Fréttir
Hestamaður liggur þungt haldinn á gjörgæslu Maður féll af hestbaki í Fljótshlíðinni síðastliðin laugardag og liggur hann enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss, með mikla áverka á hálsi. Að sögn vakthafandi læknis er ástand hans stöðugt en honum er haldið í öndunarvél. Ekki er vitað enn hvort hann hefur beðið varanlegan skaða af fallinu. Innlent 19.4.2006 15:53
Vísitala neysluverðs hækkaði í Bandaríkjunum Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,4 prósent í Bandaríkjunum í marsmánuði en það nemur 3,4 prósenta hækkun á ársgrundvelli. Þetta er meiri hækkun en fjármálasérfræðingar bjuggust við en helsta ástæðan er hækkun á eldsneyti og fatnaði. Þetta er engu að síður lækkun frá febrúarmánuði en þá nam hún 3,6 prósentum á ársgrundvelli. Viðskipti erlent 19.4.2006 15:15
Skeljungur hækkar líka Skeljungur hækkaði fyrir stundu verð á bensíni, dísilolíu og gasolíu um þrjár krónur og þrjátíu aura lítrann. Olíufélagið Esso hækkaði verð hjá sér um það sama í morgun. Innlent 19.4.2006 15:04
Sigur Prodis í kosningunum staðfestur Ítölsk fréttastöð greindi frá því fyrir stundu að æðsti dómstóll á Ítalíu hefði staðfest að Ólívubandalag mið- og vinstri flokka, með Romano Prodi í broddi fylkingar, hefði sigrað í þingkosningum þar í landi í síðustu viku. Fréttastöðin getur ekki heimilda en dómstóllinn sendir ekki frá sér formlega tilkynningu fyrr en eftir klukkan þrjú í dag að íslenskum tíma. Erlent 19.4.2006 14:16
Ekkert lát á flóðum í Rúmeníu Yfirvöld í Rúmeníu hafa þurft að flytja mörg þúsund íbúa frá heimilum sínum í suðurhluta landsins vegna vatnavaxta í Dóná. Ekkert lát virðist ætla að verða á flóðum á svæðinu sem þó benti til að yrði raunin í gær. Erlent 19.4.2006 13:33
Fimmta skrifstofan í Asíu Samskip hafa opnað skrifstofu í Seoul í Suður-Kóreu. Skrifstofan er sú fimmta í röðinni í Asíu, en fyrir eru skrifstofur í Pusan í Suður-Kóreu, Dalian og Qingdao í Kína og Ho Chi Minh í Víetnam. Skrifstofur Samskipa eru þá orðnar 56 í 22 löndum. Viðskipti innlent 19.4.2006 13:44
2 handteknir til viðbótar - 2 kæra gæsluvarðhaldsúrskurð Tveir Íslendingar voru handteknir í gær í tengslum við stóra fíkniefnasmyglið sem komst upp í byrjun apríl. Tveir þeirra sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald um helgina hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Innlent 19.4.2006 13:41
Enn lækkun í Kauphöllinni og á krónunni Hlutabréfaverð í Kauphöllinni hélt áfram að lækka í morgun og hið sama á við um gengi íslensku krónunnar, sem hefur lækkað um tæplega tvö prósent það sem af er degi. Gengi Bandaríkjadals er nú 77 krónur og 54 aurar, ef miðað er við miðgengi Seðlabankans. Evran er kostar nú tæpar 96 íslenskar krónur samkvæmt sama viðmiði. Innlent 19.4.2006 15:08
Útilokar ekki notkun kjarnorkuvopna Bush Bandaríkjaforseti vildi í gær ekki útiloka að kjarnorkuvopnum yrði beitt gegn Írönum. Hann sagði alla möguleika uppi á borðinu í kjarnorkudeilunni við stjórnvöld í Teheran. Utanríkisráðherra Rússa hvatti í dag Írana til að hætta auðgun úrans, alþjóðasamfélagið krefðist þess. Erlent 19.4.2006 13:08
Íslamskir öfgamenn farið um Balkanskagann í 15 ár Íslamskir öfgamenn, með tengsl við Al-Qaeda hryðjuverkasamtökin, hafa ferðast fram og aftur yfir Balkanskagann í meira en fimmtán ár. Þessu er haldið fram í nýrri skýrslu um grunaða íslamska hryðjuverkamenn í Bosníu. Erlent 19.4.2006 12:59
Saddam fyrirskipaði fjöldamorð Saddam Hússein, fyrrverandi forseti Íraks, undirritaði skjöl þar sem fyrirskipuð voru morð á 148 sjía-múslimum árið 1982. Gögn þess efnis frá rithandarsérfræðingum voru lögð fyrir dóm í Írak í morgun. Erlent 19.4.2006 12:55
6.000 farþegar með Flugfélagi Íslands Um sex þúsund farþegar ferðuðust með Flugfélagi Íslands um Páskana. Flugbókanir fara rólega af stað eftir Páskana en nokkur áhugi er fyrir ferðum til Grænlands. Innlent 19.4.2006 11:49
Alþjóðlegir hestadagar í Skagafirði Alþjóðlegir hestadagar í Skagafirði hefjast á morgun sumardaginn fyrsta með reiðkennslusýningu Hólaskóla. Þessi hátíð er haldin ár hvert og dregur að sér mikið af áhorfendum innlendum sem erlendum. Boðið verður uppá fræðsluerindi, kynbótasýningar, töltkeppni og svo er markaðsdagur í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Hestadagarnir standa yfir dagana 20 – 23 apríl. Innlent 19.4.2006 11:46
Olíuverð lækkaði lítillega Olíuverð lækkaði lítillega á helstu mörkuðum í dag eftir að hafa farið í sögulegt hámark í gær. Búist er við að upplýsingar bandarískra stjórnvalda, sem birtar verða í dag, sýni að olíubirgðir hafi aukist í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 19.4.2006 10:47
Gísli verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokks Gísli S. Einarsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, í bæjarstjórnarkosningum á Akranesi í vor. Innlent 19.4.2006 10:43
Atvinnuleysið 2,4 prósent á 1. ársfjórðungi Atvinnuleysi mældist 2,4 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2006. Það táknar að 4.000 manns hafi verið án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuleysi mældist 2,2 prósent hjá körlum en 2,5 prósent hjá konum. Atvinnuleysi er mest á meðal fólks á aldrinum 16 til 24 ára eða 7,7 prósent. Viðskipti innlent 19.4.2006 09:52
Hlutabréf hækkuðu í Japan Gengi hlutabréfa í kauphöllinni í Tókýó í Japan hækkuðu annan daginn í röð í dag m.a. vegna þess að fjárfestar telja stýrivaxtahækkun í Bandaríkjunum lokið í bili auk þess sem spáð er góðri afkomu tæknifyrirtækja. Viðskipti erlent 19.4.2006 09:31
Pyntaður til að bendla aðra við árásir Indónesískur öfgamaður, sem bíður aftöku fyrir aðild sína að hryðjuverkaárásunum á Balí 2002, segir að hann hafi verið pyntaður til að bendla Abu Bakar Bashir, andlegan leiðtoga íslömsku öfgasamtakanna Jemaah Islamia, við árásirnar. Erlent 19.4.2006 08:06
Gætu neyðst til að loka herstöð Bakiyev, forseti Kirgistan, segir að svo geti farið að stjórnvöld þar í landi neyðist til að loka herstöð Bandaríkjamanna þar ef stjórnvöld í Washington vilji ekki semja á ný um leigugreiðslur fyrir það landstæði sem stöðin stendur á. Erlent 19.4.2006 08:03
Mótmælendur fylgja Kínaforseta hvert fótmál Fjögurra daga opinber heimsókn Hu Jintaos, forseta Kína, til Bandaríkjanna hófst í gær. Forsetinn snæddi þá kvöldverð með stofnanda Microsoft. Í dag mun hann svo funda með Bandaríkjaforseta. Mótmælendur fylgja Kínaforseta hvert fótmál. Erlent 19.4.2006 07:43
Sláturhús Hellu hf. kaupir 50% hlut í Betra landi ehf. Sláturhús Hellu hf. hefur keypt 50% hlut í Betra landi ehf. en gengið var frá kaupsamningu um Páskana. Fyrirtækin höfðu áður þróað með sér samstarf sem leiddi til þess að Sláturhúsið Hellu hf. ákvað að gerast hluthafi að Betra landi ehf. Innlent 19.4.2006 07:12
Greiðfært á Suður- og Vesturlandi Greiðfært er á þjóðvegum á Suður- og Vesturlandi. Hálkublettir eru víða á Vestfjörðum og snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði. Þá eru einnig hálkublettir víða á Norðurlandi og snjóþekja á Öxnadalsheiði og Lágheiði. Hálka er víða á Austurlandi. Innlent 19.4.2006 08:14
Al-Qaida á ferð um Balkanskaga Íslamskir öfgamenn, með tengsl við Al-Qaida, hafa ferðast fram og aftur yfir Balkanskagann í meira en fimmtán ár. Þessu er haldið fram í nýrri skýrslu um grunaða íslamska hryðjuverkamenn í Bosníu. Erlent 19.4.2006 06:48
Kona nýr forsætisráðherra Suður-Kóreu Þing Suður Kóreu valdi í morgun í fyrsta sinn konu í embætti forsætisráðherra landsins. Han Myeong-sook hlaut 182 atkvæði af 259 en Roh Moo-hyun, forseti Suður Kóreu, útnefndi hana í embættið. Erlent 19.4.2006 06:37
Forseti Kína í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna Fjögurra daga opinber heimsókn Hu Jintaos, forseta Kína, til Bandaríkjanna hófst í gær. Forsetinn átti meðal annars fund með Bill Gates, stofnanda Microsoft, og snæddi síðan með honum kvöldverð. Erlent 19.4.2006 06:35
Lækka leikskólagjöld um 20% Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað í gær að lækka leikskólagjöld í leikskólum bæjarins um 20 prósent. Lækkunin tekur gildi 1. maí næstkomandi. Innlent 19.4.2006 06:33
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn tapa fylgi á Akureyri Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar á Akureyri er fallinn samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir NFS. Sjálfstæðismenn halda sínu fylgi, mælast með 36,5% fylgi, en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar rúmum þriðjungi af fylgi sínu. Innlent 19.4.2006 06:50
Lundinn kominn til Eyja Lundinn er kominn til Vestmannaeyja en fjórum dögum seinna en í fyrra. Fréttavefurinn Suðurland.is greinir frá því að sést hafi til lunda í Heimaey síðdegis í gær. Stífar norðanáttir og hár loftþrýstingur tafði lundann á för sinni en hann kemur yfirleitt til Eyja á milli tíunda og tuttugasta apríl hvert ár. Innlent 19.4.2006 06:10
Bíti á jaxlinn, bölvi í hljóði og beiti oddinum fast Guðni Ágústsson, varafomaður Framsóknarflokksins, segir skoðanakannanir sýna grafalvarlega stöðu flokksins, en nú síðast í kvöld sýndi skoðanakönnun á Akureyri að flokkurinn myndi tapa tveimur af þremur bæjarfulltrúum sínum þar ef kosið yrði nú. Hann hvetur framsóknarmenn til að bíta á jaxlinn, bölva í hljóði og beita oddinum fast næstu vikur. Innlent 18.4.2006 22:45
Leikskólagjöld lækkuð í Hafnarfirði Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað í dag að lækka leikskólagjöld í leikskólum bæjarins um um það bil 20 prósent. Lækkunin tekur gildi frá 1. maí næstkomandi. Fram kemur í tilkynningu frá bænum að dvalarkostnaður fyrir hvert barn á almennum gjöldum lækki um ríflega 70 þúsund krónur miðað við 11 mánuði ári. Innlent 18.4.2006 22:09