Fréttir
Landssíminn dæmdur í Héraðsdómi Landssíminn var í Héraðsdómi í dag dæmdur til að greiða fyrirtækinu Gullveri rúma milljón króna fyrir afnot af lóð undir fjarskiptamastur í tæp þrjú ár. Lóðin hefur verið í eigu Gullvers síðan maí árið 2001 þegar fyrirtækið keypti hana af ríkinu. Innlent 13.10.2005 19:25
Tveir teknir fyrir hraðakstur Lögreglan í Reykjavík stöðvaði tvo ökumenn í nótt eftir að þeir höfðu mælst á meira en tvöföldum leyfilegum hámarkshraða, Annar mældist á 124 kílómetra hraða og hinn á 132 km hraða þar sem hámarkshraði er í báðum tilvikum 60 kílómetrar. Innlent 13.10.2005 19:25
Bílvelta í Norðurárdal Ökumaður bíls slasaðist, en þó ekki lífshættulega, þegar bíll hans valt út af þjóðveginum í Norðurárdal í gærkvöldi. Tildrög voru þau að hann hafði misst bílinn út af malbikinu öðru megin og sveigði hann langt inn á veginn aftur, en þá kom bíll á móti þannig að hann sveigði aftur út af til þess að koma í veg fyrir árekstur. Við það valt bíllinn. Innlent 13.10.2005 19:25
Síminn skylt að greiða leigu Landssíma Íslands var í gær gert að greiða fyrirtækinu Gullveri frá Stykkishólmi rúma eina milljón króna ásamt dráttarvöxtum sem leigu vegna fjarskiptamasturs fyrirtækisins á lóð Gullvers. Innlent 13.10.2005 19:25
Schröder ræðir við Bush Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, er kominn til Washington til að ræða við George Bush Bandaríkjaforseta um að Þýskaland fái fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Fundurinn fer fram í dag en Bandaríkjamenn hafa til þessa hafnað áætlunum Þjóðverja, Japana, Brasilíumanna og Indverja um fast sæti í öryggisráðinu. Erlent 13.10.2005 19:25
Málssókn undirbúin af krafti Unnið er hörðum höndum að því að undirbúa málssókn nokkurra manna, sem eiga og reka fasteigasölur, á hendur ríkinu, að sögn Halldórs Backmans héraðsdómslögmanns. Innlent 13.10.2005 19:25
Samkynhneigðir ganga í Jerúsalem Gay Pride-gangan verður farin í Jerúsalem þrátt fyrir að borgarstjórinn þar hafi bannað hana. Erlent 13.10.2005 19:25
Ekkert óeðlilegt við umfjöllunina Fyrrverandi fulltrúa í siðanefnd Blaðamannafélags Íslands finnst að blaðamennska sem er stunduð á tímaritinu <em>Hér og nú</em> ætti ekki að líðast hér á landi. Eiríkur Jónsson, blaðamaður á Hér og nú, segir ekkert óeðlilegt við umfjöllun blaðsins um Bubba Morthens og fjölskyldu hans. Innlent 13.10.2005 19:25
Regnbogabörn fordæma fjölmiðla Samtökin Regnbogabörn fordæma þá fjölmiðla sem hafa það að markmiði sínu að meiða æru þjóðþekktra einstaklinga í landinu og telja að það komi engum að gagni og allir tapi. Yfirlýsingin kemur í kjölfar viðtals við Bubba Morthens í fréttum Stöðvar 2 í gær. Innlent 13.10.2005 19:25
Allir nýnemar fá skólavist Allir nýir umsækjendur um vist í framhaldsskólum landsins fá skólavist, þrátt fyrir að aldrei hafi jafnhátt hlutfall árgangs nýnema sótt um. Í fyrra beið fjöldi nýnema í óvissu svo vikum skipti. Nýtt innritunarkerfi er helsta ástæða þess að þetta endurtók sig ekki. Innlent 13.10.2005 19:25
Samtal eða viðtal? Ásgerður Guðmundsdóttir, sem DV og tímaritið Hér og nú, kalla sviknu eiginkonuna í umfjöllun um skilnaðarmál Bubba Morthens, segist aldrei hafa veitt blöðunum viðtal. Þvert á móti segist hún hafa beðist undan umfjöllun um sig til að vernda börnin sín. Innlent 13.10.2005 19:25
Níutíu menntaskólanemar í haldi Ekkert hefur heyrst frá tæplega hundrað menntaskólanemum í Nepal síðan þeim var rænt af byltingarsinnum fyrir fimm dögum. Erlent 13.10.2005 19:25
Óttast tekjumissi fyrir norðan Íbúar Raufarhafnar og sérstaklega Siglufjarðar hafa áhyggjur af tekjumissi ef ekkert verður úr sumarloðnuveiðum eins og útlit er fyrir. Leiðangur nokkura loðnuskipa og hafrannsóknaskips í leit að loðnu að undanförnu bar engan árangur, m.a. vegna hafíss á leitarsvæðinu, en enginn kvóti verður gefinn út án þess að eitthvað finnist. Innlent 13.10.2005 19:25
Flugskeyti skotið að herþyrlu? Tveir bandarískir hermenn féllu þegar bandarísk herþyrla brotlenti norður af Baghdad, höfuðborg Íraks í morgun. Vitni segja að flugskeyti hafi verið skotið að vélinni, en það hefur ekki fengist staðfest. Tvímenningarnir voru einir um borð í vélinni.</font /> Erlent 13.10.2005 19:25
Fólk vill nóg pláss Samhliða háu fasteignaverði í Reykjavík hefur orðið miki hækkun á jörðum í kring um borgina. Magnús Leópoldsson, fasteignasali telur jafnvel jarðaverð hafi hækkað meira en almennt fasteignaverð, en erfitt sé að draga heildstæðar ályktanir af verði á jörðum því þar spili margt inn í og þurfi að meta hvert tilfelli fyrir sig. Innlent 13.10.2005 19:25
75 ára afmæli SUS á Þingvöllum Geir H. Haarde, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, ætlar í dag að ávarpa hátíðarstjórnarfund SUS sem haldinn verður á Þingvöllum. Tilefni fundarins er sjötíu og fimm ára afmæli SUS en sambandið var stofnað í Hvannagjá á Þingvöllum 27. júlí árið 1930. Innlent 13.10.2005 19:25
Hefja plútóníumframleiðslu á ný Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa gefið grænt ljós á plútóníumframleiðslu í fyrsta sinn síðan kalda stríðinu lauk. Dagblaðið <em>New York Times</em> greinir frá því að fyrir dyrum standi að framleiða um hundrað og fimmtíu kíló ef efninu á næstu þrjátíu árum. Erlent 13.10.2005 19:25
Vill mislæg gatnamót á Miklubraut Forvarnarfulltrúi Sjóvár segir beygjuljós á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar ekki hafa skilað því sem vonast var til. Hann hefur ekki trú á að þær framkvæmdir sem nú eru hafnar bæti öryggið mikið og vill mislæg gatnamót. Innlent 13.10.2005 19:25
Herþyrla brotlenti nærri Bagdad Bandarísk herþyrla brotlenti norður af Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Aðeins tveir voru um borð í þyrlunni en ekki er enn vitað um afdrif þeirra. Erlent 13.10.2005 19:25
Breytt stefna í innflytjendamálum Hægriflokkurinn Venstre í Danmörku hefur breytt stefnu sinni í innflytjendamálum dálítið. Hann vill ekki fleiri flóttamenn en vill hins vegar að duglegu, vel menntuðu fólki verði gert kleift að koma til landsins. Erlent 13.10.2005 19:25
Milljarðar í fangelsisbyggingar Fangelsi fyrir rúma þrjá milljarða króna eru að rísa í Írak. Bandaríkjamenn fjármagna gerð fangelsanna sem ætlað er að hýsa þær þúsundir uppreisnarmanna sem búið er að handtaka í landinu. Erlent 13.10.2005 19:25
Flug til New York í allan vetur Icelandair mun fljúga til New York í áætlunarflugi í allan vetur en undanfarin tvö ár hefur félagið gert hlé á flugi sínu í nokkrar vikur yfir háveturinn. Icelandair mun hins vegar ekki bjóða upp á flug til og frá Minneapolis í um tvo mánuði í vetur, á tímabilinu frá 9. janúar til 13. mars 2006. Innlent 13.10.2005 19:25
Forsetinn viðurkennir mistök Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, viðurkenndi í dag að hún hefði gert mistök með því að hringja í kjörstjórnarmeðlim fyrir forsetakosningarnar og segjast óska þess að hún ynni með milljón atkvæða mun. Hún ætlar samt ekki að segja af sér. Erlent 13.10.2005 19:25
9 1/2 tíma seinkun á flugi Um níu og hálfs klukkutíma seinkun verður á flugvél Icelandair frá Boston sem átti að lenda á Keflavíkurflugvelli klukkan hálfsjö í morgun. Rót seinkunarinnar liggur í bilun sem varð á laugardagskvöldið í vél sem var á leiðinni til Boston frá Reykjavík. Innlent 13.10.2005 19:25
Fangelsum fjölgað í Írak Bandaríkjamenn áforma að byggja ný fangelsi í Írak og stækka þau sem fyrir eru þannig að halda megi allt að 16.000 manns í einu. Erlent 13.10.2005 19:25
Yfir 50 tonn af eiturlyfjum brennd Lögreglan í Íran brenndi yfir fimmtíu tonn af eiturlyfjum í gær á degi sem Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst sem alþjóðlegan dag gegn eiturlyfjum. Aðallega var um að ræða heróín og ópíum en þó er ekki nákvæmlega vitað hvernig lögreglunni tókst að komast yfir svo mikið af efnum. Erlent 13.10.2005 19:25
Sjónvarpið í farsímann Farsímaeigendum í Kína gefst nú kostur á að horfa á sjónvarpsþátt sem er gerður fyrir farsíma. Þátturinn heitir Stefnumót og fjallar um tvo mótorhjólakappa sem reyna að vinna hylli sömu konunnar. Hver þáttur er fimm mínútur á lengd og er hægt að horfa á hann í sérstökum farsímum gegn vægu gjaldi. Erlent 13.10.2005 19:25
Gunnar vill óperuna í Kópavoginn Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, vill reisa óperuhús fyrir íslensku óperuna á ónotaðri lóð sunnan við Gerðarsafn í miðbæ Kópavogs. Þegar hafa verið unnar frumteikningar að óperuhúsi sem Gunnar telur að gæti kostað 1,5 til tvo milljarða króna. Innlent 13.10.2005 19:25
Sjómaður skarst í andliti Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Höfn í Hornafirði var kallað út klukkan hálffimm í nótt til að sækja slasaðan skipverja af bátnum Smáey frá Vestmannaeyjum sem var við veiðar við Suðurströndina. Maðurinn hafði skorist í andliti og þurfti að komast undir læknishendur. Innlent 13.10.2005 19:25
4.000 nýir bílar í júní Innflutningur og sala á nýjum bílum og öðrum vélknúnum ökutækjum það sem af er þessu ári eru talin vera allt að 66 prósentum meiri en á sama tíma í fyrra. Hafa bílaumboðin vart við að afgreiða nýja bíla og eru dæmi um að stöku tegundir seljist allt að 90 prósent betur nú en fyrir ári. Innlent 13.10.2005 19:25