FH staðfestir komu Kjartans Henrys FH hefur tilkynnt komu Kjartans Henrys Finnbogasonar til liðsins frá KR. Hann mun því spila með liðinu á komandi sumri í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 10. janúar 2023 12:29
Fjórir þjálfarar úr bandarísku kvennadeildinni í ævilangt bann Bandaríska kvennadeildin í fótbolta, NWSL, hefur dæmt fjóra fyrrum þjálfara í deildinni í ævilangt bann í kjölfar rannsóknar á kynferðisbrotum og eða harðstjórn í þeirra þjálfaratíð. Fótbolti 10. janúar 2023 11:31
Trúir ekki að United ætli að fá Weghorst: „Þetta hlýtur að vera hrekkur“ Wesley Sneijder trúir því ekki að Manchester United ætli að semja við hollenska framherjann Wout Weghorst og segir að um hrekk hljóti að vera að ræða. Enski boltinn 10. janúar 2023 11:00
Stóðu ofan á bíl til að horfa á leikinn gegn Arsenal Nokkrir stuðningsmenn C-deildarliðsins Oxford United fundu sniðuga leið til að horfa á leik sinna manna gegn Arsenal, toppliði ensku úrvalsdeildarinnar, í 3. umferð bikarkeppninnar í gær. Enski boltinn 10. janúar 2023 09:30
Segir að fólki vökni um augun þegar það kemst að því af hverju Tuchel var rekinn Fólki mun vökna um augun þegar það kemst að því af hverju Todd Boehly, eigandi Chelsea, rak Thomas Tuchel úr starfi knattspyrnustjóra liðsins. Enski boltinn 10. janúar 2023 08:32
Margrét hitti goðsögnina Buffon strax á fyrsta degi Margrét Árnadóttir samdi við lið Parma í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á dögunum. Hún var vart lent á Ítalíu þegar hún hafði fengið sjálfu með einni af skærustu stjörnum Parma, goðsögninni Gianluigi Buffon. Fótbolti 9. janúar 2023 23:30
Keflavík byrjað að safna liði Eftir að hafa statt og stöðugt misst leikmenn úr leikmannahópi sínum hefur Keflavík loks sótt liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla í fótbolta. Sá heitir Gunnlaugur Fannar Guðmundsson og lék síðast með Kórdrengjum í Lengjudeildinni. Íslenski boltinn 9. janúar 2023 22:30
Skytturnar kláraðu C-deildarliðið í seinni hálfleik Arsenal vann C-deildarlið Oxford United 3-0 í ensku bikarkeppninni í fótbolta í kvöld. Öll mörkin komu í síðari hálfleik. Enski boltinn 9. janúar 2023 22:00
Kjartan Henry í þann mund að semja við FH Samkvæmt heimildum hlaðvarpsins Dr. Football mun FH tilkynna að framherjinn Kjartan Henry Finnbogason sé genginn í raðir félagsins og muni spila með því í Bestu deild karla í fótbolta næsta sumar. Íslenski boltinn 9. janúar 2023 20:45
Rúnar Alex hélt hreinu í stórsigri á meisturunum Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson hélt hreinu þegar lið hans Alanyaspor vann 5-0 stórsigur á Tyrklandsmeisturum Trabzonspor í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 9. janúar 2023 20:05
Segja Félix hafa náð munnlegu samkomulagi við Chelsea Þó ekkert gangi innan vallar er líf og fjör á skrifstofu Chelsea þessa dagana. Það virðist sem portúgalski framherjinn João Félix sé að ganga í raðir félagsins á láni frá Atlético Madríd. Enski boltinn 9. janúar 2023 18:17
Hraunaði yfir dómara og var rekinn út af á eigin góðgerðamóti Þjóðverjinn Lukas Podolski, fyrrum framherji Arsenal, virðist hafa verið illa fyrir kallaður þegar hann var á meðal leikmanna á góðgerðamóti sem hann sjálfur stóð að. Fótbolti 9. janúar 2023 17:01
Antony klessukeyrði kaggann á gamlársdag Bílferð Antonys, leikmanns Manchester United, á gamlársdag endaði heldur illa. Enski boltinn 9. janúar 2023 16:01
Bale leggur skóna á hilluna Gareth Bale, leikmaður Los Angeles FC og velska landsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt að skórnir séu komnir upp í hillu. Bale er aðeins 33 ára gamall. Fótbolti 9. janúar 2023 15:33
Drama í Frakklandi: Koma Zidane til varnar eftir vanvirðingu forsetans Ummæli Nöel Le Graët, forseta franska knattspyrnusambandsins, um þjálfarann og goðsögnina Zinedine Zidane hafa kallað á hörð viðbrögð víða af. Kylian Mbappé og spænska félagið Real Madrid hafa séð sig knúin til að láta forsetann heyra það. Le Graët hefur beðist afsökunar á ummælunum. Fótbolti 9. janúar 2023 15:00
Eiður Smári minnist Vialli: „Hvíl í friði Luca“ Fyrrum landsliðsmaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen hefur minnst ítölsku goðsagnarinnar Gianluca Vialli á samfélagsmiðlinum Instagram en Vialli tapaði baráttunni við krabbamein fyrir helgi. Enski boltinn 9. janúar 2023 14:00
Roberto Martinez tekur við portúgalska landsliðinu Roberto Martinez, fyrrum þjálfari Belga, er tekinn við sem þjálfari portúgalska landsliðsins. Portúgalska sambandið staðfesti þetta á sínum miðlum. Fótbolti 9. janúar 2023 13:07
Svava kveður Brann og leiðin liggur til Englands Svava Rós Guðmundsdóttir, landsliðskona í fótbolta, er farin frá Noregsmeisturum Brann. Fótbolti 9. janúar 2023 13:01
Fyrsta stefnumót Keane-hjónanna var martröð líkast Roy Keane segir að fyrsta stefnumót hans og eiginkonu hans, Theresu, hafi verið martröð líkast. Enski boltinn 9. janúar 2023 11:30
Segir að Villa-menn hafi verið hræddir við D-deildarliðið sitt Eftir að Stevenage sló Aston Villa úr leik í 3. umferð ensku bikarkeppninnar sagði Steve Evans, knattspyrnustjóri D-deildarliðsins, að Villa-menn hefðu verið skíthræddir við hans menn. Enski boltinn 9. janúar 2023 09:31
Segir að Chelsea eigi að reka Potter: „Nú er nóg komið“ Fyrrverandi leikmaður Chelsea segir að mælirinn sé fullur eftir 4-0 tap liðsins fyrir Manchester City í ensku bikarkeppninni í gær og nú þurfi að reka knattspyrnustjórann Graham Potter. Enski boltinn 9. janúar 2023 08:02
Guardiola hvetur Chelsea til að halda tryggð við Potter Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hvetur eigendur Chelsea til að halda tryggð við þjálfara liðsins, Graham Potter, þrátt fyrir slæmt gengi liðsins á tímabilinu. Spánverjinn segir að það sé eðlilegt að þjálfarar þurfi tíma. Enski boltinn 8. janúar 2023 23:31
Englandsmeistararnir og toppliðið mætast líklega í 32-liða úrslitum Dregið var í fjórðu umferð FA-bikarsins í knattspyrnu í dag og eins og alltaf er nóg um áhugaverðar viðureignir. Englandsmeistarar Manchester City mæta annað hvort toppliði ensku úrvalsdeildarinnar, Arsenal, eða Oxford sem leikur í ensku C-deildinni. Fótbolti 8. janúar 2023 22:45
Börsungar styrktu stöðu sína á toppnum Barcelona er nú með þriggja stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir sterkan 0-1 útisigur gegn Atlético Madrid í stórleik 16. umferðarinnar. Fótbolti 8. janúar 2023 21:56
Tammy Abraham tryggði Rómverjum dramatískt jafntefli gegn meisturunum Tammy Abraham reyndist hetja Roma er hann tryggði liðinu eitt stig á ögurstundu gegn Ítalíumeisturum AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, lokatölur 2-2. Fótbolti 8. janúar 2023 21:45
Hörður og félagar misstigu sig í toppbaráttunni | Viðar skoraði í sigri Hörður Björgvin Magnússon og félagar hans í Panathinaikos þurftu að sætta sig við 1-0 tap er liðið heimsótti AEK Athens í toppslag grísku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Fyrr í dag skoraði Viðar Örn Kjartansson fyrra mark Atromitos í 2-0 sigri gegn Ionikos í sömu deild. Fótbolti 8. janúar 2023 21:30
Blikar hófu Þungavigtarbikarinn á stórsigri og FH gerði góða ferð til Keflavíkur Þungavigtarbikarinn fór af stað um helgina með tveimur leikjum þar sem FH hafði betur gegn Keflavík 2-1 og Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu stórsigur gegn Stjörnunni 5-1. Fótbolti 8. janúar 2023 20:01
Napoli jók forskot sitt á toppnum Napoli er nú með sjö stiga forskot á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir að liðið vann öruggan 2-0 útisigur gegn Sampdoria í kvöld. Fótbolti 8. janúar 2023 19:04
Andri bætti upp fyrir vítaklúðrið og bjargaði jafntefli fyrir Ísland Andri Lucas Guðjohnsen skoraði eina mark íslenska karlalandsliðsins í fótbolta er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Eistum í vináttuleik á Algarve í dag. Markið skoraði Andri af vítapunktinum eftir að hafa misnotað aðra spyrnu fyrr í leiknum. Fótbolti 8. janúar 2023 18:55
Ótrúleg endurkoma D-deildarliðsins gegn Aston Villa D-deildarlið Stevenage er komið í fjórðu umferð FA-bikarsins eftir ótrúlegan endurkomusigur gegn úrvalsdeildarfélagi Aston Villa, 1-2. Fótbolti 8. janúar 2023 18:29