Oddvitaáskorunin: Borðaði djúpsteiktan krókódíl innan um kakkalakka Samúel Karl Ólason skrifar 12. maí 2022 19:01 Valgerður og dæturnar. Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.
Valgerður Björk Pálsdóttir leiðir lista Beinnar leiðar í Reykjanesbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún er 35 ára gömul, alin upp í Keflavík en býr í Njarðvík í dag ásamt unnusta og tveimur 5 ára dætrum. Valgerður er doktorsnemi og stundakennari við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands en hún rannsakar viðhorf kjörinna fulltrúa til lýðræðis og aukinnar þátttöku almennings í stefnumótun og pólitískri ákvarðanatöku. Klippa: Oddvitaáskorun - Valgerður Björk Pálsdóttir Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Reykjanesið og Hellnar á Snæfellsnesi. Er eitthvað lítilvægt sem fer þó í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt að sé lagað? Það er kannski helst eitthvað tengt skipulagi bæjarins sem er þó alltaf að þróast til betri vegar. Hvert er þitt uppáhalds áhugamál sem gæti þótt skrítið? Ég hef haft óeðlilega mikinn áhuga á nöfnum síðan ég var barn. Lék mér oft ein við skrifborðið með íslensku nafnabókina, setti saman tvö nöfn og skrifaði þau niður. Ákvað t.d. nafn annarar dóttur minnar þegar ég var 14 ára. Hver eru þín minnistæðustu samskipti við lögregluna? Án efa þegar lögreglumaður í Úkraínu bað um númerið mitt til að bjóða mér á deit. Ég var í kosningaeftirliti á vegum utanríkisráðuneytisins og ÖSE í Úkraínu árið 2015 og þrátt fyrir spillingu og alls konar áskoranir, er haldið mjög vel utan um framkvæmd kosninga. Það þýðir að allir kjörkassar fá lögreglufylgd á talningastað og voru því margir lögregluþjónar á svæðinu þar sem við vorum að vinna okkar eftirlitsvinnu. Einn lögreglumaður kom upp að mér og spurði mig um númerið og ég, frekar hissa, hélt ég væri að gera eitthvað af mér, gaf honum ID númerið sem mér hafði verið úthlutað af ÖSE. Hélt hann væri að fara kvarta undan mér en neinei, hann meinti bara símanúmerið... Hvað færðu þér á pizzu? Þegar ég panta mér pizzu er ég mjög basic og vil helst bara skinku, sveppi og mikið oregano. Þegar ég geri mína eigin pizzu heima geri ég yfirleitt grænmetispizzu, þá set ég grillaðan kúrbít, grillaða papriku, vorlauk, tómata og salthnetur. Hvaða lag peppar þig mest? Bulletproof með La Roux. Hvað getur þú tekið margar armbeygjur? Svona 7 mjög vandaðar þröngar á tánum. Annars mun fleiri á hnjánum. Göngutúr eða skokk? Bæði svipað leiðinlegt en taldi mér trú um það í Covid, þegar ég komst ekki í ræktina, að ég fílaði þetta bæði. Uppáhalds brandari? That‘s it. That‘s the message. Hvað er þitt draumafríi? Langar mjög til Georgíu. Líður mjög vel í Austur Evrópu og er hrifin af löndunum sem tilheyrðu Sovétríkjunum. Myndi skoða Tbilisi enda er ég meira í borgarferðum en sólarlanda- eða útivistarferðum. Elska að rölta um mismunandi hverfi borga og sjá hvernig fólk býr. Hvort fannst þér 2020 eða 2021 vera verra ár? Bæði fín. Við fjölskyldan vorum byrjuð að hægja vel á lífinu árið 2019, þess vegna ollu samkomutakmarkanir ekki miklum breytingum á okkar lífi. Dætur mínar elskuðu að mæta annan hvern dag á leikskólann með fáum börnum og fá svo að vera í fríi hinn daginn með mömmu eða pabba. Uppáhalds tónlistarmaður? Það er mjög breytilegt. Núna er það The Weeknd. Hvað er það skrýtnasta sem þú manst eftir að hafa gert? Á einum og sama deginum á ferðalagi um suðurríki Bandaríkjanna skaut ég úr riffli og borðaði djúpsteiktan krókódíl innan um fjölda kakkalakka á veitingastað. Ef það væri gerð kvikmynd um ævi þína, hver ætti að leika þig? Má vera íslenskur eða útlenskur. Aníta Briem. Hefur þú verið í verbúð? Nei. Áhrifamesta kvikmyndin? Love and Basketball. Við vinkonurnar og systir mín elskuðum þessa mynd og enduðum allavega fjórar á því að fara út í skiptinám til Bandaríkjanna í high school og spila körfubolta. Áttu eftir að sakna Nágranna? Er það semsagt enn í gangi? Ég hljóp oft heim í hádeginu í grunnskóla til að ná Nágrönnum. Eru Karl og Susan og Toadie bara enn going strong? Ef þú yrðir að flytja úr þínu sveitarfélagi, hvert myndir þú helst vilja fara? Reykjavíkur innalands – annars Berlínar. Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla) Tindastóll með Úlfur Úlfur og Sverri Bergmann. Þetta lag hefur verið á repeat undanfarnar vikur, en það var stranglega bannað á mínu heimili þegar Njarðvík var að spila við Tindastól í undanúrslitum í körfuboltanum. Maðurinn minn er grjótharður Njarðvíkingur og var ekki sáttur þegar dætur okkar voru komnar með þetta á heilann.
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2022 Reykjanesbær Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Lífið Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Sjá meira