Hafnarfjörður

Hafnarfjörður

Mannfjöldi: 31.525 (2025). Flatarmál: 174 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjöl­býlis­húss

Meðal þess helsta á lista lögreglustöðvar eitt, sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi, var tilkynning um líkamsárás þar sem aðila var fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss. Þeir sem fleygðu honum fram af fundust skammt frá vettvangi og voru handteknir en árásarþoli var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með minniháttar áverka. Málið er enn í rannsókn.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

GDRN og Jón Jóns­son: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói

Það ríkti mikil tilhlökkun eitt fagurt en blautt sumarkvöld þegar tveir vinsælir tónlistarmenn sameinuðu krafta sína í Bæjarbíói. Fyrirfram mátti velta því fyrir sér hvernig hin yfirvegaða og innhverfa nálgun Guðrúnar Ýrar Eyfjörð, GDRN, myndi falla að þeirri takmarkalausu, og oft ofvirku, orku sem einkennir Jón Jónsson. Þetta hefði hæglega getað orðið eins og hjónaband rauðbrystings og risaeðlu. Á köflum var það nákvæmlega þannig, en undarlega oft myndaðist þó magnað jafnvægi.

Lífið
Fréttamynd

Hafnar­fjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari

Hafnarfjarðarbær hefur verið sýknaður af kröfum Jóns Rúnars Halldórssonar, fyrrverandi formanns knattspyrnudeildar FH, í Héraðsdómi Reykjaness. Hann hafði farið fram á að bærinn myndi greiða sér 2,5 milljónir króna fyrir að afhenda fjölmiðlum gögn.

Innlent
Fréttamynd

Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna

Björgunarsveitarmönnum tókst vel að síga niður eftir lambi sem hafði komið sér í sjálfheldu í Krýsuvíkurbjargi. Formaður Björgunarsveitar Hafnarfjarðar segir að lambið hafi verið kampakátt að komast aftur til kindanna á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Þriggja bíla á­rekstur á Reykja­nes­braut

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut um fjögurleytið í dag. Engin slys urðu á fólki en fjarlægja þurfti tvo bílanna af vettvangi með kranabíl. 

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu

Einn þeirra níu sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á innflutningi á sögulegu magni fíkniefnis með flutningskipi sem kom til hafnar í  Straumsvík hlaut dóm fyrir morð í Danmörku árið 2011. Hann hefur áður verið í haldi lögreglu grunaður um stórfellt fíkniefnamisferli. 

Innlent
Fréttamynd

„Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“

Lögregluþjónn hjá rannsóknardeild spyr sig hvers vegna svona mikil eftirspurn sé eftir kókaíni og amfetamíni á Íslandi enda ekki um ódýr fíkniefni að ræða. Þegar sé búið að slá met í fíkniefnahaldlagninu í ár en met var síðast slegið í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni

Lögregla réðst í húsleit víða á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á 106 kílógrömmum af kókaíni sem fundust í álflutningaskipi við álverið í Straumsvík í síðustu viku. Níu hafa verið handteknir. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu en virði fíkniefnanna er metið á hátt í þrjá milljarða króna.

Innlent
Fréttamynd

Réðst að hópi drengja í sund­laug

Karlmaður réðst að hópi drengja í sundlaug í vesturhluta borgarinnar eftir að þeir renndu sér á eftir honum í rennibraut og lentu á manninum og ungum syni hans. Greint er frá málinu í dagbók lögreglu en ekki er tekið fram hvar atvikið átti sér stað.

Innlent
Fréttamynd

Bylgju­lestin mætir á Hjarta Hafnar­fjarðar á laugar­dag

Bylgjulestin verður á opnunarhelgi bæjar- og tónlistarhátíðarinnar Hjarta Hafnarfjarðar á morgun laugardag en hátíðin hófst formlega í gær fimmtudag. Bylgjulestin verður í beinni útsendingu á laugardag milli kl. 12 og 16 og að þessu sinni eru lestarstjórarnir engir aðrir en tvíeykið góðkunna Gulli Helga og Jón Axel sem fá góða gesti í heimsókn.

Lífið samstarf