Fréttir
Óánægja með stjórnarhætti "Ég treysti mér einfaldlega ekki lengur til að starfa við núverandi stjórnarhætti hjá félaginu," segir Inga Jóna Þórðardóttir sem gaf skýringu á úrsögn sinni úr stjórn FL-group á hluthafafundi félagsins sem haldinn var á Nordica hótel í gær. Innlent 13.10.2005 19:29
Fjórir fengu að kenna á hornunum Naut stungu fjóra hlaupara með hornum sínum í nautahlaupinu í Pamplona í gær. Fjöldi annarra hlaupara slasaðist lítillega í hlaupinu sem dregið hefur að sér mikinn mannfjölda líkt og undanfarin ár. Erlent 13.10.2005 19:29
Tvenn samtök ábyrgð á hendur sér Abu Hafs al Masri hersveitin, sem segist tengjast al-Kaída, hefur lýst ábyrgð á hendur sér á hryðjuverkunum í Lundúnum. Sannleiksgildið hefur þó ekki fengist staðfest og leggja sérfræðingar í hryðjuverkamálum lítinn trúnað á tilkynninguna þar sem hópurinn hefur áður eignað sér verk sem hann hefur ekki staðið fyrir. Erlent 13.10.2005 19:29
Miðborg Birmingham rýmd Lögreglan í Birmingham hefur fyrirskipað fólki að yfirgefa skemmtanahverfið í miðborg borgarinnar. Um 30 þúsund manns þurftu því að hverfa á brott. Þetta er gert eftir að lögreglu bárust vísbendingar um að hætta væri á hryðjuverkaárásum. Lögregla umkringdi miðborgina og lokaði öllum leiðum inn í hana. Erlent 13.10.2005 19:29
Sjálfstæðisflokkkur með meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í borgarstjórn ef nú yrði gengið til kosninga samkvæmt nýrri Gallup könnun. Niðurstöður hennar gefa til kynna að Sjálfstæðisflokkurinn fengi 50,2 prósent atkvæða, R-listinn 49 prósent og Frjálslyndi flokkurinn 0,8 prósent ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag. Innlent 13.10.2005 19:29
Leitað á Langjökli Björgunarsveitir úr Árnessýslu og frá Borgarfirði voru sendar út í gær til að leita þýsks ferðamanns sem fór fótgangandi á Langjökul. Neyðarskeyti barst frá manninum skömmu eftir hádegi í gær og var þyrla Landhelgisgæslunnar send af stað en mjög þungbúið var á jöklinum og því ógjörningur að lenda þar. Voru þá björgunarsveitirnar sendar út. Innlent 13.10.2005 19:29
Stjórnarformaður FL fær ádrepu Inga Jóna Þórðardóttir, fyrrverandi stjórnarmaður í FL Group, sakaði Hannes Smárason stjórnarformann um að virða hvorki starfsreglur né samþykktir félagsins á hluthafafundi í dag. Þrír stjórnarmenn sögðu af sér í lok júní og þrír aðrir seldu allan hlut sinn í félaginu og hurfu á braut. Innlent 13.10.2005 19:29
Fylgisbreytingin eru tíðindi <font face="Helv"> </font>Þetta er breyting því langt er síðan fylgi Sjálfstæðisflokksins og R-listans hefur mælst svo jafnt sem nú," segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði. Niðurstöður nýrrar fylgiskönnunar benda til þess að fylgi Sjálfstæðisflokksins og R-listans sé nánast jafnt. Innlent 13.10.2005 19:29
Veislan er að hefjast Veislan er að hefjast auglýsa hrefnuveiðimenn þessa dagana og vísa til þess að nú er hægt að nálgast ferskt hrefnukjöt í næstu nýlenduvörubúð. Kílóverðið af hrefnulundum úr kjötborði er í kringum 1300 krónur út úr búð, en hægt er að fá frosið hrefnukjöt á undir sex hundruð krónum kílóið. Konráð Eggertsson og félagar á Halldóri Sigurðssyni hafa landað tveimur skepnum. Innlent 13.10.2005 19:29
Árásir á uppreisnarmenn í Írak Bandarískir landgönguliðar hófu í morgun nýja hrynu árása á uppreisnarmenn, en til stendur að reyna að útrýma búðum uppreisnarmanna í Efrat-dalnum. Fimm hundruð bandarískir og hundrað írakskir hermenn taka þátt í aðgerðinni. Erlent 13.10.2005 19:29
Spænskir stjórnmálamenn skotmörk Spænskir stjórnmálamenn eru enn á skotmarkalista ETA, aðskilnaðarsamtaka herskárra Baska, þrátt fyrir að samtökin hafi lýst yfir vopnahléi í byrjun júní. Þar var sagt að ekki yrði reynt að ráða stjórnmálamenn af dögum, en nú segja spænsk dagblöð frá því að stjórnmálamenn sem séu í héraðsstjórnum eða ríkisstjórninni séu enn í sigtinu. Erlent 13.10.2005 19:29
Árásirnar afar vel skipulagðar Óttast er að allt að 75 hafi týnt lífi í hryðjuverkunum London. Enn hefur ekki tekist að ná öllum líkum úr lestarvögnunum og á meðan leita grátandi ættingjar að þeim sem saknað er. Flest bendir til að árásirnar hafi verið vel skipulagðar en þær voru gerðar nánast samtímis á þremur stöðum. Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður Stöðvar 2 var í London og hún segir rannsóknina á hryðjuverkunum eina þá viðamestu sem lögreglan í Lundúnum hefur staðið frammi fyrir. Erlent 13.10.2005 19:29
Mjótt á mununum í borginni Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í borgarstjórn ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups. Fimmtíu komma tvö prósent þeirra sem tóku þátt sögðust ætla að kjósa Sjálfsstæðisflokkinn, fjörutíu og níu prósent R-listann og núll komma átta prósent Frjálslynda flokkinn. Sexhundruð og sjötíu Reykvíkingar á kosningaaldri voru í úrtakinu og var svarhlutfall 56,1 eitt prósent. Innlent 13.10.2005 19:29
142 handteknir Ítalskir lögreglumenn handtóku 142 einstaklinga í viðamiklum aðgerðum í og við Mílanó á föstudag og laugardag. Handtökurnar eru hluti af stórauknum viðbúnaði á Ítalíu í kjölfar hryðjuverkanna í Lundúnum og hótana um hryðjuverk á Ítalíu. Erlent 13.10.2005 19:29
Handtekinn í Herjólfi Tvítugur farþegi var handtekinn með mikið magn fíkniefna við komu Herjólfs til Vestmannaeyja klukkan hálf tíu í fyrrakvöld. Við leit í bifreið hans fundust 400 grömm af hassi, tíu grömm af amfetamíni og sex grömm af kókaíni. Efnin voru falin undir mælaborði, milli sæta og í farangursrými bifreiðarinnar. Innlent 13.10.2005 19:29
Björgunarfólkið hinar nýju hetjur Bretar tala þessa dagana um nýjar hetjur, fólkið sem fór niður í lestargöngin til að hjálpa þeim sem særðust í sprengjuárásunum á fimmtudag og gátu ekki bjargað sér út sjálfir. Erlent 13.10.2005 19:29
Erlendir fangar á Íslandi Náin tengsl skapast milli erlendra og íslenskra fanga þegar þeir sitja saman í fangelsum landsins. Skiptar skoðanir eru um hvort eigi að aðskilja þá eins og gert er í Finnlandi. Á Litla Hrauni sitja allir helstu glæpamenn landsins og innan um eru erlendir glæpamenn, sem hafa verið dæmdir af íslensku réttarkerfi fyrir fíkniefnainnflutning, fjársvik, mansal og aðra glæpi. Innlent 13.10.2005 19:29
Versta vikan í viðskiptum Jón Ásgeir Jóhannesson segir efnislega í Sunday Times í dag að síðasta vika hafi verið ein sú versta í hans viðskiptalífi og hann hyggist ekki standa í stórviðskiptum fyrr en sakleysi hans sé sannað. Innlent 13.10.2005 19:29
Ekki vitað um afdrif 20 Íslendinga Ekki er vitað til þess að neinn Íslendingur hafi slasast í árásunum í morgun. Utanríkisráðuneytið setti þegar í morgun upp miðstöð til að miðla upplýsingum um afdrif Íslendinga. Síðdegis hafði ekki tekist að ná sambandi við yfir tuttugu Íslendinga sem staddir eru í London. Innlent 13.10.2005 19:28
Hnífjafnt í borginni Samkvæmt nýrri könnun IMG Gallup fengi Sjálfstæðisflokkurinn helming atkvæða yrði gengið til kosninga nú. Reykjavíkurlistinn fengi 49 prósent og Frjálslyndi flokkurinn 0,8 prósent. Munur á stóru framboðunum er innan skekkjumarka. Innlent 13.10.2005 19:29
Þjappar þjóðum saman Íslensk stjórnvöld fordæma hryðjuverkin í London. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að ráðist hafi verið á lýðræðisleg gildi hins frjálsa heims. Hann segir að þessi atburður muni þjappa þjóðum saman í baráttunni gegn hryðjuverkum. Innlent 13.10.2005 19:28
Austurbær verður gerður upp Austurbær við Snorrabraut í Reykjavík hefur skipt um eigendur. Til stendur að gera húsið upp jafnt að utan sem innan. Í húsinu verður áfram menningar- og tónleikastaður. Borgin hugleiðir breytt skipulag til að leysa bílastæðavanda við húsið. Innlent 13.10.2005 19:29
Þrír handteknir í Leifsstöð Bandarískur karlmaður af filippískum ættum var úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness til 21. júlí þar sem hann er grunaður um að hafa ætlað að smygla tveimur kínverjum, konu og karli til Bandaríkjanna. Kínverjarnir voru með fölsuð japönsk skilríki en fylgdarmaðurinn er með bandarískt vegabréf. Innlent 13.10.2005 19:29
Fimmtán hið minnsta létust Fellibylurinn Dennis olli gríðarlegu tjóni þegar hann reið yfir Kúbu í kvöld. Í það minnsta tíu manns létu lífið þegar vindurinn fór á 215 kílómetra hraða á klukkustund yfir eynna. Skömmu áður en fellibylurinn reið yfir Kúbu hafði hann farið yfir Haiti, þar létust fimm hið minnsta. Erlent 13.10.2005 19:29
Öryggisgæsla í Evrópu aukin Ekki hefur verið staðfest að fleiri en þrjátíu og sjö hafi látist, en hvaðanæva að berast fregnir af því að fleiri en fimmtíu hafi týnt lífi í árásunum í gær. Öruggt er talið að þegar öll kurl verða komin til grafar verði talan hærri, enda slösuðust meira en sjö hundruð manns, þar af um fimmtíu lífshættulega. Erlent 13.10.2005 19:28
Færri ökumenn keyra of hratt Færri ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í annarri viku umferðarátaks sem Ríkislögreglustjóri og Umferðarstofa standa fyrir en í þeirri fyrstu. Átakið hófst 28. júní og felst í hertu umferðareftirliti á þjóðvegum landsins. Innlent 13.10.2005 19:29
Lífið í Lundúnum heldur áfram Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður, er í London og hún segir ótrúlegt að meiri háttar hryðjuverkaárás hafi verið gerð í borgina í gær því lítil ummerki eru sýnileg. Hún segir að það sé í við rólegra í borginni en á hefðbundnum föstudegi og ekki að sjá að borgin sé í helgreipum óttans. Lundúnabúar virðast ekki ætla að láta sigra sig svo auðveldlega. Erlent 13.10.2005 19:29
Lífið heldur áfram í London Rúmum sólarhring eftir að sprengjuárásirnar dundu yfir Lundúnir var lífið í borginni smátt og smátt farið að færast í sitt fyrra horf. Svipaða sögu er að segja um sumarfrí íslenskrar fjölskyldu sem Sveinn Guðmarsson hitti á Leicester Square. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 19:29
Taldi sig sjá grunsamlegan mann Farþegar í strætisvagni sem var sprengdur telja sig hafa séð sjálfsmorðssprengjuárásarmann um borð í honum. Eitt vitni segir að maðurinn hafi hegðað sér grunsamlega, virst stressaður og hafi sífellt fitlað við eitthvað í bakpokanum sínum. Erlent 13.10.2005 19:29
Dæmdur í níu ára fangelsi Magnús Einarsson var dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að kyrkja Sæunni Pálsdóttur, eiginkonu sína, með þvottasnúru í íbúð þeirra í Kópavogi í byrjun nóvember í fyrra. Gæsluvarðhald frá 1. nóvember kemur til frádráttar refsingunni. Innlent 13.10.2005 19:29