Fréttir
Mikil eftirspurn eftir vændi Giftir karlar eru helstu viðskiptavinir hennar. Hún tekur þrjá í mánuði - níutíu þúsund krónur skattfrjálst. Hún markaðssetur sig á Einkamal.is og eftirspurnin eftir þjónustu hennar er mikil. Stöð 2 ræddi við íslenska vændiskonu í dag, viðskiptafræðing að mennt. Innlent 13.10.2005 19:31
Óttast pólitík í RÚV Margrét Sverrisdóttir, formaður Hollvinasamtaka Ríkisútvarpsins, óttast að nýr útvarpsstjóri verði ekki ráðinn á faglegum forsendum heldur pólitískum. Innlent 13.10.2005 19:32
Mannskætt flugslys í Afríku Rússnesk flugvél hrapaði í frumskógum Miðbaugs-Gíneu í gær og létust allir sem voru um borð. Alls voru fleiri en 50 farþegar og áhafnarmeðlimir í vélinni. Erlent 13.10.2005 19:32
Flytur sig kannski um set Talið er hugsanlegt að Árni Magnússon félagsmálaráðherra flytji sig um set og leiði lista framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi í næstu alþingiskosningum að því er fram kom í fréttum Sjónvarpsins í gærkvöldi. Innlent 13.10.2005 19:32
Striplast fyrir ljósmyndara 1.700 manns söfnuðust saman og sviptu sig klæðum í bænum Gateshead við ánna Tyne í Norður-Englandi í gær til að sitja fyrir á ljósmyndum bandaríska ljósmyndarans Spencers Tunick. Margir voru komnir langt að, til dæmis frá Ástralíu og Mexíkó. Erlent 13.10.2005 19:32
Eldur í safni Eldur kom upp í lisasafni Henie Onstad í Høvikodden í Noregi í vikunni. Um hundrað manns voru í safninu þegar bruninn kom upp í forstofurými safnsins og tókst að koma öllum út á örfáum mínútum. Erlent 13.10.2005 19:32
Sir Edward Heath við dauðans dyr Sir Edward Heath, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, liggur nú fyrir dauðanum. Sky-fréttastöðin hefur þetta eftir talmanni hans. Heath var forsætisráðherra Breta á árunum 1970 til 1974 og formaður Íhaldsflokksins í áratug, eða frá 1965 til 1975. Hann var mjög umdeildur en áhrifamikill á sínum stjórnmálaferli Erlent 13.10.2005 19:31
Mynd af hryðjuverkamönnunum Breska lögreglan hefur birt mynd úr eftirlitsmyndavél sem sýnir mennina fjóra sem grunaðir eru um að hafa staðið fyrir sjálfsmorðsárásunum í Lundúnum í síðustu viku. Myndin er tekin á lestarstöðinni Luton, stuttu áður en árásirnar voru gerðar. Erlent 13.10.2005 19:31
Átökin halda áfram á Gaza Að minnsta kosti tveir særðust er Ísraelar skutu tveimur flugskeytum á Gaza-borg í gærkvöld. Óttast er að fimm mánaða vopnahlé á svæðinu sé að fara út um þúfur eftir átök og árásir á báða bóga síðustu daga. Erlent 13.10.2005 19:31
15 hafa látist í flóðum í Rúmeníu Að minnsta kosti 15 manns hafa látist í flóðunum í Rúmeníu sem gengið hafa yfir að undanförnu. Þá hafa 12 þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna. Erlent 13.10.2005 19:31
NASA engu nær um bilunina Verkfræðingar NASA eru engu nær um hvers vegna bilun kom upp í tækjabúnaði geimferjunnar Discovery rétt áður en henni átti að verða skotið á loft á miðvikudag. Enn eru að minnsta kosti fjórir dagar í að skutlunni verði komið út í geim en forsvarsmenn NASA segja þó enga dagsetningu örugga. Erlent 13.10.2005 19:31
Fundu einstakan bronspening Einstakur bronspeningur frá fimmtándu öld fannst við fornleifauppgröft við Skriðuklaustur í fyrradag. Klausturbyggingin sem verið er að grafa upp varpar nýju ljósi á starfsemi klaustursins og hefur það verið mun stærra en áður var talið. Innlent 13.10.2005 19:31
Efnafræðingurinn ekki í al-Kaída Innanríkisráðherra Egyptalands, Habib al-Adli, segir "efnafræðinginn" svokallaða ekki vera í neinum tengslum við hryðjuverkasamtökin al-Kaída. Hann sætir nú yfirheyrslum í Egyptalandi sem breskir lögreglumenn fylgjast grannt með. Erlent 13.10.2005 19:31
Fjórir látnir eftir að bátur sökk Að minnsta kosti fjórir eru látnir og þriggja er saknað eftir að tyrkneskur ferðamannabátur, sem var ofhlaðinn fólki, sökk í morgun. Alls voru 150 manns á bátnum og sinntu þeir í land en báturinn var í aðeins 20 metra fjarlægð frá landi. Erlent 13.10.2005 19:31
Kyndill fljótandi í Hvalfirði Logandi kyndill flýtur yfir Hvalfjörðinn þessa stundina en fimm sjósundmenn skiptast á að synda með hann yfir fjörðinn. Það er Sundfélag Hafnafjarðar og Garparnir sem skelltu sér í sjóinn á sundfötunum einum saman og er ferðin farin til að minna fólk á að hugsa um vináttu og samkennd. Innlent 13.10.2005 19:31
Adrenalíngarður á Nesjavöllum Ofurhugar fá sinn leikvöll í dag þegar „Adrenalíngarðurinn“ verður opnaður. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi en þar eru háloftabraut, klifurveggur, svifbraut og landsins stærsta róla, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 13.10.2005 19:31
Fjölmenni hjá Arroyo Stuðningsmenn Gloriu Arroyo Filippseyjaforseta héldu fjöldafund henni til stuðnings í Maníla, höfuðborg landsins, í gær. Erlent 13.10.2005 19:31
Vilja opið prófkjör Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi R-listans, segir hugmyndir Össurar Skarphéðinssonar um opið prófkjör Samfylkingarinnar sem fram koma á heimasíðu hans í dag ekki vera nýjar af nálinni. Slíkt hafi verið gert tvisvar áður á síðustu árum og hefur hann verið talsmaður þess að sem flestir komi að prófkjöri. Innlent 13.10.2005 19:31
17 látnir eftir að rúta fór út af Að minnsta kosti 17 manns fórust þegar rúta með 55 manns innanborðs, þar á meðal skólabörn, steyptist niður hlíð í suðurhluta Kína í morgun. Þá slösuðust að minnsta kosti 38 manns í slysinu og eru átta taldir í lífshættu. Erlent 13.10.2005 19:31
Ítalskur biskup myrtur í Kenía Ítalskur biskup var myrtur í Kenía í fyrrakvöld þegar hann var á leið heim úr guðsþjónustu. Benedikt páfi XVI sagðist í dag harma atburðinn. Erlent 13.10.2005 19:31
Gekk illa að hífa vélina í Óðin Engin slys urðu á fólki í fjögurra sæta Cessna vél sem hlekktist á í flugtaki í Fljótavík á Hornströndum seinni partinn í gær. Illa gekk hjá Landhelgisgæslunni í gærkvöldi, þegar reynt var að hífa vélina yfir í varðskipið Óðinn, þar sem spaðar þyrlunnar komu flugvélinni á mikla hreyfingu. Innlent 13.10.2005 19:31
Hringróður gengur vel Kjartan Hauksson sem er að fara hringinn í kringum landið á árabát fór frá Neskaupsstað aðfaranótt föstudags og kom til Stöðvarfjarðar síðdegis á laugardag. Innlent 13.10.2005 19:31
Breti og Íri á meðal látinna Breti og Íri voru á meðal þeirra sem létust í sjálfsmorðsárásinni sem gerð var í rútu í Tyrklandi í morgun. Fjórir til viðbótar létust í sprengingunni og þrettán særðust, þar á meðal fimm Bretar. Erlent 13.10.2005 19:31
Vatnsleki í Amarohúsinu Nokkurt vatnstjón varð á skrifstofu- og verslunarrými í eldri hluta Amarohússins á Akureyri um miðja vikuna þegar ofn á þriðju hæð gaf sig. Innlent 13.10.2005 19:31
Díselolía í tönkum við Smáralind Ríflega fimm þúsund lítrar af díselolíu eru geymdir í tönkum á bílastæði við Smáralindina. Eigandi olíunnar kveðst vita um fleiri samskonar tilvik. Innlent 13.10.2005 19:31
Innbrot og eldur í bíl Tveir menn handteknir við innbrot í Lindina, söluskála Esso, við Leiruveg á Akureyri klukkan sex í morgun. Þeir höfðu unnið þó nokkur skemmdarverk og gistu fangageymslur það sem eftir var nætur en rannsókn á málinu stendur yfir. Innlent 13.10.2005 19:31
Össur vill R-lista, sama hvað "Ég tel að undir öllum kringumstæðum eigi Samfylkingin að bjóða fram sem Reykjavíkurlisti, þó að annar eða báðir samstarfsflokkana vilji ekki vera með í slíkum lista," segir Össur Skarphéðinsson. Innlent 13.10.2005 19:31
Á sjötta tug beið bana Sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi upp sprengjur sem hann bar utan á sér við bensínstöð nærri sjíamosku í borginni Musayyib suður af Bagdad í gær. Að minnsta kosti 54 létust í árásinni og á níunda tug særðist til viðbótar. Erlent 13.10.2005 19:31
20 látnir; 45 særðir Að minnsta kosti tuttugu manns féllu og fjörutíu og fimm eru særðir eftir að sjálfsmorðsárás var gerð í mosku í úthverfi Bagdad, höfuðborgar Íraks, í dag. Engin samtök hafa lýst verknaðinum á hendur sér. Erlent 13.10.2005 19:31
Ekki talinn tengjast Al-Qaida Egypski efnafræðingurinn sem handtekinn var í Kaíró í Egyptalandi í gær er ekki talinn tengjast Al-Qaida hryðjuverkasamtökunum að sögn egypskra dagblaða. Tala látinna eftir sprengingarnar í London er nú komin í fimmtíu og fimm. Erlent 13.10.2005 19:31