Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Einn og sami maðurinn hefur verið ákærður af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu fyrir 59 mismunandi brot og þar að auki liggur undir rökstuddum grun í átján öðrum málum. Innlent 19. apríl 2026 22:31
Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Karlmaður var á dögunum dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir hatursorðræðu vegna ummæla sem hann lét falla á Facebook við frétt Vísis. Hann hlaut fyrir vikið hundrað þúsund króna sekt. Innlent 19. apríl 2026 20:32
Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Einn ökumaður var stöðvaður á höfuðborgarsvæðinu í dag á 151 kílómeters hraða. Annar ók á 133 kílómetra hraða, og nokkrir aðrir á um 120 kílómetra hraða. Innlent 19. apríl 2026 17:50
Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Brotist var inn í kirkju í Múlunum í Reykjavík að sögn lögreglu og gerendur farnir þegar hún kom á staðinn. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort einhverju hafi verið stolið. Einnig var óskað eftir aðstoð vegna slagsmála í strætisvagni í Árbæ í Reykjavík. Innlent 19. apríl 2026 08:33
Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Kona óttaðist um líf sitt og taldi að eiginmaður hennar myndi drepa hana. Hún er metin í mjög viðkvæmri stöðu af lögreglu. Eiginmaðurinn hefur verið ákærður. Innlent 18. apríl 2026 20:44
Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Auður Örlygsdóttir var sextán ára þegar hún lendir í því að fullorðinn maður gengur inn á hana nakta í útiklefa kvenna í Sundhöll Reykjavíkur fyrir tveimur árum. Maðurinn hlýddi ekki skipunum um að yfirgefa klefan og var þar í um fimm mínútur á meðan hann strauk á sér kynfærin. Á mánudaginn, tveimur árum eftir fyrra atvikið, lendir hún í því að gengið er inn á hana aftur í inniklefa Sundhallar Reykjavíkur. Innlent 18. apríl 2026 12:29
Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás í Hafnarfirði og var einn handtekinn. Sá hafði ráðist á leigubílstjóra og var hann vistaður í fangaklefa. Innlent 18. apríl 2026 07:15
Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Lögreglan Suðurnesjum vinnur nú að umfangsmikilli rannsókn sem varðar haldlagningu á rúmum þrjátíu kílóum af amfetamíni. Lögreglan handtók tvennt í tengslum við rannsókn málsins sem nú sæta gæsluvarðhaldi. Innlent 17. apríl 2026 14:55
Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Einn hefur verið úrskurðaður í sex vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á ætluðum innflutningi á miklu magni af fíkniefnum með Norrænu í lok mars. Lögregla heldur þétt að sér spilunum varðandi efnisatriði málsins. Verð á kókaíni hefur farið hækkandi undanfarin ár. Innlent 17. apríl 2026 11:49
Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann bifreiðar í gærkvöldi eða nótt fyrir að vera með of marga farþega í bílnum hjá sér. Einn farþeganna var í skottinu. Innlent 17. apríl 2026 06:29
Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Stórfellt smyglmál um borð í Dettifossi er talið geta haft veruleg áhrif á fíkniefnamarkaðinn hér á landi, að sögn lögreglu. Lagt var hald á rúmlega 14 lítra af amfetamínbasa og þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins, þar á meðal tveir starfsmenn Eimskips sem hafa ekki áður komið við sögu lögreglu. Innlent 16. apríl 2026 18:32
Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Lögreglu var í dag tilkynnt um yfirstandandi innbrot í íbúð í miðborg Reykjavíkur. Þegar hún fór á vettvang kom í ljós að um var að ræða iðnaðarmann sem var að gera við hurð íbúðarinnar. Innlent 16. apríl 2026 17:59
Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Rannsókn á sprengingunni sem varð í Fóðurblöndunni þann 20. mars síðastliðinn er enn í rannsókn hjá bæði lögreglunni og Vinnueftirlitinu. Einn lést í kjölfar sprengingarinnar og tveir aðrir slösuðust. Innlent 16. apríl 2026 12:48
Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tilkynningar um líkamsárás í Kópavogi og húsbrot og eignaspjöll í Hafnarfirði í gærkvöldi eða nótt. Innlent 16. apríl 2026 08:38
Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Gabríel Douane Boama sem grunaður er um tilraun til manndráps eða um sérstaklega hættulega líkamsárás með öxi hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins. Hann er grunaður um að hafa ráðist inn á heimili manns og ráðist að honum með exi þann 5. mars en lögregla handtók hann í fjölbýlishúsi þar sem hann var í óðaönn að þvo fötin sín. Innlent 15. apríl 2026 21:53
Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Lögregla hald á um tug lítra af fíkniefnum í vökvaformi um borð í Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips, á mánudag samkvæmt heimildum fréttastofu. Innlent 15. apríl 2026 18:38
Rannsóknin á lokametrunum Rannsókn lögreglu á Quang Le, sem er grunaður um mansal, skjalafals og peningaþvætti, er á lokametrunum. Hann hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi farbann til 3. júlí. Innlent 15. apríl 2026 16:14
Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Æsileg eftirför sem lauk í Skútuvogi í Reykjavík var fyrst í höndum lögreglunnar á Vesturlandi sem fékk tilkynningu um athugavert aksturslag. Hún missti sjónar af manninum er hann ók inn í Hvalfjarðargöngin á móti umferð. Maðurinn er laus úr haldi lögreglu. Innlent 15. apríl 2026 13:07
Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Samskiptastjóri Eimskips segir að fyrirtækið líti ætlaðan innflutning á fíkniefnum um borð í Dettifossi mjög alvarlegum augum. Tveir starfsmenn félagsins eru meðal þriggja sem sæta nú gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar. Innlent 15. apríl 2026 12:07
Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Bíll hafnaði á endurvinnslustöð Sorpu við Dalveg í eftirför lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ekki urðu miklar skemmdir á endurvinnslustöðinni. Innlent 14. apríl 2026 20:54
Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Tveir starfsmenn Eimskipa sæta gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að smygli á verulegu magni af sterkum fíkniefnum til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða fíkniefni í vökvaformi. Húsleit var framkvæmd á heimili þriðja manns sem var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í dag. Innlent 14. apríl 2026 19:17
Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í dag en meðal þess sem kom á borð hennar voru ölvaður aðili, slagsmál og umferðaróhapp. Innlent 14. apríl 2026 18:46
Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Lögregla beitti ýmsum aðferðum til að stöðva ökumann sem stórt lögreglulið veitti eftirför í Vogahverfi í Reykjavík í gær en myndband sem íbúi náði sýnir meðal annars hvernig lögregla keyrði utan í bílinn í tilraun til að stöðva hann. Ökumaðurinn hafði virt stöðvunarskyldu að vettugi og fylgdi honum mikið lögreglulið eftir. Innlent 14. apríl 2026 18:31
Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Karlmaður á fertugsaldri sem lögreglu grunar um umfangsmikið smygl fíkniefna með Dettifossi var síðast handtekinn af lögreglu í janúar grunaður um alvarlega líkamsárás á þorrablóti í Kópavogi. Lögregla réðst í húsleit á heimili hans á höfuðborgarsvæðinu í gær og lagði hald á fjölmarga muni í eigu hans. Alls voru sex handteknir og sæta þrír gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á innflutningi á verulegu magni af sterkum fíkniefnum. Innlent 14. apríl 2026 15:52
Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Einn hið minnsta hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhalds vegna innflutnings fíkniefna með gámaflutningaskipi Eimskips. Innlent 14. apríl 2026 15:10
Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Fjölskylda ungrar konu sem lést eftir átök við tvo lögreglumenn þegar hún var í geðrofi árið 2019 áfrýjaði ekki dómi héraðsdóms sem sýknaði ríkið af bótakröfu þeirra. Innlent 14. apríl 2026 14:41
Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Erlendur ferðamaður sem sagður var alvarlega slasaður eftir umferðarslys við Mývatn fyrir viku er útskrifaður af sjúkrahúsi og betur fór en á horfðist. Bifreið sem hann var ekið út af hringveginum í erfiðum aðstæðum, lenti á þvervegi og tókst á loft. Innlent 14. apríl 2026 12:09
Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Rannsókn á mögulegu þjófagengi sem er sagt hafa látið greipar sópa í versluninni Freysnesi í Öræfum þann 29. mars síðastliðinn stendur enn yfir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi. Innlent 14. apríl 2026 11:55
Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu réðst í handtökur í gær í tengslum við meintan innflutning fíkniefna til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla til rannsóknar innflutning með gámaflutningaskipi Eimskips og var með viðbúnað á hafnarsvæði fyrirtækisins fyrri part dags í gær. Innlent 14. apríl 2026 11:19
Byrja ekki að sekta á morgun Frá og með 15. apríl ár hvert er ekki heimilt að aka á nagladekkjum. Þó mun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ekki byrja að beita sektum fyrr en um 25. apríl í fyrsta lagi eða tæpum tveimur vikum eftir lok nagladekkjatímabilsins. Innlent 14. apríl 2026 11:02