Jafntefli og tvö rauð spjöld á loft í slagnum um Katalóníu Barcelona mætti nágrönnum sínum í Espanyol í fyrsta leik dagsins í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Með sigri hefðu Börsungar náð tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Fótbolti 31. desember 2022 15:15
Varamaðurinn Rashford hetja Man United Fyrsti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni fór fram á Molineux-vellinum þar sem heimamenn í Wolves tóku á móti Manchester United. Fór það svo að gestirnir unnu 1-0 sigur þar sem Marcus Rashford skoraði eina mark leiksins. Enski boltinn 31. desember 2022 14:25
Óskar Hrafn var á blaði hjá Kalmar Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks í fótbolta, var á blaði hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Kalmar FF þegar liðið var í þjálfaraleit á dögunum. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Óskar Hrafn er orðaður við lið í Svíþjóð. Íslenski boltinn 31. desember 2022 12:01
Al Nassr kynnir Ronaldo til leiks: Á að hvetja framtíðarkynslóðir Nýjasta lið Cristiano Ronaldo, Al Nassr, hefur kynnt leikmanninn til leiks. Félagið telur að Ronaldo muni hvetja drengi og stúlkur landsins til að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Fótbolti 31. desember 2022 11:30
„Kaíró vinstri, inn á milli eitt og tvö og svo bara upp í skeytin“ Bjarni Mark Antonsson Duffield og Ólafur Andrés Guðmundsson eru greinilega undirbúa sig nú fyrir komandi landsliðsverkefni. Bjarni Mark er í A-landsliðshóp Íslands í fótbolta á meðan Ólafur Andrés er á leiðinni á HM í handbolta. Fótbolti 31. desember 2022 11:01
Ísak Bergmann um eigið hugarfar: „Ég hugsa hraðar en ég hleyp“ Ísak Bergmann Jóhannesson, landsliðsmaður Íslands í fótbolta og leikmaður Danmerkurmeistara FC Kaupmannahafnar, segist til í að gera allt til að vinna. Þá telur hann sig spila betur gegn góðum liðum en á slökum völlum „upp í sveit í Danmörku.“ Fótbolti 31. desember 2022 10:01
Sér eftir að hafa fengið sér Messi húðflúr á ennið Fólk missti sig misvel í gleðinni eftir að Argentína varð heimsmeistari í knattspyrnu karla þann 18. desember eftir sigur á Frakklandi í mögnuðum leik. Einn stuðningsmaður Argentínu gekk svo langt að fá sér húðflúr á ennið þar sem stóð „Messi.“ Fótbolti 31. desember 2022 08:00
Endaði í fanginu á Pelé: „Þykir mjög vænt um þessa mynd“ Þeir eru ekki margir sem eiga mynd af sér í fanginu á sjálfum Pelé. En Hafþór Theodórsson getur stært sig af því. Fótbolti 31. desember 2022 07:01
Benzema kom Real til bjargar í blálokin Spænska úrvalsdeildin í fótbolta er farin af stað eftir HM pásuna og lentu Spánarmeistarar Real Madríd í vandræðum gegn Real Valladolid í kvöld. Franski sóknarmaðurinn Karim Benzema bjargaði meisturunum með tveimur mörkum undir lok leiks, lokatölur 0-2. Fótbolti 30. desember 2022 22:30
Ótrúleg Faes-staða miðvarðarins kom Liverpool til bjargar Wout Faes, 24 ára gamall miðvörður Leicester City, reyndist hetja Liverpool þegar Refirnir heimsóttu Anfield í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Gestirnir komust yfir snemma leiks en tvö ótrúleg sjálfsmörk Faes tryggðu Liverpool 2-1 sigur. Enski boltinn 30. desember 2022 22:00
„Ég ætla ekkert að gefast upp“ Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, ein af okkar efnilegustu knattspyrnukonum, er loks byrjuð að spila á ný eftir löng og erfið meiðsli. Hún spilar með þýska stórveldinu Bayern München og bíður spennt eftir að fá að sanna sig. Fótbolti 30. desember 2022 20:30
Fyrrum Eyjastelpan Lacasse eftirsótt af stærstu liðum Evrópu Cloé Lacasse lék með ÍBV í efstu deild kvenna í fótbolta frá 2015 til 2019. Hún spilar nú með Benfica í Portúgal en það stefnir í að hún færi sig um set á nýju ári. Hún er orðuð við nokkur af stærstu liðum álfunnar. Fótbolti 30. desember 2022 19:00
Staðfesta að Ronaldo hafi skrifað undir í Sádi-Arabíu Það er klappað og klárt að Cristiano Ronaldo, einn besti knattspyrnumaður allra tíma, muni enda ferilinn í Sádi-Arabíu. Þessi 37 ára gamli Portúgali hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Al Nassr þar í landi. Fótbolti 30. desember 2022 18:03
Klopp líkir Nunez við Lewandowski Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur tröllatrú á Darwin Nunez og líkir honum við einn besta framherja heims. Enski boltinn 30. desember 2022 16:45
Einstök ævi Pelés á 25 mínútum | Myndbönd Brasilíska fótboltagoðið Pelé lést í gær, 82 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Genginn er þar einn besti fótbolta- og íþróttamaður sögunnar. Fótbolti 30. desember 2022 13:46
Myndaveisla frá heimsókn Pele: Reif í einn ljóshærðan hnokka fyrir myndatöku „Þetta er mjög eftirminnilegt. Það átti að fara að loka dyrunum að einhverjum sal þar sem eðalmenni áttu að fá að vera í friði. Þá rífur hann í mig,“ segir Einar Jónsson um kynni sín af knattspyrnugoðsögninni Pele. Svarta perlan kvaddi þennan heim 82 ára að aldri í gær eftir glímu við krabbamein. Fótbolti 30. desember 2022 12:25
Mun aldrei segja að Messi sé sá besti í sögunni Reglulega er umræðunni um hver sér besti fótboltamaður allra tíma kastað fram. Sú hefur verið í deiglunni eftir að Lionel Messi tryggði sér langþráðan heimsmeistaratitil. Fótbolti 30. desember 2022 11:31
Gaf frá sér milljónir: „Hvaða verðmiða seturu á sál þína?“ Brasilíumaðurinn Adriano var um tíma talinn á meðal allra bestu framherja heims og átti framtíðina fyrir sér í fótboltanum. Það fjaraði þó hratt undan ferli hans og segist hann hafa þurft að gefa undan geigvænlegri pressu. Fótbolti 30. desember 2022 09:31
Bróðir Balotelli ákærður fyrir líkamsárás Enoch Barwuah, bróðir fyrrum ítalska landsliðsmannsins Mario Balotelli, er sagður hafa lent í áflogum rétt fyrir jól í ítölskum fjölmiðlum og á yfir höfði sér kæru fyrir líkamsárás. Fótbolti 30. desember 2022 08:30
Þriggja daga þjóðarsorg lýst yfir Brasilísk yfirvöld hafa lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna andláts knattsyrnugoðsagnarinnar Pelé, sem lést í gær. Fjölmargir hafa minnst kappans. Fótbolti 30. desember 2022 07:52
Ein mesta íþróttahetja sögunnar fallin frá: „Fyrir tíma Pelé var fótbolti bara íþrótt“ Edson Arantes do Nascimento, betur þekktur sem brasilíska knattspyrnugoðsögnin Pelé, lést í kvöld, 82 ára að aldri. Pelé er af mörgum talinn einn allra besti knattspyrnumaður sögunnar. Fótbolti 29. desember 2022 23:01
Nýtir pirringinn yfir að hafa misst af HM til að skora meira Norski markahrókurinn Erling Braut Haaland segist nýta pirringinn yfir því að hafa þurft að horfa á HM í Katar í sjónvarpinu sem hvata til að skora fleiri mörk í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Fótbolti 29. desember 2022 18:01
Áramótabomba í Breiðholtinu Gambíski framherjinn Omar Sowe er genginn í raðir Lengjudeildarliðs Leiknis R. Hann kemur frá Íslandsmeisturum Breiðabliks. Íslenski boltinn 29. desember 2022 16:17
Berlusconi vill Maldini Silvio Berlusconi, forseti ítalska A-deildarliðsins Monza, vill styrkja leikmannahóp þess fyrir komandi átök á nýju ári í janúarglugganum. Hann lítur nú til sonar gamals félaga. Fótbolti 29. desember 2022 16:00
Van Dijk sannfærði Gakpo um að velja Liverpool Virgil van Dijk átti stóran þátt í því að sannfæra samherja sinn í hollenska landsliðinu, Cody Gakpo, um að ganga í raðir Liverpool. Enski boltinn 29. desember 2022 15:17
Guardiola kemur „kynæsandi“ Kalvin til varnar Pep Guardiola, stjóri Manchester City, gefur lítið fyrir orðræðu breskra fjölmiðla um að Kalvin Phillips, miðjumaður liðsins, sé ekki í standi. Enski boltinn 29. desember 2022 14:31
Bjarni hitti í Mark hjá Arnari Þór Bjarna Mark Antonssyni hefur verið bætt við hóp íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir leikina gegn Svíþjóð og Eistlandi á Algarve í næsta mánuði. Fótbolti 29. desember 2022 13:43
Var kallaður svikari og rekinn í beinni: „Þetta er týpískur Mourinho“ Lögmaður Ricks Karsdorp, leikmanns Roma, gagnrýndi José Mourinho fyrir meðferð hans á leikmanninum. Fótbolti 29. desember 2022 13:01
Fyrirliði Englands óttaðist að missa af EM vegna legslímuflakks Fyrirliði Evrópumeistara Englands, Leah Williamson, óttaðist að missa af leikjum á Evrópumótinu sökum verkja vegna legslímuflakks, eða endómetríósu. Fótbolti 29. desember 2022 11:31