Fréttir
Þrír handteknir í Leifsstöð Bandarískur karlmaður af filippískum ættum var úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness til 21. júlí þar sem hann er grunaður um að hafa ætlað að smygla tveimur kínverjum, konu og karli til Bandaríkjanna. Kínverjarnir voru með fölsuð japönsk skilríki en fylgdarmaðurinn er með bandarískt vegabréf. Innlent 13.10.2005 19:29
Fimmtán hið minnsta létust Fellibylurinn Dennis olli gríðarlegu tjóni þegar hann reið yfir Kúbu í kvöld. Í það minnsta tíu manns létu lífið þegar vindurinn fór á 215 kílómetra hraða á klukkustund yfir eynna. Skömmu áður en fellibylurinn reið yfir Kúbu hafði hann farið yfir Haiti, þar létust fimm hið minnsta. Erlent 13.10.2005 19:29
Öryggisgæsla í Evrópu aukin Ekki hefur verið staðfest að fleiri en þrjátíu og sjö hafi látist, en hvaðanæva að berast fregnir af því að fleiri en fimmtíu hafi týnt lífi í árásunum í gær. Öruggt er talið að þegar öll kurl verða komin til grafar verði talan hærri, enda slösuðust meira en sjö hundruð manns, þar af um fimmtíu lífshættulega. Erlent 13.10.2005 19:28
Færri ökumenn keyra of hratt Færri ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í annarri viku umferðarátaks sem Ríkislögreglustjóri og Umferðarstofa standa fyrir en í þeirri fyrstu. Átakið hófst 28. júní og felst í hertu umferðareftirliti á þjóðvegum landsins. Innlent 13.10.2005 19:29
Lífið í Lundúnum heldur áfram Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður, er í London og hún segir ótrúlegt að meiri háttar hryðjuverkaárás hafi verið gerð í borgina í gær því lítil ummerki eru sýnileg. Hún segir að það sé í við rólegra í borginni en á hefðbundnum föstudegi og ekki að sjá að borgin sé í helgreipum óttans. Lundúnabúar virðast ekki ætla að láta sigra sig svo auðveldlega. Erlent 13.10.2005 19:29
Lífið heldur áfram í London Rúmum sólarhring eftir að sprengjuárásirnar dundu yfir Lundúnir var lífið í borginni smátt og smátt farið að færast í sitt fyrra horf. Svipaða sögu er að segja um sumarfrí íslenskrar fjölskyldu sem Sveinn Guðmarsson hitti á Leicester Square. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 19:29
Taldi sig sjá grunsamlegan mann Farþegar í strætisvagni sem var sprengdur telja sig hafa séð sjálfsmorðssprengjuárásarmann um borð í honum. Eitt vitni segir að maðurinn hafi hegðað sér grunsamlega, virst stressaður og hafi sífellt fitlað við eitthvað í bakpokanum sínum. Erlent 13.10.2005 19:29
Dæmdur í níu ára fangelsi Magnús Einarsson var dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að kyrkja Sæunni Pálsdóttur, eiginkonu sína, með þvottasnúru í íbúð þeirra í Kópavogi í byrjun nóvember í fyrra. Gæsluvarðhald frá 1. nóvember kemur til frádráttar refsingunni. Innlent 13.10.2005 19:29
Vilja jarðstreng á Reykjanes Náttúrverndarsamtök Íslands krefjast þess að Hitaveita Suðurnesja leggi jarðstreng frá Reykjanesvirkjun í stað háspennulínu eins og hitaveitan áformar. Samtökin hafa sent skipulagsstofnun umsögn varðandi áform hitaveitunnar þar sem háspennulínunni er mótmælt. Innlent 13.10.2005 19:28
Þriggja bíla árekstur í Keflavík Laust eftir klukkan fimm, síðdegis í dag, varð þriggja bíla árekstur á gatnamótum Aðalgötu og Suðurvalla í Keflavík. Að sögn lögreglu urðu engin slys á fólki við áreksturinn en bílarnir, tveir jeppar og fólksbíll, voru allir óökufærir á eftir. Innlent 13.10.2005 19:29
Viðræður um varnarsamstarf í bið Viðræður um framtíð varnarsamstarfs Íslendinga og Bandaríkjamanna sem lauk í Washington í gær, skiluðu ekki þeim árangri sem íslensk stjórnvöld vonuðust eftir. Engin niðurstaða fékkst á fundum sendinefndar á vegum íslenskra stjórnvalda og bandarískra embættismanna. Innlent 13.10.2005 19:28
Héraðsverk bauð lægst í veginn Tíu fyrirtæki skiluðu tilboðum í gerð malarvegs inn með austurströnd væntanlegs Hálslóns við Kárahnjúka, frá gatnamótum á Kárahnjúkavegi sunnan Sandfells að Litlu-Sauðá inn undir Brúarjökli. Vegurinn verður um 18 kílómetra langur. Innlent 13.10.2005 19:29
Franskri þotu snúið frá BNA Yfirvöld í Bandaríkjunum létu í gær snúa til baka farþegaþotu franska flugfélagsins Air France á leið Chicago frá París vegna þess að einn farþeganna um borð þótti grunsamlegur. Vélin hafði þá verið í loftinu í um tvo klukkutíma, að því er fréttastofa BBC segir. Erlent 13.10.2005 19:29
Veðurstofan varar við hvassviðri Húsbíll fauk á hliðina skammt frá Hólmavík í morgun en þar er nú mjög hvasst og varar lögreglan á Hólmavík ökumenn á húsbílum eða með fellihýsi við að vera þar á ferð. Þessa stundina er mjög hvasst á norðanverðu landinu og hálendinu. Veðurstofan varar við hvassviðri eða stormi á miðhálendinu fram eftir degi, en reiknað er með veðrið gangi niður í kvöld og í nótt. Innlent 13.10.2005 19:29
Ósætti um sameiningu Fjölskylduráð Hafnarfjarðar mótmælir nýrri reglugerð sem Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur undirritað, en hún miðar að sameiningu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu. Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarfulltrúi og formaður fjölskylduráðsins, segir að bæjarstjórnin öll sé einhuga í andstöðu sinni við þessi áform. Innlent 13.10.2005 19:29
Minnst fimmtíu létust í árásunum Tala látinna eftir sprengjuárásirnar í Lundúnum á fimmtudagsmorgun var í gærkvöld komin í 49, að sögn lögreglu ytra og ljóst að hún ætti enn eftir að hækka. 22 voru enn sagðir í lífshættu og ekki er vitað um afdrif fjölda fólks. Ekki liggja þó fyrir upplýsingar um nákvæmlega hversu margra er saknað. Hinir látnu voru af átta þjóðernum hið minnsta. Erlent 13.10.2005 19:29
Forsætisráðherra á EXPO Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Sigurjóna Sigurðardóttir, eiginkona hans, verða viðstödd opnun íslenska skálans á Heimssýningunni, EXPO 2005, í Japan í næstu viku. Þá tekur forsætisráðherra þátt í ýmsum viðburðum tengdum þátttöku Íslands á Heimssýningunni. Innlent 13.10.2005 19:29
G8 ráðherrar ósammála Leiðtogar helstu iðnríkja heims kynntu niðurstöður fundar síns í Gleneagles í Skotlandi, sem lauk í dag. Ákveðið var að tvöfalda fjárframlög til Afríkuríkja. Á það má líta sem áfangasigur, ólíkt því sem gerðist með umbætur í umhverfismálum. Þar virðast leiðtogarnir seint ætla að verða sammála. Innlent 13.10.2005 19:29
Íbúðalánasjóður selur fjölda eigna Íbúðalánasjóður hefur selt fjölda íbúða úr eigin eigu það sem af er ári og á í dag 64 íbúðir. Fyrir nokkru átti sjóðurinn 27 íbúðir í Vestmannaeyjum en eftir söluátak seldust níu þeirra. Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs rekur ástæðurnar til betra ástands og bjartsýni í þjóðfélaginu. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:29
Allir Íslendingarnir fundnir Starfsmenn utanríkisráðuneytisins og sendiráðsins í Lundúnum hafa gengið úr skugga um að enginn Íslendingur var á meðal fórnarlamba tilræðanna í fyrradag. Erlent 13.10.2005 19:29
Hættulegt birgðahald í heimahúsum "Þetta er ekki einungis stórhættulegt heldur brýtur þetta í bága við lög og er snarbannað," segir Björn Karlsson, brunamálastjóri hjá Brunamálastofnun. Hundruðir ef ekki þúsundir bíleigenda hömstruðu dísilolíu sem mest þeir máttu fyrir síðustu mánaðarmót og notuðu til þess ýmis konar ílát sem nú eru geymd við heimahús víða um landið. Innlent 13.10.2005 19:29
Foreldrum dæmdar bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið og Þóru Fischer kvensjúkdómalækni til að greiða hjónum 7,6 milljónir króna í bætur vegna missis sonar þeirra, sem lést á kvennadeild Landspítalans fyrir tæpum þremur árum, fjórum dögum eftir fæðingu. Innlent 13.10.2005 19:29
Akureyringar ánægðir Akureyringar virðast vera ánægðari en íbúar höfuðborgarsvæðisins á mörgum sviðum ef marka má könnun IMG Gallup á lífskjörum íbúa á Akureyri annars vegar og íbúum höfuðborgarsvæðisins hins vegar. Innlent 13.10.2005 19:28
Íslendingar í London Engar fréttir höfðu borist af Íslendingum á sjúkrahúsum í Lundúnum í gærkvöldi og engin íslendingur er meðal hinna látnu. Fjöldi manns hafði samband við utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í gær, bæði til að spyrjast fyrir um vini og ættingja, og til að láta vita af sér. Nú munu aðeins vera þrír Íslendingar í Lundúnum, sem ekki er vitað nákvæmlega um, en ekki er þó óttast um þá. Erlent 13.10.2005 19:28
Áfallahjálp í nauð Jóhann Thoroddsen sálfræðingur þekkir vel til þess ferlis sem fer í gang þegar veita þarf áfallahjálp. Innlent 13.10.2005 19:28
Skýrar andstæður George W. Bush Bandaríkjaforseti telur að andstæðurnar á milli þjóðarleiðtoganna í Gleneagles í Skotlandi og tilræðismannanna í New York gætu ekki verið skarpari. Erlent 13.10.2005 19:28
Ánægð með Ólympíuleikana Ánægja greip um sig meðal starfsfólks og viðskiptavina Söluturnsins London í Austurstræti í Reykjavík þegar spurðist að Ólympíuleikarnir verði haldnir í stórborginni London á Englandi árið 2012. Innlent 13.10.2005 19:28
Þrír handteknir fyrir innbrot Lögreglan í Reykjavík handtók undir morgun þrjá pilta á aldrinum 14 til 17 ára á bíl á Hringbrautinni eftir að þeir höfðu brotist inn í blómabúð við Hagamel. Vitni að því gátu vísað á piltana. Innlent 13.10.2005 19:28
Björgunarskip kallað út Björgunarskipið Húnbjörg var kallað út ásamt Björgunarsveit Skagastrandar rúmlega fjögur í dag vegna trillu sem strandað hafði við Skagaströnd. Skipið var komið úr höfn nokkrum mínútum eftir útkallið og klukkan fimm var björgunarskipið komið á vettvang og bjargaði manninum frá borði. Innlent 13.10.2005 19:28
Talað um fjórar sprengingar Samkvæmt nýjustu fréttaskeytum voru sprengingarnar í London fjórar en fyrr í dag var talið að þær hefðu ekki verið færri en sex. Breska útvarpið greinir frá skelfilegum aðstæðum á vettvangi: fólk sem misst hefur útlimi og er mjög illa leikið. Erlent 13.10.2005 19:28
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn