafélagið Fjarðarbyggð hefur gefið úr sérstakt blað um sveitafélagið í rúmlega 60.000 eintökum. Í blaðinu er sagt frá þeirri uppbyggingu sem á sér stað í sveitafélaginu en í júní í sumar, þegar Mjóafjarðarhreppur, Austurbyggð og Fáskrúðsfjarðarhreppur sameinast undir nafninu Fjarðarbyggð, þá verður sveitafélagið fjölmennasta sveitafélagið á Austurlandi. Innlent 29.3.2006 18:27
Ófært á nokkrum stöðum á landinu Vegagerðin varar við ófærð á nokkrum stöðum á landinu. Ófært er yfir Klettsháls á Vestfjörðum en þar er stórhríð. Þá er komin stórhríð á Steingrímsfjarðarheiði og Eyrarfjalli í Ísafjarðardjúpi. Á Norður- og Austurlandi er víða éljagangur, skafrenningur og hálka en víða er leiðinlegt ferðaveður. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi á Austurlandi. Innlent 29.3.2006 18:19
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald vegna ráns í Mosfellsbæ Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa framið rán, í félagi við tvo aðra, í bensínafgreiðslustöð í Mosfellsbæ síðastliðið sunnudagskvöld. Maðurinn var einn þegar hann réðst til atlögu en hann er grunaður um að hafa numið á brott með sér á milli 50.000 til 60.000 krónur í reiðufé. Það er mat lögreglu að rannsóknarhagsmunir séu það ríkir á þessu stigi málsins og hinn grunaði geti torveldað rannsókn málsins fái hann að ganga laus á meðan á rannsókn stendur. Hinn grunaði skal því sæta gæsluvarðhaldi fram til 3. apríl næstkomandi. Innlent 29.3.2006 17:45
Fallist á stækkun Hellisheiðarvirkjunnar Skipulagsstofnun hefur fallist á fyrirhugaða stækkun Hellisheiðarvirkjunnar með sjö skilyrðum. Úrskurður stofnunarinnar er samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum og má finna í heild sinni á heimasíðu Skipulagsstofnuar; www. skipulag.is. Úrskurðinn má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur fram til 2. maí næstkomandi. Innlent 29.3.2006 17:21
Óskað eftir tilnefningum til jafnréttisverðlauna Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar óskar eftir tilnefningum til jafnréttisverðlauna Reykjavíkurborgar sem veitt verða 1. maí næstkomandi en þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á því sem vel er gert og vera hvatning þeim sem vinna ötullega að jafnréttismálum. Innlent 29.3.2006 17:13
Komum í Kvennaathvarfið fjölgaði á síðasta ári Komum í Kvennaathvarfið fjölgaði á síðasta ári miðað við fyrri ár. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Samtaka um kvennaathvarf fyrir árið 2005. Þar kemur einnig fram að aukningin gefi til kynna að kynbundið ofbeldis sé enn stórt vandamál í samfélaginu og það fari ekki minnkandi. Innlent 29.3.2006 17:10
Gott að búa í Skagafirði Níu af hverjum tíu íbúum í Skagafirði eru ánægðir með að búa í Skagafirðinum. Þetta kemur fram í könnun sem IMG-Gallup vann fyrir sveitafélagið nýverið og var úrtakið 1200 manns. Íbúar eru almennt mjög ánægðir með þjónustu sveitafélagsins líkt og leik-, grunn- og framhaldsskóla. Innlent 29.3.2006 17:00
Nýr sendiherrabústaður opnaður í Berlín Geir H. Haarde utanríkisráðherra opnaði formlega nýjan sendiherrabústað í Berlín í gær. Það eru arkitektarnir Hjördís Sigurgísladóttir og Dennis Davíð Jóhannesson sem teiknuðu húsið en þau hlutu fyrstu verðlaun fyrir tillögu sína í opinni samkeppni árið 2003. Innlent 29.3.2006 16:56