Fréttir
Vöruskiptahalli ekki meiri í einum mánuði í 17 ár Vöruskiptahallinn við útlönd í síðasta mánuði var 13,4 milljarðar króna og hefur ekki verið meiri í einum mánuði síðastliðin sautján ár. Jöfnuðurinn 16,7 milljörðum króna lakari á fyrsta ársfjórðungi þess árs en á sama tíma í fyrra. Bílainnflutningur jókst um nærri tvo þriðju á tímabilinu en búast má við að hann dragist saman á næstunni vegna lækkunar á gengi krónunnar. Innlent 28.4.2006 12:13
Systir fyrrverandi forseta Kólumbíu ráðin af dögum Systir fyrrverandi forseta Kólumbíu, Cesar Gaviria, var í gær drepin af óþekktum glæpamönnum. Atvikið átti sér stað í um 180 kílómetra fjarlægð frá Bogota höfuðborg landsins. Liliana Gaviria, sem var 52 ára fasteignasali, var á ferð með tveimur lífvörðum sínum þegar ráðist var á þau en annar lífvörður hennar féll einnig í árásinni. Erlent 28.4.2006 09:02
Sex stéttarfélög semja við LN Sex stéttarfélög samþykktu í vikunni nýgerða kjarasamninga við Launanefnd sveitarfélaga. Félögin eru svokölluð HugGarðsfélög en Félag íslenskra félagsvísindamanna, Félag íslenskra fræða og Stéttarfélag lögfræðinga samþykktu samninginn með öllum greiddum atkvæðum. Innlent 28.4.2006 08:59
Kennslusýning Hólaskóla Reiðkennarabraut Hólaskóla, í samvinnu við hestamannafélagið Fák, stendur fyrir kennslusýningu í reiðhöllinni í Víðidal helgina 6.-7. maí. Nemendur og kennarar skólans bjóða upp á spennandi dagskrá varðandi reiðmennsku og þjálfun frá morgni til kvölds báða dagana. Nánar auglýst síðar. Sport 28.4.2006 10:04
Fimmti maðurinn í gæsluvarðhald vegna BMW-smygls Fimmti maðurinn hefur verið úrskurðaður í gærluvarðhald vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnasmygli, þar sem reynt var að smygla tugum kílóa af fíkniefnum í bensíngeymi BMW-bifreiðar. Sá fimmti var Íslendingur, en auk fjögurra Íslendinga situr einn Hollendingur í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar. Innlent 28.4.2006 08:57
Skotveiðimenn bjartsýnni á gæsaveiðar í haust en áður Skotveiðimenn eru bjartsýnni með hverjum deginum sem líður á að hægt verði að stunda gæsaveiðar í haust, en eftir að fuglaflensu varð vart á Bretlandseyjum fyrir nokkru var talið víst að hún bærist hingað með farfuglum í vor. Innlent 28.4.2006 09:06
Vöruskiptin óhagstæð um 13,4 milljarða Vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 13,4 milljarða króna í mars. Vörur voru fluttar út fyrir 19,9 milljarða króna en inn fyrir 33,3 milljarða króna. Í mars í fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður um 6,3 milljarða á föstu gengi. Viðskipti innlent 28.4.2006 09:37
Bandaríkjastjórn bindi enda á þjóðarmorð Bandarískir kvikmyndaleikarinn George Clooney krafðist þess á blaðamannafundi í gær að ríkisstjórn Bandaríkjanna gerði allt sem hún gæti til að binda endi á þjóðarmorðin í Darfur-héraði í Súdan. Þá sagði Clooney almenning einnig geta lagt sitt af mörkum. Erlent 28.4.2006 08:50
Frakka íhuga að auka umsvif sín á N-Atlantshafi Frakkar íhuga að auka umsvif sín á Norður-Atlantshafi til að tryggja öryggi á svæðinu. Þetta segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í viðtali við Morgunblaðið eftir viðræður við varnarmálaráðherra Frakklands í París í gær. Innlent 28.4.2006 08:47
Öryggisráð verði að vera tilbúið til aðgerða Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Búlgaríu í gær að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði að vera reiðubúið að grípa til aðgerða gegn Íran ef stjórnvöld í Teheran yrðu ekki við kröfum aðþjóðasamfélagsins í tengslum við kjarnorkuáætlanir sínar. Erlent 28.4.2006 08:41
Setuverkfall á a.mk. sex dvalarheimilum Setuverkfall ófaglærðra starfsmanna á að minnstakosti sex dvalar- og hjúkrunarheimilum á suðvesturlandi hófst á miðnætti vegna óánægju starfólks þar yfir því að fá laun sín ekki hækkuð til jafns við laun annarsstaðar fyrir sambærilega vinnu, fyrr en í upphafi næsta árs. Innlent 28.4.2006 08:33
Lögreglumaður skotinn í Cleveland Maður var skotinn til bana á flugvelli í Cleveland í Bandaríkjunum í gær. Maðurinn náði byssu eins lögreglumanns þegar til átaka koma á milli hans og tveggja lögregluþjóna og skaut annan þeirra tvisvar sinnum í brjóstið. Þá kom þriðji lögreglumaðurinn og skaut manninn til bana. Erlent 28.4.2006 08:30
Ákærð fyrir að hafa orðið nýfæddum börnum sínum að bana Réttarhöld hófust í Frankfurt í Þýskalandi í dag yfir konu sem er grunuð um að hafa orðið átta nýfæddum börnum sínum að bana. Líkamsleifar ungbarnanna fundust síðasta sumar. Málið hefur vakið mikinn óhug í Þýskalandi og er þess krafist að barnaverndarlög verði hert. Erlent 27.4.2006 22:40
Hlutabréf í KB banka og Straumi Burðarási lækkuðu Hlutabréf í KB banka og Straumi Burðarási lækkuðu í Kauphöllinni í dag. Uppgjör félaganna voru kynnt í morgun en þá varð ljóst að þau slógu öll fyrri hagnaðarmet á fyrstu þremur mánuðum ársins. Innlent 27.4.2006 22:56
Setuverkfall á miðnætti Setuverkfall ófaglærðra starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum hefst á miðnætti. Á fundi starfsmannanna í dag var ákveðið að boða til viku setuverkfalls. Þeir eru ósáttir við ákvarðanir forsvarsmanna heimilanna um að hækka laun einhliða og talsmaður starfsmanna býst við fjöldauppsögnum á næstunni. Innlent 27.4.2006 22:44
Öryggisráðið þarf að grípa til aðgerða Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir ólíklegt að Íranar hætti auðgun úrans. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þurfi því að grípa til aðgerða til að viðhalda trúverðugleika sínum. Erlent 27.4.2006 22:29
Undirbúningur álvers í fullum gangi Undirbúningur að byggingu álvers í Helguvík er í fullum gangi, segir einn æðsti yfirmaður Norðuráls á Íslandi. Reykjaneshöfn og Norðurál sömdu í dag um hafnarþjónustu og leigu landspildu undir álver. Innlent 27.4.2006 21:54
Kjarasamningar sex félaga samþykktir Sex stéttarfélög samþykktu í vikunni nýgerða kjarasamninga við Launanefnd sveitarfélaga. Félögin eru svo kölluð HugGarðsfélög. Innlent 27.4.2006 21:17
Óttast að laun verkafólks lækki Laun verkafólks geta versnað til muna ef lagafrumvarp um frjálsa för austur-evrópskra launamanna verður að lögum segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. Alþingi tekur frumvarpið fyrir á morgun. Innlent 27.4.2006 20:27
Maóistar lýsa yfir vopnahléi Skæruliðar maóista í Nepal lýstu í dag yfir vopnahléi í baráttu sinni við stjórnarherinn. Erlent 27.4.2006 18:16
Hækka verð á ferðum vegna gengislækkana Ljóst er að ferðir margra Íslendinga til útlanda í sumar verða ekki til fjár, því stærstu ferðaskrifstofurnar hafa hækkað verð á öllum ferðum sínum vegna breytinga á gengi íslensku krónunnar. Hækkun á sólarlandaferð fyrir meðalfjölskyldu nemur um 25 þúsund krónum. Innlent 27.4.2006 18:54
Stjórnarsáttmáli í höfn Ný ríkisstjórn í Ísrael er handan við hornið eftir að Kadima-flokkurinn og Verkamannaflokkurinn náðu samkomulagi um stjórnarsamstarf. Flokkarnir hafa ekki hreinan meirihluta og þurfa því að reiða sig á stuðning nokkurra smáflokka. Erlent 27.4.2006 18:11
Boða setuverkfall og fjöldauppsagnir Ófaglærðir starfsmenn á dvalar- og hjúkrunarheimilum ákváðu, á fundi sínum í dag, að boða til viku setuverkfalls sem hefst nú á miðnætti. Þeir eru ósáttir við ákvarðanir forsvarsmanna heimilanna um að hækka laun einhliða og talsmaður starfsmanna býst við fjöldauppsögnum á næstunni. Innlent 27.4.2006 18:47
Ráðherrar í ólgusjó Framhjáhöld og embættisafglöp eru á meðal þess sem þrír ráðherrar í ríkisstjórn Tony Blairs þurfa að svara fyrir þessa dagana. Hneykslið kemur sér verulega illa fyrir Verkamannaflokkinn, því sveitarstjórnakosningar eru á næsta leyti í Bretlandi. Erlent 27.4.2006 18:08
Ávinna sér rétt sem jafngildir 90 milljónum króna í starfslokagreiðslu Ráðherra sem situr í 12 ár á stóli ávinnur sér lífeyrisrétt sem jafngildir 90 milljónum króna í starfslokagreiðslu umfram það sem almennur iðgjaldagreiðandi fær. Þetta sýna útreikningar Samtaka atvinnulífsins. Alþýðusamband Íslands segir þetta ólíðandi og mótmælir nýju frumvarpi til laga um kjararáð þar sem ráðið eigi ekki að fjalla um lífeyrisréttindin. Innlent 27.4.2006 18:50
Þriðji mesti gróði vegna eignasölu Landsbankinn seldi hlut sinn í norræna fjárfestingabankanum Carnegie í morgun og græddi á því tíu milljarða króna. Landsbankamenn segja gróðann jafnast á við tvær og hálfa loðnuvertíð. Innlent 27.4.2006 18:23
Norðurál leigir lóð undir álver Norðurál gekk í dag frá samningi við Reykjaneshöfn um lóð og hafnarþjónustu vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Reykjaneshöfn, sem er í eigu Reykjanesbæjar, sér Norðuráli fyrir hafnaraðstöðu í Helguvík og verður nýr 200 metra viðlegukantur gerður í höfninni. Innlent 27.4.2006 18:13
Aftur í setuverkfall Ófaglærðir starfsmenn hjúkrunarheimila fara í setuverkfall í kvöld til að knýja á um kjarabætur. Starfsmennirnir hafa tvisvar sinnum áður farið í setuverkfall en frestuðu aðgerðum í þriðja sinn meðan þeir biðu eftir boði um betri kjör. Þeim þótti boðið sem barst óásættanlegt og hefja því aðgerðir á ný. Innlent 27.4.2006 17:06
Ekkert gefið upp Ekkert er gefið upp um gang viðræðna Bandaríkjamanna og Íslendinga um varnarsamninginn sem framhaldið var í utanríkisráðuneytinu í dag en þeim verður haldið áfram fljótlega. Utanríkismálaráðherra gerir utanríkismálanefnd Alþingis grein fyrir viðræðunum á laugardag. Innlent 27.4.2006 16:44
Uppgjör Bakkavarar í takt við væntingar Hagnaður Bakkavarar Group nam 715 milljónum króna á fyrsta fjórðungi ársins en hagnaður fyrir skatta nam 985 milljónum króna. Heildartekjur námu 31,8 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður Bakkavarar Group nam 2,3 milljörðum króna en það er 159 prósenta aukning. Hagnaður fyrir skatta og fjármagnsliði nam 3,4 milljörðum króna en það er aukning um 236 prósentur frá sama tíma á síðasta ári. Viðskipti innlent 27.4.2006 16:51