Útilokar ekki lagasetningu til að greiða leið línunnar Innviðaráðherra útilokar ekki að gripið verði til lagasetningar svo hægt verði að leggja Suðurnesjalínu 2. Vogar stendur eitt sveitarfélaga á Suðurnesjum í vegi fyrir því að framkvæmdir geti hafist. Innlent 19. desember 2021 20:21
Vilja gera út af við áform Landsnets með breyttu aðalskipulagi Sveitarfélagið Vogar stendur eitt í vegi fyrir því að framkvæmdir við Suðurnesjalínu tvö geti hafist. Bæjarstjónin samþykkti tillögu að nýju aðalskipulagi í gær þar sem möguleiki á lagningu loftlínu er útilokaður. Innlent 16. desember 2021 18:30
Vilja láta rannsaka möguleg tengsl krabbameina og mengunar á Suðurnesjum Sjö þingmenn Suðurkjördæmis hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela heilbrigðisráðherra að gera saming við Krabbameinsfélag Íslands um rannsókn á nýgengi krabbameina á Suðurnesjum samanborið við aðra landshluta. Innlent 9. desember 2021 10:08
Reynir að samræma þingstörfin embætti forseta bæjarstjórnar Nýkjörinn þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi ætlar að láta reyna á hvort hann geti jafnframt haldið áfram að gegna embætti forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Fimm mánuðir eru til sveitarstjórnarkosninga á næsta ári. Innlent 7. desember 2021 12:12
Smit í Njarðvík og leik frestað Leik Njarðvíkur og Stjörnunnar í Subway-deild karla í körfubolta, sem fara átti fram á fimmtudaginn, hefur verið frestað vegna kórónuveirusmits í herbúðum Njarðvíkur. Körfubolti 7. desember 2021 10:33
Framlengja opnunartímann í tveimur verslunum til viðbótar Bónus hefur ákveðið að framlengja opnunartíma verslana sinna á Selfossi og Fitjum í Reykjanesbæ í takti við rýmri opnunartíma sjö verslana sem tilkynnt var um á dögunum. Neytendur 6. desember 2021 14:25
Töluverðar raskanir á flugsamgöngum vegna óveðursins Óveðrið í dag hefur haft töluverð áhrif á flugsamgöngur en aðeins ein vél lenti á Keflavíkurflugvelli frá því í morgun og þar til seinnipartinn í dag. Innlent 5. desember 2021 16:50
Öflugt handverksfólk á Suðurnesjum Handverksfólk af öllum Suðurnesjum hefur nú meira en nóg að gera fyrir jólin við að framleiða vörur á markað, sem hópurinn stendur að í Grófinni í Keflavík. Tuttugu og fjórir handverksmenn standa að markaðnum, sem er opinn allt árið. Innlent 27. nóvember 2021 21:13
Bein útsending: Stefna á mikla uppbyggingu á Suðurnesjum Framkvæmdaþing Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja, er haldið í dag. Þar á að kynna fyrirhugaðar framkvæmdir á næsta ári á vegum sveitarfélaga svæðisins, Isavia og Kadeco, þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. Viðskipti innlent 25. nóvember 2021 16:30
Lögregla rannsakar sex andlát og mál fimm annarra sjúklinga á HSS Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú andlát sex sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem hún telur mögulegt að hafi borið að með saknæmum hætti. Mál fimm annarra sjúklinga eru einnig í skoðun. Innlent 24. nóvember 2021 10:32
Handtekinn eftir að hann veittist að samnemanda Nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja var handtekinn í skólanum um hádegisbil í dag. Þetta staðfestir Guðlaug Pálsdóttir skólameistari í samtali við Vísi og segir að nemandi hafi veist að samnemanda sínum. Innlent 22. nóvember 2021 17:26
Njarðvíkingar ætla að nýta sér hraðprófin til að fá fimm hundruð á heimaleiki sína Mörg íþróttafélög á Íslandi hafa ákveðið að fara ekki hraðprófsleiðina á meðan harðari sóttvarnarreglur eru í gildi hér á landi en Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur er þó ekki í þeim hópi. Körfubolti 18. nóvember 2021 10:31
Ákærður fyrir tilraun til fjársvika eftir að hann kveikti í eigin veitingastað Keflvískur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa kveikt í veitingastað sínum í fyrrasumar og í kjölfarið gert tilraun til fjárssvika. Fréttablaðið greindi fyrst frá. Innlent 12. nóvember 2021 10:15
Starfsemi Myllubakkaskóla flutt á fjóra staði Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti í dag að leggja nítján milljónir króna í að flytja starfsemi Myllubakkaskóla á fjóra staði í bænum tímabundið á meðan unnið er á úttekt á húsnæði hans. Myglu varð fyrst vart í skólanum árið 2019 og hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana síðan. Þær aðgerðir hafa ekki skilað tilætluðum árangri, því enn greindist mygla í skólanum í síðasta mánuði. Innlent 4. nóvember 2021 18:20
Félag Norðuráls í Helguvík gjaldþrota Félagið Norðurál Helguvík ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness síðastliðinn fimmtudag, 28. október. Viðskipti innlent 2. nóvember 2021 22:20
Enn á gjörgæslu eftir alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ Karlmaður á fimmtugsaldri er á gjörgæsludeild Landspítala eftir að hann varð fyrir alvarlegri líkamsárás fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjanesbæjar á aðfaranótt síðastliðins laugardags. Innlent 29. október 2021 07:01
Nanna Kristjana nýr framkvæmdastjóri Keilis Nanna Kristjana Traustadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Keilis. Hún hefur verið settur framkvæmdastjóri frá ágúst 2021 vegna leyfis fráfarandi framkvæmdastjóra. Viðskipti innlent 27. október 2021 20:37
Vilja grænan sprotagarð í byggingar Norðuráls í Helguvík Til stendur að reisa grænan sprotagarð á iðnaðarsvæðinu í Helguvík og nýta til þess byggingar Norðuráls. Íslenski sjávarklasinn í samstarfi við fyrirtæki á Reykjanesi hugar nú að undirbúningi sprotagarðsins sem hefur hlotið vinnuheitið Reykjanesklasinn. Viðskipti innlent 26. október 2021 23:10
Myndasyrpa: Barnsgrátur og brunasár á flugslysaæfingu í Keflavík Fyrsta flugslysæfingin var haldin á Íslandi í fimm ár. Þar var öllu tjaldað til, kveikt í ýmsu braki, sem átti að vera úr flugvél og 150 leikurum, sem léku slaða flugfarþega, komið fyrir víða á stóru svæði við Keflavíkurflugvöll. Innlent 23. október 2021 17:32
Söngleikur til minningar um Rúnar Júlíusson Andi Rúnars Júlíussonar heitins svífur yfir vötnum í Keflavík þessa dagana því nú er verið að setja upp söngleikinn „fyrsti kossinn“ honum til heiðurs hjá Leikfélagi Keflavíkur. Sýningin verður sú hundraðasta í sögu félagsins, sem fagnar nú sextíu ára afmæli. Innlent 20. október 2021 21:00
Óvissa hvert nemendur fara vegna myglunnar í Myllubakkaskóla Útlit er fyrir að 370 nemendur í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ verði fluttir yfir í nokkur önnur húsnæði þegar umfangsmiklar framkvæmdir við að ráða bug á myglu í húsnæðinu hefjast. Bæði starfsfólk og nemendur hafa fundið fyrir einkennum vegna myglunnar. Innlent 20. október 2021 13:47
Mygla í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ Mygla hefur fundist í Myllubakkaskóla í Keflavík. Nokkrir starfsmenn og nemendur eru sagðir hafa fundið fyrir verulegum einkennum. Lagfæringar hafa ekki skilað árangri. Innlent 19. október 2021 23:48
Kaupir meirihluta í Borealis Data Center Franski fjárfestingarsjóðurinn Vauban Infrastructure Partners hefur keypt meirihlutaeign í íslenska félaginu Borealis Data Center sem áður hét Etix Everywhere Borealis. Viðskipti innlent 19. október 2021 09:13
Safnahelgi á Suðurnesjum alla helgina Þeir sem vilja njóta menningar út í ystu æsar um helgina ættu þá að vera á Suðurnesjunum því þar fer fram Safnahelgi með fjölbreyttum viðburðum. Meðal annars verður hægt að skoða Slökkviliðssafn Íslands, Reykjanesvita, bátasafn, Rokksafn Íslands og kynna sér sögu Kaupfélags Suðurnesja. Innlent 16. október 2021 12:36
Ekki óhætt að fara að gígnum fyrr en nokkrum mánuðum eftir goslok Of snemmt er að lýsa yfir goslokum í Geldingadölum að mati jarðeðlisfræðings. Kvika hefur ekki komið upp úr gígnum í um fjórar vikur sem er lengsta hlé á virkninni síðan gosið hófst. Innlent 14. október 2021 19:01
Bandidos sækja í sig veðrið hér á landi Á annan tug manna eru í Íslandsdeild Bandidos vélhjólasamtakanna í Reykjanesbæ. Klúbburinn er skilgreindur sem skipulögð glæpasamtök af alþjóðlegum lögreglustofnunum. Innlent 13. október 2021 21:01
Risa kötturinn Skjöldur í Reykjanesbæ Skjöldur er risa köttur á heimili í Keflavík sem er rúmlega einn metri á lengd og tólf kíló á þyngd. Eigandinn segir að þrátt fyrir stærð kattarins sé hjartað hans mjög lítið enda Skjöldur feimin og inn í sig. Innlent 12. október 2021 20:53
Olli slysi þegar hann ók á öfugum vegarhelmingi á Reykjanesbraut Karlmaður á sjötugsaldri er í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum eftir að hann olli árekstri þar sem hann ók á öfugum vegarhelmingi á Reykjanesbraut nú síðdegis. Ökumaður bílsins sem hann ók á slasaðist lítillega, að sögn lögreglu. Innlent 6. október 2021 18:23
Alvarlegt að gallar hjá Skipulagsstofnun hafi litað málið Talsverðir gallar eru á áliti Skipulagsstofnunar á framkvæmd Suðurnesjalínu 2 að mati úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Landsnet telur mjög slæmt að gallað álit hafi haft áhrif á allan feril málsins. Innlent 5. október 2021 20:31
Nýjustu vendingar í máli Suðurnesjalínu gífurleg vonbrigði fyrir Voga Forstjóri Landsnets er ánægður með að ákvörðun sveitarstjórnar Voga um að hafna framkvæmdarleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 hafi verið felld úr gildi. Bæjarstjórinn segir óljóst hvort Vogar verði nú að veita leyfi fyrir loftlínu í stað jarðstrengs. Innlent 5. október 2021 12:31